Morgunblaðið - 24.11.2002, Side 14
Ein auðveld …
VIÐ Íslendingar eru mikil jólabörn, en þar sem við búum svo norð-
arlega á hnettinum, er dimmara hjá okkur en langflestum öðrum í
heiminum á þessum tíma árs, og þess vegna finnst okkur svo gaman að
skreyta allt ljósum um jólin.
Næsta sunnudag kveikjum við á fyrsta að-
ventuljósinu. Já, nú fer hátíð ljóssins í hönd,
en munum að fara varlega með allan eld
(sjá eldvarnagetraun), svo við eyði-
leggjum ekki besta tíma ársins,
jólatímann.
Aðventuljósin fjögur
Aðventa þýðir biðin
eftir endurkomu
Krists, en Jesús lofaði
að koma aftur til okkar
á jörðina. Aðventukert-
in fjögur merkja komu
Krists og aðdragandann að
henni.
Fyrsta kertið er Spámannskertið, sem minnir
á fyrirheit spámannanna um komu frelsarans.
Annað kertið er Betlehemskertið, og heitir eftir fæðingarbæ Jesús.
Þriðja kertið er Hirðakertið, nefnt eftir hirðingjunum sem fyrstir
fréttu af fæðingu frelsarans.
Fjórða kertið er Englakertið, sem minnir okkur á engl-
ana sem fluttu fréttina um fæðingu frelsarans.
Aðventu- og jólaljós
Hér er hugmynd að öruggum en fallegum jóla-
ljósum. Þú getur gert einn stjaka á viku, og haft
fyrir aðventuljós. Skreyta má hvern stjaka í sam-
ræmi við nafn kertisins, eða bara gera alveg eins-
og maður vill.
Það sem þarf
Barnamatskrukka/ur
Sprittkerti
Eftir smekk
Borði
Málning
Pensill
Lím
Flatar perlur ( IKEA/Tiger)
Glimmer
Það sem gera skal
1) Þvoið krukkurnar vel og þerrið.
2) Bindið borðann um skrúfgang krukkunnar. Passið að hann nái
ekki yfir brúnina, svo ekki kvikni í!
3) Málaðu fallega á krukkuna, límdu á hana perlur eða glimmer, það
sem þér þykir fallegast.
4) Settu logandi sprittkertið ofan í og dáðstu að listaverkinu þínu.
Jólakerti úr kindaspiki
Í eldgamla daga voru kerti búin til úr blýflugnavaxi inn-
fluttu frá útlöndum, og voru rándýr. Ein mörk af vaxi kost-
aði þrjár lambsgærur! Hver hefur nú eiginlega efni á því?
Á 15. öld komu svo tólgarkerti til sögunnar, en þau eru bú-
in til úr kindaspiki, og lyktin áreiðanlega eftir því! Íslend-
ingar voru ánægðir með þetta, en samt voru tólgarkertin
mest notuð í kirkju, kannski fyrir fínan gest, og svo auðvitað á
blessuðum jólunum.
Þá var skemmtilegasti jólaundirbúningurinn fyrir krakkana
kertadagurinn. Tólgin var brædd og garni á spýtu dýft margoft ofan í
tólgina.
Jólaleg litakerti
Hér eru kerti sem þið getið gert og notað gömlu litina ykkar. En það
verður að hafa einn fullorðinn með sér í kertagerðina. Annað
er bannað.
Það sem þarf
Kveikjuþráður
Hvítt vax
Glerkrukkur
Gamlir brotnir litir
Grillpinnar
Það sem gera skal
1) Þrífið krukkurnar og þurrkið
2) Setjið grillpinna í kross og hnýtið
kveikjuþráðinn í, svo hann haldist vel þegar
hann lafir ofan í krukkuna.
3) Brjótið litina í litla bita, nota má græna og
rauða jólaliti og svo er litur aðventunnar fjólublár.
4) Mamma eða pabbi hita nú vaxið í vatnsbaði; íláti
sem sett er ofan í sjóðandi vatn og þannig bráðnar það.
5) Hún/hann hellir vaxinu í krukkurnar og um leið setur
þú litabitana þína ofan í, á þinn einstaka listræna hátt. Bit-
arnir bráðna og þetta kemur mjög flott út.
Engin tólgarkerti hér, takk!
HÁTÍÐ LJÓSSINS NÁLGAST SENN
Til forráðamanna barna!
Lögð er áhersla á að fullorðnir ræði efni hverrar
spurningar og setji í samhengi við aðstæður barnsins,
jafnhliða því að spurningunni er svarað.
1) Reykskynjarar eru til
á flestum heimilum.
Hve oft á ári er rétt að
skipta um rafhlöðu í
reykskynjarnarum?
Aldrei Einu sinni
Tvisvar
2) Það er staðreynd að
jólaskreytingar með
logandi kertum eru
hættulegar. Er mik-
ilvægt að þær séu hafð-
ar á réttum stað og
undir stöðugu eftirliti?
Já Nei
3) Þörf er á að endurnýja reykskynjara t.d á 10 ára fresti.
Lærðu að þekkja hljóðið í reykskynjaranum. Á að skríða út ef
reykskynjari fer í gang vegna elds og reyks?
Já Nei
4) Hve margar flóttaleiðir eiga að vera frá þínu herbergi/
heimili, til að notast við ef kviknar í?
Ein Tvær eða fleiri
5) Hve oft á ári ætti að æfa flóttaleiðir til að geta brugðist við
eldsvoða?
