Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
MENNINGARNÓTTIN svonefnda
er fyrir nokkru liðin – skyldi nóttin
sú hafa yfir sér haft mikinn menn-
ingarbrag? Hvað finnst ykkur?
Mér hefur skilist af tali margra
sem þá nótt lifðu niðri í miðborg að
þeir hafi á einu máli verið um það, að
framan við orðið menningarnótt
hefði mátt setja stafinn „Ó“. Slíkar
voru lýsingarnar. Hvað sögðu t.d.
blöðin, lögreglan? Ég ætla hér eigi
að tíunda þær lýsingar. Hvað skyldi
svo hafa valdið þessari „ómenningu“,
enginn annar en hinn „gamli Bakk-
us“, sem í sífellu virðist ganga í end-
urnýjun lífdaganna með öllu því sem
honum fylgir, eiturlyfjum, ávana- og
fíkniefnum, árásum, ofbeldi og
nauðgunum svo eitthvað sé upp talið.
Í frétt sem á öldum ljósvakans
barst til vor frá frændum vorum
Dönum, var hermt frá miklum
áhyggjum þarlendra heilbrigðisyfir-
valda vegna aukningar á sölu
áfengra gosdrykkja, er í almennum
verzlunum væru seldir við hliðina á
öðrum gosdrykkjum, enda danskir
verið allra þjóða eftirlátssamastir í
áfengismálum. Því kom í raun frétt
þessi eigi svo mjög á óvart, því auknu
aðgengi að áfengi fylgir jafnan aukin
neyzla.
En það sem alvarlegast var í frétt
þessari var, að mestan þátt eða
a.m.k. allverulegan í þessari aukn-
ingu áttu börn á aldrinum 11 – 12
ára.
Skyldi þetta nú hafa aukið áhyggj-
ur seljenda þessara drykkja? Ekki
var það að heyra. Hvað skyldu þeir
nú hafa sagt – og takið nú eftir:
„Ekki eigum við að sjá um neyzlu-
mynstur barnanna“.
Raunar var það nú vitað fyrirfram
að hjá þeim skiptir aðeins eitt máli,
þ.e.a.s. gróðinn. Um allt annað er
þeim nákvæmlega sama.
Nú er að vita hvort þeir muni
nokkuð hika sem leyfa vilja – í frjáls-
ræðis nafni – aukið aðgengi að áfengi
með því að stilla því upp við hliðina á
hollustuvörum í almennum verzlun-
um þessa lands og selja þar, hafandi í
huga reynslu danskra í þessum efn-
um. Afleiðingar aukins aðgengis að
áfengi sýnast koma skýrt fram í áð-
urnefndri fregn – og ættu því ekki að
vefjast fyrir neinum sem opin hefir
og árvökul augu.
Nú er að vita, hvort þeim sem
endilega vilja leyfa enn aukna sölu á
þessari göróttu vöru, þykir ekki
ástæða til að staldra ögn við og íhuga
sitt mál með hliðsjón af fenginni
reynslu þeirra Dana.
Vilja menn sjá 11 ára börn hér
þamba slíkar veigar með þeim afleið-
ingum sem nú íþyngja dönskum heil-
brigðisyfirvöldum? Eða yrðu menn
bara stoltir af „frjálsræðinu“? Væri
ekki tilvalið að foreldrar skæru upp
herör gegn frjálsri sölu áfengis í al-
mennum verzlunum, hafandi þessa
óhugnanlegu fregn úr Danaveldi í
huga.
Minnug skulum við þess að næsta
skref eftir að leyft hefði verið að
selja áfengi í almennum verzlunum
væri að áfengir gosdrykkir yrðu þar
einnig til sölu, því gróðinn af þeim
yrði svo miklu meiri og er ekki allt
leyfilegt í gróðans nafni í dag eða
hvað?
Gagnlegt er í þessu sambandi þess
að minnast að allt frá því að bjórinn
var leyfður, hefir áfengisneyzla farið
stigvaxandi hérlendis þvert ofan í
það sem áður hafði ætíð verið haldið
fram.
Gaumgæfa skyldi fyrst afleiðingar
sérhverrar breytingar á áfengislög-
gjöfinni áður en gjörð væri. Þess
krefst þjóðarheill.
BJÖRN G. EIRÍKSSON,
í fjölmiðlanefnd IOGT.
Skyldu menn
vilja læra af ann-
arra reynslu?
Frá Birni G. Eiríkssyni:
Kauptu eina flík,
hún endist á við þrjár
www.bergis.is
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.