Morgunblaðið - 20.10.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 41
Okkar ástkæri eiginmaður og faðir,
SIGURGEIR GUÐJÓNSSON
rafvirkjameistari,
Hraunbæ 102H,
Reykjavík,
lést af slysförum sunnudaginn 13. október sl.
Jarðarför fer fram frá Árbæjarkirkju miðviku-
daginn 23. október kl. 13.30.
Arna Sæmundsdóttir,
Jóhanna Margrét Sigurgeirsdóttir,
Sigurgeir Örn Sigurgeirsson
og aðrir aðstandendur.
Útför elskulegs eiginmanns míns, pabba okkar,
sonar, bróður, tengdasonar og frænda,
PÁLMA KARLSSONAR
sendibílstjóra,
Garðhúsum 37,
Reykjavík,
sem andaðist á hjartadeild Landspítalans
við Hringbraut föstudaginn 11. október,
fer fram frá Grafarvogskirkju mánudaginn
21. október kl. 15.00.
H. Jóhanna Hrafnkelsdóttir,
Hrafnkell Pálmi Pálmason,
Atli Karl Pálmason,
Íris Svava Pálmadóttir,
Selma S. Gunnarsdóttir,
R. Hrönn Harðardóttir, Sævar Björnsson,
Guðný J. Karlsdóttir, Eyjólfur Ólafsson,
Gígja Karlsdóttir, Anton Sigurðsson,
Gylfi Karlsson,
Hilmar Karlsson Mem Karlsson,
Hrafnkell Guðjónsson, Svava Björnsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
ARNDÍS PÉTURSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 49,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum í Fossvogi að
morgni fimmtudagsins 10. október, verður
jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn
21. október kl. 13.30.
Kristrún Ólafsdóttir, Árni Hróbjartsson,
Lilja Ólafsdóttir, Þorkell Jónsson,
Pétur Ólafsson, Valgerður Jónsdóttir,
Ólafur Ólafsson, Matthildur Laustsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður
og afa,
HERMANN PÁLSSON
prófessor emeritus,
Edinborg,
fer fram í Háteigskirkju mánudaginn 21. október
kl. 13.30.
Guðrún Þorvarðardóttir,
Steinvör Pálsson,
Helena Pálsson.
Elskulegi maðurinn minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
LÁRUS SUMARLIÐASON,
Garðvangi, Garði,
áður Aðalgötu 5, Keflavík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju mið-
vikudaginn 23. október kl. 14.00.
Guðný Ólafía Einarsdóttir,
Lárus Ólafur Lárusson, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Guðrún Ágústa Lárusdóttir, Marinus Schmitz,
Steinunn M. Lárusdóttir, Haukur S. Jónsson,
barnabörn og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur og
fjölskyldu okkar samúð og hlýhug við andlát
og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU JÓHANNESDÓTTUR,
Vesturbergi 30,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu á LHS
deild 5 Borgarspítala og á LHS líknardeild Landakots.
Guð blessi ykkur öll.
Helga Benediktsdóttir, Jónas Sigurðsson,
Jóhannes Á. Benediktsson, Sigrún D. Sigurðardóttir,
Benedikt Jónasson, Ingveldur Ingvarsdóttir,
Jóhanna Jónasdóttir, Óli J. Kristjánsson,
Örvar Jóhannesson, Belinda Jóhannesson,
Lísa Jóhannesdóttir,
Teitur Jóhannesson,
Júlía Jóhannesdóttir
og langömmubörn.
Hjartans þakkir færum við öllum, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát okkar ást-
kæra eiginmanns, föður okkar, tengdaföður,
afa, tengdasonar og bróður,
PÁLS KJARTANSSONAR
frá Haukatungu,
Skúlagötu 9,
Borgarnesi.
Sérstakar þakkir færum við Friðbirni Sigurðssyni, lækni á krabbameins-
deild Landspítalans, fyrir góða umönnun og hlýhug í veikindum Páls.
Einnig frændfólki okkar frá Haukatungu og Vatnsholti 10 fyrir ómetanlega
aðstoð. Hafið þökk fyrir allt og allt.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ragnheiður Oddsdóttir,
Einar Oddur Pálsson, Ragnheiður Guðmundsdóttir,
Ásta Guðrún Pálsdóttir, Halldór Kristmundsson,
Arnór Orri, Birna Karen, Ólafur Páll,
Soffía Ingveldur Eiríksdóttir,
Jóhann Kjartansson.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu
okkur samúð við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRHILDAR S. STEINGRÍMSDÓTTUR
fyrrverandi íþróttakennara,
Akureyri.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalar-
heimilisins Hlíðar á Akureyri fyrir einstaka
umönnun og elskusemi.
Stefán Hermannsson, Sigríður Jónsdóttir,
Birgir Hermannsson, Elva Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTJÁNS J. JÓNSSONAR
frá Hnífsdal.
