Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN 38 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir al- þingiskona sækist eftir 2. sætinu í flokksvali Samfylkingarinnar í Suð- vesturkjördæmi 9. nóvember nk. Þórunn hefur set- ið á Alþingi í fjögur ár. Á þeim tíma hef- ur hún sýnt og sann- að að þar fer hug- sjónakona og öflugur talsmaður mannréttinda, friðar og alþjóðlegs samstarfs. Fáir al- þingismenn tala um alþjóðamál af jafnmikilli þekkingu og hún, enda hefur Þórunn, þrátt fyrir ungan ald- ur, dvalið langdvölum erlendis við nám og störf, m.a. sem sendifulltrúi fyrir Rauða krossinn í Asíu og Afr- íku. Þórunn hefur, einn fárra þing- manna Samfylkingarinnar, beitt sér gegn stórfelldum virkjanaáformum stjórnvalda á Norðausturlandi og er framganga hennar á Alþingi, er kemur að náttúruverndarmálum, af- ar mikilvæg fyrir þann stóra hóp Samfylkingarfólks og stuðnings- manna flokksins sem aðhyllast nátt- úruvernd. Samfylkingarfólk í suðvestri – kjósum Þórunni í 2. sætið í flokks- vali Samfylkingarinnar. Þórunn – talsmað- ur náttúruverndar í 2. sætið! Ása Richardsdóttir, Kópavogi, skrifar: JÓHANNA Sigurðardóttir gefur kost á sér í annað sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík næstkomandi laugardag. Jóhanna hefur mikla reynslu sem nauðsynleg er til að leiða svo stór- an flokk í öðru hvoru Reykjavíkurkjör- dæmanna. En það er ekki nóg að hafa reynsluna eina held- ur þurfa heilindi að vera til staðar líka og Jóhanna hefur þau svo sann- arlega. Jóhanna hefur alla tíð barist fyrir þeim verst settu í þjóðfélaginu s.s. öryrkjum, fötluðum og náms- mönnum og ekki er líklegt að það muni breytast. Einnig hefur Jó- hanna sýnt kjark og þor þegar hún hefur sett fram fyrirspurnir til æðstu ráðamanna Alþingis og um leið afhjúpað spillingu og óheilindi þessara ráðamanna og annarra. Ég hef fulla trú á að Samfylkingin leiði næstu ríkisstjórn og þá er nauðsynlegt að Jóhanna verði í for- ystu flokksins og því skora ég á Samfylkingarfólk í Reykjavík að treysta henni fyrir áframhaldandi forystu. Jóhönnu aftur í ráðherrastól Friðrik Atlason stuðningsfulltrúi skrifar: Í ÞAU 8 ár, sem ég hef fylgst með störfum Lúðvíks Berg- vinssonar, hef ég séð vaxandi stjórnmálamann. Hinn 9. nóvember nk. munu jafnaðarmenn í Suður- kjördæmi velja framboðslista í hinu nýja kjördæmi. Það er öllum ljóst að baráttan í vor verð- ur hörð og lítið eftir gefið. Það er mín eindregna skoðun að við jafnaðarmenn eigum að grípa tækifærið og velja ungan og öflugan forystumann þessa nýja kjördæmis. Frá þeim tíma sem Lúðvík var fyrst kjörinn á þing hefur hann bæði staðið sig með sóma, verið vaxandi í hlutverki sínu og borið ungum frambjóðendum gott vitni, en hafa ber í huga að Lúðvík var einungis 31 árs gamall, er hann var fyrst kjörinn á þing. Ég tel það mikið forgangsmál að jafnaðarmenn leggist á eitt og tryggi Lúðvíki 1. sætið í prófkjör- inu næstu helgi og taki þar með fyrsta skrefið að góðum sigri með ferskan og sigurstranglegan lista í kosningunum í vor. Lúðvík í 1. sætið Gestur Páll Reynisson, fyrrverandi formað- ur Varðbergs, skrifar: RANNVEIG Guðmundsdóttir hefur tvisvar leitt lista