Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 31

Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 31
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 31 MEÐ frumsýningu á Skýfalli kynnir Nemendaleikhúsið til sögunnar hér á Íslandi áður óþekktan höfund sem getið hefur sér gott orð í Evrópu á undanförnum áratug og er talinn fremstur í hópi spænskra leikskálda sem hafið hefur leikritun á Spáni til vegs að nýju. Áhrif Belbels á yngri kynslóð spænskra leikskálda eru umtalsverð en við hann er kennd „Belbel-aðgerðin“ sem fólst í því að í byrjun 10. áratugarins var gert sér- stakt átak á Spáni til að kynna ung leikskáld frá ýmsum héruðum fyrir atvinnuleikhúsum víðsvegar um Spán. Þetta skilaði góðum árangri og hefur Belbel sjálfur gegnt lykilhlut- verki í þessari þróun. Fyrsta frumsýning eftir leikstjórnarnám Það fer vel á því að leikstjóri sýn- ingarinnar skuli jafnframt vera að stíga sín fyrstu spor í leikstjórn á Ís- landi eftir framhaldsnám í leikstjórn við Konunglega leiklistarskólann í Kaupmannahöfn en Egill Heiðar Anton Pálsson lauk þar námi í vor en áður hafði hann útskrifast úr Leik- listarskóla Íslands vorið 1999. Egill sýndi þó strax í fyrra hvað í honum býr með sýningunni Diskópakk sem var fyrsta uppfærsla Vesturports í fyrrahaust. Egill Heiðar segir það vissulega ánægjulegt að hafa fengið þetta tæki- færi til að vinna með Nemendaleik- húsinu. Hann kveðst gera sér fulla grein fyrir þeirri sérstöðu sem Nem- endaleikhúsið hefur í íslensku leik- húslífi. „Nemendaleikhúsið var í upp- hafi hugsað sem tenging á milli náms og atvinnulífs. Það hlutverk hefur ekki breyst. Þetta er því hvorki skóli né atvinnuleikhús en er samt hvoru- tveggja um leið. Það leggur leik- stjórum sem hér vinna sérstakar skyldur á herðar gagnvart leik- urunum sem eru að stíga sín fyrstu skref og kynnast starfinu í leikhús- inu. Hér gera þau reyndar miklu meira en ætlast er til af þeim í hefð- bundnu atvinnuleikhúsi en gerir þau jafnframt sjálfstæðari og öruggari þegar út í óvissuna er komið. Það er jafnframt rétt að hafa í huga að leik- arar þroskast mishratt og hér geta því staðið hlið við hlið mjög misþrosk- aðir listamenn sem eru þó gæddir al- veg jafnmiklum hæfileikum. Að öllu þessu verður að gæta,“ segir Egill Heiðar. Leikritið Skýfall sem Sergei Belbel er einna þekktastur fyrir utan síns heimalands var frumsýnt í Barcelona árið 1992 og hefur farið víða síðan. „Þetta hentar þeim hópi sem nú er í Nemendaleikhúsinu ágætlega því í verkinu eru 5 kvenhlutverk og 3 karl- hlutverk. Sama kynjaskipting og er í leikhópnum. Verkið gerist uppi á þaki skrifstofuháhýsis og segir frá starfs- mönnum sem stelast reglulega þang- að upp til að reykja. Þau berjast fyrir tilveru sinni í hörðum heimi nafn- spjalda, dragta og fjandsamlegra yf- irtaka þar sem ekki hefur fallið dropi úr lofti í tvö ár. Í verkinu gerist það að meðan hópurinn er staddur upp á þaki flýgur flugvél inn í skýjakljúfinn andspænis. Það er rétt að hafa í huga að þetta er tíu ára gamalt verk en ekki skrifað eftir 11. september í fyrra.“ „Þetta er leikrit sem fjallar um nú- tímann sem stendur handan við húm- anisma og módernisma. Póst þetta allt saman. Hér er óttinn við að tengj- ast annarri manneskju öllu öðru yf- irsterkari en um leið er óttinn við að vera einn yfirþyrmandi. Hvað gerir fólk í slíkum heimi? Við getum ekki verið saman og við getum ekki verið ein. Guð er dauður og hvað kemur í staðinn? Þetta er svartur heimur þar sem fólk drepur hvert annað en ein- hverjir verða samt að lifa því ef allir eru dauðir fyrir hvern á ég þá að halda ímyndinni. Þetta snýst allt um ímynd, um ytri gæði, efnahag, völd og útlit. Allt snýst um að vera ofaná en ekki undir og tvö vopn eru beittust; peningar og kynferðislegt aðdrátt- arafl. Útlit og völd