Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 34

Morgunblaðið - 20.10.2002, Side 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ TVEIR meðlimir í Félaginu Ís- land-Palestína reyna með greinar- skrifum í Morgunblaðinu 27. ágúst og 8. september sl. að draga úr áreiðanleika frásagnar minnar, sem birtist í Morgunblaðinu 11. ágúst sl. undir nafninu „Baráttan um Ísrael“. Það er ekki ætlun mín að taka upp þrætur við fylgismenn Palestínu- manna um hver er gerandi og hver er þolandi í þessum erfiðu erjum. Ég hefi lengi veitt því eftirtekt að miðlimir félagsins eru afburðar duglegir að vinna málstað sínum fylgi og nota hvert tækifæri sem gefst til að koma sínum sjónarmið- um á framfæri. Hættir þeim stund- um til, eins og sumum Palestínu- mönnum sjálfum, að endurbæta frásögnina af viðburðum sínum mál- stað í vil. Má segja að haldið sé áfram uppteknum hætti er fjallað er um greinarskrif mín. Það er því miður raunveruleikinn í þessu stríði Ísraelsmanna og Palestínu-araba að skynsemin hefur beðið ósigur fyrir heljarafli tilfinninganna sem lýtur engu nema eigin lögmálum og hefur skipt fólki í hópa, með eða á móti Ísrael. Fjöldamorðin í Jenín Látið er að því liggja að lítið sé að marka frásögn mína af tölu lát- inna í stríðinu sem hófst í sept- ember árið 2000, af því að ég nefndi máli mínu til stuðnings stofnunina ICT, International Policy Institude for Counter-Terrorism, en þar lét ég þess m.a. getið að Palestínu- menn hefðu sjálfir myrt án dóms og laga u.þ.b. 200 Palestínu-araba úr eigin röðum, íbúa á Vesturbakkan- um og Gazasvæðinu sem höfðu sýnt andúð á sjálfsmorðsárásum á sak- lausa borgara í Ísrael. Þá gefa greinarhöfundar ekki mikið fyrir tilvitnun mína um fjölda fallinna í innrásinni í Jenín á þessu ári. Sam- hliða er fullyrt að Ísraelsmenn hafi neitað SÞ um gera hlutlausa rann- sókn á atburðunum í Jenín. Hér virðist mér greinarhöfundur treysta fullmikið á sinnuleysi og minnisleysi lesenda Morgunblaðsins í mistúlkun sinni á atvikum. Í síðasta mánuði, þ.e. í ágúst 2002, kom út skýrsla unnin af nefnd á vegum SÞ, með vitund og í samstarfi við bæði Ísr- aels- og Palestínumenn, um innrás- ina í Jenín. Þar kemur fram að töl- ur Palestínumanna um fjölda fallinna voru mjög ýktar, en þeir höfðu haldið því fram að u.þ.b. 5.000 saklausir borgarar hefðu látist í innrásinni. Rannsóknarefnd SÞ seg- ir að 52 Palestínumenn hafi fallið í bardögunum í innrásinni og að flestir þeirra hafi verið með vopn, eða með öðrum orðum verið stríðs- menn. Þetta er furðulegur óáreið- anleiki í frásögn af atburðum, sem vöktu alheimsathygli vikum saman. Því miður er þetta ekki eina tilfellið þar sem forystumenn Palestínu- manna færa staðreyndir úr lagi. Það er því óheppileg tilviljun fyrir greinarhöfunda og félagsmenn í Fé- laginu Ísland-Palestína að þeir skuli reyna að gera frásögn mína frá 11. ágúst ótrúverðuga á sama tíma og skýrsla SÞ kemur út. Friðartilboðið frá árinu 2000 Greinarhöfundar telja George Bush, forseta Bandaríkjanna, og Dennis Ross, sendiherra og aðal samningamann Bandaríkjanna í deilum Palestínu- og Ísraelsmanna í stjórnartíð tveggja fyrrverandi for- seta Bandaríkjanna ekki hlutlausa í ummælum sínum um formanninn Arafat. Jafnframt að Arafat geti ekki lengur haldið aftur af her- skáum hópum og hryðjuverka- mönnum, eins og hann gerði á ár- unum 1996-2000, því nú sé búið að grafa undan allri öryggis- og