Morgunblaðið - 24.11.2002, Síða 16
Galdrastrákurinn og félagar
hans í nýjum ævintýrum
Harry Potter og
leyniklefinn frum-
sýnd hérlendis um
helgina
ÞAÐ eru átta ár síðan Scott
Calvin (Tim Allen) varð óvart
valdur að því að jólasveinninn dó
og þurfti því sjálfur að taka við
starfinu. Hann hefur verið jóla-
sveinninn síðan og álfarnir hans
segja að hann sé sá besti hingað
til. En það eru vandamál í gangi.
Hann hefur verið að losna við
aukakílóin og sonur hans Charlie
er komin á óþekktarlistann
hans. Scott ákveður að taka sér
smá frí til þess að hjálpa syni
sínum að komast á rétta braut
og lætur varajólasvein sjá um hlutina á meðan hann
er í burtu. En þegar varajólasveinninn fer að breyta
ýmsum reglum, sem jólasveinar hafa gjarnan í heiðri,
stefnir hann jólunum í hættu. Til dæmis breytir hann
skilgreiningunni á „þægum“ og „óþægum“ börnum
og þegar svo er komið verður Scott að snúa aftur og
bjarga jólunum. Þetta er söguþráður jólasveina-
myndarinnar Santa Clause 2 í leikstjórn Michaels
Lembeck. Með aðalhlutverk fara: Tim Allen, Eliza-
beth Mitchell, Eric Lloyd, David Krumholtz, Spenc-
erBreslin, Wendy Crewson og Judge Reinhold.
Jólasveinninn
bjargar jólunum
The Santa
Clause 2: Tim
Allen aftur í
jólaleik.
ÚR því búið er að vekja risa-
eðlur aftur til lífsins í kvik-
myndum og síðar sjónvarpi
virðist lítil von til að þær deyi
drottni sínum. Þessar útdauðu
skepnur möluðu gull fyrir til-
stilli tölvutækninnar í Jurassic
Park og Jurassic Park II og
Jurassic Park III og finnist
einhverjum nóg komið er sá
sami ekki yfirmaður hjá Universal. Fyrirtækið hefur
nú byrjað undirbúning að fjórðu myndinni um for-
sögulegar furðuskepnur og falið handritshöfund-
inum William Monahan að reyna að finna eitthvað
handa þeim að gera, helst eitthvað nýtt. Leikstjóri
tveggja fyrstu myndanna, Steven Spielberg, verð-
ur framleiðandi ásamt Kahleen Kennedy.
Risaeðlur ekki í útrýmingarhættu
MARGIR þekkja spennusögur
bandaríska rithöfundarins Ro-
berts Crais. Ein þeirra verður nú
að kvikmynd með Bruce Willis í
aðalhlutverki og mun hann einn-
ig verða einn af framleiðend-
unum. Sagan er Hostageeða
Gísl og leikur Willisþar Jeff
nokkurn Talley, fyrrverandi
samningamann við gíslatökur,
sem er illa brenndur af mistök-
um í starfi en hyggst bæta ráð sitt þegar hann er
kvaddur á ný til starfa, þrátt fyrir að viðkomandi gísl
sé starfsmaður mafíunnar. Craisskrifaði sjálfur
handritið en leikstjóri er óráðinn að verkefninu.
Bruce Willis hnepptur í gíslingu
Bruce Willis:
Enn í hasarinn.
FYRIR rúmlega fimmtán árum átti
ég eina eftirminnilegustu stund á
blaðamannsferlinum þegar ég fékk
að verja tveimur klukkutímum með
John Huston, einhverjum magnaðasta
listamanni í bandarískri leikstjóra-
stétt áratugum saman og litríkum
lífskúnstner að auki. Það síðarnefnda
hafði tekið sinn toll. Áttræður sat
ar hans, Monster eða No Such Thing,
hérlendis, þar sem hún var tekin að
stórum hluta. Eins og fram hefur
komið voru Friðrik Þór Friðriksson og Ís-
lenska kvikmyndasamsteypan með-
framleiðendur að myndinni en meg-
inþungi framleiðslufjárins kom frá
bandaríska Zoetrope-félaginu, sem
Francis Ford Coppola er í forsvari fyrir,
og MGM-verinu í Hollywood. Hal
Hartley hafði til þessa gert myndir sín-
ar fyrir litla fjármuni og óháður
Hollywoodkapítalinu. Framleiðsla
Monsters var því ný reynsla fyrir
hann og, að því er hann segir í viðtal-
inu, svo óskemmtileg að hann er stað-
ráðinn í að endurtaka hana aldrei.
