Morgunblaðið - 16.02.2003, Blaðsíða 1
Sunnudagur
16. febrúar 2003
atvinnatilboðútboðfundirtilsölutilleigutilkynningarkennslahúsnæðiþjónustauppboð
mbl.is/atvinna Gestir í vikunni 8.655 Innlit 16.655 Flettingar 70.546 Heimild: Samræmd vefmæling
Póls hf. er leiðandi fyrirtæki á sviði vigtar, flokkunar- og stýritækni
fyrir matvæla-iðnaðinn.
Sölumaður
Póls hf. óskar eftir að ráða sölumann til starfa
í sölu- og markaðsdeild félagsins í Reykjavík.
Sölu- og markaðsdeildin hefur umsjón með
stefnu fyrirtækisins í markaðs- og sölumálum
ásamt tilboðs- og samningsgerð á vörum og
lausnum félagsins. Upplýsingaöflun og grein-
ing á markaðsaðstæðum er stór þáttur í starfs-
emi deildarinnar ásamt umsjón og ábyrgð á
sýningarhaldi og gerð kynningarefnis. Starfinu
fylgja mikil ferðalög bæði innanlands og er-
lendis.
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun eða sambærileg framhalds-
menntun.
Víðtæk starfsreynsla og þekking í matvæla-
framleiðslu.
Krafa um góða spænsku og/eða frönsku-
kunnáttu auk ensku.
Góð tölvukunnátta æskileg.
Leitað er eftir metnaðarfullri persónu sem er
til í að takast á við fjölbreytt verkefni í ört
stækkandi fyrirtæki, með gott frumkvæði og
sjálfstæð vinnubrögð.
Umsóknarfrestur er til 26. febrúar og skal skila
umsóknum til Póls hf. fyrir þann tíma, á eftirfar-
andi póstföng: ebg@pols.is, pso@pols.is eða
í P.O. Box 8836. 105 Reykjavík merktum:
„Sölumaður - Póls hf“.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Pálmar
Sveinn Ólafsson, sími 456 6411.
Austur-Hérað
Leikskólinn Tjarnarland
Egilsstöðum
Leikskólinn Tjarnarland óskar að ráða:
Aðstoðarleikskólastjóra
frá 1. júní nk. Um er að ræða fullt starf sem
skiptist í 80% starf á deild og 20% stjórnunar-
starf.
Umsækjandi skal hafa lokið leikskólakennara-
námi.
Leikskólakennara
í 100% starf frá 1. júní eða eftir samkomulagi.
Hlutastarf kemur til greina.
Tjarnarland er 4ra deilda leikskóli. Lögð er
áhersla á að vinna í anda Reggio-hugmynda-
fræðinnar. Nánari upplýsingar gefur leikskóla-
stjóri í síma 471 2145.
Skriflegar umsóknir, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, berist til leikskólastjóra
Tjarnarlands eigi síðar 10. mars nk.
Leikskólastjóri.
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
Háskólakennari
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri auglýsir
stöðu háskólakennara lausa til umsóknar.
Til greina kemur að ráða í hlutastarf.
Hér er um að ræða stöðu háskólakennara
með sérmenntun á sviði skipulagssfræða,
landslagsarkitektúrs eða með hliðstæða
menntun (dósent/lektor). Laun og önnur
starfskjör samkvæmt kjarasamningum opin-
berra starfsmanna og aðlögunarsamningum
LBH við viðkomandi stéttarfélög.
Menntunar og hæfniskröfur:
Háskólamenntun með meistara- eða
doktorsgráðu í viðkomandi fræðigrein.
Frumkvæðishæfileikar við uppbyggingu
nýrrar þekkingar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi reynslu
í kennslu á háskólastigi.
Umsækjendur láti fylgja ítarlega skýrslu um
námsferil, kennslu- og fræðastörf svo og
önnur störf. Einnig skulu fylgja eintök af
þeim fræðilegu gögnum sem þeir óska að
tekið sé tillit til. Nauðsynlegt er fram komi
hvaða verkefnum umsækjendur hafa unnið
að, hverju þeir eru að sinna og áform þeirra
ef til ráðningar kemur.
