Morgunblaðið - 24.11.2002, Page 12
12 B SUNNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
ferðalög
Ferð til Kína í maí
Kínaklúbbur Unnar stendur fyrir 24
daga ferð til Kína frá 8. maí til 31. maí.
Flogið er til Stokkhólms og þaðan til
Peking með flugfélaginu Air China.
Ferðast verður um landið og m.a. far-
ið í skemmtisiglingu niður eftir Jang-
Tse-Kiang-fljótinu og siglt um gljúfrin
þrjú. Einnig verður siglt í minna skipi
eftir Shennong-þveránni. Síðar í ferð-
inni verður siglt á Lí-ánni og einnig á
Keisaraskurðinum. Í fréttatilkynningu
frá Kínaklúbbi Unnar kemur fram að í
Peking verði m.a. farið á Torg hins
himneska friðar og Forboðna borgin
skoðuð. Einnig verður farið í sum-
arhöllina og Hof hins himneska friðar.
Þá fá farþegar tækifæri til að skoða
Kínamúrinn og Ming-grafarsvæðið.
Heildarverð ferðarinnar er 350.000
krónur og við bætast 70.000 krónur
ef um einstaklingsherbergi er að
ræða. Innifalið er auk flugs gisting,
dagskrá og allur aðgangseyrir, fullt
fæði auk skatta og gjalda. Þá er inni-
falinn kostnaður við leiðsögn.
Nýr áfangastaður
fyrir kylfinga
Í vor mun golfdeild Úrvals-Útsýnar
bjóða íslenskum kylfingum og þeirra
nánustu upp á nýjan stað til að spila
golf á í Portúgal. Er það golfsvæðið
Quinta Da Marinha, sem er skammt
frá einu þekktasta golfsvæði Portu-
gals, Estoril.
Í fréttatilkynningu frá Úrvali-Útsýn
kemur fram að svæðið sé þekkt fyrir
náttúrufegurð og aðeins sé um hálf-
tíma akstur til Lissabon frá hótelinu.
Þá er stutt í fiskimannabæinn Cascais
með sínum þröngu götum, fjölda veit-
ingastaða og verslana. Eitt stærsta
spilavíti Evrópu, Casino Estoril, er
skammt frá og í fjöllunum fyrir ofan
hótelið er þorpið Sintra, sem þúsundir
ferðamanna heimsækja á hverju ári.
Golfvöllurinn, Quinta Da Marinha, er
beint fyrir utan hótelið. Völlurinn er
hannaður af þekktum golfvallahönn-
uði, Robert Trent Jones. Völlurinn er
viðráðanlegur fyrir kylfinga í öllum
gæðaflokkum. Hann er par 71 og er
rétt um 5.800 metrar að lengd af
gulum teigum, 4.600 af rauðum og
6.300 metrar af hvítum teigum.
Í næsta nágrenni við hótelið eru fimm
aðrir golfvellir, t.d. Penha Longa og
Oitavos Golfe, sem er á Quinta Da
Marinha-svæðinu, eða rétt hjá hót-
elinu. Hótelið sem boðið er upp á,
Quinta Da Marinha, er með 200 her-
bergi og bíll hótelsins ekur fólki til
Cascais og á aðra staði í nágrenninu
endurgjaldslaust.
Boðið verður upp á skoðunarferðir
með fararstjóranum, Kjartani L. Páls-
syni.
Nánari upplýsingar um Kína-
ferðina fást hjá Unni Guðjóns-
dóttur í síma 5512596 og í
síma 8682726.
Nánari upplýsingar um golf-
svæðið í Portúgal fást hjá Úr-
vali-Útsýn í síma 5854000.
Þ
AÐ besta við að búa í Lund-
únum er að geta horfið í
fjöldann. Ég get hagað mér
alveg eftir skapferlinu, verið
tilhöfð og fín einn daginn og eins og
umrenningur þann næsta án þess að
það veki nokkra athygli,“ segir Sig-
ríður Dögg Auðunsdóttir sem hefur
verið búsett, ásamt eiginmanninum
Edward og dótturinni Diljá, í Lond-
on undanfarin ár. Þar starfar hún
sem fjölmiðlaráðgjafi hjá stærsta al-
mannatengslafyrirtæki í heimi,
Weber Shandwick.
Á vespu í vinnuna
„Það sem kom mér einna mest á
óvart hér er hversu hjálplegt og vina-
legt fólk er í þessari stóru borg þar
sem búa milli sjö og átta milljónir
manna. Stærsti ókosturinn við að
búa hérna er á hinn bóginn samgöng-
urnar. Litlar endurbætur hafa verið
gerðar á samgöngukerfinu frá því á
fimmta áratugnum og stór hluti af
strætisvagnaflotanum er svokallaðir
routemaster-strætóar sem eru frá
fimmta áratugnum og neðanjarðar-
lestakerfið samanstendur aðallega af
yfir 40 ára gömlum búnaði.
