Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 35
Andi íslamisma hvílir yfir araba- heiminum. Hann er ófús til sátta. Vinna skal aftur þau lönd sem voru íslömsk. Í nafni íslam ganga músl- imar fram hver af öðrum, ungir sem aldnir, konur sem karlar og myrða saklausa borgara með sjálfsmorðs- aðferðinni með fyrirheitið um upp- hefð hjá Allah á himnum að vopni. Yfirlýsingin frá 1948 um að útrýma öllum gyðingum úr landinu, sem einu sinni hét Palestína, stendur enn. Í nafni íslam eru starfandi hryðjuverkasamtök um allan heim. Andstæðingarnir eru öll önnur trúarbrögð, en fyrstir koma gyð- ingar og kristnir vinir þeirra. Tekið skal fram að á þetta eingöngu við suma múslima. Margir þekkja til Arafats Í Bjarma, tímariti um kristna trú, sem gefið er út af KFUM og KFUK og Sambandi íslenskra kristniboðsfélaga, er viðtal við sr. Ólaf Felixson, en hann er sonur kristniboðshjónanna Felixar Ólafs- sonar og Kristínar Guðleifsdóttur. Hann lærði kristniboðs- og guð- fræði í Noregi og Englandi og vígð- ist til prests í dönsku þjóðkirkjunni 1985. Hann gjörþekkir málefni Mið- Austurlanda, hefur oft hefur verið fararstjóri þar og sjúkrahúsprestur í Jórdaníu í fjölda ára. Í viðtalinu segir hann m.a. þetta um Arafat: „Ég hef í áraraðir fylgst með yf- irlýsingum Arafats bæði á ensku og arabísku. Það vekur undrun mína hve auðtrúa menn eru á það sem hann segir. Arafat leikur tveim skjöldum, talar tveim tungum, talar við vesturlandabúa um frið og sátt, en við múslima um hve göfugt það sé að deyja sem píslarvottur og hvetur hina ungu til að fórna lífi sínu fyrir Jerúsalem.“ Ólafur bendir á aðra og mun al- varlegri staðreynd um raunveruleg- an og einbeitan vilja leiðtoganna meðal Palestínumanna til að eyða Ísrael og gyðingum þegar hann segir: „Arabískar skólabækur þegja um tilvist Ísraels og ríkið vantar í landabréfabækur þeirra. Ekki er það heldur friðarviðleitni að stærð- fræðidæmin skuli hljóða svona: Fimm gyðingar standa fyrir framan þig og þú skýtur þrjá, hve margir eru eftir? Börn og unglingar eru al- in upp til fórnarvilja og píslarvætt- isdauða, t.d. með sjálfsmorði. Þeim er lofað öllu fögru í paradís og fjöl- skyldum þeirra er launað.“ Hér nefnir þessi íslenski þjónn í dönsku þjóðkirkjunni, sem gjör- þekkir málefni Mið-Austurlanda og tvöfeldni leiðtoga Palestínu-araba, helstu hindrunina fyrir friði á þessu svæði. Það þarf því engan að undra þótt margir hrykkju við þegar sjón- varpið birti myndir úr ferð utanrík- isráðherra Íslands í ferð hans til Ísraels í júní sl. í faðmlögum við formann Arafat. Sú vinskaparsýn- ing átti ekkert skylt með siðum í þessum heimshluta. Aðrir þjóðar- leiðtogar sem heimsótt hafa sjálf- stjórnarsvæðin hafa ekki hagað sér með þessum hætti. Reyndar bætti utanríkisráðherra um betur er hann lýsti sig algjörlega andvígan tillögu George Bush um nauðsyn á leið- togaskiptum meðal Palestínu-araba. Vinur þýðir ekki að vera óvinur Við megum ekki gleyma því að múslimar eru fólk sem Guð elskar. Íslendingar