Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 31

Morgunblaðið - 07.11.2002, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 31 EMBÆTTI umboðs-manns rússneskaþingsins, Dúmunnar,var komið á fót fyrir fjórum árum, en það var ein af þeim skuldbindingum sem Rúss- ar tóku á sig þegar Rússland gerðist aðili að Evrópuráðinu fyr- ir sex árum. Prófessor Oleg Mironov, sem er fyrstur til að gegna embættinu, kom hingað til lands í vikunni til að heimsækja íslenskan starfsbróður sinn, Tryggva Gunnarsson. Mironov hélt í gær fyrirlestur í lagadeild Háskóla Íslands um hvernig Rússum hafi gengið að fullnægja þjóðréttarlegum skuldbindingum sínum á sviði mannréttinda. Umboðsmaðurinn er sjálf- stæður og engum háður Mironov segir, í samtali við Morgunblaðið, að umboðsmaður rússneska þingsins, sem sé sjálf- stæður og engum háður, hafi fjórum aðalverkefnum að gegna. Fyrst og fremst sé það hlutverk umboðsmanns að standa vörð um rétt ríkisborgara. „Í hverjum mán- uði fáum við rúmlega 3.000 kvartanir. Við er- um líka með skrifstofu þannig að almenningur geti leitað til okkar. Annað verkefni er að bæta löggjöf á sviði mannrétt- inda. Við höfum lagt margvísleg- ar tillögur þar að lútandi fyrir Dúmuna. Í þriðja lagi er hlutverk okkar að koma á alþjóðlegu sam- starfi á þessu sviði og er heim- sóknin til Íslands hlekkur í því verkefni. Loks á umboðsmaður að upplýsa almenn- ing um réttindi hans. Umboð okkar er því mjög stórt og útbreitt,“ segir Mironov, en alls starfa 170 manns hjá emb- ættinu. „Ég efast um að hver einn og einasti íbúa Rússlands, sem alls eru 143 milljónir, þekki til emb- ættis umboðsmanns sem hefur einungis verið til staðar í rúm fjögur ár. Embættið á rætur sínar að rekja til Svíþjóðar, eftir sjö ár munu Svíar halda upp á 200 ára afmæli embættisins en ég á ekki von á því að allir Svíar þekki embættið. Það krefst langs tíma og ákveðinna átaka þar til allur almenningur í Rússlandi verður sér meðvitandi um embætti um- boðsmanns,“ segir Mironov, en bætir við að mikilvægur grund- völlur fyrir þessa starfsemi verði lagður. 51% þeirra kvartana sem ber- ast umboðsmanni tengist glæpa- starfsemi af einhverju tagi. „Þetta eru t.d. kvartanir gagn- vart lögreglu, saksóknurum og héraðsdómurum vegna misbeit- ingar valds, langs málareksturs fyrir dómi og ýmislegs í þeim dúr. Þessi þróun er áhyggjuefni, að mínu mati,“ segir Mironov. Hann segir að hver kvörtun sé rannsökuð og komist embættið að þeirri niðurstöðu að réttindi borg- aranna hafi verið brotin reyni það að stuðla að framgangi réttvís- innar. „Hlutverk umboðsmanns er einnig að leita uppi vandamál. Við sitjum ekki róleg og bíðum eftir kvörtunum heldur ferðumst um landið, leitum að vandamálum og reynum að leysa þau. Við megum ekki breytast í kerfisskrifstofu, umboð umboðsmanns er breiðara. Ríkisvaldið vildi kannski helst að umboðsmaður sæti inni á skrif- stofu og biði eftir kvörtunum en umboðsmaður verður að vera virkari og eiga sjálfur frum- kvæði,“ segir Mironov. Umboðsmaður getur sjálfur ekki höfðað mál fyrir dómstólum, hafi verið brotið á réttindum ein- staklinga, en hann getur leitað til saksóknara finni hann nægar for- sendur fyrir málsókn og fengið mál höfðuð. Segir Mironov að fjöl- mörg dæmi séu um þetta í starf- semi embættisins. Aðspurður hvernig stofnanir og embættismenn taki athugasemd- um þegar umboðsmaður bendir á einhver mein í kerfinu, segir Mironov að oft verði starfsmenn embættisins að krefjast þess harkalega að fá afhent skjöl sem þeir þurfa við rannsókn mála. „Ef