Morgunblaðið - 07.11.2002, Síða 50
DAGBÓK
50 FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Ak-
ureyrin kemur og fer í
dag. Marschenland,
Tensho Maru no 78,
Trinket og Mánafoss
koma í dag. Freyja, Arn-
arfell og Goðafoss fara í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Katla fór í gær, Brúar-
foss fór frá Straumsvík í
gær.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og opin
handavinnustofa, kl. 9–
12.30 bókband og öskju-
gerð, kl. 9.45–10 helgi-
stund, kl. 10.15 leikfimi,
kl. 11 boccia, kl. 13–16.30
opin smíða og handa-
vinnustofa, kl. 10–16
pútt.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
14.30 böðun, kl. 9–9.45
leikfimi, kl. 9–12 mynd-
list, kl. 9–16 handavinna,
kl. 9–17 fótaaðgerð, kl.
13 bókband, kl. 14–15
dans.
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós. Félagsstarfið opið
mánu- og fimmtudaga.
Fimmtud.: kl. 13 tré-
skurður, kl. 14 bókasafn-
ið, kl. 15–16 bókaspjall,
kl. 17–19 æfing kór eldri
borgara í Damos.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 opin handa-
vinnustofan, kl. 9–12
íkonagerð, kl. 10–13,
verslunin opin, kl. 13–16
spilað,
Félagsstarfið Dalbraut
18–20. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl. 9–
12 íkonagerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 13–16
spilað, kl. 9.30 dans-
kennsla.
Félagsstarfið Furugerði
1. Kl. 9 aðstoð við böðun,
leirmunagerð og alm.
handavinna. Smíðar
falla niður í dag og á
morgun. Kl. 13.30
boccia. Bingó á morgun,
föstudag, kl. 14. Allir
velkomnir.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–12 böð-
un, kl. 9–16.30 gler-
skurður, kl. 10 leikfimi,
hárgreiðslustofan opin
kl. 9–14, kl. 15.15 línu-
dans og fl., kl. 15.15
danskennsla.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9
fótaaðgerð, kl. 10 hár-
snyrting, kl. 13 föndur
og handavinna. Bingó kl.
15. Árlegi haustbasarinn
og kaffisalan verður
föstud. 8. og laugard. 9.
nóv. frá kl. 13–17.
Félagsstarf aldraðra,
Garðabæ. Byrjenda-
námskeið í spænsku
byrjar 7. nóv. kl. 17
Skráning hjá Margréti í
s. 820 8571 eftir hádegi.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Bingó verður
spilað í Gullsmára 13 á
morgun kl. 14. Opið hús
sem átti að vera í Gjá-
bakka 9. nóv. fellur nið-
ur vegna basars í Sunnu-
hlíð.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Púttað í
Hraunseli kl.10, bingó
kl. 13.30, glerskurður kl.
13. Námskeið í mótun á
leir fyrir byrjendur
hefst föstud. 8. nóv.
Skráning í Hraunseli, s.
555 0142. Á morgun
tréútskurður, kl. 13,
brids, kl. 13.30 og dans-
leikur verður í Hraun-
seli kl. 20.30, Caprí tríó
leikur fyrir dansi.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði,
Glæsibæ. Félagið hefur
opnað heimasíðu
www.feb.is. Kaffistofan
er lokuð vegna breyt-
inga í Glæsibæ.
Fimmtud.: Brids kl. 13.
Framsögn kl. 16.15.
Söngfélagið FEB kóræf-
ing kl. 17. Bridskennsla
kl. 19.30. Föstud.: Fé-
lagsvist kl. 13.30.
Fræðsluferð í Þjóð-
menningarhús 13. nóv.
kl. 14 að skoða íslensku
handritin, skráning á
skrifstofu FEB. Árshá-
tíð FEB verður haldin í
Ásgarði, Glæsibæ,
föstud. 15. nóv. Húsið
opnað kl. 18, borðhald
hefst kl. 19. Veislustjóri
sr. Hjálmar Jónsson.
Háttíðarræðu flytur Ell-
ert B. Schram. Þorvald-
ur Halldórsson syngur
og stjórnar fjöldasöng.
Jóhannes Kristjánsson
með gamanmál. Kór-
söngur Söngfélags FEB.
Hljómsveitin Upplyfting
leikur fyrir dansi. Miða-
pantanir á skrifstofu
FEB. Silfurlínan er opin
á mánu- og mið-
vikudögum kl. 10–12.
Skrifstofa félagsins er í
Faxafeni 12, s. 588 2111.