Ríflega helmingi meira fé var varið til
kvikmyndagerðarinnar en til fyrri
mynda hans en það rann hins vegar
að litlu leyti rétta leið, þ.e. til að
styrkja kvikmyndina sjálfa og
markaðssetningu hennar. Nei, obb-
anum af öllu viðbótarfjármagninu
vörðu stjórnendur Zoetrope til him-
inhárra launagreiðslna handa sjálfum
sér, að sögn Hartleys. „Þetta var sem
sagt bara bruðl, sem mér er langt í
frá að skapi. Það er skiljanlega pirr-
andi að þurfa að horfa í hverja krónu
við gerð myndar og horfa síðan upp á
einhverja stórlaxa læða seðlabúnt-
unum hver í annars vasa fyrir að hafa
ekki gert nokkurn skapaðan hlut,
nema þá að hafa verið til trafala og
tafið fyrir útkomu myndarinnar.“
Lengi hefur legið fyrir að þeir pen-
ingar sem eiga að renna til gerðar til-
tekinna kvikmynda lenda stundum,
en alls ekki alltaf, í einhverju öðru en
sjálfri gerð hennar. Þetta er ekki al-
veg óþekkt í Evrópu, en einkennir þó
umfram allt Hollywoodiðnaðinn, sem
Hal Hartley staðfestir svo afdrátt-
arlaust í fyrrnefndu viðtali.
Íslensk kvikmyndagerð hefur
sannarlega ekki nægilega fjármuni til
ráðstöfunar. Það er auðvitað galli, en
kosturinn við þann galla er í þessu
samhengi sá, að peningarnir eru svo
litlir að þeir geta ekki farið neitt ann-
að en í kvikmyndirnar sjálfar. Marg-
ir, ef ekki flestir, kvikmyndagerð-
armenn láta sig dreyma um að hafa
nóg af peningum til að gera myndir
sínar fyrir. En eins og sjá má af
reynslu Hals Hartley getur sá draumur
breyst í martröð þegar Hollywood er
annars vegar.
Gamli villidýrabaninn John Huston
sagði við mig árið 1986: „Hollywood
er frumskógur. Hefur alltaf verið
frumskógur. Menn labba ekki inn í
frumskóg með engilbjarta ásjónu
eina að vopni. Menn labba inn í frum-
skóg með riffil um öxl.“
Leikstjórafélög eru góð og gild.
Framleiðendafélög líka. En ljóst má
vera að Félag skotveiðimanna á ekki
síður erindi.
sagði m.a.: „Kvik-
myndaiðnaðurinn er í
allt of ríkum mæli
kominn í klær bók-
haldara, skattaráð-
gjafa, fjárfesting-
arsérfræðinga,
hagræðingarráðu-
nauta, steingeldra
gróðapunga. Gömlu
stúdíókóngarnir í
Hollywood vissu,
hvað sem öðru leið,
hvernig á að gera bíó-
myndir; þeir ráku
fyrirtækin af
ástríðu.“ Ég spurði
hvort hann tryði samt á framtíð list-
greinarinnar. „Já, vissulega. Bíó-
myndin mun lifa þetta allt af. Líka
bókhaldarana og tölvufræðingana.“
Þessi orð meistarans, sem ári síðar
var látinn, rifjuðust upp fyrir mér
þegar ég las hér á bíósíðum síðasta
sunnudag fróðlegt viðtal Skarphéðins
Guðmundssonar við annan, yngri og enn
sjálfstæðari bandarískan kvikmynda-
gerðarmann en Huston var, Hal Hartley,
í tilefni af frumsýningu nýrrar mynd-
hvítskeggjaður öldungurinn með lít-
inn súrefniskút sér við hlið og stakk
totunni uppi í nasirnar annað slagið;
hann hafði reykt ofan í lungnabólgu
og sagðist þakka hvern dag sem liði
án alvarlegs hóstakasts. Eitt um-
ræðuefni okkar var hvernig þessum
staðfasta einfara og sjálfstæða lista-
manni tækist að lynda við pen-
ingavaldið sem deildi og drottnaði í
kvikmyndagerð samtímans. Huston
Kosturinn við gallann
„Viðskiptafræðingar eru fólk sem vinnur
með tölur en skortir persónuleika til að
verða bókhaldarar,“ sagði gjaldkerinn.
Auðvitað er þetta tóm lygi og áróður og
eru viðskiptafræðingar beðnir velvirð-
ingar á ómaklegum ummælum. Þegar
kemur hins vegar að kvikmyndinni, dýr-
ustu listgrein veraldar, eru tölur og pen-
ingar ekki síður lykilatriði en sköpun og
listfengi. Rígurinn og togstreitan milli
peningamannanna og listamannanna hafa
í heila öld sett mark sitt á kvikmynda-
gerð, ekki síst þar sem peningarnir eru
mestir og framleiðslan líka, í Hollywood.
SJÓNARHORN
Árni Þórarinsson
Hal Hartley: Hart að horfa
á eftir peningunum.
John Huston: Í klóm bók-
haldara …
HELSTA norræna menningarmið-
stöðin í Bandaríkjunum, Scandinavia
House á Park Avenue í New York,
stendur nú fyrri hluta vetrar fyrir yf-
irlitssýningum á verkum „fimm
áhrifamestu leikstjóra sem nú eru að
störfum á Norðurlöndunum“, eins
og segir í kynningu stofnunarinnar,
og er desembermánuður helgaður
myndum Friðriks Þórs Friðriksson-
ar.