Eftir að hafa kynnst samgöngu-
kerfinu í borginni sá ég að það væri
fljótlegast fyrir mig að komast ferða
minna á vespu og núna er ég korter á
henni í vinnuna í staðinn fyrir að vera
um klukkustund með strætó. Ég
spara mér eina og hálfa klukkustund
á degi hverjum með þessu móti.“
Þegar ég spyr hvort það sé ekkert
hættulegt að vera á vespu í stórborg
eins og London segir hún að umferð-
in sé hæg og hún fikri sig bara á milli
bílanna og komist hjá því að lenda í
umferðarhnútum eins og þeir. Sig-
ríður Dögg segir að sinn borgarhluti
í Lundúnum sé austurhluti hennar
eða East End, sér hafi eiginlega
strax fundist hún eiga heima þar.
Römbuðu á yndislegt hús
„Til að byrja með bjuggum við í
hverfi sem heitir Islington. Þar býr
tiltölulega vel stætt fólk og húsnæð-
iskostnaður er ógurlega hár. Þegar
við ákváðum að fjárfesta í eigin hús-
næði urðum við hreinlega að leita
annað. Við vildum þó ekki að fimm
ára dóttir okkar, Diljá, þyrfti að
skipta um skóla og skoðuðum okkur
um í næsta hverfi, Hackney, sem er í
austurenda borgarinnar. Við römb-
uðum síðan á yndislegt hús frá Vikt-
oríutímabilinu sem við keyptum og
þar hef ég nú fest rætur. Það er þó
mikil fátækt í þessum borgarhluta og
glæpatíðnin hefur oft verið há. Mér
finnst ég samt ekkert síður örugg
þar en í Islington. Framfarirnar hafa
í raun verið litlar í austurenda Lond-
on sem þýðir að þetta er eins og að
búa í gömlu London. Sömu fjölskyld-
urnar hafa búið hér mann fram af
manni og fólk er mjög tryggt sínu
hverfi. Hér þekkist fólk og þegar það
hittist á götu er spjallað um daginn
og veginn. Ef ég er til dæmis að
koma heim úr búðinni með nokkra
innkaupapoka býður fólk undantekn-
ingarlaust fram aðstoð sína við að
koma pokunum heim.“
Hún segir að fram til þessa hafi
verið hægt að kaupa hús á tiltölulega
góðu verði í Hackney, hús sem í öðr-
um og fínni hverfum væru þrefalt til
fjórfalt dýrari. „Ken Livingstone
borgarstjóri hefur reyndar lýst því
yfir að það sé kominn tími til að gera
endurbætur á austurhluta borgar-
innar og hefur ríkisstjórnin þegar
lýst stuðningi við þær áætlanir svo
húsnæðisverð er þegar farið að
hækka.
Húsið okkar, sem var byggt árið
1860, er í lítilli göngugötu og það
liggur að gömlu, fallegu torgi. Við
hliðina á okkur býr yndisleg kona á
áttræðisaldri sem alla sína ævi hefur
búið í hverfinu og hefur nánast ætt-
leitt okkur sem barnabörnin sín.
Dóttir mín fylgist með henni þar sem
hún gefur íkornunum hnetur á hverj-
um degi í bakgarðinum.“
Markaður sem Lundúnabúar sækja
Þegar ég spyr Sigríði Dögg hvort
hún eigi uppáhaldsstaði í borginni
sem hún vilji deila með lesendum
segir hún að þeir séu nokkrir. „Ef ég
ætti að mæla með góðum sunnudegi í
Lundúnum væri hann á þessa leið:
Ég myndi byrja á því að fara á
blómamarkaðinn í East End sem er
á Colombia Road. Þetta er elsti
blómamarkaður Lundúna og hann er
opinn á sunnudögum frá morgni og
fram til klukkan tvö. Þangað kemur
fólk úr hverfinu og reyndar víðar að
til að kaupa sér blóm í húsið eða
garðinn á frábæru verði og stemmn-
ingin er mögnuð. Sölumenn keppast
um að fá fólk til að kaupa blóm og
hægt er að setjast niður á kaffi- eða
veitingahús og borða morgunverð
eða hádegismat og fylgjast með líf-
inu á markaðnum.
Síðan myndi ég fá mér göngutúr á
annan markað, Spitalfield-markað-
inn. Þar er selt allt milli himins og
jarðar; listaverk, smámunir og fatn-
aður. Þessi markaður er haldinn í
geysilega stórri vöruskemmu og
hann minnir á Portobello-markaðinn
í Notting Hill sem Lundúnabúar
forðast nú eins og heitan eldinn. Á
Spitalfield-markaðnum eru nánast
engir ferðamenn og verð á öllu er
miklu sanngjarnara en á Portobello.
Þetta er markaður sem Lundúnabú-
ar sækja sjálfir.