einhver embættismaður vill ekki senda okkur þau skjöl sem við biðjum um leita ég til yf- irmanns hans og fer fram á að honum verði refsað. Þetta er ef- laust auðveldara í ykkar landi þar sem umboðsmaður þekkir alla persónulega. Enginn embættis- maður er hrifinn af umboðsmanni sínum þar sem við bendum á galla í þeirra störfum. En okkar starf miðar ekki að því að draga upp svarta mynd af t.d. lögreglu og hernum, heldur er tilgangur- inn eingöngu að þessar stofnanir breytist til hins betra og margir embættismenn skilja þetta,“ seg- ir Mironov. Hann segir erfiðast við starfið að öðlast virðingu, bæði íbúa landsins og embættis- mannanna. „Þetta er vandamál sem umboðs- menn um all- an heim eiga við að stríða. Þetta er sér- staklega rétt í okkar til- felli. Emb- ættið er ungt, einung- is rúmlega fjögurra ára gamalt, og í gríðarlega stóru landi. Það er afar erfitt að fá virðingu frá öllum stétt- um í land- inu.“ Lögin virka ekki sjálfkrafa Eins og áð- ur segir var það ein af skuldbind- ingum sem Rússar tóku á sig við inngöngu í Evrópuráðið að emb- ætti umboðsmanns yrði komið á fót. Rússar tóku á sig fleiri skuld- bindingar sem tengjast því að tryggja mannréttindi borgar- anna. Mironov hefur tekið saman skýrslu um hvernig Rússum hef- ur tekist að uppfylla þessar skuldbindingar. „Löggjöf Rússlands færist sí- fellt nær því að vera í samræmi við staðla Evrópuráðsins. Það gengur hins vegar mun hægar að framfylgja þessari nýju löggjöf í Rússlandi en almennt í Evrópu- ráðinu, því lögin virka ekki sjálf- krafa. Spilling, skriffinnska og vanvirðing mannréttinda fyrir- finnst enn hjá embættismönnum, lögreglumönnum og dómurum. En ég er bjartsýnn á að ástandið í landinu muni batna, ekki síst á löggjafarsviðinu. Það er mikil- vægast að bæta efnhagslega og félagslega stöðu íbúa landsins,“ segir Mironov að lokum. Umboðsmaður Dúmunnar í Rússlandi í heimsókn hjá íslenskum starfsbróður Spilling og vanvirð- ing mannréttinda fyrirfinnast enn Morgunblaðið/Sverrir 51% þeirra kvartana sem berast umboðsmanni tengjast glæpastarfsemi af einhverju tagi, segir Oleg Mironov, umboðsmaður rússneska þingsins. Fjögur ár eru liðin frá því embætti umboðs- manns rússneska þingsins var stofnað og berast því nú rúmlega 3.000 kvartanir mán- aðarlega. Oleg Miron- ov, umboðsmaður þingsins, sagði Nínu Björk Jónsdóttur að enn væri langt í land með að embættið verði vel þekkt meðal þjóð- arinnar sem telur alls 143 milljónir, það krefj- ist langs tíma og nokk- urra átaka. nina@mbl.is naði var en félagi kannib- gla kom voru tvö aplötum eð plasti. ð hundr- m voru æðlingar plöntur naðurinn r miðað ögn lög- ir tveir ögreglu- þar sem gær og sleit hjá ræði af flur sem gleymdri ð rækta dir dýnu eldhús- Þetta var í annað skipti í þessari viku sem fíkniefnadeild lögregl- unnar í Reykjavík lagði hald á kannabisplöntur. Á mánudag voru tveir menn handteknir eftir að 50 kannabisplöntur fundust við hús- leit hjá þeim. Sama dag fundust um 300 grömm af hassi, 200 grömm af marijúna og um 750.000 krónur í reiðufé á heimili tvítugs manns. Það sem af er árinu hefur lögreglan í Reykjavík lagt hald á um 800 slíkar plöntur og ríflega hálft kíló af marijúana. Að sögn Ásgeirs Karlssonar, yfirmanns fíkniefnadeildarinnar, er talið að meirihlutinn af því marijúna sem er selt á Íslandi, sé ræktað hér á landi. Aðspurður segir hann að vís- bendingar séu um að ræktunin sé að færast í aukana, a.m.k. hafi lög- reglan í Reykjavík lagt hald á fleiri plöntur en oft áður. Einnig geti hugsast að ræktunin sé í