Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 20.10.2002, Qupperneq 47
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 47 Staður Nafn Sími 1 Sími 2 Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542 Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600 Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672 Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054 Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243 Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024 Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965 Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474 Breiðdalsvík María Jane Duff 475 6662 Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381 Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039 Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161 Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350 Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123 Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315 Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370 Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885 Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989 Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131 Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608 Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148 Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758 Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522 Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952 Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Hofsós Bylgja Finnsdóttir 453 7418 893 5478 Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140 Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823 Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683 Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 892683 Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525 Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711 Höfn Ranveig Á. Gunnlaugsdóttir 478 2416 862 2416 Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281 Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478 Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463 Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024 Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818 Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112 Laugarás Jakop Antonsson 486 8983 Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679 Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173 Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958 Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305 Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230 Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344 Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574 Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797 Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783 Reykjahlíð v/Mýv. Margrét Hróarsdóttir 464 4464 Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674 Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038 Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700 Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136 Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067 Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815 Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141 Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864 Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244 Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 456 4936 Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676 Varmahlíð Ragnar Helgason 453 8134 867 9649 Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131 Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 869 7627 Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750 Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135 Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 821 3475 Þingeyri Þór Lini Sævarsson 456 8353 Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627 Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249 Dreifing Morgunblaðsins Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni Afmælisþakkir Ég sendi einlægar hjartans þakkir til allra þeirra, sem minntust mín og glöddu mig með ýmsum hætti á 80 ára afmæli mínu hinn 27. ágúst. Guð og gæfa fylgi ykkur öllum. Guðbjörg Einarsdóttir, Hvassaleiti 58. Nýbýlavegi 12, Kópavogi, sími 554 4433. Dragtadagar 20% afsláttur frá mánudegi til laugardags Aðeins þessa einu viku