Morgunblaðið - 07.11.2002, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2002 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir ævintýraþrá og
forvitni. Þú nýtur lífsins en
velur jafnframt vandlega þá
sem þú ert í samskiptum við.
Árið framundan býður upp á
mörg tækifæri.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Bjartsýni og sjálfstraust eru
mikilvæg í dag. Reyndu að
yfirstíga hömlur sem eðlis-
læg varkárni og óöryggi
setja.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Gættu þín í fjárútgjöldum í
dag. Treystu eðlisávísuninni
því hún er traustari en
nokkurt bankayfirlit.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Einhver verður þér ósam-
mála í dag og þú hefur til-
hneigingu til að taka það
óstinnt upp. Ekki láta slíkt
eftir þér því vandamálið er í
þeirra ranni, ekki þínum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Í dag er einn af þessum dög-
um þegar glasið virðist vera
hálftómt frekar en hálffullt.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Málefni heimilisins, fjöl-
skyldunnar og fjárhagsins
hvíla þungt á þér í dag og
þú átt erfitt með að blanda
geði við aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Einhver kann að hræða þig í
dag og draga úr þér kjark.
En þú átt ekki að láta það
eyðileggja fyrir þér daginn
þótt einhver annar hafi farið
röngum megin fram úr rúm-
inu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur ákveðnar skoðanir
á málum í dag en kemur þér
ekki að því að láta þær í
ljós. Reyndu að dæma aðra
með sama umburðarlyndinu
og þú vilt verða dæmdur
með.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Ekki eyða peningum í dag.
Bæði er það óráðlegt og fólk
þér nákomið mun taka slíkt
óstinnt upp.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Viðræður við aðra verða
niðurdrepandi. Þetta er ekki
þér að kenna, andrúmsloftið
í dag er einfaldlega þannig.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Reyndu að bíta á jaxlinn og
ljúka verkefnum sem þér
eru falin. Einbeittu þér að
smáatriðum og vanaverkum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Ekki bregðast of hart við
gagnrýni frá nánum vini í
dag. Þú ert á undan þinni
samtíð og hugmyndir þínar
eru alltaf til þess fallnar að
ryðja brautina.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Sýndu foreldrum eða fólki
sem er yfir þig sett þolin-
mæði í dag þótt það taki
ekki undir hugmyndir þínar.
Þetta fólk býr ekki yfir
sömu hugmyndaauðgi og þú.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
LJÓÐABROT
EINBÚINN
Yfir dal, yfir sund,
yfir gil, yfir grund
hef ég gengið á vindléttum fótum.
Ég hef leitað mér að,
hvar ég ætti mér stað,
út um öldur og fjöll og í gjótum.
En ég fann ekki neinn,
ég er orðinn of seinn,
þar er alsett af lifandi og dauðum.
Ég er einbúi nú
og ég á mér nú bú
í eldinum logandi rauðum.
Jónas Hallgrímsson
Árnað heilla
Svipmyndir – Fríður
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7. september sl. í Bú-
staðakirkju af sr. Pálma
Matthíassyni þau Henný
Sigurjónsdóttir og Lárus
Sigurðsson. Heimili þeirra
er á Vífilsgötu 23, Reykja-
vík.
Svipmyndir – Fríður
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 17. ágúst sl. í Digra-
neskirkju af sr. Magnúsi
Björnssyni þau Árndís
Hulda Óskarsdóttir og
Helgi Freyr Sveinsson.
Heimili þeirra er í Galtalind
2, Kópavogi.
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 7.
nóvember, er sextugur
Gunnlaugur Fjólar Gunn-
laugsson Mávahrauni 13,
Hafnarfirði. Eiginkona
hans er Steinunn Bjarna-
dóttir. Í tilefni afmælisins
taka þau hjón á móti ætt-
ingjum og vinum í Frímúr-
arahúsinu Ljósatröð 2,
Hafnarfirði, frá kl. 19.
Í tvímenningskeppni er
oftast ómaksins vert að
berjast fyrir hverjum yfir-
slag, jafnvel þótt það gæti
kostað samninginn í
slæmri legu. Örðu máli
gegnir í sveitakeppni, þar
sem öryggið er í fyrirrúmi.
Suður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ 1042
♥ 10854
♦ D
♣ÁDG106
Suður
♠ ÁD
♥ Á63
♦ ÁK765
♣982
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 tígull
1 hjarta 2 lauf Pass 3 grönd
Pass Pass Pass
Vestur spilar út hjarta-
kóngi. Hvernig er best að
spila: (a) í tvímenningi; (b) í
sveitakeppni?
