Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 41 hvaðeina er til féll við hestamennsk- una. Ekki vílaði hann fyrir sér að taka að sér gjafir fyrir okkur systk- inin, einnig eftir að hann veiktist. Einar var mjög skapgóður og sló oft á létta strengi, hafði þægilega nærveru, var skapmikill en á já- kvæðan hátt. Það lýsir frænda mín- um vel að hann neitaði að gefast upp fyrir sjúkdómnum sem herjaði á hann, var staðráðinn í því að vera til og lifa lífinu til hinstu stundar, fór meðal annars ríðandi áleiðis á Landsmót í sumar. Gott var að sjá hve kært var með honum og Hjöllu og er missir hennar og fjölskyldunn- ar mikill. Elsku Hjalla og fjölskylda, ég vil fyrir hönd okkar Sigga votta ykkur dýpstu samúð. Megi Guð styrkja ykkur á þessari stundu. Ingibjörg Ingadóttir. Kveðja frá Íþróttadeild Fáks Ég kynntist Einari þegar við hóf- um störf í Íþróttadeild Fáks árið 2000. Enginn formaður var til staðar og tók Einar það orðalaust að sér að vera formaður deildarinnar. Það var svo um sumarið 2001 að hann kemur til mín og segir að hann sé að berjast við illvígan sjúkdóm og hvort ég geti ekki tekið við formannsstarfinu af honum, hann viti ekki alveg hvað hann þurfi að heyja þessa baráttu lengi. Þetta er lýsandi um hvernig Einar var, ætlaði út í baráttuna á fullum krafti og sigra. Þannig vann hann öll sín verk, gekk í þau og kláraði með miklum sóma. Það var gaman að vinna með Einari, hann var alltaf já- kvæður og drífandi hvernig sem á gekk og hreif okkur hin með sér. Dugnaður og kraftur einkenndi allt- af hans störf og jafnvel þó að greini- legt væri að kraftar hans færu þverr- andi mætti hann á hvert mót og uppákomu með útrétta hjálparhönd. Ég þakka þér fyrir samfylgdina Einar minn og veit að nú ferð þú að þeysast um á glæstum gæðingum annars staðar. Eiginkonu hans, Hjálmfríði Jó- hannsdóttur, og fjölskyldu færi ég mína dýpstu samúð. F.h. Íþróttadeildar Fáks, Sólveig Ásgeirsdóttir. Mél eru bruðin. Það glamrar í beislum. Lítill hópur hestamanna er tilbúinn að halda áfram eftir stutta áningu í fjallaskarði. Í þann mund sem riðið er af stað, stekkur Einar af baki og kallar til samferðamanns, „augnablik, það er steinn undir hjá þér.“ Hann er búinn að losa hann og kominn á bak, áður en flestir hafa tekið eftir þessu atviki. Nokkrir hestamenn standa úti í C tröð og ræða málin. Hófatak heyrist ofar í götunni og mennirnir líta upp en halda áfram að spjalla. Það er eitthvað einkennilegt við reiðlag þess sem þar er á ferðinni, og Einar hleypur fram fyrir hann og biður hann að stíga af baki. „Hnakkurinn er alltof aftarlega og gjörðin langt undir kvið, og þú getur misst stjórn á hestinum með þetta svona,“ segir hann og gyrðir hnakkinn á réttum stað og sýnir þessum ókunna nýliða í reiðmennsku, hvernig best sé að bera sig að. Síðastliðið sumar á Brokshæðum á leið í Vatnsdalinn. Það er heiðblár himinn og viljugir hestarnir á yfir- ferðartölti á dillandi moldargötum og stóðið rennur á eftir okkur. Ég segi við Einar, „Þetta er toppurinn.“ „Já,“ segir hann, „…það er ekki hægt að komast nær himnaríki en þetta.“ Einar Ásmundsson, greindist með krabbamein fyrir liðlega ári síðan. Sami kjarkurinn einkenndi baráttu hans við þennan óboðna gest, rétt eins og þegar hann var að eiga við og temja hestana sína. Hann lét það t.d. ekki buga sig þegar hann var kominn í hjólastól fyrir nokkrum vikum, lam- aður frá brjósti, og krabbinn „henti honum af baki.