Félagsstarfið er í Ás-
garði, Glæsibæ.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 10.30 helgistund, frá
hádegi vinnustofur og
spilasalur opinn, mynd-
listarsýning Brynju
Þórðardóttur stendur
yfir. Miðvikud. 13. nóv.
heimsókn til eldri borg-
ara í Rangárþingi, m.a.
skemmtidagskrá í fé-
lagsheimilinu Hvoli,
skráning hafin, mæting í
Gerðuberg kl. 12.30. All-
ar upplýsingar um starf-
semina á staðnum og í s.
575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 og kl. 9.55 leik-
fimi, handavinnustofan
opin, leiðbeinandi á
staðnum kl. 9.30–15, kl.
9.30 keramik og leir-
mótun, kl. 13 ramma-
vefnaður, gler og postu-
línsmálun, kl. 15 enska,
kl. 17 myndlist, kl. 16. 15
og kl. 17.15 kínversk
leikfimi, kl. 20 gömlu
dansarnir, kl. 21 línu-
dans. Handverksmark-
aður er í dag kl. 13–16.
Margt góðra muna á
boðstólum.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna og keramik,
kl. 10 boccia, kl. 11 leik-
fimi, kl. 14 félagsvist.
Föstud. 8. nóv. kl. 14
verður Helgi M. Sig-
urðsson, starfsmaður
sjóminjanefndar í Ár-
bæjarsafni, með erindi
um sögur af draugum,
afbrotamönnum, álfum
og skrímslum í Elliðaár-
dalnum. Allir velkomnir.
Kaffihlaðborð.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 ganga, kl.
13 brids, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
böðun og bútasaumur,
kl. 10 boccia, kl.13
handavinna, 13.30 fé-
lagsvist. Fótaaðgerð,
hársnyrting. Allir vel-
komnir.
Korpúlfarnir, eldri
borgarar í Grafarvogi.
Fimmud.: Kl. 10, aðra
hverja viku púttað á
Korpúlfsstöðum, hina
vikuna keila í Keilu í
Mjódd.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa og
tréskurður, kl. 13–16.45
leir, kl. 10–11 ganga, kl.
14–15 jóga.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerðir, og hár-
greiðsla, kl. 9.15–12 að-
stoð við böðun, kl. 9.15–
15.30 alm. handavinna,
kl. 10–11 boccia, kl. 13–
16 kóræfing og mósaik,
kl. 10.30 helgistund í
umsjón séra Hjálmars
Jónssonar, dóm-
kirkjuprests, kór Fé-
lagsstarfs aldraðra
syngur undir stjórn Sig-
urbjargar Petru Hólm-
grímsdóttur.
Vitatorg. Kl. 8.45 smíði,
kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, körfugerð
og morgunstund, kl. 10
fótaaðgerðir og boccia,
kl. 13 handmennt og
spilað.
ÍAK, Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11.15 í Digra-
neskirkju.
Félag áhugamanna um
íþróttir aldraðra. Leik-
fimi í Bláa salnum kl. 11.
Háteigskirkja. Eldri
borgarar. Kl. 14 í Setr-
inu, samverustund
„vinafundur“, fólk hjálp-
ast að að vekja upp
gamlar og góðar minn-
ingar, sr. Tómas og Þór-
dís þjónustufulltrúi sjá
um stundina.
Sjálfsbjörg félag fatl-
aðra, Hátúni 12, kl. 19.30
tafl.
Kristniboðsfélag
kvenna, Háaleitisbraut
58–60. Fundur í umsjá
Lilju Sigurðardóttur.
Fundurinn hefst með
kaffi kl. 16.
Gullsmárabrids. Eldri
borgarar spila brids í
Gullsmára 13 mánu- og
fimmtudaga. Skráning
kl. 12.45, spil hefst kl. 13.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur fund má-
nud. 1. nóv. kl. 20.
Myndakvöld og
skemmtiatriði.
Kvenfélag Fríkirkj-
unnar í Reykjavík, fund-
ur í kvöld kl. 20 í Safn-
aðarheimilinu,
Laufásvegi 13. Margrét
Árnadóttir kennir íkona-
gerð. Kaffiveitingar.
Í dag er fimmtudagur 7. nóvember,
311. dagur ársins 2002. Orð dagsins:
Og friður Guðs, sem er æðri öllum
skilningi, mun varðveita hjörtu yðar
og hugsanir yðar í Kristi Jesú.
(Fil. 4, 7.)
LÁRÉTT:
1 æskilegur, 8 grasflöt, 9
angan, 10 greinir, 11 geil,
13 glaums, 15 fáni, 18 lít-
ið, 21 rödd, 22 munnbita,
23 spilið, 24 heimska.
LÓÐRÉTT:
2 fiskinn, 3 súrefnið, 4 í
vafa, 5 mergð, 6 ótta, 7
hól, 12 álygar, 14 snák, 15
óðagoti, 16 áreiti, 17 sori,
18 jurtar, 19 kærleikur-
inn, 20 þyngdareining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 bukks, 4 bætir, 7 kækur, 8 ólund, 9 tár, 11 riða,
13 hali, 14 græða, 15 vala, 17 láns, 20 vin, 22 neyði, 23
ólíkt, 24 aftra, 25 tjara.