sam- félagsþjónustu á sjálfstjórnarsvæð- unum. Höfuðatriðið í þessu efni er það að árið 2000 stóð Palestínumönnum til boða friðarsamningur, sem þeir höfnuðu, þar sem þeir fengu sínar kröfur að mestu fram. Samningur- inn hefði tryggt þeim frið og frelsi fyrir saklausa íbúa Palestínu og Ísr- aels um langa framtíð. Hann hefði fært Palestínumönnum 97% af Vesturbakkanum, landspildur úr landi Ísraels, allt Gazasvæðið, helm- inginn af Jerúsalem og Musteris- hæðirnar, brottflutning íbúa af landnemabyggðum og sjálfstætt ríki Palestínumanna. Með þessu sáttatilboði fylgdi fyrirheit Banda- ríkjanna, Evrópusambandsins, al- þjóðasamfélagsins og Alþjóðabank- ans um liðveislu og fjárhagslegan stuðning við endurreisn og upp- byggingu í landi Palestínumanna. Hefðu Palestínumenn gengið að þessu sáttaboði var þeim í lofa lagið að taka síðar upp frekari viðræður við Ísraelsmenn í ljósi reynslunnar. Í þessu samningaferli var Dennis Ross þátttakandi ásamt Bill Clint- on, forseta Bandaríkjanna. Þeir hafa báðir lýst vonbrigðum sínum með sviksemi og undanbrögð Ara- fats og annarra leiðtoga Palestínu- manna á örlagastundu. Margir for- ystumenn Arabaríkja hafa tekið undir ummæli þeirra. Þeir segja að Arafat hafi ekki einu sinni hirt um að kynna fólkinu í Palestínu frið- artilboðið. Þess í stað hófst mikill innflutningur á vopnum og sprengi- efni til Palestínu og hvatt var til hryðjuverka af meiri hörku en nokkru sinni fyrr. Þetta varð til- efnið og er skýringin á hörðum við- brögðum Ísraelsmanna við hryðju- verkum Palestínumanna. Allt tal um bandarískt fjármagn og hágæða vopn er út í hött í þessu samhengi. Bæði Ísraels- og Palest- ínumenn njóta fjárstuðnings frá Bandaríkjunum. Jafnframt þiggja Palestínumenn mikinn fjárstuðn- ings frá öðrum þjóðum þ. á m. frá Evrópusambandinu. Margir halda því fram að mikill hluti þess fari í ýmiss konar spillingu meðal leiðtog- anna. Það er fróðlegt í þessu sam- hengi, af því að mörgum verður tíð- rætt um fjárstuðning Banda- ríkjamanna til Ísraels, að hann er mun lægri en fjárstuðningur Dana til Færeyinga á hvern íbúa. Ísr- aelsmenn greiða kostnaðinn af stríðsrekstrinum að mestu leyti sjálfir með háum sköttum og álög- um á þegna sína. „Íslamistar“ eru ekki í friðarhug Á ráðstefnu sem Hjálparstarf kirkjunnar stóð fyrir 4. september sl. um málefni Ísraels og Palestínu flutti Steinunn Jóhannesdóttir, rit- höfundur, fróðlegt og gott erindi sem hún nefndi „Íslam í pólitískum ógöngum“. Þar sagði hún m.a: „Það er mín skoðun að ástandið í Palestínu, svikráðin við Palestínu- menn við stofnun Ísraelsríkis, töpuð stríðin, hernámið, landránið, niður- lægingin, markviss eyðilegging samfélags þeirra sem á sér stað í skjóli Bandaríkjanna hafi alið af sér uppreisnarhreyfingu sem leitt hefur þessa litlu þjóð og þá sem finna til frændsemi við hana í algjöra blind- götu haturs og hefnda. Allt sem er vestrænt er vont og spillt, öll hin gyðing-kristna eining með Banda- ríkin í broddi fylkingar. Þau eru því fremsta skotmark hins hálf-palest- ínska Osama bin Ladens. Hann hef- ur lýst yfir heilögu stríði gegn þeim. Og stríðsmenn hans eru margir og dreifðir um víða veröld, en tengdir saman í íslam. HAMAS tekur ekki við fyrirmælum frá Arafat, miklu frekar frá Osama bin Laden, hinum vellauðuga og áhrifamikla lærisveini Azzams frá Jenin. Íslamistar vilja enga samninga við Ísrael, engar ráðstefnur, engar viðræður.