Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 20
Morgunblaðið/Sverrir
Jóhann G. Jóhannsson og Felix Bergsson skemmtu börnum á Barnaspítala
Hringsins nýlega.
BÖRNIN á Barnaspítala Hringsins
réðu sér mörg hver ekki fyrir kæti
í vikunni en þá fengu þau góða
gesti, enga aðra en gamanleik-
arana Jóhann G. Jóhannsson og
Felix Bergsson. Þeir brugðu á leik
með börnunum og sögðu þeim sög-
ur.
Að sögn Jóhanns voru við-
brögðin afskaplega góð. Þeir Felix
sungu, léku og spjölluðu við börn-
in um danska rithöfundinn H.C.
Andersen, en tilefnið var að hafn-
ar eru sýningar á söngleiknum
Honk! í Borgarleikhúsinu. „Söng-
leikurinn er byggður á ævintýrinu
um Ljóta andarungann og börnin
könnuðust auðvitað vel við það æv-
intýri,“ sagði Jóhann. „Þau kunnu
líka fleiri eftir H.C. Andersen. Við
sögðum þeim sögu skáldsins og
lékum svo smábút úr leikritinu og
sungum hvor sitt lagið. Þetta féll
mjög vel í kramið hjá þeim, þau
voru voðalega glöð, það var mjög
gaman að sjá þau,“ sagði Jóhann.
Þekktu þá undir eins
Börnin á Barnaspítalanum voru
heldur ekki í vafa um hverjir voru
þarna á ferð og báru undir eins
kennsl á Jóhann, en hann er annar
stjórnenda Stundarinnar okkar í
vetur þar sem hann bregður sér í
líki Bárðs en besta vinkona hans,
Birta er leikin af Þóru Sigurð-
ardóttur. „Þetta getur stundum
verið ruglingslegt hjá þeim, að ég
leiki bæði kött [Í Honk!] og Bárð
og sé svo líka í Morgunstundinni,“
segir Jóhann hlæjandi. „En þau
eru fljót að átta sig og það er
mjög gaman að fá svona við-
brögð.“
Leitar í sarp Gunna og Felix
Felix var einnig stjórnandi
Stundarinnar okkar ásamt Gunn-
ari Helgasyni á sínum tíma og
börnin þekktu hann einnig sam-
stundis. „Félagarnir Felix og
Gunni hafa lifað vel áfram í huga
barnanna, hafa gefið út diska og
myndbönd og verið að skemmta út
um allt.“ Jóhann segist m.a. hafa
leitað í smiðju þeirra við undirbún-
ing Stundarinnar í vetur. „Maður
leitar örugglega í sarpinn þeirra
áfram eftir alls kyns hugmyndum.
Við erum allir góðir vinir.“
Í söngleiknum Honk! segir af
Ljóta sem er auðvitað fæddur önd,
en fyrr en varir kemur í ljós að
hann er engin venjuleg önd; hann
er öðruvísi, kann ekki að kvaka
rétt, - segir honk þegar hann á að
segja bra, og mætir fordómum og
háði frá fjölskyldu sinni og ná-
grönnum. Hann villist af vegi, og
ofsóttur af sísvöngum ketti reynir
hann að rata aftur heim. Í þeirri
háskaför lendir hann í ótrúlegum
ævintýrum.
Frægir leikarar í heim-
sókn á barnaspítalanum
Austurbær
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
20 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ILLA farið og ryðgað skip hefur leg-
ið við festar í Arnarnesvogi í um
tvær vikur án leyfis bæjaryfirvalda.
Að sögn bæjarritara Garðabæjar
hefur eigandinn upplýst að til standi
að fara með skipið til Njarðvíkur til
förgunar.
Bæjarstjórn óskaði eftir því við
bæjarstjóra á dögunum að málið yrði
kannað og að sögn Guðjóns Friðriks-
sonar bæjarritara var það gert. „Við
vildum vita hvort báturinn væri
sómasamlega festur og menn frá
Björgun, sem eru að vinna þarna í
voginum, töldu að festingarnar væru
forsvaranlegar í sjálfu sér. Hvort
hann þolir verstu óveður er hins veg-
ar annað mál.“ Guðjón segir að eig-
andi bátsins hafi farið með hann á
núverandi stað þar sem höfninni í
Garðabæ hafi verið lokað en þá hafi
öllum skipseigendum verið gert að
fara með skip sín í burtu. „Við höfum
fellt úr gildi okkar hafnarreglugerð.
Væntanlega eru menn að spara sér
einhver hafnargjöld en manni finnst
svolítið einkennilegt að þeir skuli
geta gert þetta án þess að fá leyfi til
þess.“
Ný lagasetning í bígerð
Hann segir að samkvæmt upplýs-
ingum frá eiganda skipsins eigi það
að fara til Njarðvíkur innan skamms
í eyðingu. „Þannig að þetta er bara
spurning um tíma.“
Helgi Jóhannsson, lögfræðingur
hjá Siglingastofnun, segir að ef bát-
urinn sé inni á hafnarsvæði Garða-
bæjarhafnar geti stjórn hafnarinnar
gert kröfu um að skipið verði fjar-
lægt. Sé ekki lengur höfn í bænum
muni málið væntanlega heyra undir
umhverfisráðuneytið.
Í nýju lagafrumvarpi umhverfis-
ráðherra sé ákvæði um siglingaleyfi
og strönduð skip. Þar segir að hafi
skip strandað þannig að því verði
ekki komið á flot beri eiganda að
fjarlægja það sem fyrst og eigi síðar
en sex mánuðum eftir að skip
strandi. Eiganda skips sem liggi í
fjöru beri að fjarlægja það innan árs.
