Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 21
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 21
GAMALT timburhús af Oddeyrinni
á Akureyri, svokallað Wathnehús,
var flutt á milli staða innanbæjar í
gær. Húsið, sem er um 250 fermetr-
ar að grunnfleti, hæð og ris, hafði
verið tekið í sundur og var það flutt
í tveimur ferðum gegnum bæinn á
stórum flutningavagni, enda stærri
einingin 20–25 tonn að þyngd. Eftir
að komið var upp á Hjalteyrargötu
þurfti að aka til norðurs í lög-
reglufylgd, upp Tryggvabraut og
suður Glerárgötu og Drottning-
arbraut, að Krókeyri, þar sem hús-
ið verður geymt fyrst um sinn.
Ferðin gekk nokkuð vel en þó varð
ökumaður fólksbíls fyrir því óláni
að aka á annan helming hússins á
leiðinni. Bíllinn skemmdist nokkuð
en húsið ekki. Starfsmenn bæjarins
þurftu að hnika til umferðarvitum,
ljósastaurum og umferðarskiltum á
þeirri leið sem ekin var, enda húsið
fyrirferðarmikið.
Húsið er enn í eigu Norðlenska
en fyrirtækið hefur verið að taka
til á lóð sinni og því þurfti húsið að
víkja. Félagsskapurinn Vinir
Wathnehúss sá um flutninginn og
hefur fengið styrki til verksins.
Sigurður Bergsteinsson, fulltrúi
hópsins, sagði húsið fallegt og í
þokkalegu standi. Hann sagði það
geta nýst í framtíðinni undir safn
eða eitthvað slíkt en að það kostaði
töluverða vinnu að gera húsið upp.
„Það verður líka alltaf dýrara að
gera upp gömul hús en byggja ný.
En húsið er merkilegt og við teljum
það mikils virði fyrir sögu Ak-
ureyrar og jafnvel landsins alls að
það verði varðveitt.“
Húsið reisti Ottó Wathne árið
1895 á Oddeyrartanga og var það í
upphafi notað fyrir síldarverkun.
Akureyrarbær eignaðist húsið í
kringum 1930 og það var komið í
eigu Kaupfélags Eyfirðinga
skömmu síðar. Þar var lengi rekin
skipasmíðastöð KEA en síðast var
þar rafvirkjafyrirtækið Bláþræðir.
Morgunblaðið/Kristján
Öðrum hluta Wathnehúss ekið eftir Glerárgötu. Starfsmenn bæjarins þurftu að hnika til umferðarvitum, ljósa-
staurum og umferðarskiltum á þeirri leið sem farið var með húsið.
Wathnehús flutt í tveimur hlutum
Rússneskt bókmennta- og menn-
ingarkvöld verður í Deiglunni,
Kaupvangsstræti, í kvöld, fimmtu-
dagskvöldið 7. nóvember,
byltingardaginn. Vladimir Bouchl-
er leikstjóri segir frá leikverkinu
Venjulegt kraftaverk sem frum-
sýnt verður hjá LA í desember og
segir einnig frá höfundinum Évg-
ení Schwartz. Þá verður lesið upp
og borin fram ekta rússnesk rauð-
rófusúpa og greint frá hvernig
hún er búin til auk þess sem
fjallað verður um matarmenningu
Rússa. Loks mun Vladimir fræða
gesti um það hvernig er að vera
Rússi nú um stundir. Tónlist verð-
ur einnig á dagskrá, m.a. munu
Rússar og Eistar taka lagið sam-
an.
Í DAG
Ný mið er yfirskrift ráðstefnu sem
Stafnbúi, félag auðlindadeild-
arnema við Háskólann á Akureyri
og Hið íslenska sjávarútvegs-
fræðafélag heldur í stofu L203 á
Sólborg á morgun, föstudaginn 8.
nóvember, frá kl. 13 til 17.
Ráðstefnunni er ætlað að varpa
ljósi á ný tækifæri sjávarútvegsins
til sóknar, ný mið sjávarútvegsins
í framtíðinni. Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra setur ráð-
stefnuna og þá flytur Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
erindi um aukið virði sjávarafurða
en að því loknu verða flutt nokkur
erindi, m.a. um umhverfismál, eldi
nýrra tegunda, aukningu afkasta
með tækni, sóknarfæri íslenskra
sjávarafurða, lífefnavinnslu úr
rækjuskel og vannýtta stofna.
Á MORGUN
HÖFUNDARNIR tala er yf-
irskrift opinnar málstofu sem
verður í Háskólanum á Ak-
ureyri í Glerárgötu 36, 2. hæð,
í dag, fimmtudaginn 7. nóv-
ember, frá kl. 15.15 til 17.
Björn Ingólfsson, skólastjóri
á Grenivík, og Jón Þ. Þór
sagnfræðingur kynna nýút-
komnar bækur sínar, Bein úr
sjó og Sjávarútvegssögu Ís-
lands, 1. bindi.
Fyrrnefnda bókin greinir
frá útgerðarsögu Grýtubakka-
hrepps, en hann var um tíma
eitt stærsta útgerðarpláss
landsins og á vertíðinni 1833
setti Vilhjálmur Þorsteinsson í
Nesi veiðimet á skipi sínu Ak-
ureyrinni.
Í síðarnefndu bókinni er
greint frá sögu fiskveiða við
Ísland frá upphafi byggðar til
aldamóta 1900.
Sókn útlendinga á Íslands-
mið, harðræði árabátaútgerðar
og tími seglskútna eru í
brennidepli.
Auðlindadeild Háskólans á
Akureyri og Bókaútgáfan
Hólar standa fyrir umræðun-
um og er málstofan öllum op-
in.
Kynna
bækur
um sjáv-
arútveg