“ Að sjálfsögðu fór hann aftur „á bak,“ og hélt áfram baráttunni, – einbeittur og æðrulaus. Elsku Hjalla, Kristín, Addi og Helga, Rósa og Einar litli, á erfiðum tímamótum langar okkur að biðja Hinn hæsta að styrkja ykkur. Steingrímur og Rósa. Fjölskylduvinur okkar og ferða- félagi til margra ára hefur nú lagt upp í sína síðustu ferð. Það var fyrir um það bil þrettán árum sem leiðir okkar mættust þegar dætur okkar kepptu á sama æskulýðsmótinu í hestaíþróttum. Það er löngu gleymt hverjir unnu mótið, en stærsti vinn- ingur okkar var að kynnast Einari og Hjöllu, Adda og Kristínu. Fljótlega urðum við hesthúsfélagar og það leið ekki sú vika að við værum ekki í sam- bandi, og bar þar aldrei skugga á. Þær eru ófáar samverustundirnar sem við höfum átt, útreiðartúrar og samvera heima og heiman og ekki síst ógleymanlegar hestaferðir víða um landið. Einar var ekki mikið fyrir margmenni og naut sín best í góðra vina hópi og lék þá á als oddi. Hann minntist t.d. oft ferðar sem við fórum 1994 og fannst hún standa upp úr, en í henni vorum við hjónin ásamt Vil- fríði dóttur okkar og Steina. Þá var bara farið af stað og ekkert ákveðið fyrirfram um dagleiðir nema fyrir einn dag í einu. Einar var einstak- lega góður ferðafélagi, hjálpsamur, ósérhlífinn og aldrei nein vandamál, bara ævintýri. Einar reyndist einstök hetja í veikindum sínum undanfarið ár og hugsaði aldrei um uppgjöf. Hann keypti sér t.d. tvö trippi sl. vor, svona sér til gamans, – sagðist þurfa að hafa eitthvað fyrir stafni. Maður verður ríkari af því að kynnast svona mönnum og lærir að vera ekki að velta sér upp úr smámálum hvers- dagsins. Elsku Hjalla, Kristín og Addi og Helga, megi Guð styrkja ykkur á þessari stundu. Minningin lifir um góðan dreng. Sæþór og Jónína. Sumt fólk gerir líf manns ríkara og bætir það. Þannig var Einar. Glaðvær, jákvæður, þægilegur, orkumikill og ósérhlífinn. Maður sem heillaði alla sem honum kynnt- ust. Þegar við hjónin hófum hesta- mennsku okkar, af miklum áhuga og takmarkaðri kunnáttu, vorum við svo heppin að fá leigða stíu í húsi hjá þeim bræðrum Einari og Magnúsi. Einar hafði brennandi áhuga á hrossum og öllu sem þeim viðkom og ekki var annað hægt en að hrífast með. Hann var ávallt tilbúinn að leið- beina og aðstoða og bauð fram að- stoð sína að fyrra bragði þegar á þurfti að halda. Við nutum þess að fara með Einari í ógleymanleg hestaferðalög um óbyggðir landsins. Einar var ferða- vanur, þekkti vel til og hafði mikla reynslu sem hann naut að miðla af. Það var í félagsskap hesta og manna í guðsgrænni náttúrunni sem Einar naut sín best. Þegar hugsað er til Einars sér maður hann fyrir sér skælbrosandi með blik í augum á fal- legum og viljugum hesti í íslenskri náttúru. Það hryggir okkur að fá ekki leng- ur notið samveru Einars. Að fá ekki að ríða út og fara í fleiri hestaferða- lög með Einar í fararbroddi. Einkum hryggir það þó auðvitað að Einar skyldi ekki fá að njóta lífsins lengur. Eitt er þó víst að andi Einars mun fylgja okkur framvegis, hann verður með okkur í hvert skipti sem lagt verður á og ekki síst þegar haldið er í ferðalög á heiðar og til fjalla. Barátta, athafnasemi og dugnaður Einars frá því að sjúkdómur hans greindist fyrir rétt rúmu ári var aðdáunarverður en við sumt verður því miður ekki ráðið. Elsku Hjalla, Ásmundur, Kristín og aðrir aðstandendur Einars, við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Brynjar og Ingibjörg. ✝ Gunnar Guð-mundsson fædd- ist í Reykjavík 19. október árið 1925. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 30. októ- ber síðastliðinn. For- eldrar hans voru Marsibil Björnsdótt- ir, f. 1889, d. 1940, og Guðmundur Árna- son, f. 1877, d. 1954. Systkini Gunnars eru fjögur: Björn, f. 1918, Mildiríður, f. 1920, Guðríður, f. 1921, og Ellert, f. 1930. Ellert er einn eftirlifandi. Eiginkona Gunnars er Ólafía Albertsdóttir, f. í Hafnarfirði 1930. Foreldrar hennar voru María Þórðardóttir, f. 1894, og Albert Erlendsson, f. 1896. Börn Gunnars og Ólafíu eru 1) Viðar, f. 1957, maki Þuríður Jóns- dóttir, f. 1960. Börn þeirra eru Halla, f. 1981, Hanna, f. 1981, Kristín Lóa, f. 1987, Sigrún, f. 1990, og Hildur Ýr, f. 1994. 