Ekki náðist í eiganda skipsins
vegna málsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Talið er að skipið sé forsvaranlega fest en bæjarritari segir annað mál hvort það þoli verstu óveður.
Ryðgað skip við fest-
ar í Arnarnesvogi
Garðabær
GERT er ráð fyrir 22 íbúðum á lóð
Ölgerðarinnar við Frakkastíg en
nánast öll mannvirki sem tilheyra
gömlu verksmiðjunni verða rifin.
Búist er við að deiliskipulag reitsins,
sem lóðin tilheyrir, verði auglýst á
næstu dögum eða vikum.
Skipulags- og bygginganefnd
Reykjavíkur lýsti sig í síðustu viku
jákvæða gagnvart hugmyndum um
uppbyggingu á Ölgerðarlóðinni en
hún tilheyrir reit sem afmarkast af
Klapparstíg, Njálsgötu, Grettisgötu
og Frakkastíg. Að sögn Nikulásar
Úlfars Mássonar, hverfisstjóra hjá
skipulagsfulltrúa Reykjavíkur, hefur
legið fyrir deiliskipulag fyrir reitinn
að undanskilinni umræddri lóð en nú
verði hugmyndir um uppbyggingu á
henni innfelldar í skipulagið.
„Þarna eiga að vera 22 íbúðir og
það er gert ráð fyrir að öll hús á lóð
gömlu Ölgerðarinnar Egils Skalla-
grímssonar verði fjarlægð að und-
anskildu gamla skrifstofuhúsnæðinu
við Frakkastíg 14B. Þetta þýðir að
öll brugghús, suðuhús, átöppunar-
hús og kassagerðarhús fara,“ segir
Nikulás.
Sömu hlutföll og áður
Hann segir hugmyndina ganga út
á að íbúðarhúsin, sem byggð verða í
stað verksmiðjuhúsanna, verði í
sömu hlutföllum og það sem fyrir
var. „Þau voru bara orðin mjög léleg
og óhentug sem íbúðarhúsnæði
þannig að það er talið borga sig að
rífa þau og byggja upp í nánast
sömu stærðum aftur. Það verða svo-
lítið margar tegundir af húsum og
íbúðum þarna þannig að þetta verð-
ur fjölbreytilegt.“
Nikulás Úlfar býst við því að
skipulag reitsins verði auglýst á
næstu dögum eða vikum. „Þannig að
það væri hægt að hefja þarna fram-
kvæmdir eftir 8–9 vikur.“
Íbúðir komi á
Ölgerðarreitinn
Morgunblaðið/Þorkell
Líkan af fyrirhuguðu skipulagi lóðarinnar. Nýju húsin verða af svipaðri
stærð og þau sem verða rifin. Húsin verða margskonar að útliti.
Miðborg
NESIÐ í nýju ljósi er yfirskrift
íbúaþings sem haldið verður á
Seltjarnarnesi næstkomandi laug-
ardag, 9. nóvember.
Í fréttatilkynningu frá ráðgjaf-
arfyrirtækinu Alta, sem sér um
framkvæmd íbúaþingsins, segir
að Seltirningar séu nú að fara að
skipuleggja það litla sem eftir er
af óbyggðu landi í bæjarfélaginu.
„Hér er því nánast verið að
horfa á „endanlega“ mynd Sel-
tjarnarness,“ segir í tilkynning-
unni.
Þingið verður haldið í Valhúsa-
skóla á laugardag og stendur milli
klukkan 10 og 18.
Allir íbúar á Seltjarnarnesi og
aðrir áhugasamir eru velkomnir á
þingið.
Nesið í nýju ljósi
Seltjarnarnes
NÝIR eigendur lands í Akrahverfi í
Garðabæ hafa óskað eftir staðfest-
ingu frá bæjaryfirvöldum um að þau
séu tilbúin til samninga um uppbygg-
ingu svæðisins á svipuðum forsend-
um og viðræður við Jón Ólafsson,
fyrrum eiganda landsins, gerðu ráð
fyrir. Bæjarritari segir áhuga fyrir
því hjá bænum þótt ekki hafi legið
fyrir niðurstaða í viðræðunum við
Jón.
Keyptu lóðir af Jóni Ólafssyni
Nes ehf. keypti á dögunum allar
raðhúsa-, parhúsa- og fjölbýlishúsa-
lóðir af Jóni Ólafssyni í Akrahverfi í
Garðabæ en á þeim er ráðgert að
reisa um 270 íbúðir.
Að sögn Guðjóns Friðrikssonar
bæjarritara lá niðurstaða ekki fyrir í
viðræðum við Jón en bæjaryfirvöld
hafi lýst yfir áhuga á að halda áfram
viðræðum við nýja eigendur lands-
ins.
Alls er ráðgert að um 410 íbúðir
verði í heildina í Akrahverfi en fyrir
utan landið sem Nes ehf. keypti eru
rúmlega 140 einbýlishúsalóðir sem
enn eru í eigu Jóns. Guðjón segir að
gert sé ráð fyrir að uppbygging
hverfisins geti hafist strax á næsta
ári en fyrir liggur deiliskipulag af
svæðinu sem samþykkt var árið 1997.
Viðræður snúast um
kostnaðarskiptingu
Guðjón segir viðræður við landeig-
endur meðal annars snúast um
kostnaðarskiptingu vegna gatna-
framkvæmda í hverfinu en hún muni
haldast í hendur við það hverjir taki
að sér það verk. „Við höfum gatna-
gerðargjöldin til að innheimta ef við
tökum þetta að okkur, ef þeir taka
þetta að sér verða einhverjar aðrar
reglur.“
Nýir eigendur í Akrahverfi
Vilja ræða við
bæjaryfirvöld
Garðabær