með öðrum orðum. Ef þú hefur þetta ertu ofan á, annars undir,“ segir Egill Heiðar og við- urkennir að þetta hljómi ekki beinlín- is sem uppskrift að gamanleikriti. „Þetta er svartur gamanleikur en Bebel pakkar þessu öllu saman inn í absúrdkómískt umhverfi þannig að þrátt fyrir grimmdina sem hann lýsir er hægt að hlæja. Hann fæst líka við að lýsa því sem kalla má skort á per- sónuleika einstaklingsins sem lýsir sér í því að þrátt fyrir frelsið og ein- staklingshyggjuna er ekkert pláss fyr- ir einstaklinginn í samfélagi okkar. Enginn þorir að skera sig úr hópnum af ótta við að verða útskúfað.“ Það eru nemendur í raftónlist- ardeild Listaháskólans sem semja og flytja tónlistina við sýninguna og seg- ir Egill Heiðar það mikilvægt fyrir upprennandi tónlistarmenn að kynn- ast starfinu í leikhúsinu. „Leikhúsið er mikilvægur atvinnumarkaður fyrir tónlistarfólk og það þarf að læra að vinna í leikhúsinu, vita hvað er hægt að gera og hvaða hlutverki tónlistin gegnir í leiksýningum. Þá er nauð- synlegt fyrir þau að kynnast vinnu- ferlinu og átta sig á því hvernig og hvenær tónlistin kemur til sögunnar. Það eru nemendur í raftónlistardeild skólans sem vinna í þessari sýningu með okkur og það hefur verið sérlega ánægjulegt samstarf.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Starað til himins í skelfingu. Verk eftir Belbel er nú sýnt hér í fyrsta sinn. Óttast aðra og að vera einn Nemendaleikhús Listaháskóla Íslands frumsýnir í Smiðjunni í kvöld kl. 20 Skýfall eftir spænska leikskáldið Sergei Belbel í leik- stjórn Egils Heiðars Antons Pálssonar. Egill Heiðar Anton Pálsson, leikstjóri sýningarinnar í Nemendaleikhúsinu. havar@mbl.is eftir Sergei Belbel í þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur. Leikarar: Þorleifur Örn Arn- arson, Björn Thors, María Heba Þorkelsdóttir, Bryndís Ásmundsdóttir, Ilmur Krist- jánsdóttir, Esther Talia Casey, Davíð Guðbrandsson og Mar- íanna Clara Lúthersdóttir. Leikstjóri: Egill Heiðar Anton Pálsson. Leikmynd og búningar: Ólaf- ur Jónsson. Lýsing: Egill Ingibergsson. Dramatúrg: Magnús Þór Þor- bergsson. Tónlist: Nemendur í tónlist- ardeild LÍH. Skýfall OKKUR er tamt að talameð stolti um sjálf-stæði þjóðarinnar.Lofa það og prísa.Enda fer það vart milli mála að tilvera okkar sem þjóðar er háð því að við höfum tilfinningar og skyldur gagnvart landi og þjóð. Ætt og uppruni, dalurinn heima, ræt- urnar og þú hrimhvíta móðir og við hrópum húrra fyrir íslenskum lands- liðum og fögnuðum handritunum heim og ekki var minni fögnuðurinn þegar lýðveldið var endurreist eða þegar landhelgisbaráttunni lauk með fullum sigri. Sjálfstæð þjóð. Þannig erum við alin upp, þannig blunda í okkur for- dómar gagnvart erlendu fólki og tor- tryggni gagnvart útlenskri ásælni. Engin Evrópu- aðild. Íslandi allt. Íslenskt, já takk. Borðum SS-pylsur og syngjum: nú er kominn sautjándi júní. Þetta er stemmningin. Þannig er ég. Í það minnsta fram að þessu. En svo eldist maður og þjóðfélag- ið fer á ská og skjön og allt í einu sit- ur maður uppi með það að eiga hálf- ítölsk afabörn eða taílenska tengdadóttur og fólkið í næsta húsi dregur útlenskan fána að húni og heldur upp á sinn sautjánda júní, kannske í maí eða september, og til eru þeir rammgerðu máttarstólpar úr íslensku atvinnulífi sem hafa forð- að sér til suðlægra landa þegar þeir komast á eftirlaunaaldurinn og gera ekkert með gamla Frón. Og nú er það ekki lengur bevís upp á ættjarðarást að kaupa íslenskt í matinn. Eða lesa Íslendingasög- urnar. Eða eiga yfirleitt nokkuð undir sér á Íslandi. Þeir eru mestir og bestir sem fjárfesta erlendis og gera garðinn frægan á erlendri grund. Koma helst ekki heim. Og Íslendingar hafa eignast nýja trú og nýja sýn, sem ekki er bundin við fósturjörðina og Íslandi allt. Sú trú snýst um