Sæmundur Kristjánsson,
Svanur Kristjánsson, Auður Styrkársdóttir,
María Kristjánsdóttir, Ragnar Kjaran Elísson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar og
tengdamóður,
HELGU ÞÓRODDSDÓTTUR
frá Alviðru,
í Dýrafirði,
síðast til heimilis á Ási í Hveragerði.
Þorvaldur Veigar Guðmundsson, Birna Friðriksdóttir,
Ragnheiður Ósk Guðmundsdóttir.
með okkur. Ef við eigum þessa trú
auðveldar hún okkur að sætta okk-
ur við orðinn hlut.
Pálmi tengdasonur okkar er lát-
inn, hann lést á hjartadeild Lands-
spítalans föstudaginn 11. október sl.
eftir aðeins sex daga sjúkdómslegu.
Hann hafði alla tíð verið hraustur
þar til hann veiktist skyndilega þar
sem hann var með nokkrum fé-
lögum sínum uppi við Hafravatn í
torfæruakstri á mótorhjólum og
þegar hann kom heim var hann orð-
inn fárveikur.
Pálmi var heimakær og traustur
heimilisfaðir fjölskylda hans og
heimili var honum fyrir öllu, hann
var mjög natinn við allt er laut að
heimilinu. Pálmi var vinmargur og
skemmtilegur heim að sækja og
hann hafið alltaf nægan tíma fyrir
gestina. Hann var sérstaklega lag-
inn við allar vélar og það var gott
fyrir vini hans og vandamenn að
leita til hans ef eitthvað var að bíln-
um. Það var líka gott að fá Pálma í
heimsókn í sumarbústaðinn okkar,
þar var hann einnig vel liðtækur.
Pálmi var reglusamur og prúður í
framkomu og bauð af sér góðan
þokka, maður bar traust til hans.
Hann var einstakt snyrtimenni. Í
bílskúrnum hans Pálma er „staður
fyrir hvern hlut og hver hlutur á
sínum stað“. Pálmi var stór, þrekinn
og myndarlegur, ljóshærður víking-
ur. Hann átti ekki langt að sækja
kraftinn, móðurafi hans var Gunnar
Salómonsson, þekktur aflraunamað-
ur á sinni tíð. Pálmi vann ýmis störf
á lífsleiðinni, m.a. um tíma sem
gæslumaður á Kleppsspítalanum,
skapgerð hans, róleg og traust,
nýttist honum vel í því starfi enda
vel látinn þar.
Jóhanna mín, við mamma þín
biðjum guð að blessa þig og börnin
ykkar þrjú, Hrafnkel Pálma, Atla
Karl og Írisi Svövu, á erfiðri stundu.
Við stöndum öll saman.
Tengdaforeldrar.
Fleiri minningargreinar
um Pálma Karlsson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
Við skyndilegt fráfall Arndísar
frænku minnar er sterkasta til-
finningin söknuður eftir einstaka
manneskju, nána vinkonu sem var
mér eins og systir. Kynni okkar
hófust fyrir meira en hálfri öld og
urðu æ því nánari sem lengra leið
á ævina en nú slitnaði þráðurinn
óvænt, var afskorinn fljótt.
Tryggð hennar og vináttu fæ ég
ekki fullþakkað né heldur sam-
verustundir fyrr og síðar. Allt er
það geymt en ekki gleymt. Börn-
um hennar og allri fjölskyldu færi
ég einlægar samúðarkveðjur.
Ásta Páls.
HINSTA KVEÐJA
fyrir borð. Vinátta okkar krafðist
þess ekki að við værum sammála um
alla hluti og var ég og er þakklát fyr-
ir það. Lengi vel hélt ég að við hefð-
um báðar gaman af því að spila á spil.
Alltaf varstu til þegar ég kom sem
krakki og leyfðir mér auðvitað að
vinna, vitandi hvað ég var tapsár.
Löngu seinna sagðirðu mér að þér
þætti reglulega leiðinlegt að spila og
hefði alltaf þótt, engu að síður end-
urtókstu leikinn og spilaðir olsen og
lönguvitleysu við Heru, Heklu og
Völu, stakkst jafnvel upp á því sjálf,
á meðan spjölluðum við tvær um
heima og geima. Langbest þótti mér
samt að heimsækja þig ein, þá gat ég
haft þig útaf fyrir mig og haldið at-
hygli þinni óskiptri, ef það voru hjá
þér gestir stoppaði ég stutt, ég gerði
mér grein fyrir eigingirninni en réði
ekki við mig. Það var líka svo nota-
legt að þegja með þér, sitja bara og
fletta blöðunum, leggja okkur svo
sitt hvorum megin í hornsófanum,
smitast af ró þinni, dotta. Ljúft. Já
það var ljúft að eiga þig að og verður
ljúft að eiga þig að á öðrum stað, í
öðrum heimi. Ég sendi þér mínar
hlýjustu hugsanir með innilegustu
þökkum fyrir allt og allt. Guð veri
með þér, ávallt, amma mín. Þín son-
ardóttir,
Arndís Pétursdóttir.