eiga hlutverk í að koma á friði meðal allra manna. Það á að vera sameiginlegt verkefni okkar. Það er sannfæring mín að flestir Palestínumenn vilji frið við Ísrael og það er jafnframt sannfæring mín að flestir Ísraelsmenn vilji frið við Palestínumenn. Allt frá stofnun Ísr- aelsríkis hafa íbúar þess lifað í stöð- ugum ótta við hryðjuverk og stríð. Kristin trú, kristin kirkja og Ísrael eru nátengd. Þessi tengsl verða ekki sundur slitin. Átök á forsend- um trúarbragða hafa alltaf staðið og fagnaðarerindið verður boðað með- an enn er til kristinn maður. Fylg- ismenn Ísraels og Palestínu ættu að sameinast um að hvetja báða aðila til að sýna réttsýni og samnings- vilja. Höfundur er framkvæmdastjóri. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 35 OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 14-17 Digranesheiði 1 - Kópavogi FASTEIGNA MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/ Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali. Mjög vel staðsett 144 fm ein- býlishús, hæð og ris, í suður- hlíðum Kópavogs. Húsið skipt- ist m.a. í samliggjandi parket- lagðar stofur, 4 herbergi og flísalagt baðherbergi. Bílskúrsréttur. Falleg ræktuð lóð. Áhv. húsbr. 3,3 millj. Verð 17,4 millj. Verið velkomin í dag milli kl. 14 og 17. Öldugata 34, Reykjavík Mjög falleg og þó nokkuð end- urnýjuð 106 fm neðri sérhæð í góðu þríbýlishúsi auk bílskúrs á þessum eftirsótta stað. Hæðin skiptist m.a. í saml. parketl. stofur, 3 góð svefnherbergi, rúmgott eldhús með eldri upp- gerðum innrétt. og góðri borðaðstöðu. Ný gólfefni að mestu. Tvennar stórar svalir. Áhv. húsbr. 7,1 millj. Verð 16,9 millj. Verið velkomin í dag milli kl. 14 og 17. Hofteigur 26, Reykjavík Mjög falleg, vel skipulögð og þó nokkuð endurnýjuð 4ra-5 herb. 114 fm íb. á 1. hæð í góðu þríbýlishúsi. Íbúðin skipt- ist í forst., stórt hol m. skápum, stórar saml. skiptanlegar stofur með svölum í suður, vinnuherbergi, tvö svefnherbergi, baðher- bergi og stórt eldhús. Gott skápapláss í íb. og innangengt í sameign. Áhv. byggsj./húsbr. 8,6 millj. Verð 14,9 millj. Verið velkomin í dag milli kl. 14 og 17. Bárugata 9, Reykjavík Mjög falleg 3ja herb. 85 fm íbúð á 3. hæð í góðu steinhúsi auk rislofts innan íbúðar sem innréttað hefur verið sem vinnuaðstaða. Íbúðin skiptist í eldhús með uppgerðum inn- réttingum og vönduðum tækj- um, borðstofu, stofu, stórt svefnherbergi, gang og nýuppgert baðherbergi. Íbúð og hús í góðu ásigkomulagi. Áhv. húsbr. 5,3 millj. Verð 12,4 millj. Verið velkomin í dag milli kl. 14 og 17. Klukkurimi 33, Reykjavík Góð 101 fm 4ra herb. endaíbúð með sérinngangi á 2. hæð, íbúð 0201. Rúmgóð stofa, eld- hús með góðri innréttingu og 3 herbergi. Þvottaaðstaða innan íbúðar og sérgeymsla á jarðhæð. Suð-austursvalir. Hús nýtekið í gegn að utan. Laus strax. Verð 12,1 millj. Verið velkomin í dag milli kl. 14 og 17. Nesvegur 100, Reykjavík Mjög rúmgóð og mikið endur- nýjuð ca 80 fm íbúð á 2. hæð, íbúð 0201, í góðu steinhúsi. Íbúðin skiptist í samliggjandi stórar stofur, eldhús með fal- legum uppgerðum innrétt. og vönduðum tækjum, stóran gang, svefnherb. og endurnýjað baðherbergi. Parket og flísar á gólfum. Áhv. húsbr. 