auknum mæli að færast til höfuðborgar- svæðisins. Lengi hafi verið talið að marijú- anaræktun færi fyrst og fremst fram á landsbyggðinni, m.a. vegna þess að ræktuninni fylgir talsvert umstang sem getur vakið grun- semdir. Ásgeir segir að aðgerðin í gærmorgun hafi tekist vel. Hún hafi verið tiltölulega stutt og snörp miðað við það sem oft gerist. Sum mál séu þess eðlis að oft þurfi að fylgjast með mönnum vikum sam- an. Við eftirlitið beitir lögreglan ýmsum aðferðum sem Ásgeir vill ekki ræða í smáatriðum en að sjálf- sögðu sé ekkert leyndarmál að lög- regla beiti símhlerunum og fylgist náið með grunuðum. Rannsókn umfangsmikilla fíkniefnamála geti kallað á talsverða yfirlegu og þess eru dæmi að lögreglumenn hafi unnið að eftirliti í þrjá sólarhringa samfleytt. „Biðin getur verið leiði- gjörn en þetta er einfaldlega hluti af starfinu,“ segir Ásgeir. n en hún er einfaldlega hluti af starfinu isrækt- ymslu í Ár- FÍKNIEFNADEILD lögregl- unnar í Reykjavík rannsakar öll fíkniefnamál sem koma upp í umdæmi lögreglunnar og tekur við rannsókn umfangsmeiri smyglmála frá tollgæslunni á Keflavíkurflugvelli. Á þessu ári hefur lögregla og tollgæsla lagt hald á talsvert meira af hassi en á sama tíma í fyrra en mun minna hefur náðst af e-töflum. Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, segir að mestur hluti e-taflnanna hafi fundist við svo- kallað götueftirlit lögreglu, þ.e. verið teknar af fólki sem lög- reglan hefur talið ástæðu til að hafa afskipti af, en götueftirlitið hafi verið eflt mjög á árinu. Að sögn Ásgeirs eru ekki sérstakar vísbendingar um að neysla á e- töflum hafi dregist saman þrátt fyrir að flestum ætti að vera orðið það ljóst að um sé að ræða stórhættulegt eiturlyf. Meira af hassi en minna af e-töflum                                                !                  "##$ "##"    unur sé þar á. Einnig rannsakaði hún markmið og upplifun ferðamanna á há- sem ferðast þar um með ólíkum angandi og akandi. u niðurstöður hennar voru þær að enn á hálendinu vilja upplifa ósnortið frið og ró. Í Landmannalaugum rðamenn mun meiri þjónustu og ppbyggingar er þörf samanborið við æfi sem leyfa mjög takmarkaða upp- gu svo að ferðamenn upplifi svæðið nortið. þóra kemst að þeirri niðurstöðu að átinn sé mjög veigamikill þáttur í upp- lendisferðamanna og að ferðamenn ekki einsleitur hópur fólks heldur hafi sjafnar óskir og leitist við að ferðast á mjög ólíkan hátt. Út frá þessum nið- m dregur Gunnþóra þá ályktun að urfi stefnumótun og skipulagningu á ferðamannastöðum á hálendinu til að ákveða megi til hvaða hópa ferðamanna eigi að höfða á hverjum stað fyrir sig. Gunnþóra segist spurð um hvað taki nú við hjá sér að hún hafi fullan hug á fara í dokt- orsnám erlendis eftir að hún lýkur BS-námi. Hún segir að stóran þátt í velgengni hennar í tengslum við verkefnið megi rekja til þess að Anna Dóra Sæþórsdóttir, lektor í ferða- málafræðum, hafi boðið henni að aðstoða sig við rannsókn á þolmörkum ferðamennsku á ýmsum ferðamannstöðum á Íslandi und- anfarin þrjúr sumur. Sú vinna hafi veitt henni ómetanlega reynslu og leitt til þess að hún hafi fengið mikinn áhuga á náttúruferða- mennsku. Einnig gat hún hafið vinnu við BS- ritgerð sína, sem tengist rannsókn Önnu Dóru, fyrr en ella sem síðan nýttist henni að stórum hluta í verkefninu sem hún sendi í keppnina. rir rannsóknir á viðhorfum ferðamanna Morgunblaðið/Jim Smart óra Ólafsdóttir er nemi í landfræði og ferðamálafræðum við Háskóla Íslands.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.