Í september voru sýndar myndir
Jörgens Leth frá Danmörku, í lok
september og októberbyrjun mynd-
ir Jans Troell frá Svíþjóð, seinnihluta
október verk Anja Breien frá Noregi
og í nóvember Mikas Kaurismäki frá
Finnlandi. Öllum leikstjórunum er
boðið til New York til að kynna verk
sín og verður Friðrik Þór viðstaddur
þrjár sýningar, þ.e. New York-frum-
sýninguna á Fálkum og sýningar á Á
köldum klaka og Englum alheims-
ins, en einnig verða Börn náttúrunn-
ar og Bíódagar sýndar.
Fálkar seldir til 13 landa
Gengið hefur verið frá samning-
um um sölu á Fálkum, nýjustu
mynd Friðriks Þórs, til 13 landa,
samkvæmt upplýsingum frá Ísleifi
Þórhallssyni hjá Íslensku kvik-
myndasamsteypunni. Þau eru Dan-
mörk, Noregur, Svíþjóð, Finnland,
Rússland, Tékkland, Grikkland,
Holland, Belgía, Þýskaland, Eng-
land, Austurríki og Sviss. Viðræður
um sölu til fleiri landa standa yfir.
Scandinavia House kynnir norræna kvikmyndaleikstjóra í New York
Desembermánuð-
ur helgaður mynd-
um Friðriks Þórs
Fálkarnir fljúga: Seldir til 13 landa og New York-frumsýning í Scandinavia
House í byrjun næsta mánaðar.
FINNINN Aki Kaurismäki og
mynd hans Maður án fortíðar,
sem hrepptu Norrænu kvik-
myndaverðlaunin nýverið, ganga
með góð spil á hendi til Evr-
ópsku kvikmyndaverðlaunanna
sem afhent verða 7. desember í
Róm. Eftir kosningu evrópsku
kvikmyndaakademíunnar, sem
lauk fyrr í mánuðinum, hefur
myndin flestar, eða sjö, tilnefn-
ingar fyrir bestu mynd, bestu
leikstjórn, besta handrit, bestu
leikkonu, besta leikara og bestu
kvikmyndatöku. Næstflestar til-
nefningar hlaut Talaðu við hana
eftir Pedro Almodóvar eða
fimm. Af öðrum norrænum
myndum í undanúrslitunum, þar
sem Hafið var íslenski fulltrú-
inn, fékk aðeins sænska myndin
Lilja 4-Ever eftir Lukas Mood-
ysson tilnefningar, – fyrir bestu
mynd og bestu leikkonu.
Cámara, Sergio Castellitto,
Martin Compston, Olivier Gour-
met, Markku Peltola og Tim-
othy Spall. Bestu leikkonutil-
nefningar fá: Oksana Akinshina,
Emmanuelle Devos, Martina
Gedeck, Laura Morante, Sam-
antha Morton, Kati Outinen og
allar leikkonurnar átta í 8 kon-
ur.
Bestu handritin eru sam-
kvæmt tilnefningunum eftir
Pedro Almodóvar, Tonino Ben-
acquista og Jacques Audiard,
Paul Greengrass, Aki Kauris-
mäki, Krzysztof Kieslowski og
Krzysztof Piesewicz, Paul Lav-
erty og Francois Ozon.
Tilnefningar fyrir besta kvik-
myndatöku fá: Javier Aguirres-
arobe, Tilman Bütner, Pawel
Edelman, Frank Griebe, Alwin
Küchler, Timo Salminen og Ivan
Strasburg.
Magdalene Sisters
eftir Peter Mullan
frá Bretlandi og
The Pianist eftir
Roman Polanski
sem er frönsk-
pólsk-þýsk-bresk
samframleiðsla.
Sem bestu leik-
stjórar eru til-
nefndir Almodóv-
ar, Marco Bell-
ochio (fyrir Bros
móður minnar),
Andreas Dresen
(fyrir Halbe
Treppe eða Á miðri leið), Kaur-
ismäki, Mike Leigh (fyrir All or
Nothing), Ken Loach (fyrir
Sweet Sixteen), Polanski og Al-
exander Sokurov (fyrir Rússn-
eska örkin).
Sem bestu leikarar voru til-
nefndir: Javier Bardem, Javier
Tilnefningar fyrir bestu mynd
fá, auk ofannefndra þriggja
mynda, 8 konur eftir Francois
Ozon frá Frakklandi, Bend It
Like Beckham eftir Gurinder
Chadha frá Bretlandi, Bloody
Sunday eftir Paul Greengrass
frá Bretlandi og Írlandi, The
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða afhent í Róm 7. desember
Kaurismäki og Almodóvar með flestar tilnefningar
Maður án fortíðar eftir Aki Kaurismäki: Með sex
tilnefningar til Evrópuverðlaunanna.