Morgunblaðið - 24.11.2002, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 B 7
Vín
S t e i n g r í m u r S i g u r g e i r s s o n
Pasqua Cabernet-
Merlot 2001
Pasqua er
ítalskur fram-
leiðandi frá Ven-
eto á Norður-
Ítalíu sem lengi
hefur boðið
vörur sínar á ís-
lenska mark-
aðnum, jafnt
vínin frá Veneto
sem afrakstur útrásar fyrirtæk-
isins til Sikileyjar. Nú er í
reynslusölu vínið Cabernet-Merlot
delle Venezie. Þetta vín hefur ver-
ið í sölu í þriggja lítra kössum frá
því fyrr á árinu og er nú komið á
markaðinn í 750 cl flöskum á 990
krónur. Ferskur og hreinn berja-
ilmur einkennir vínið og eru kirsu-
ber ríkjandi í nefi og möndlukeim-
ur í munni. Milt og dæmigert ungt
berjavín.
Lorinon
Crianza 1999
Bodegas Bret-
on er lítið fyr-
irtæki á Rioja
Alta-svæðinu í
Rioja á Spáni
sem hefur skap-
að sér mjög gott
orð. Vínið Lorinon Crianza er
framleitt úr fjórum þrúgum
Tempranillo (85%), Graciano, Maz-
uelo og Garnacha. Það er mjög
eikað í nefi, eikin hrein, amerísk
og yfirþyrmandi í bland við dökk-
ristaðar kaffibaunir og tóbak.
Þykkur ávöxtur og kjöt í munnið,
vínið kryddað og með góða dýpt
og breidd. Mjög góð Rioja-kaup á
einungis 1.090 krónur.
Lorinon, hvítt
Lorinon 2001 Fermentacion en
Barrica er hvítvínið frá sama
framleiðanda. Þurr angan, með
nýjum en mildum og fáguðum við,
minnir svolítið á ungan búrgúnd-
ara, ferskur sítrus og kíví í ávext-
inum. Þetta er hófstillt vín, nokk-
uð lokað og bragðmilt, en með
góða uppbyggingu. Ætti að ganga
vel með humar, jafnvel í rjómasós-
um. Kostar 1.170 krónur.
Louis Jador 1er cru
Pommard
Vínin frá Búrgund eða Bourg-
ogne eru með rómuðustu vínum
Frakklands. Bærinn Pommard er
rétt fyrir utan Beaune, þar sem er
miðstöð vínframleiðslu svæðisins.
Líkt og öll önnur rauðvín á þessu
svæði er það framleitt úr þrúg-
unni Pinot Noir. Louis Jadot 1er
Cru Pommard
1999 þarf tíma
til að opna sig,
rauðir skógar-
ávextir og negull
í nefi, sveppir,
rautt kjöt, þykkt
og sýrumikið.
Vínið er nokkuð
tannískt og hef-
ur ágætislengd. Þetta er gott
Búrgundarvín sem myndi batna
enn frekar við geymslu í um tvö
ár eða svo. Það kostar 3.660 krón-
ur og á vel við villibráð.
Chateau Cantemerle 1997
Chateu
Cantemerle er
eitt af fyrstu
stóru víngerð-
arhúsunum sem
maður kemur að
þegar ekið er
frá Bordeaux
norður Médoc-
skagann. Það á
sér langa sögu, raunar allt aftur
til miðalda. Þótt höllinn sé við
þjóðveginn fer hún fram hjá
mörgum þar sem hún er umlukin
stórum, skógi vöxnum garði.
Cantemerle er eitt þeirra vína
sem flokkað var sem Grand Cru
árið 1855 og er þar í fimmta
flokki. Nú er komið í sölu Chateau
Cantemerle 1997. Vínið er dökkt,
angar af kaffi, villtum berjum og
sætum sólberjum í bland við
súkkulaði. Tannín vínsins eru mild
og sömuleiðis sýra. Þetta er
bragðgott og þótt vel megi geyma
það lengur er það neysluvænt nú
þegar. Kostar 2.990 kr. og gengur
vel með t.d. nautasteikum og
hreindýri.
Vín vikunnar
Einföld
og áhrifarík
leið til
grenningar
Tilboð í
www.avon.is
Snyrtivöruverslun
opin allan sólarhringinn