5,3 millj. Verð 10.9 millj. Verið velkomin í dag milli kl. 14 og 17. Eyktarás 3, Reykjavík Mjög fallegt tvílyft 273 fm einbýlishús með innb. bílskúr. Húsið skiptist m.a. í 5 rúmgóð svefnherb., stóra stofu, borð- stofu, eldhús með góðri borð- aðstöðu og 2 baðherb. Gegn- heilt parket á stórum hluta hússins. Suðvestursvalir, fallegt útsýni yfir borgina. Ræktuð lóð. Hiti í plani og gangstétt. Verð 26,5 millj. Verið velkomin í dag milli kl. 14-17 Austurvegi 38 • 800 Selfoss • Sími 482 4800 • Fax 482 4848 Um er að ræða glæsilegt verslunar- og atvinnuhúsnæði á Selfossi, í „bíla- söluhverfinu“. Húsnæðið er afar vand- að og gæti hentað undir margvíslega starfsemi. Húsið er stálgrindarhús. Hugsanlegur möguleiki er að leigja húsið. Nánari upplýsingar og teikning- ar er hægt að nálgast á skrifstofu. Ásett verð 49,0 m. kr. Áhvílandi 16,0 m. kr. HRÍSMÝRI 6 - SELFOSSI Um er að ræða bújörðina Egilsstaði I í Villingaholtshreppi, rétt utan við Sel- foss. Eigninni fylgir einbýlishús á tveimur hæðum og jörðin er ca 175 ha, þar af 11 ha af ræktuðu landi. Jörðin liggur öll að Þjórsá. Laxveiði- réttindi fylgja. Miklir möguleikar á framtíðarsumarhúsalöndum á góðum stað. Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu. Ásett verð 28,0 m. kr. EGILSSTAÐIR 1 - VILLINGAHOLTSHR. Nánari upplýsingar og myndir á www.arborgir.is Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 VALDÍS SÝNIR Í DAG SUNNUDAG FRÁ KL. 14 - 16 105,3 fm íbúð á 2. hæð með stórum suð- ursvölum. Íbúðin er búin vönduðum og góðum innréttingum. Parket á gólfum. Mikið skápapláss. Sér baðh. innaf hjóna- herb. VERIÐ VELKOMIN AÐ KOMA OG SKOÐA. V. 15,9 m. 3651 Opið hús Básbryggja 7 - íbúð á 2. hæð Opið hús Hverfisgata 57A Í DAG MILLI KL. 17 OG 19 SÝNUM VIÐ GÓÐA 2JA HERB. 43,6 FM ÍBÚÐ Á 2. HÆÐ (EFSTU) VIÐ HVERFISGÖTU 57A. Íbúðin skiptist í hol, baðherbergi, eldhús, stofu og svefnherb. Eldhúsið er með nýrri innréttingu og vönduðum nýjum tækjum frá AEG. Nýir gluggar og nýtt gler í íbúðinni. Parket á öllu. Þórunn tekur vel á móti ykkur. V. 6,9 m. 3648 AKRALIND 8 Í þessu einstaklega glæsilega og vandaða atvinnuhúsnæði er til sölu eða leigu allt að 1.100 fm húsnæði á jarðhæð og efri hæð. Neðri hæðin er jarðhæð með góðum innkeyrsludyrum, en efri hæðin er skrifstofuhæð með mikilli lofthæð og fallegu útsýni. Hægt er að skipta hús- inu upp í nokkrar einingar, t.d. í 2-4 einingar á hvorri hæð. Stiga- hús er í miðju húsinu. Lóð er fullfrágengin og næg bílastæði. Húsnæðið er stór salur 280+55 m² og að auki skrifstofa og kaffistofa á efri hæð. Innkeyrsluhurð og gönguhurð. Í sama húsi er einnig til leigu 139 m² hús- næði á efri hæð með sérinngangi. Upplýsingar gefur Ásmundur í símum 533 6050 og 895 3000 Atvinnu-geymsluhúsnæði til leigu eða sölu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.