Mikið úrval dragta í nr. 34-54 Verð frá kr. 6.480 HIN óhugnanlegu morðí Washington hafavakið ýmsar spurn-ingar meðal þar-lendra fræðimanna á sviði glæparannsókna og annarra sem um þetta hafa verið að fjalla. Ein er sú hvort tölvuleikurinn Hit- man (leigumorðinginn) geti átt ein- hvern þátt í ódæðinu; hafi verið einhver kveikja. Á þessari stundu veit enginn hvort sú er raunin. Hins vegar þykir leikurinn minna töluvert á aðfarir leyniskyttunnar, eins og kom fram á einni sjón- varpsstöðinni hér í liðinni viku. Og nýja útgáfan, Hitman 2, ber auk þess undirtitilinn Silent Assassin (þögla leyniskyttan). Ef satt reynist er þetta dýr áminning. Margir hafa á undanförnum ár- um bent á vafasamt uppeldisgildi slíkra tölvuleikja, en erfitt hefur verið að koma á þá böndum og fá einhverjar úrbætur. Ástæðan er sú, eins og oft áður, að hér eru miklir fjármunir í húfi. Og þá skiptir hitt litlu. Ekki er til opinber listi yfir vin- sælustu tölvuleiki hér á landi, en unnið er að því að koma slíku á laggirnar. En hinn 15. október voru mest seldu tölvuleikirnir í Bretlandi þessir: 1) Hitman 2: Sil- ent Assassin; 2) Conflict: Desert Storm; 3)Halo: Combat Evolved; 4) Quantum Redshift; 5) The Thing; 6) WWE Raw; 7) Silent Hill 2, 8) Project Gotham Racing; 9) Blade 2, og 10) Turok Evolution. Leikirnir nr. 2, 3, 5, 7, 9 og 10 eru byssuleikir, eins og Hitman, byggjast á færni í að drepa; nr. 4 og 8 eru kappakstursleikir, nr. 6 er fjölbragðaglíma. Til að gefa lesendum örlítið nán- ari mynd af þessu, er á http:// www.xbox.is/ eftirfarandi lýsing á tölvuleiknum, sem er í 2. sæti á listanum, Conflict: Desert storm: Hér er barist til síðasta blóðdropa. Desert Storm kemur sterkur inn og stekkur beint upp í annað sætið á breska listanum þessa vikuna. Þú stjórnar einhverjum öflugustu herdeildum Breta eða Bandaríkjamanna. Slægð, útsjónarsemi og áræðni leiðir her- deildina til sigurs. Undirbúðu átökin við Saddam áður en Bush nær honum. Hvað er eiginlega verið að kenna börnum og ungmennum heimsins, ómótuðum og lítt þrosk- uðum sálum, með efni á borð við þetta? Að boðorðin tíu séu orðin hallærisleg og úrelt, eigi ekki leng- ur við í samfélagi manna? Eða þá gullna reglan? Eða ...? Ef einhver heldur að þetta sé einskorðað við útlönd bendi ég á eftirfarandi orð drengs á heima- síðu eins grunnskóla þessa lands, en þar segir: Mér finnst gaman að leika mér í tölvuleikjum og ég er oftast í ýmsum byssuleikjum s.s. Counter-Strike, Hitman o.fl. ... Þetta er hryllilegt og ég veit að þessi piltur er ekkert einsdæmi. Svo er þjóðin hissa á auknu aga- leysi og ofbeldi í skólum landsins og á götum úti eða hraðakstri í um- ferðinni. Það gleymist oft, að börn- in litlu vaxa úr grasi og eru einn daginn komin með bílpróf og hvað er þá eðlilegra en að rifja það upp, sem leikið var á skjánum forðum? Of seint kann það að renna upp fyrir þeim, að hér er ekki nóg að ýta á: „Byrja upp á nýtt.“ Í raun- veruleikanum er bara um eitt líf að ræða á jörð. Í breskri rannsókn frá 1997, þar sem fjallað er um börn, mynd- bandsspólur og tölvuleiki, kemur fram, að efni sumra tölvuleikja ýti undir kynþáttahatur og hefð- bundin kynhlutverk. T.a.m. séu að- alhetjurnar gjarnan hvítir karlar. Auk þess geti tölvuleikir orðið svo eftirsóknarverðir í augum barna, að það komi niður á félagsskap jafnaldra og geti þannig orðið til þess að stuðla að félagslegri ein- angrun þeirra, sem langtímum saman dvelja við téða iðju. En nú má ekki falla í þá gryfju að hengja bakara fyrir smið, því ýmis góð not má hafa af tölvum, ef rétt er á málum haldið; og reyndar er erfitt að hugsa sér lífið án þeirra, svo mjög eru þær orðnar samofnar daglegum veruleika okk- ar í leik og starfi. Í því sambandi er áhugavert að lesa úr nokkurra ára gömlu fréttabréfi Selásskóla, þar sem Hafsteinn Karlsson, skóla- stjóri, flytur pistil sem nefnist: Eiga börnin að leika sér í tölvum? Þar segir m.a.: Við lifum á upplýsingaöld, þar sem tölvurnar skipa verulega mikinn sess ... Forritaiðn- aðurinn veltir stjarnfræðilegum upphæðum og auðugustu menn heims koma einmitt úr þeim geira atvinnulífsins ... Margir tölvu- leikir eru góðir, þjálfa bæði hug og hönd, en því miður er einnig mikið til af rusli og vafa- sömu efni svo ekki sé meira sagt. Rétt er að vekja athygli foreldra á að margir tölvuleikir eru bannaðir fyrir börn og margir aðrir eru óæskilegir fyrir þau, bæði eru þeir for- heimskandi og hafa slæm áhrif á barnssál- irnar ... Af og til spretta upp umræður um skugga- hliðar internetsins og sannarlega eru þær til. Vegna