Morgunblaðið - 20.10.2002, Síða 56
FÓLK Í FRÉTTUM
56 SUNNUDAGUR 20. OKTÓBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SIGURÐUR Höskuldsson, eða Siggi
Hösk. eins og hann er frekar kall-
aður, hefur með Klakabandinu gefið
út geisladisk sem hefur verið gefið
nafnið Heflaðir.
Diskurinn, sem hefur að geyma
tólf lög, var tekinn upp í Studio
Staðarsveit. Þorkell Símonarson,
eigandi hljóðversins, flutti það í fé-
lagsheimilið Klif á meðan á upp-
tökum stóð. Upptökustjóri var
Björgvin Gíslason.
Lögin á diskinum eru öll eftir
Sigga Hösk. og textarnir flestir eftir
Kristján Hreinsson en einnig eftir
Jón Hjartarson, Sæbjörn Vigni Ás-
geirsson og Þorkel Símonarson.
Siggi sér sjálfur um að selja disk-
inn ásamt vinum og kunningjum og
er hann til sölu hjá honum sjálfum
og eins í blómabúðinni Blómaverki í
Ólafsvík. Stefnt er að því að halda
útgáfutónleika á næstunni en hvaða
dag nákvæmlega hefur ekki verið
ákveðið.
Sigurður Höskuldsson gaf síðast
út disk árið 1998 og hét hann Gegn-
um glerið.
Sigurður hefur spilað í hljóm-
sveitum síðan árið 1966 og hét
fyrsta hljómsveitin sem hann spilaði
með Falkon og hefur hann síðan
spilað stanslaust. Auk þess að vera í
Klakabandinu hefur Sigurður spilað
og sungið við brúðkaup og einnig
troðið upp einn með sinn gítar á
Snæfellsnesi og víðar.
Sigurður starfar sem sjómaður og
notaði hann allan sinn frítíma í upp-
tökur á diskinum. Það kom oft fyrir
að hann hljóp beint af bryggjunni
inn í félagsheimili þar sem diskurinn
var hljóðritaður enda fór ómældur
tími í upptökur og æfingar.
Að sögn Sigurðar hefur diskurinn
fengið góðar viðtökur bæjarbúa og
hefur talsvert verið spilaður á Rás 2.
Aðspurður hvort hann ætli að
gefa út þriðja diskinn kvað Sigurður
það vera alveg öruggt en kvaðst
ekki vita hvenær af því yrði.
Hljómsveitin Klakabandið er skip-
uð þeim Sigurði Höskuldssyni,
Sveini Þór og Sigurði Elinbergs-
sonum, Aðalsteini Kristóferssyni og
Sigurði Gíslasyni.
En Klakabandið á um þessar
mundir 20 ára starfsafmæli.
Sigurður Hlö fremstur ásamt Klakabandinu.
Fagna tuttugu
ára starfsafmæli
Klakabandið hefur gefið út plötuna Heflaðir
FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 22. nóv-
ember mun poppsveitin Sálin hans
Jóns míns og sinfóníusveitin Sinfón-
íuhljómsveit Íslands snúa bökum
saman og flytja tónlist eftir þá fyrrnefndu. Nú er orð-
ið uppselt á þá tónleika og því hefur verið brugðið á
það ráð að bæta við aukatónleikum og verða þeir
haldnir daginn eftir, laugardaginn 23. nóvember.
Miðasala er þegar hafin. „Nei, við áttum nú ekki von á
því að þessu yrði svona vel tekið,“ segir Guðmundur
Jónsson, gítarleikari og lagasmiður Sálarinnar. „Báð-
ir aðilar renndu blint í sjóinn með þetta.“
Hann segir að þetta verði að megninu til ný tónlist.
„Þetta verður tekið upp og ef vel tekst til hyggjum við
á útgáfu. Þetta eru níu ný lög og því ljóst að þetta
verður meira krefjandi, bæði fyrir hljómsveit og
áhorfendur. Eitt eða tvö eldri lög verða svo í bland.“
Lögin voru samin í febrúar og mars á þessu ári og
þá var sinfóníuverkefnið ekki komið á borðið.
„Þegar það kom svo upp ákváðum við að taka ekki
safn bestu laga enda búnir að því með plötunni 12.
ágúst ’99. Við horfum því ekki aftur fyrir okkur á
þessum tónleikum
heldur ætlum við að
nýta okkur þetta
tækifæri til fulls.
Sköpunargleðin er á
fullu um þessar
mundir og auk þess er
ekkert sjálfgefið að fá
að leika með sinfón-
íuhljómsveitinni. Þorvaldur Bjarni hamast nú við að útsetja
og Stebbi (Hilmarsson söngvari) og Frissi (Sturluson bassa-
leikari) eru að semja texta.“ Að sinfóníusamstarfinu loknu
tekur síðan söngleik-
urinn við, Sól og Máni,
sem Borgarleikhúsið
frumsýnir snemma á
næsta ári. Nóg fram-
undan hjá Sálinni.
Nýtt efni
frumflutt
arnart@mbl.is
TENGLAR
.....................................................
-www.salinhansjonsmins.is
-www.sinfonia.is
Sálin hans Jóns míns stendur í stór-
ræðum þessa dagana.
POPPPÖNKSVEITIN Sum
41, sem spilar hressilegt og
grallaralegt rokk í anda Blink
182 og Green Day, gerir grín að
The Hives og The Strokes í nýj-
asta myndbandinu sínu, „Still
Waiting“. Um er að ræða
myndband við fyrsta lagið sem
tekið er af væntanlegri plötu
sveitarinnar, Does This Look
Infected?, sem er þeirra þriðja.
Í myndbandinu klæðast liðs-
menn jakkafötum í anda The
Hives og umhverfið er stæling
á myndbandi The Strokes við
lagið „Hard To Explain“. Í
myndbandinu sést hvar liðs-
menn sveitarinnar hitta útgáfu-
forkólf sem segir þeim að ef
þeir ætli að ná einhverjum ár-
angri verði þeir að breyta nafni
sínu í The Sums.
„Við gerðum þetta þar sem
við höfum verið að fylgjast með
öllum þessum svölu sveitum og
við komumst að því að við erum
ekki svalir,“ segir gítarleikar-
inn Dave „Brownsound“
Baksch.
„Okkur langaði til að gera
þetta myndband þar sem það
er svo mikið af „The“-böndum í
gangi núna. Grínið er samt góð-
látlegt þar sem við erum miklir
aðdáendur The Hives t.d.“
Þetta er ekki
fyrsta sinn sem
popppönksveit
tekur upp á
svona gríni en
margir minnast
líklega svipaðra
tilburða hjá
Blink 182 í
myndbandinu við
lagið „All the
Small Things“ þar sem stráka-
sveitir voru teknar fyrir.
Does This Look Infected?
mun einnig innihalda tvö lög
með hliðarsveit Sum 41, klisju-
kennda þungarokksbandinu
Pain For Pleasure. Lögin heita
„Reign & Pain“ og „World War
VII Part 1 & 2“.
The Strokes
fá sam-
keppni
Sum 41 verður The Sums
Sálin og Sinfónían – aukatónleikar