Umsækjendur láti fylgja nöfn a.m.k. tveggja
meðmælenda.
Nánari upplýsingar veita Magnús B. Jónsson
rektor (magnusb@hvanneyri.is) eða Auður
Sveinsdóttir dósent (audurs@hvanneyri.is)
eða í síma 437 0000.
Umsóknir sendist til Landbúnaðarháskólans
á Hvanneyri, 311 Borgarnesi, fyrir 7. mars
2003.
Skemmtilegt og krefjandi
verkefni fyrir
þroskaþjálfa/
stuðningsfulltrúa
Hæfingarstöðin Bjarkarás
Styrktarfélag vangefinna óskar eftir
þroskaþjálfum og/eða stuðningsfulltrú-
um til starfa á nýrri deild sem verið er að
opna í Bjarkarási, Stjörnugróf 9. Um er
að ræða tilraunaverkefni til eins árs.
Vinnutíminn er frá kl. 8:30-16:30 á virk-
um dögum. Deildin er ætluð einstakling-
um sem þurfa sértæka þjónustu vegna
hegðunarfrávika. Umsóknarfrestur er til
21. febrúar. Æskilegt er að viðkomandi
geti hafið störf sem fyrst.
Við leitum að starfsfólki sem:
Býr yfir skipulögðum og nákvæmum
vinnubrögðum.
Er sveigjanlegt og tilbúið að tileinka
sér nýjungar.
Hefur góða samstarfshæfileika.
Hefur tamið sér jákvæða hugsun og
viðhorf.
Við bjóðum:
Góðan stuðning og ráðgjöf.
Ágæta starfsaðstöðu og tíma til undir-
búnings.
Samvinnu við góðan starfsmannahóp.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum
Þroskaþjálfafélags Íslands eða Starfs-
mannafélags ríkisstofnana og Styrktarfé-
lags vangefinna.
Nánari upplýsingar veita Þórhildur
Garðarsdóttir forstöðuþroskaþjálfi og
Krist- rún Sigurjónsdóttir yfirþroskaþjálfi
í síma 568 5330.
Prófessorsstöður
Við fiski- og náttúrufræðideild Háskólans í Bodø eru
lausar 3 stöður prófessora. Stöðurnar eru hluti af áætlun
Háskólans um að styrkja fiskeldissviðið, og felur m.a. í
sér að hleypa af stokkunum nýrri landsstöð fyrir
lúðueldi og koma á fót meistara- og doktorsnámi í
sjávarfræðum.
St. nr. 1522: Prófessor í sjávarfiskeldi og stjórnandi
rannsóknaráætlunar um lúðueldi.
St. nr. 1523: Prófessor í sjávarfiskeldi.
St. nr. 1525: Prófessor/førsteamanuensis
í sameindaerfðafræði.
Fulla starfslýsingu má finna á heimasíðu okkar.
Nánari upplýsingar um stöðuna fást hjá
Terje Solberg, dekanus, Terje.Solberg@hibo.no eða
Jarle Nordeide førsteamanuensis, Jarle.Nordeide@hibo.no
(sími +47 75 51 7200).
Umsóknir séu á ensku, merktar stöðunr. og sendist til
Høgskolen i Bodø, N-8049 Bodø.
Umsóknarfrestur: 9. mars 2003.
Skrifstofustarf
Kraftur hf., umboðsaðili fyrir m.a. MAN vöru
bifreiðar, óskar að ráða starfskraft á skrifstofu.
Um er að ræða heilsdagsstarf við merkingar
og skráningu á bókhaldi, afstemmingar og
undirbúning fyrir uppgjör, auk annarra tilfall-
andi starfa á skrifstofu fyrirtækisins.
Við leitum að einstaklingi með góða kunnáttu
á bókhaldsstörfum.
Unnið er með bókhaldskerfi frá TOK. Viðkom-
andi þarf að geta hafið störf eigi síðar en 1. júní
nk.
Umsóknum skal skilað til Krafts hf., Vagn-
höfða 1, eða á netfangi kraftur@kraftur.is,
fyrir 22. febrúar nk.