þeirra er full ástæða til að brýna fyrir foreldrum að stjórna för barnanna út á netið. Þau eiga ekki að vera eftirlitslaus á því. Til eru forrit sem hjálpa foreldrum við að stjórna hvert hægt er að fara og ættu þau að vera í hverri heimilistölvu ... Tölvan er gott tæki en það er mikilvægt að foreldrar stjórni því hvernig og hversu mikið það er notað. Þeir eiga að athuga hvaða leiki börnin eru með í tölvunum og hvað þau eru að gera á internetinu. Það er rangt að banna börnunum að vera í tölvuleikjum eða á int- ernetinu, fremur ætti að hvetja þau til að nota þennan fjölhæfa miðil og hjálpa þeim við að gera það á uppbyggilegan og góðan hátt. Til umhugsunar. Í Guðs friði. Leyniskyttan sigurdur.aegisson@kirkjan.is Um fátt er meira rætt þessa dagana en leyniskyttuna í höf- uðborg Bandaríkj- anna, sem 3. október tók að myrða sak- lausa vegfarendur og er enn að. Sigurður Ægisson gerir það mál hér að umtals- efni og einnig sam- nefndan tölvuleik og annað af þeim toga. Meistarapróf í sjúkraþjálfun Kristín Briem sjúkraþjálfari mun flytja prófsfyrirlestur mánudaginn 21. október kl. 13, um meist- araprófsverkefni sitt í sjúkraþjálf- unarfræðum. Rannsóknaverkefnið, sem unnið var að hluta til hér á landi, er hluti af vinnu hennar til að öðlast meistaragráðu í heilsufræðum, en námið stundar hún við St. August- ine-háskólann í Flórída. Í rann- sókninni voru skoðuð áhrif ákveð- innar meðferðar á sjúklingahóp með kvartanir um verki frá hálsi. Meðferðin felst í að halda þrýst- ingi á vöðvafestingar í hnakka og virkur hreyfiferill í hálsi var mældur fyrir og eftir inngrip. Aðalleiðbeinandi Kristínar er dr. Richard H. Jenssen, prófessor við St. Augustine-háskólann, en með- leiðbeinendur eru þau María Þor- steinsdóttir dósent og dr. Þórarinn Sveinsson dósent, bæði við sjúkra- þjálfunarskor Háskóla Íslands. Prófari verður dr. William Bois- sonnault, aðstoðarprófessor við St. Augustine-háskólann. Fyrirlest- urinn fer fram á 3. hæð í Lækna- garði við Vatnsmýrarveg á ensku og er opinn öllum áhugasömum. Fyrirlestur til meistaraprófs í verkfræði Einar Sveinn Jónsson heldur fyrirlestur um verkefni sitt til meistaraprófs í véla- og iðn- aðarverkfræði. Verkefnið heitir „DNA Tetrad varmahringrásarvél, eftirlit, lík- angerð“. Fyrirlesturinn verður haldinn mánudaginn 21. október kl. 15 í stofu 248 í VR-II við Hjarðarhaga 2–6 og eru allir vel- komnir. Verkefnið er unnið í sam- starfi við Íslenska erfðagreiningu. Leiðbeinendur Einars Sveins eru: Guðmundur R. Jónsson, prófessor við Háskóla Íslands, Ólafur Pétur Pálsson, dósent við Háskóla Ís- lands, og dr. Valur Einarsson hjá Íslenskri erfðagreiningu. Prófdóm- ari er dr. Birgir Hrafnkelsson hjá Íslenskri erfðagreiningu. Verkefnið fjallar um eftirlit með vélum sem framkvæma svokallað PCR-ferli á DNA-sýnum í starf- semi Íslenskrar erfðagreiningar. PCR-ferlið er liður í greiningu DNA-erfðaefnis. Það byggist á því að hita og kæla sýnið á víxl eftir ákveðinni forskrift sem veldur því að DNA-þræðirnir afritast. Styrk- ur DNA í sýnalausninni magnast upp þannig að hægt er að skoða uppbyggingu erfðaefnisins. Gögnum er safnað af vélunum þegar þær eru í notkun og gerð eru líkön sem líkja eftir hegðun þeirra. Sett er upp dæmi þar sem líkt er eftir bilun í vél og skoðaðar eru mismunandi aðferðir við eft- irlit. Einnig er skoðaður möguleiki á einföldum aðferðum sem nota má við eftirlitið. 14–16 ára unglingum boðið á námskeið í HÍ Háskóli Íslands verður með opin námskeið fyrir unglinga á vísindadögum. Til- raunir með ljós, Markaðsfræði, Stjórnun og stjórnunarkenningar og Hvernig verður krabbamein til? eru dæmi um þau fjölbreytilegu námskeið sem í boði verða í Há- skóla Íslands en námskeiðin eru haldin í tilefni Vísindadaga, sem standa yfir 1.–11. nóvember. Nám- skeiðin eru opin öllum unglingum á aldrinum 14–16 ára og eru þau án endurgjalds, en fjöldi þátttak- enda er takmarkaður. Námskeiðin fara fram helgarnar 2.–3. og 9.–10. nóvember. Tilgangur námskeiðanna er að kynna fyrir unglingum veröld vís- indanna, hvernig þau snerta okkar daglega líf og hvað býr að baki þeim. Það eru kennarar og nem- endur Háskóla Íslands sem vinna námsefnið og kenna. Skráning á námskeiðin fer fram hjá Rannsóknaþjónustu Háskóla Íslands í síma og á netfangi rthj@hi.is og hefst 21. október en síðasti skráningardagur er 25. október. Nánari upplýsingar eru birtar á heimasíðu vísindadaga, www.vis- indadagar.is. Einnig á heimasíðu Háskóla Íslands, www.hi.is. Á NÆSTUNNI HUGVEKJA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.