jafn- aðarmanna í næststærsta kjördæmi landsins og ekki að ástæðulausu. Rann- veig hefur með störf- um sínum sýnt að henni er treystandi til að vera í forystu. Hún hefur gegnt fjölda trúnaðarstarfa með sóma og meðal annars verið for- maður bæjarráðs Kópavogs, félags- málaráðherra og formaður þing- flokks Samfylkingarinnar. Rannveig er jafnaðarmaður af bestu gerð. Á stjórnmálaferli sínum hefur hún sett félagsmálin á oddinn og verið öflugur málsvari fjöl- skyldna, barna og launafólks. Hún hefur barist ötullega fyrir réttindum fatlaðra og einnig látið til sín taka í umhverfismálum og utanrík- ismálum. Ég styð Rannveigu í 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðvest- urkjördæmi. Þá ákvörðun tók ég vegna reynslu hennar, stefnumála og þess að ég treysti henni best til for- ystu í kjördæminu. Ég hvet alla Samfylkingarfélaga til þess að taka þátt í flokksvalinu 9. nóvember og kjósa Rannveigu í 1. sæti. Rannveigu í fyrsta sæti Svala Jónsdóttir fjölmiðlafræðingur skrifar: KOSNINGABARÁTTAN að vori mun snúast um lífskjör fólks og um umhverfismál. Sýnt hefur verið fram á að mat- vælaverð hér á landi er með því hæsta sem gerist í heiminum. Ljóst er að verðið hefur ekki farið lækkandi held- ur hækkandi með yfirtöku örfárra aðila á dreifingar- og sölukerfinu. Samruni fyrirtækja átti að leiða til ,,hagræðingar“, en afleiðingin hefur fyrst og fremst orðið gífurleg auðsöfnun á fárra hendur á kostnað neytenda. Mesta kjarabót landsmanna væri lækk- andi vöruverð. Fyrir því er Rann- veig Guðmundsdóttir að berjast á Alþingi ásamt öðrum þingmönnum flokksins. Umhverfisverndarmál eru of- arlega á baugi um þessar mundir, ekki síst vegna hugmynda í virkj- unarmálum sem vægast sagt orka tvímælis. Við þurfum vissulega að nýta orkulindir okkar, en með var- færni og með skírskotun til þeirra kynslóða sem eiga að erfa landið. Ég hef persónulega kynnst heil- brigðri afstöðu Rannveigar til þess- ara mála og stuðningi hennar við þau. Ég styð Rannveigu heilshugar til áframhaldandi forystu fyrir Sam- fylkinguna í suðvesturkjördæmi. Rannveig áfram í forystu! Ingvi Þorsteinsson, náttúrufræðingur, skrifar: GRUNNÞÁTTUR heilbrigðis- þjónustunnar stendur ekki styrk- um stoðum um þessar mundir. Það er sama úr hvaða átt er komið að heilsugæslunni – alls staðar blasa við brestir. Læknaskortur er augljós. Í Hafnarfirði og Kópavogi lætur nærri að fyrir hverja tvo heim- ilislækna sem sinna íbúum vanti einn. Þetta þýðir að í þessum tveimur sveitarfélögum eru um 15 þúsund manns læknislausir. Það samsvarar því að allir íbúar á Norðvesturlandi hefðu ekki að- gang að lækni. Engin von er um umbætur. Uppsagnir lækna blasa við. Heil- brigðisyfirvöld vilja ekki veita heimilislæknum sömu tækifæri og öðrum læknum til að afla sér tekna. Það verður til þess að æ færri læknar gefa sig að þessum grunnþætti heilbrigðiskerfisins. Fyrir liggur að með hverri krónu sem varið er í heilsugæslu sparast fleiri krónur á öðrum stigum heil- brigðiskerfisins. Ef það vantar núna tíu lækna í Kópavogi og Hafnarfirði mun vanta enn fleiri eftir nokkur ár ef heldur fram sem horfir. Vanti fleiri heimilislækna eftir nokkur ár verða