Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 50

Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 50
DAGBÓK 50 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss kemur og fer í dag. Venus kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss kemur til Straumsvíkur á morg- un. Mannamót Árskógar 4. Á morgun kl. 9–12 opin handa- vinnustofa, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl.13–16.30 opin smíða- stofa/útskurður, opin handavinnustofa, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist, kl. 10–16 pútt- völlurinn. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 9–12 búta- saumur, kl. 9–17 fótaað- gerð, kl. 10–11 samverustund, kl. 13.30–14.30 söngur við píanóið, kl. 13–16 búta- saumur. Uppl. í s. 568 5052. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánud. og fimmtud. Mánud.: Kl. 16 leikfimi. Fimmtud.: kl. 13 tré- skurður, kl. 14 bóka- safnið, kl. 15–16 bóka- spjall, kl. 17–19 æfing kór eldri borgara í Damos. Laugard.: kl. 10–12 bókband, línu- dans kl. 11. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á morgun kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagar úr Akranes- félaginu koma í heim- sókn í Lionshúsið, Auð- brekku 25–27 laugard. 26. okt. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð, kl. 9 myndlist, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, fram- hald. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Á morgun Kl. 8– 16 opin handa- vinnustofan, kl. 9–12 myndlist, kl. 10–13 opin verslunin, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. 13–16 spilað. Félagsstarfið Dalbraut 27. Á morgun Kl. 9–16 handavinnustofan opin, kl. 9–12 myndlist, kl. 13–16 körfugerð, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. 13–16 spilað, kl. 10–13 versl- unin opin. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Á morgun böðun kl. 9–12, opin handavinnustofan kl. 9– 16.30, félagsvist kl. 14, hárgreiðslustofan opin 9–14. Félagsstarf aldraðra Garðabæ. Vetrarfagn- aðurinn verður í Tón- listarskólanum í Garða- bæ 24. október kl. 20. Fjölbreytt dagskrá. All- ir velkomnir. Mánud.: kl. 9.30,10.15 og 11.10 leikfimi. kl. 12 leir- vinnsla, kl. 13 námskeið í skyndihjálp. Þriðjud.: kl. 9 glervinnsla, kl. 10.30 boccia, kl. 11.40 leikfimi karla, kl. 13 málun, kl. 13.30 tré- skurður. Miðvikud.: kl. 9.30, 10.15 og 11.10 leik- fimi, kl. 13.30 trésmíði nýtt og notað, kl. 14 handavinnuhornið kynn- ing á þrívíddarmyndum (klippimyndum.) Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Á morg- un púttað í Hraunseli kl. 10, félagsvist kl. 13.30. Á þriðjud. handa- vinna og brids kl. 13.30, púttað á Hrafnistuvelli kl. 14–16. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Kaffistofan er lokuð vegna breytinga í Glæsibæ. Sunnud.: Dansleikur kl. 20 Caprí- tríó leikur fyrir dansi. Mánud.: Brids kl. 13, danskennsla framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Þriðjud.: Skák kl. 13 og alkort spilað kl. 13.30. Miðvikud.: Göngu-hrólfar fara í göngu kl. 10 frá Ás- garði, Glæsibæ. Söng- félag FEB kóræfing kl. 17, línudanskennsla kl. 19.15. Söngvaka kl. 20.45 stjórnandi Sig- urrós Ottósdóttir. Heilsa og hamingja, Ás- garði, Glæsibæ, laugard. 26. okt. kl. 13. Erindi flytja: Tómas Helgason skýrir frá rannsókn sinni um samband heilsu og lífsgæða á efri árum og Júlíus Björns- son sálfræðingur um svefnþörf og svefntrufl- anir aldraðs fólks. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, kl. 9.30 sund og leikfimiæf- ingar í Breiðholtslaug, frá hádegi spilasalur op- inn, kl. 15.15 dans. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun handa- vinnustofan opin, leið- beinandi á staðnum kl. 9–17, kl. 10.45, hæg leikfimi (stólaleikfimi), kl. 9.30 gler- og postu- línsmálun, kl. 13 skák og lomber, kl. 20 skap- andi skrif. Gullsmári, Gullsmára 13. Á morgun kl. 9 vefn- aður, kl. 9.05 leikfimi kl. 9.55 róleg stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 20.30 fé- lagsvist. Fjölþjóðlegt málþing um félagslega stöðu aldraðra í mis- munandi samfélögum verður í félagsheimilinu Gullsmára, þriðjud. 22. okt. kl. 13.15. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 9 postlínsmálun, perlusaumur og fótaað- gerð, kl. 10 bænastund, kl. 13. 30 sögustund og spjall, kl. 13 hárgreiðsla. Fimmtud. 31. oky. kl. 20 verður farið í Þjóðleik- húsið að sjá Veisluna eftir Thomas Vinter- berg og Mogens Rukow. Skráning á skrifstofu, s. 257 2888. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun og föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 13 spilað. Fóta- aðgerðir. Allir velkomn- ir. Korpúlfarnir, eldri borgarar í Grafarvogi. Fimmud.: Kl. 10, aðra hverja viku púttað á Korpúlfsstöðum, hina vikuna keila í Keilu í Mjódd. Vatnsleikfimi í Grafarvogslaug á þriðjud. kl. 9.45 og föstud. kl. 9.30. Uppl. í s. 5454 500. Norðurbrún 1. Á morg- un kl. 10–11 ganga, kl. 9–15 fótaaðgerð, kl. 9– 12 myndlist, kl. 9–16 op- in handavinnustofa. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9–16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15– 12 postulínsmálning, kl 9.15–15.30 alm. handa- vinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 10.30–11.30 jóga, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl.13–16 kóræfing. Þriðjud. 29. okt. kl. 13.30 verður fé- lagsráðgjafi með fræðslufund. Opið hús föstud. 25. okt. Dag- skráin kynnt kl. 14.30. Vitatorg. Á morgun kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir, sund og boccia, kl. 13 hand- mennt, glerbræðsla og spilað. Háteigskirkja, eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13–15, kaffi. Digraneskirkja, kirkju- starf aldraðra. Opið hús á þriðjudag frá kl. 11 leikfimi, léttur máls- verður, helgistund, fræðsluþáttur, kaffi. All- ir velkomnir. Gullsmárabrids. Brids í Gullsmára 13 mánud. og fimmtud. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Félag eldri borgara Suðurnesjum. Bingó í Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík, öll mánudags- kvöld kl. 20. Kvenfélag Háteigs- sóknar. Þriðjud. 5. nóv- ember mæting í safn- aðarheimilinu kl. 18. Leikhúsferð. Haft verð- ur samband við fé- lagskonur. Kvenfélag Kópavogs. Basar vinnukvöldin eru á mánudögum kl. 20 í sal okkar í Hamraborg 10. Kristniboðsfélag karla. Fundur verður í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut 58–60, mánudagskvöldið 21. okt. kl. 20. Sr. Lárus Halldórsson ræðir um efnið: vitnisburður Bibl- íunnar um sjálfa sig. Allir karlmenn vel- komnir. Kvenfélagið Keðjan, fyrsti fundur vetrarins er mánudagkvöldið 21. október í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 20. ath. breyttan fundartíma. Fatakynning. Kvenfélag Kópavogs. Fundur fimmtud. 24. okt. Venjuleg fund- arstörf. Upplestur og bingó. Í dag er sunnudagur 20. október, 293. dagur ársins 2002. Orð dagsins: Því að náð Guðs hefur opinberast til sáluhjálpar öllum mönnum. (Tít. 2, 11.) K r o s s g á t a LÁRÉTT: 1 hráslagi, 4 heimskingja, 7 kvabb, 8 kostnaður, 9 hás, 11 hermir eftir, 13 grein, 14 slettótt, 15 þarfnast, 17 nytjaland, 20 herbergi, 22 unna, 23 hlussa, 24 mannsnafns, 25 synji. LÓÐRÉTT: 1 híma, 2 drengja, 3 vætl- ar, 4 ryk, 5 snaginn, 6 lét, 10 svipað, 12 slít, 13 óhreinka, 15 þjarka, 16 blómið, 18 askja, 19 sef- aði, 20 at, 21 rándýr. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 bitvargur, 8 fælir, 9 munna, 10 kýs, 11 senna, 13 arrar, 15 fálms, 18 hissa, 21 kýr, 22 ræsti, 23 yndis, 24 varnaglar. Lóðrétt: 2 illan, 3 verka, 4 romsa, 5 unnur, 6 ofns, 7 gaur, 12 næm, 14 rói, 15 forn, 16 lesta, 17 skinn, 18 hrygg, 19 sadda, 20 ausa. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Víkverji skrifar... VÍKVERJI varð vitni að ótrúleguklúðri á dögunum. Vinur Vík- verja sló á þráðinn til að segja hon- um frá því að von væri á þýskri dans- hljómsveit til landsins og ætti hún að leika fyrir dansi á Broadway. Boðið var upp á „októberfest“ með hljómsveitinni Stoetthammer frá München, sem átti að sjá um ósvikna þýska stemmningu. Það var eins og við manninn mælt – Víkverji var tilbúinn í slaginn og pússaði dansskó sína um leið og valsasveiflur voru rifjaðar upp fyrir dansleik föstudagskvöldið 11. októ- ber. Þýska sendiráðið og þýsk-íslenska verslunarráðið tóku þátt í komu hljómsveitarinnar til Íslands. Þegar Víkverji kynnti sér hvenær best væri að mæta, var honum tjáð að hljómsveitin myndi byrja að leika fyrir dansi eftir mat og skemmtiat- riði, eða um kl. 22, leika til miðnættis og síðan aftur fram á nótt eftir stutt skemmtiatriði Helgu Brögu. Þegar Víkverji kom á Broadway kl. 21.30 voru um 100 gestir í salnum og þeim fækkaði síðan jafnt og þétt. Um miðnætti voru um fimmtíu gest- ir eftir og var þá ákveðið að slíta dansleiknum. Víkverja þykir uppákoman hið versta klúður. Það er til skammar að bjóða jafngóðri hljómsveit og Stoett- hammer upp á að ekki sé kynnt í fjöl- miðlum og auglýst að hljómsveitin sé að koma til landsins til að skemmta. Hvar voru allir þeir sem eru að læra, eða búnir að læra, gömlu dans- ana og samkvæmisdansa í dansskól- um? Hvar voru þeir fjölmörgu Íslend- ingar sem ferðast um Þýskaland og Austurríki á sumrin og veturna og hafa kynnst þýskri tónlist? Hvar voru hinir fjölmörgu sem eru alltaf að kvarta yfir því að ekki séu lengur haldnir góðir dansleikir? Þegar hæst stóð í stönginni, voru mest tíu danspör á dansgólfinu. Það var synd og skömm að samkoman var ekki auglýst betur, þannig að sem flestir hefðu getað notið tónlist- ar hinnar frábæru hljómsveitar. Vík- verji skorar á þá sem sáu um komu hljómsveitarinnar að gera betur næst. Ef það verður gert, er Víkverji viss um að fjölmenni mætir á dans- skónum. VÍKVERJI lét endalokin áBroadway ekki slá sig út af lag- inu, frekar en hinn dapra landsleik Íslands og Skotlands daginn eftir. Hann fór með létta skapið í Kópavog á laugardagskvöldið, til að heyra og horfa á Ríó-tríóið rifja upp mörg af sínum bestu og kunnustu lögum – í Salnum. Liðsmenn tríósins náðu upp ríf- andi stemmningu og ekki skemmdi fyrir að með þeim voru Gunnar Þórðarson og Björn Thoroddsen, sem báðir eru hreinir listamenn með gítarinn. Meðal áhorfenda var Jónas Friðrik Guðnason, sem hefur samið flest ljóð og texta við lögin, sem Ríó- tríóið flytur. Jónas Friðrik er ein- stakur textahöfundur – sem má með sanni segja að sé maðurinn á bak við hið skemmtilega Ríó-tríó. Meðlimir tríósins fóru með gamanmál á milli laga og féllu þau í góðan jarðveg hjá áhorfendum, sem fylltu Salinn. „Það er ánægjulegt að sjá fleiri en fjöl- skyldumeðlimi,“ sögðu þeir Ríó- menn, sem komust ekki hjá því að vera með aukatónleika sl. fimmtu- dagskvöld. Bananar og sinadráttur FYRIR stuttu kom fram í fréttum ríkissjónvarpsins, að kínin væri ekki lengur gott fyrir fólk sem þjáðist af sinadrætti. Fyrir nokkr- um