Þarna er opið fram til klukkan sex
á kvöldin og mest er um að vera á
sunnudögum. Þegar búið er að ganga
um markaðinn er tilvalið að bregða
sér á götuna Brick Lane en þar eru
tugir af indverskum veitingahúsum
og verslunum, maturinn er næstum
undantekningarlaust frábær og
verðið sanngjarnt. Götuheitin eru
bæði á ensku og indversku og and-
rúmsloftið magnað. Arkitektúrinn er
líka athyglisverður og á sér ekki hlið-
stæðu í Bretlandi. Húsin voru flest
byggð af húgenottainnflytjendum á
átjándu öld. Þetta er orðið mikið
listamannahverfi og er sagt að það
líkist því sem Covent Garden var áð-
ur en það varð að túristagildru.“
Er uppáhaldsveitingastaður þinn
semsagt þarna á Brick Lane?
„Nei reyndar ekki. Hann heitir
Rasa og er í Stoke Newington sem er
í Hackney, hverfinu mínu, í götu sem
heitir Stoke Newington Church
street.
Þessi suður-indverski staður býð-
ur upp á alveg dásamlegan mat.
Staðirnir eru tveir, hvor á móti öðr-
um, annar er kjötstaður og hinn
grænmetisstaður. Ég mæli með
grænmetisstaðnum og þá sérstak-
lega naslinu sem þeir bjóða upp á á
undan forréttum.“
Óviðjafnanlegt
útsýni yfir borgina
Alla virka daga fer Sigríður Dögg
á vespunni í fjármálahverfið, City of
London, en þar er fyrirtækið sem
hún starfar hjá, Weber Shandwick,
til húsa.
„Það er einmitt tilvalið fyrir fólk
að taka einn dag í að skoða sig þarna
um í fjármálahverfinu og næsta ná-
grenni.
Ég mæli með að fólk fari þangað á
virkum degi því það er ótrúleg upp-
lifun að vera umluktur þúsundum af
jakkafataklæddu fólki að flýta sér á
milli staða og dálítið eins og að vera í
miðju maurabúi. Ég vara samt við
því að ferðast um London á háanna-
tíma, sem er frá 7–10 á morgnana og
frá 17–19 seinnipartinn, og forðast
þá neðanjarðarlestirnar sem eru yf-
irfullar.
Fólk gæti byrjað á því að fara og
skoða St. Paul-dómkirkjuna sem er
mjög falleg. Að því loknu er hægt að
ganga yfir nýju Millennium-brúna og
yfir í Tate Modern, sem er nútíma-
listasafn. Byggingin sem hýsir safnið
er einstök; gömul raforkustöð sem
búið er að gera upp.
Að loknu safnarölti er hægt að
ganga meðfram suðurbakkanum í
vesturátt og fara í Lundúnaaugað
eða London Eye. Þó svo að biðröðin
kunni að vera löng borgar sig að bíða,
biðin tekur sjaldnast lengri tíma en
20 mínútur. Ferðin tekur hálftíma og
útsýnið yfir borgina er stórfenglegt.“
Eftir útsýnisferðina í Auganu er
tilvalið að halda áfram í vesturátt yfir
Westminster-brúna og skoða þar Big
Ben og Westminster, sem er skyldu-
verk allra ferðamanna.
Nýja fjármálahverfið
Að lokum mælir Sigríður Dögg
með bátsferð til Greenwich, sem er
fallegur bæjarhluti með stórum al-
menningsgarði. Á leiðinni gefst fólki
kostur á að skoða suður- og norður-
bakkann en þar hefur gífurleg upp-
bygging átt sér stað. „Það eru marg-
ir góðir pöbbar í Greenwich og eftir
að hafa sest niður með enskan bjór
ætti fólk endilega að taka DLR til
baka en það eru litlar rafmagns-
knúnar lestir sem eru tiltölulega ný
viðbót við samgöngukerfi Lundúna.
Á leiðinni er hægt að virða fyrir sér
nýja fjármálahverfið í Lundúnum,
Canary Wharf, en þar er verið að
reisa hvern skýjakljúfinn á fætur
öðrum. Ferðin með DLR endar í
Bank-neðanjarðarlestarstöðinni en
þaðan er auðvelt að komast áfram í
allar áttir.“
Uppáhaldsstaðir Sigríðar Daggar Auðunsdóttur í Lundúnum
Markaðir, listasafn og dásamlegur matur
Edward og Diljá á vespunni sem Sigríður Dögg fer á í vinnuna á morgnana.
Sigríður mælir með því að gestir borg-
arinnar fari í Lundúnaaugað, útsýnið
segir hún að sé hreint stórkostlegt.
Hackney er hverfið í Lund-
únum sem heillaði Sigríði
Dögg Auðunsdóttur. Þar líður
henni eins og heima hjá sér.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir ásamt dóttur sinni Diljá og lítilli vinkonu, Elvu Cailin.
Colombia Road,
Bethnal Green
London E2
Rasa
55 Stoke Newington Church
Street
London N16
020 7249 0344
Spitalfield Market,
Á horni Commercial St. and
Brushfield Street
London E1
Brick Lane
London E1
Tate Modern
Bankside
London SE1
020 7887 8000
www.tate.org.uk