Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 261. TBL. 90. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 mbl.is Ísland býr yfir leyndarmáli Yfirlitssýning á íslenskum ljósmyndum í Moskvu Listir Spjallþáttur á skemmtilegum og alvarlegum nótum Fólk Boðberi nýrra tíma Róttæk breyting á réttindum íranskra kvenna Erlent SIGUR repúblikana í kosningunum í Bandaríkjunum í fyrradag er tal- inn auka líkurnar á að George W. Bush forseta takist að hrinda í framkvæmd hugmyndum um fyr- irbyggjandi árás á Írak til að stöðva tilraunir Saddams Husseins með gereyðingarvopn. Repúblikan- ar eru nú í meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins. Bush beitti sér ákaft í kosningabarátt- unni og þykir hafa styrkt stöðu sína með tilliti til endurkjörs árið 2004. Enn er deilt um orðalag yfirlýs- ingar gagnvart Írak í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Frakkar og Rússar vilja sem fyrr að ekki sé veitt heimild til árásar heldur verði fyrst reynt að kanna hvort eftirlit með vopnabúnaði Saddams beri ár- angur. Margir stjórnmálaleiðtogar eru á því að með kosningasigrinum hafi Bush í reynd fengið umboð frá bandarískum kjósendum til aðgerða gegn Saddam. „Einvörðungu al- þjóðasamfélagið, það er Atlants- hafsbandalagið, Rússland og helstu ríki arabaheimsins, getur nú sett Bush stólinn fyrir dyrnar í mál- efnum Íraks,“ sagði Aleksei Arba- tov, áhrifamikill þingmaður úr röð- um hins frjálslynda Jabloko-flokks í Rússlandi. Sögulegur sigur repúblikana Auknar líkur á stríði gegn Írak Washington, Moskvu. AFP, AP.  Fengu/18 Farþegavél Luxair fórst í þoku við Findel-völl AP BJÖRGUNARMENN í Lúxemborg við stjórnklefa Luxair-farþegavélar sem hrapaði skammt frá Findel- flugvelli í stórhertogadæminu í gærmorgun. Tveir kom- ust af, báðir slasaðir. Vélin var Fokker 50-skrúfuþota, af sömu gerð og nokkrar vélar Flugfélags Íslands. Ekki er vitað hvað olli slysinu en dimm þoka var á svæðinu. Svörtu kassarnir með upplýsingum um flugið fundust óskemmdir og verða nú rannsakaðir. /14 NÍUTÍU árum eftir Titanic- slysið hefur loks tekist með samanburði á DNA-erfðaefni að bera kennsl á líkamsleifar barns sem fannst drukknað í björgunarvesti sex dögum eftir slysið. Hinn látni var liðlega ársgamall Finni, Eino Vijami Panula. Móðir hans og fjórir bræður fórust einnig með Tit- anic. Líkið var á sínum tíma jarð- sett í Halifax í Kanada undir nafnlausum legsteini. Vísinda- menn ákváðu að grafa beinin upp í fyrra og rannsaka DNA- erfðaefni í mjólkurtönnum þess. Magda Schleifer, 68 ára gömul kona í Finnlandi, ættingi áður- nefnds Einos, var síðan fengin til að gefa blóðsýni svo að hægt væri að bera erfðaefni hennar saman við efnið úr tönnunum. Ættingi að handan Montreal. AFP. Fjármálaráðherra sagði einnig að þær tölur sem settar væru fram í spá Seðlabankans staðfestu í aðalatriðum þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. Allt útlit væri fyrir að viðskiptahall- inn í ár hyrfi og verðbólguspá bank- ans væri einnig hagstæð. Þá væri það rökrétt ákvörðun Seðlabankans að lækka vexti. ,,Ég sé ekki annað en að allir ættu að geta verið ánægðir með þessa spá. Hún staðfestir það sem við höfum haldið fram að væri framund- an,“ sagði fjármálaráðherra. Birgir Ísleifur Gunnarsson, banka- stjóri Seðlabankans, sagði Íslendinga geta horft björtum augum til framtíð- arinnar. Verðbólgan hefði haldið áfram að hjaðna og yrði framvindan með svipuðum hætti og það sem af er árinu myndi verðbólgumarkmið Seðlabankans um 2,5% verðbólgu á árinu nást fyrir næstu áramót. Seðlabankinn reiknar með að á seinni hluta næsta árs fari verðbólgan aðeins yfir verðbólgumarkmiðið á ný, en verði síðan við eða innan verð- bólgumarkmiðsins til ársloka 2004. Í þessum spám er ekki reiknað með að ráðist verði í stórfelldar virkjunar- og stóriðjuframkvæmdir á tímabilinu. Gert er ráð fyrir því að stöðugleiki ríki í gengismálum næstu tvö ár, framleiðsluspenna verði óveruleg eða lítils háttar slaki á tímabilinu. Áætlað er að þjóðarútgjöld dragist saman um rúmlega 3% í ár, en hag- stæð utanríkisviðskipti komi í veg fyr- ir samdrátt í landsframleiðslu. Á næsta ári er reiknað með 1½% vexti landsframleiðslu. Að sögn Birgis Ísleifs hafa aðilar atvinnulífsins, verkalýðshreyfingin og samtök atvinnurekenda, mikið hjálpað til við að ná verðbólgunni nið- ur. Þessir aðilar eigi miklar þakkir skildar. Bjartsýni, hagvöxtur, stöðugleiki HORFUR í efnahags- og peningamálum hér á landi eru góðar sam- kvæmt nýrri þjóðhagsspá Seðlabankans, sem lækkaði í gær stýri- vexti í níunda sinn á árinu, nú um 0,5% frá og með 12. nóvember. Geir H. Haarde fjármálaráðherra kvaðst í gærkvöldi ánægður með spá Seðlabankans. „Hún staðfestir það sem hefur verið að koma í ljós að undanförnu, að það hafa orðið mjög ör umskipti í hagkerfinu og sýnir að okkar efnahagslíf er orðið miklu sveigjanlegra en það áður var,“ sagði hann.                              !""! !""# !""$ %& %! %' %' %$ !& '& (' #)    Forsendur/C1 Gnarr í Gnarrenburg JEB Bush, sem var endurkjörinn ríkisstjóri í Flórída með miklum yfirburð- um, þakkar hér skaparanum fyrir sigurinn. Demókratar voru fyrir kosn- ingarnar farnir að gera sér vonir um að fella ríkisstjórann sem er bróðir George W. Bush forseta. Reuters Guði sé lof!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.