árum las ég í dönsku blaði að það væri gott að borða einn banana að kvöldi við sinadrætti. Við hjónin prófuðum þetta og eftir nokkurn tíma var sinadrátturinn horfinn. Gréta og Sveinn Jakobsson í Njarðvík. Ísland í bítið og Jóhannes í Bónusi ÉG horfði á þáttinn Ísland í bítið á Stöð 2 miðvikudag- inn 16. október sl. Í þætt- inum var viðtal við Jóhann- es í Bónusi. Ég er mjög ósáttur við framkomu fréttamannanna gagnvart Jóhannesi. Þeir voru mjög dónalegir og með alls kon- ar dylgjur gagnvart hon- um. Jóhannes hefur haldið íslenskum heimilum gang- andi síðastliðin 13 ár. Ólafur Logi Jónasson. Hafa ekki efni á jarðarför FORSETI Íslands sagði í áramótaræðu sinni m.a. að fólk ætti ekki að taka lán, heldur að spara, en kannski veit hann ekki að stór hluti þjóðarinnar verður að taka lán um hver mánaðamót til að láta enda ná saman. Það gera t.d. ellilífeyrisþegar og öryrkj- ar með því að hafa greiðslukort frá Visa og Euro og mjög margir þurfa að leita til Mæðra- styrksnefndar, Hjálpar- starfs kirkjunnar og Fé- lagsmálastofnunar. Ég veit um marga sem hafa ekki ráð á því að láta jarða sig. Öryrki í Reykjavík. Tapað/fundið GSM-símar hurfu úr íþróttahúsi KR SONUR minn varð fyrir því að GSM-síminn hans hvarf úr íþróttatöskunni hans þegar lið hans Grótta var að keppa við ÍR í íþróttahúsi KR laugardag- inn 5. október sl. Síminn er af gerðinni Philips Osio. Þetta var ekki eini síminn sem hvarf, heldur hurfu þrír til við- bótar. Foreldrar eru vinsam- legast beðnir að athuga hvort börnin þeirra séu með sína síma eða ein- hverja aðra. Vinsamlegast hafið sam- band í síma 897-2236. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is STOÐ þeirra hugmynda er vissan um að þjóðin sé fær um fæðu- og orkuöfl- un og að þjóðin sjálf stýri fiskveiðum og fiskvinnslu. Þetta er efnhagslega kjölfestan. Þessi stoð 84 ára sjálfstæðis verður nú fyrir atlögu Evrópusinna. Forspá þeirra og vilji leiðir til þess að þjóðin verður fjárhagslega ósjálfstæð, á allt undir því að til landsins berist alþjóðlegt fjármagn, sem leitar þangað sem vinnuaflið og hráefnin eru ódýr- ust í heiminum. Draumurinn um inn- limun í Evrópu felur í sér dauðadóm yfir landbúnaðarstarfsemi hérlendis. Sárabótin verður úreldingarstyrkir til deyjandi bændastéttar. Íslensk orku- fyrirtæki geta skjótt komist í hendur alþjóðafjárfesta í kjölfar einkavæð- ingar. Mögulegt er að Evrópu- bandalagið viður- kenni að einhverju leyti þjóðleg yfirráð okkar yfir fiski- stofnunum. Þessi þjóðlegu yfirráð hafa þegar verið famseld til nokkurra út- gerðarfyrirtækja með kvótalögunum. Yfirráðin eru m.ö.o. markaðsvara nú þegar. Uppkaup alþjóðafjárfesta á um- ræddum útgerðarfyrirtækjum (og kvóta þeirra) verða aldrei hindruð til lengdar á vettvangi E.B. enda íslensk sérlög ómarktæk á þeim vettvangi. Ís- lensk fiskimið eru sannarlega nýtileg þótt Íslendingar komi þar hvergi nærri. Þegar íslenskur landbúnaður og fiskveiðar verða aflögð verður lítil huggun í skattfrjálsu grænmeti og rauðvíni frá Suður-Evrópu. Nafnlausir eigendur alþjóðafjármagns gætu orðið eigendur að öllu klabbinu, stoðinni undir íslensku sjálfræði frá 1918. Ef þjóðin velur þessa leið hefur hún af- neitað tilkalli til efnahagslegs sjálf- ræðis og hugsanlega til menningarlegs og pólitísks sjálfstæðis. Vera kann að þessi fjöregg séu lágt metin nú meðal Íslendinga. En þeir verða að vita hvað í framtíðinni felst brotni þau hvert af öðru. Fátæktarlágkúran gæti orðið raunin. Baldur Andrésson, Bugðulæk 14, Reykjavík. Hugmyndir um íslenskt þjóðerni

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.