2) María, f. 1969, maki Friðbert Guðmundsson, f. 1963. Dóttir þeirra er Helena, f. 1995. Gunnar átti áður Sævar Björn, f. 1948. Gunnar og Ólafía bjuggu allan sinn búskap í Hafnarfirði og vann Gunnar lengst af hjá pósthúsinu í Reykjavík. Útför Gunnars verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku pabbi. Nú hefur þú kvatt okkur en ég veit að nú líður þér bet- ur. Ég á margar góðar minningar um þig elsku pabbi minn og þær geymi ég í hjarta mínu. Þú varst hæglátur maður og vildir aldrei láta mikið á þér bera en alltaf boðinn og búinn að hjálpa ef á þurfti að halda. Þau voru ófá skiptin sem þú sóttir Helenu dóttur mína á leik- skólann þegar hún var yngri og eins ef hún var veik þá vildir þú alltaf vera með hana svo við gætum farið í vinnuna, hún hefur nú misst góðan afa. Þú hvattir mig ávallt í öllu því sem ég tók mér fyrir hendur og það var þér mikils virði að okkur liði vel. Síðasta ár var erfitt, pabbi minn, en þú stóðst þig eins og hetja í veik- indum þínum og sýndir mikla bar- áttu og dugnað en ég veit að þú varst ekki tilbúinn að yfirgefa okkur alveg strax. Elsku mamma, þú hefur líka stað- ið þig vel og missir þinn er mikill. Ég kveð þig nú pabbi minn og eftir sitja góðar minningar um góðan pabba. Þín dóttir María. Elsku afi minn. Ég trúi því varla að þú sért farinn frá okkur og að ég eigi aldrei eftir að sjá þig aftur, en ég veit að núna líður þér betur. Þú varst góður afi og ég á margar góðar minningar um þig. Ég sakna þín og ég skal passa hana ömmu fyrir þig. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Þýð. Sveinbjörn Egilsson.) Guð geymi þig afi minn. Þín Helena. GUNNAR GUÐMUNDSSON Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Elsku Hjálmfríður, börnin ykk- ar, Ásmundur og Kristín Helga og aðrir syrgjendur. Okkar dýpsta samúð fylgir þessum ljóðlínum. Blessuð sé minning Einars Ás- mundssonar. Starfsmenn Gjábakka. HINSTA KVEÐJA Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hef- ur borist. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að síma- númer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálks- entimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak- markast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Grein- arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Sími 562 0200 Erfisdrykkjur ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Sími 581 3300 Allan sólarhringinn — www.utforin.is Suðurhlíð 35, Fossvogi Sverrir Olsen útfararstjóri Bryndís Valbjarnardóttir útfararstjóri Sverrir Einarsson útfararstjóri Landsbyggðarþjónusta. Áratuga reynsla. www.solsteinar.is sími 564 4566 Legsteinar í Lundi við Nýbýlaveg, Kópavogi Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MARGRÉT GUÐMUNDSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði, áður til heimilis í Smáratúni 5, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 9. nóvember kl. 13.30. Ólöf Guðmundsdóttir, Kristján Gíslason, Helga Guðrún Guðmundsdóttir, Jón Gunnlaugsson, Helgi Guðmundsson, Susan Faull, Guðmundur Guðmundsson, Katrín Bjarnadóttir, Edda Guðmundsdóttir, Karl H. Hillers, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RAGNHEIÐUR ESTHER EINARSDÓTTIR hárgreiðslumeistari, Snorrabraut 56, Reykjavík, áður Stykkishólmi og Selfossi, sem lést þriðjudaginn 5. nóvember, verður jarð- sungin frá Selfosskirkju mánudaginn 11. nóv- ember kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Guðríður Sigfúsdóttir, Thormod Haugen, Margrét D. Sigfúsdóttir, Sigurður Petersen, Einar Sigfússon, Anna K. Sigþórsdóttir, Dómhildur A. Sigfúsdóttir, María K. Sigfúsdóttir, Kristbjörn Theódórsson, Sigurður Sigfússon, Sjöfn Björnsdóttir, Ragnheiður Esther Briem, Jóhann Friðgeirsson. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti, netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauðsynlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn ein- stakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.