Lórétt: 1 búkur, 2 kákið, 3 sárt, 4 bjór, 5 tauta, 6 ruddi,
10 ámæli, 12 aga, 13 hal,15 vansa, 16 leyst, 18 álíka, 19
setja, 20 vika, 21 nótt.
K r o s s g á t a
Víkverji skrifar...
SVONEFNDIR virkjunarsinnarhalda því stundum fram að
Landsvirkjun hafi opnað hálendið
fyrir ferðamönnum. Síðast heyrði
Víkverji slík orð falla af vörum Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur,
þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í
þættinum Ísland í bítið á Stöð 2 á
mánudagsmorgun. Víkverji hefur
aldrei almennilega skilið hvað átt er
við með því að segja að Landsvirkjun
hafi opnað hálendið. Aldrei hefur ver-
ið virkjað í Landmannalaugum,
Kverkfjöllum, Öskju, Herðubreiðar-
lindum, Snæfelli eða Lakagígum, svo
nokkur dæmi séu nefnd, og er samt
prýðilega akfært á þessa staði fyrir
óbreytta jeppa. Eftir því sem Vík-
verji kemst næst kom Landsvirkjun
heldur hvergi nærri þegar kláfferja
var sett á Tungnaá hjá Haldi og
fyrsta brúin var byggð á Kjalvegi yfir
Hvítá. Þar með voru helstu vatnsföll
á Sprengisandi og Kili komin undir
brú og þessir hálendisvegir því orðn-
ir ágætlega færir jeppum. Víkverji
getur alveg fallist á að vegafram-
kvæmdir, sem Landsvirkjun hefur
talið sig hafa hag af að ráðast í vegna
virkjana, hafi bætt aðgengi ferða-
manna að sumum leiðum yfir hálend-
ið og gert fólki auðveldara að komast
leiðar sinnar. Sérstaklega á þetta við
um brúna sem Landsvirkjun byggði
yfir Tungnaá í tengslum við virkjanir
í nágrenninu. Engu að síður eru það
ýkjur að halda því fram að Lands-
virkjun hafi opnað hálendið fyrir
ferðamönnum. Víkverji skilur því
ekki alveg af hverju þessu er haldið
fram en vonast eftir rækilegum rök-
stuðningi þegar það verður gert
næst.
x x x
Í SJÁLFU sér kemur heldur ekk-ert í veg fyrir að ríkið bæti há-
lendisvegi og byggi brýr en svo virð-
ist sem ríkið eigi nóg af peningum.
Nýlega var lokið við að byggja þjón-
ustuskála við Alþingi sem kostaði um
800 milljónir og fyrir hönd ríkisins
var fyrir skömmu undirritaður samn-
ingur um að tveir helstu eigendur
Landsvirkjunar, ríki og Reykjavík-
urborg, muni reisa menningarhús í
miðbænum sem á að kosta um sex
milljarða. Fyrir brotabrot af þessu fé
mætti nú aldeilis byggja nokkrar
brýr og bæta vegi.
Reyndar telur Víkverji ekki
nokkra þörf á því að bæta hálend-
isvegi. Í sumar settist hann undir
stýri á jeppa (óbreyttum) og ók um
Sprengisand norður í Mývatnssveit.
Þaðan lá leiðin í Herðubreiðarlindir,
Öskju, Kverkfjöll og að Kárahnjúk-
um. Á leiðinni suður var síðan farið
um Kjöl. Oft og tíðum hossaðist jepp-
inn meira en góðu hófi gegndi og ryk
barst inn um hverja rifu í jeppanum
sem var kominn nokkuð til ára sinna.
Víkverji hefði þó ekki fyrir nokkurn
mun viljað betri vegi því honum
finnst að lélegir vegir og óbrúuð
vatnsföll séu ómissandi hluti af hverri
hálendisferð. Kverkfjöll hefðu t.d.
ekki sama aðdráttarafl í huga Vík-
verja ef hægt væri að renna þangað
að fjöllunum eftir uppbyggðum og
malbikuðum vegi á 90 km/hraða á
klukkustund, skella í sig pylsu í þjóð-
vegasjoppu, snúa við og vera kominn
til byggða fyrir kvöldmat. Sama máli
gegnir um Þórsmörk. Víkverji þekkir
engan sem vill að þangað verði lagður
malbikaður vegur og jökulárnar brú-
aðar. Óbyggðir og hálendi Íslands
eru fyrirhafnarinnar virði og það má
alveg vera erfitt að komast þangað.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Kvöldvorrósarolía
ÉG á 4ra ára ömmustrák
sem er fullur af orku og
stundum of mikilli. Við
prufuðum að gefa honum 1
hylki af kvöldvorrósarolíu
2svar á dag og mikil breyt-
ing hefur sést á honum.