“ Hér kemst Steinunn að þeirri niðurstöðu að baráttan í Ísrael standi ekki aðeins um landið og þjóðflokka heldur jafnframt og ekki minnst um trú og trúarleg efni. Eftir Ómar Kristjánsson „Það er sannfæring mín að flest- ir Palestínu- menn vilji frið við Ísrael og það er jafnframt sannfæring mín að flestir Ísraels- menn vilji frið við Palestínumenn.“ RAUNVERULEIKINN Í BARÁTTUNNI UM ÍSRAEL Bómullar-satín og silki-damask rúmföt Skólavörðustíg 21, sími 551 4050 Á FLÚÐUM Til sölu glæsilegt einbýlishús, 245 m², byggt 1988. 5 svefnher- bergi, tvö baðherbergi, tvöfaldur bílskúr og 40 m² tómstundarými á neðri hæð. Auðvelt að gera litla íbúð á neðri hæð. Fallegur full- búinn garður. Áhv. 5,6 millj. Laust strax. 250 m í alla þjónustu, íþróttahús og sundlaug. Á Flúðum er: Góður skóli og leikskóli. Góð heilsugæsla. Stutt á golfvöll og í aðra útivist. Næg atvinna, mikil uppbygging og gott mannlíf. Uppl. í síma 486 6632 eða hjá fasteignasölunni Árborgum, sími 482 4800. Opið hús í dag, sunnudag, milli kl. 14-16. Um er að ræða fallega 2ja herbergja íbúð, 63,5 fm, á 3. hæð í nýviðgerðu húsi. Nýlegt parket. Stór- ar suðursvalir. Fallegt útsýni. Áhv. 3,5 millj. Verð. 8,5 millj. Halla og Steingrímur bjóða ykkur velkomin. OPIÐ HÚS AUSTURBERG 12 Sími 568 5556 Opið hús í dag, sunnudag, milli 14-17. Um er að ræða mjög fallega 2ja her- bergja íbúð 53,5 fm í kjallara í þríbýli. Sérinngangur. Nýjar innréttingar. Park- et. Nýlegt þak. Hitalagnir og raflagnir endurnýjaðar. Góð staðsetning. Verð 8,9 millj. Agla tekur vel á móti ykkur. OPIÐ HÚS GRENIMELUR 15 Sími 568 5556 jöreign ehf Sími 533 4040 www.kjoreign.is Ármúla 21, Reykjavík Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali, Stórglæsileg algjörlega endurnýjuð 3ja-4ra herb. íbúð á 1. hæð. Nýtt eldhús, tæki, gólfefni, hurðir og bað. Rafmagn og lagnir að húsi. Rúmg. stofur og svefnh. Verð 12,9 millj. Áhv. 6,4 millj. húsbr. Nr. 3031 Skrifstofan opin í dag frá kl. 12-14 NÝJAR EIGNIR Á SKRÁ HJÁ OKKUR STIGAHLÍÐ Vorum að fá í einkasölu góða 3ja-4ra herbergja íbúð um 80 fm á 2. hæð ásamt sérbyggðum bílskúr. Gott skipulag, ný innrétt. í eldh. Verð 13,5 millj. Nr. 2359 HVASSALEITI - BÍLSKÚR Nýlegt vandað einbýlish. Hæð og ris m. innb. bílskúr, ca 220 fm. Sérlega gott fyrirkomulag, frábær staðsetning. Rúmgóðar stofur, arinn. Vönduð eign en án gólfefna á neðri hæð. Nr. 2355 BOLLAGARÐAR - SELTJ. Stórgóð sérhæð á 3ju hæð í góðu húsi. Mikið endurnýjað s.s. hiti, rafmagn, gluggar að hluta, hús nýl. málað. Suðursvalir, 3 sv.herb. 2 stofur. Þvottahús í íbúð. Verð 15,0 millj. Nr. 2343 SKIPHOLT - BÍLSKÚR Falleg 2ja herb. íbúð á 2. hæð um 53 fm í lyftuhúsi. Nýl. innréttingar, parket, suðursvalir. Laus fljótlega. Verð 7,9 millj. Nr. 2346 ASPARFELL Glæsileg ný endaíbúð á efstu hæð, sérinngangur frá svölum. Nýtt 3ja hæða hús, íbúðin er í vesturenda á efstu hæðinni með gífurlegu út- sýni. Stórar suðursvalir. ÍBÚÐIN ER TIL AFHENDINGAR STRAX. VERÐ 14,9 MILLJ. STÆRÐ 113,5 FM. NR. 2339 KLAPPARHLÍÐ Fallega innréttuð 3ja herb. íbúð á 6. hæð. Glæsilegt útsýni. Íbúðin snýr í austur, norður og vestur. Þjónustumiðstöð í húsinu. Verð 16 millj. Stærð 88 fm. Nr. 2338 HRAUNBÆR - ELDRI BORGARAR Mjög góð 2ja herb. jarðhæð í Bústaðahverfinu. Sérinngangur, sam. garður, sam. þvottahús m. efri hæð. Rúmgóð og björt. Verð aðeins 8,5 millj. Nr. 2350 ÁSGARÐUR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.