sjúkrahúsin okkur enn dýrari en þau eru í dag. Þegar buddan leyfir Á sama tíma og getuleysi stjórn- valda til að takast á við vanda heilsugæslunnar leiðir til verri þjónustu við almenning þarf fjöl- skyldufólk æ oftar að velta fyrir sér hvort það hafi efni á að fara til læknis. Í stað þess að heilsa lík- ama og sálar stýri aðsókn að heil- brigðisþjónustu stýrir heilsa budd- unnar ferðinni. Það er orðið dýrara að stinga út gröft á fingri og lina þjáningar en að fara í leik- hús. Einstæð móðir með ungling sem veikist alvarlega getur vænst þess að þurfa að punga út tugum þúsunda króna í myndatökur, lyf og fleira. Skýrasta dæmið um hvernig ástatt er orðið er að í lok síðasta mánaðar var ekkert að gera við sýnatökur á einu sjúkra- húsi í Reykjavík. Þegar föstudag- urinn 1. nóvember rann upp varð vitlaust að gera og sýnin streymdu inn. Það var augljóst að fólk beið með að sækja sér heilsugæsluþjón- ustu þangað til á útborgunardegi þegar það átti fyrir henni. Heilbrigðisyfirvöld geta þakkað góðu og þolinmóðu starfsfólki heil- brigðisgreina að ekki er í óefni komið. Það er deginum ljósara að á mestu uppgangstímum efnahags hér á landi frá stofnun lýðveldisins hefur heilsugæslunni hrakað. Það er núverandi stjórnvöldum slæmur vitnisburður. Ótal verkefni bíða nýrrar stjórnar að afloknum kosn- ingum í vor. Ljóst er að efla þarf forvarnir og heilsugæslu með auknum fjármunum og endur- skipulagningu rekstrar og eins þarf að endurskoða frá grunni hina fjárhagslegu ábyrgð sameig- inlegra sjóða landsmanna á grunn- þáttum heilbrigðisþjónustunnar. Samfylkingin er reiðubúin til að takast á við þessi verkefni. Er læknislaust á öllu Norð- vesturlandi? Eftir Ásgeir Friðgeirsson Höfundur er ritstjóri og tekur þátt í flokksvali Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. „Í stað þess að heilsa lík- ama og sál- ar stýri að- sókn að heilbrigðisþjónustu stýrir heilsa buddunnar ferðinni.“ ÞAÐ er mikilvægt að á Alþingi sitji fólk sem hefur vilja og getu til að setja sig inn í mál og taka ákvarðanir. Það er jafnframt mikilvægt að þingmenn þekki kjör þess fólks sem þeir starfa fyrir. Guðmundur Árni Stefánsson er þess- um kostum búinn í ríkum mæli. Framundan er flokksval Sam- fylkingarinnar í Suðvesturkjör- dæmi. Glæstur hópur karla og kvenna gefur kost á sér á fram- boðslistann. Enginn er betur til þess fallinn að leiða þann hóp og þá vinnu sem er framundan en Guð- mundur Árni. Þar fer í senn glæst- ur foringi og reyndur og hæfur stjórnmálamaður, sem er óragur við að taka ákvarðanir. Það sýndi hann þau ár sem hann var bæj- arstjóri í Hafnarfirði. Um leið er Guðmundur Árni alltaf tilbúinn að hlusta á fólk og liðsinna því ef hann á þess nokkurn kost. Það efast eng- inn sem þekkir Guðmund Árna um að hjartað er á réttum stað – það slær vinstra megin. Ég hvet allt Samfylkingarfólk í kjördæminu til að taka þátt í flokksvalinu nk. laugardag og tryggja Guðmundi Árna glæsilega kosningu í fyrsta sætið. Guðmund Árna í fyrsta sæti Guðmundur Rúnar Árnason, bæjarfulltúi í Hafnarfirði, skrifar: Síðumúla 24 • Sími 568 0606 Sjónvarpsskápur 139.000 Kr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.