Í bestu legu væri hugs-
anlegt að fá 12 slagi. Sú
teikning væri þessi: Vestur
á laufkóng, austur spaða-
kóng og fjórlit í tígli. Sagn-
hafi myndi svína fyrir lauf-
kóng, taka tíguldrottningu,
svína spaðadrottningu og
spila ÁK og þriðja tíglin-
um. Ef austur lendir inni á
hann væntanlega ekkert
hjarta til að spila og sagn-
hafi fær því afganginn – tvo
á spaða, einn á hjarta, fjóra
á tígul og fimm á lauf.
Samtals tólf slagir og
nánast örugglega toppur.
Þessi spilamennska væri
hins vegar allt of glannaleg
í sveitakeppni. Þá er
öruggast að taka á tígul-
drottningu í öðrum slag og
spila laufdrottningu úr
borði. Og aftur litlu laufi ef
vörnin dúkkar. Það væri
meira að segja stórhættu-
legt að spila laufníu strax í
byrjun og svína, því þá
gæti stíflan í tíglinum
reynst afdrifarík:
Norður
♠ 1042
♥ 10854
♦ D
♣ÁDG106
Vestur Austur
♠ K83 ♠ G9765
♥ KDG92 ♥ 7
♦ 832 ♦ G1094
♣74 ♣K53
Suður
♠ ÁD
♥ Á63
♦ ÁK765
♣982
Skoðum þann mögu-
leika: Laufnían fer yfir á
kóng austurs, sem síðan
skiptir yfir í spaða. Vestur
tekur drottninguna með
kóngi og brýtur spaðann.
Nú er tígullinn stíflaður og
sagnhafi fær aðeins átta
slagi.
Spilið er reyndar ekki
100% öruggt með því að af-
blokkera tíguldrottningu
strax og spila tvisvar smá-
laufi úr borði. Austur gæti
átt kónginn fjórða og dúkk-
að tvisvar. En sagnhafi læt-
ur þá laufið eiga sig og spil-
ar ÁK og þriðja tíglinum.
Þá fær hann níunda slaginn
á tígul ef liturinn fellur 4–3.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is. Einnig er
hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
1. d4 e6 2. c4 f5 3. g3 Rf6 4.
Bg2 Be7 5. Rf3 0–0 6. 0–0 d6
7. Rc3 c6 8. Dc2 Rbd7 9. d5
Rb6 10. dxc6 bxc6 11. Rd4
Bd7 12. c5 Rbd5 13. Ra4 Re4
14. cxd6
Bxd6 15. f3
Staðan
kom upp í
fyrri hluta
Íslandsmóts
Skákfélaga
sem fór
fram í húsa-
kynnum
B&L. Gylfi
Þórhallsson
(2.130) hafði
svart gegn
Páli Agnari
Þórarins-
syni (2.265)
og tókst
með kraft-
mikilli fórn
og taflmennsku að knýja
fram eina tap a-liðs Hróks í
fyrri hluta keppninnar. 15...
Rxg3! 16. hxg3 Bxg3 17. f4
Dh4 18. Rf3 Dh6 19. e3 Rf6
20. Rc3 Rg4 21. Hd1 Be8 22.
Re2 Bf2+ 23. Kf1 Bxe3 24.
Db3 Bb6 25. Rg5 Hf6 26. a4
Hb8 27. a5 Rh2+ og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Glæsilegur
sparifatnaður
Opið mánudaga—föstudaga frá kl. 12-18
og laugardaga frá kl. 11-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
Nú kólnar!
Glæsilegt úrval minkapelsa
Stærðir 36 - 52
Einnig fóðraðir gallajakkar m/skinni
Töskur og belti
Bankastræti 11 • sími 551 3930
Augustsilk
Augustsilk
Opið í dag kl. 16-20 í Síðumúla 35 3. hæð
Heildsöluverð 100% Silki
Stutterma og langerma silkipeysur, náttfatnaður,
perlusaumaðir dúkar, pashminur o.fl.
Engin kort - lægra verð
Gjafavara – matar- og kaffistell .
All ir verðflokkar.
- Gæðavara
Heimsfrægir hönnuðir
m.a. Gianni Versace.
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Alltaf á þriðjudögum… og hvað starfar
þú?