Hann er rólegri og allur
betri í umgengni. Þetta
ættu foreldrar að athuga
áður en t.d. ofvirknilyf eru
notuð.
Eins vil ég koma á fram-
færi þökkum til Sigríðar
sem vakti athygli mína á
SDS-smyrslinu í Velvak-
anda. Hefur kremið reynst
vel.
Kristín
Gunnlaugsdóttir.
Eftirtektarverð
viðbrögð
VIÐBRÖGÐ talsmanns
Félags löggiltra fasteigna-
sala eftir hrun Fasteigna-
sölunnar Holts voru eftir-
tektarverð. Enginn efi.
Félagi fasteignasala kemur
málið ekki við.
Skömmu áður hafði þessi
sami talsmaður komið í
fjölmiðla og lýst fjálglega
hve samábyrgð fasteigna-
sala væri stórkostleg og
sjóðir digrir til að tryggja
viðskiptavinina. Enda einu
félagasamtökin á landinu
sem fara oft og tíðum með
aleigu hrekklausra borg-
ara. Og lögfræðingur kom
fram í sjónvarpi skipaður
skiptaráðandi og sagði að
útreikningar hans gætu
tekið mánuði og jafnvel ár.
Og nú eru fasteignasalar
og lögfræðingar búnir að
kaupa leifarnar.
En hvað um saklaust
fólkið sem tapar aleigunni
sinni? Eru þessi málalok
samboðin hugmyndum
okkar um réttarríki?
H.J.
Kvenmannsleysi
Spaugstofunnar
TALANDI um kven-
mannsleysi í nokkrum
Kastljósþáttum, sem mörg-
um fannst nóg um, vil ég
benda Spaugstofumönnum
á að húmorinn væri e.t.v.
meiri með konur innan-
borðs. Mér finnst einkenni-
legt að horfa á þátt, sem á
að sýna spaugilegar hliðar
samfélagsins, fullskipaðan
karlmönnum rétt eins og
konur séu ekki til. Eða eru
konur e.t.v. húmorslausar
að mati Ríkissjónvarpsins?
Hildur Inga
Björnsdóttir.
Fátækt á Íslandi?
ÉG sé oft fullorðinn mann
tína flöskur út ruslatunnum
og einnig hef ég tekið eftir
að hann hefur borðað upp
úr ruslatunnunum. Getur
verið að fátækt sé orðin
svona mikil á Íslandi að
gamla fólkið eigi ekki fyrir
mat?
B.A.
Tapað/fundið
Svefnpoki tapaðist
GRÆNN svefnpoki í svört-
um hlífðarpoka týndist við
Breiðholtskirkju í Mjódd
mánudagsmorguninn 4.
nóvember sl. Koddi og lak
voru einnig í pokanum.
Finnandi er vinsamleg-
ast beðinn að hafa samband
í síma 695-1069 eða 557-
8774.
Dýrahald
Hundur í óskilum
ÍRSKUR setter er í óskil-
um á Hundahótelinu Leir-
um. Hann fannst í Skipa-
sundi. Eigandi er vin-
samlegast beðinn að vitja
hans. Upplýsingar í síma
566-8366 eða 6984967.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15.
Netfang velvakandi@mbl.is
UNGBÖRN, eldri börn og
unglingar ásamt fullorðn-
um hittust í Laugardals-
höll síðastliðinn laug-
ardag.
Gleðin skein úr öllum
andlitum og allir höfðu
eitthvað fyrir stafni. Unga
kynslóðin lék sér í leik-
tækjum og tók þátt í pósta-
leik þar sem meðal annars
var morsað, búin til skutla
og látin fljúga, lesið úr
leyniletri svo eitthvað sé
nefnt.
Fullorðna fólkið hitti
nágrannana og gamla fé-
laga og ræddi málin.
Söngur ómaði svo síðdegis
svo undir tók í Höllinni.
Um kvöldið var eldri
skátum boðið að koma og
syngja saman en þar
mættu skátar allt frá 15 til
90 ára og sungu og
skemmtu sér saman. Kakó
og terta var í boði að söng
loknum. Um kvöldið tróðu
upp varðeldastjórar lands-
móta skáta í gegnum tíð-
ina og tóku skátarnir vel
undir. Á meðal varðelda-
stjóra sem sungu og
spiluðu var Hrólfur Jóns-
son, slökkviliðsstjórinn
okkar, og stjórnaði m.a.
Kveikjum eld.
Ég vil þakka afmælis-
barninu fyrir mig og mína.
Gunnar Atlason.
Skátahreyfingin
á Íslandi 90 ára