Einu sinni Tvisvar Þrisvar
6) Er varasamt að láta loga á jólaseríum eða öðrum jóla-
ljósum innanhúss yfir nótt eða þegar við erum ekki heima?
Já Nei
7) Eru hanskar og hlífðargleraugu góð vörn vegna meðferðar
flugelda og blysa um áramót?
Já Nei
8) Hvert er neyðarsímanúmer
lögreglu, slökkviliðs og sjúkraliðs á Íslandi?
Svar: ______________
Nafn: ________________________________
Heimili: ______________________________
Staður: ______________________________
Bekkur/skóli: __________________________
Dregið verður úr réttum lausnum og verðlaun veitt,
ef skilað er fyrir 6. janúar 2003 til:
Eldvarnagetraun LSS
Pósthólf 4023
124 Reykjavík
Brunavarnaátak 2002
Passaðu þig, Trausti! það má
ekki opna heitar dyr þegar
kviknar í, en það er rétt að
skríða á gólfinu.
Eldvarnagetraun
Systkinin Rakel Rún og Haraldur Einar Reynisbörn
ganga í Borgaskóla í Grafarvogi, þar sem Rakel er í 2.
bekk en Haraldur í 5. bekk. Þau fengu Stóru barnaplöt-
una 3 um daginn og eru búin að hlusta heilmikið á
hana, en sum lögin þekktu þau, en fannst líka gaman að
læra ný lög. „Þetta er mjög góð plata og gaman að
hlusta á hana,“ segja þau bæði. „Mér fannst Tóti tann-
álfur skemmtilegastur,“ segir Rakel, „og stundum þeg-
ar ég kem heim úr skólanum hleyp ég inn í stofu að
hlusta á hann og líka Benedikt búálf.“
„Mér finnst fyrsta lagið, Langi-Mangi Svanga-
Mangason, best,“ segir Haraldur, en hann er hrifinn af
hljómsveitinni Pöpum og finnst líka lagið „Bíum bíum
bambaló“ með þeim gott. Systkinin myndu sko alveg
vilja fá þessa plötu í jólagjöf, en þau hlusta mikið á tón-
list og finnst Aserejé með Las Ketchup svo skemmti-
legt. „Það hefði alveg mátt vera eitt bulllag á þessari
plötu,“ segir Rakel Rún að lokum og sýnir dansinn.
Krakkarýni: Stóra barnaplatan 3
Morgunblaðið/Jim Smart
Rakel Rún og Haraldur með vinkonu sína Guðrúnu
Svövu á milli sín.
Gaman að hlusta
Tíu krakkar geta unnið sér inn
Stóru barnaplötuna 3 með því að
svara nokkrum tónlistartengdum
spurningum. Reyndu!
1) Úr hvaða bíómynd er lagið
Hakuna Matata?
2) Hvaða leikritapersónur syngja
lagið Svangir bræður?
3) Hver samdi ljóðið Maístjarnan
sem lagið var samið við?
4) Úr hvað leikriti eru persónan
og lagið Tóti tannálfur?
5) Hefur komið út tónlist með
fólkinu í Latabæ?
Rétt svör sendist fyrir 3. des-
ember til:
Barnablað Moggans
– Stóra barnaplatan 3 –
Kringlunni 1
103 Reykjavík
Spurningasamkeppni
Viltu vinna
plötu?
Ungur myndlistarmaður, Ágúst
Elí Ásgeirsson, 5 ára, teiknaði
myndina framan á plötu-
umslagið á Stóru barnaplötunni
3. Það er mynd af hjartamanni
sem stendur hjá rós og heitir
myndin Hjartað góða, en hún
hangir uppi á myndlistarsýningu
sem hann setti upp á afmælinu
sínu um daginn.
Náttfötin hennar mömmu
„Allir í afmælinu eru búnir að
sjá sýninguna og Þórdís leik-
skólakennari kom í heimsókn til
að sjá hana,“ segir Ágúst Elí
sem er á leikskólanum Höfn á
Marargötu. Þar teiknar hann
mikið og líka heima hjá sér.
– Hvað finnst þér skemmti-
myndir eftir lögunum á plötunni.
– Hvaða plötu hlustar þú oft-
ast á?
„Plötuna með Benedikt búálf,“
segir Ágúst Elí sem var ekkert
hræddur á leikritinu. Og á næsta
ári þegar hann á aftur afmæli,
ætlar hann að setja upp leikritið
um Benedikt búálf í afmælinu
sínu.
legast að teikna?
„Mér finnst skemmtilegast að
teikna allt sem ég vil,“ segir
Ágúst Elí, en á sýningunni má
sjá myndir af Litlu lirfunni ljótu,
Súperman, mömmu hans Ágústs
Elís á náttfötunum sem hann
ætlar að gefa henni í jólagjöf og
margt, margt fleira.
Öll lögin jafn skemmtileg
Og meira til. Ágúst Elí hjálp-
aði líka til við að velja hvaða lög
færu á Stóru barnaplötuna 3, og
þurfti að hlusta á 100 lög.
„Mér fannst ekki öll lögin sem
ég heyrði skemmtileg, en lögin
sem eru á plötunni eru öll jafn
skemmtileg,“ segir Ágúst Elí
sem auðvitað hefur teiknað
Teikna allt sem ég vil
Morgunblaðið/Kristinn
Ágúst Elí hjá Hjartanu góða.
Teikning/Ágúst Elí
Alli, Palli og Erlingur úti að sigla.
Teikning/Ágúst Elí
Benedikt búálfur.
Jólaljósin blika
Svar: Maís.
Úr hverju er poppkorn búið til?
(Úr bókinni Spurningabókin 2002.)