markaðinn. Markaður- inn, maður, það er fyrirheitna land- ið. Frelsið er ekki fólgið í frjálsu landi og frjálsri þjóð heldur í því frelsi sem birtist okkur í þeim boð- skap að markaðurinn færi okkur vel- ferð og velsæld, með því að opna hann og víkka, afnema hömlur og höft og þann afdankaða hugs- unarhátt að Ísland sé bara fyrir Ís- lendinga. Sem er í sjálfu sér alveg rétt, ekki satt, og ég er sammála síðasta ræðu- manni, sem segir að frelsi markaðar- ins hafi fært okkur aukinn hagvöxt og betri lífskjör. Heimurinn er orð- inn eitt atvinnusvæði, samfélag þjóð- anna er að afnema landamæri, Ís- lendingar flytja út til Kanarí, Pól- verjar flytjast í Garðinn, Baugur opnar stórverslun í Stokkhólmi, Al- coa endureisir byggðina fyrir aust- an. Góðir og gegnir menn haldast ekki lengur við í Seðlabankanum vegna þess að markaðurinn er orð- inn svo spennandi og Björgólfur vin- ur minn verður bráðum búinn að eignast Landsbankann og drottinn minn dýri, hvað selja þeir næst? Nú síðast seldi HB-fjölskyldan sitt gamla útgerðarfyrirtæki í þágu hag- ræðingarinnar og markaðs- lögmálanna og kvótinn fór með og Skagamenn eru orðnir leiguliðar í léninu. Og allir syngja Íslands þús- und ár, þegar það á við, og Ísfirð- ingar halda fjölþjóðahátíð til að kynnast nágrönnum sínum og næsta vor ganga landsmenn að kjörborð- inu til að kjósa nýtt Alþingi Íslend- inga til að afgreiða frumvörp og reglugerðir samkvæmt pöntun frá Brussel. Til að standa vörð um léns- herra markaðarins. Þær heilögu kýr. Ég verð stundum hálfringlaður í mínum gamla þjóðernisrembingi, sem rekst stundum á við lögmál markaðarins, sem ég trúi líka á, og veit ekkert hvar ég stend í þessu Evrópusambandsmáli, nema það að mér er sagt og raunar þjóðinni allri, að aðild að Evrópusambandinu komi ekki til greina meðan þjóðin fái ekki að stjórna fiskveiðunum. Til hvers börðumst við fyrir landhelginni? spurði alþingismaðurinn og vill ekk- ert með Evrópu. Bíddu nú við, hugsa ég! Til hvers börðumst við? Er ekki búið að af- henda fiskinn í landhelginni þeim út- gerðaraðilum sem selja hann og kaupa sem sína prívateign? Hvað varðar okkur um landhelgina þegar við eigum ekki lengur neitt í þessum fiski sem þar syndir? Nú syndir hann og veiðist samkvæmt mark- aðnum og hagsmunum Eimskips, Granda og Samherja, sem eru hags- munir fjárfesta, sem eru hagsmunir þeirra Íslendinga, sem skilja að markaðurinn verður að vera án hafta og afdankaðs hugsunarháttar um landamæri og landhelgi. Þjóð- areign. Hún er úrelt fyrirbæri á torgi þeirrar nýtrúnaðarstefnu að allt er falt, allt er forgengilegt, allt er afstætt á þessum umbrotatímum skjótfengins gróða og sérhagsmuna í atvinnulífi. Halldór Laxness segir á einum stað í bókum sínum: „Hvað vitnar um hnignun þjóðernis, ef ekki það að leita einkenna sinna mörg hundruð ár aftur í tímann, að skreyta sig með nátthúfum langafanna?“ Nóbelsskáldið ætlaði ekki að skreyta sig með þessum nátthúfum. Það ætla markaðurinn og postular hans ekki að gera. Það er helst ég, sem verð bráðum langafi sjálfur, sem skolast til í borði flóðs og fjöru, sem veit ekki mitt rjúkandi ráð, með sjálfstæði þjóðarinnar andspænis lögmálum markaðarins; annars veg- ar draumkennda sýn um sameign þjóðarinnar, fjöreggið og nátthúfuna og hins vegar afkomu fjárfestanna. Nema þetta leysist að sjálfu sér þegar fjárfestarnir verða endanlega búnir að eignast landið og miðin og fiskinn og fólkið. Þá getum við aftur sungið Ísland ögrum skorið og tekið ofan fyrir þjóðfánanum (og tekið of- an nátthúfuna) þegar kjölfestufjár- festarnir og litla lénið Ísland er eitt og það sama og rekstrarafgangur (og afkomubati) allra er í höfn. Nátthúfur langafanna HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Ellert B. Schram ebs@isholf.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.