Morgunblaðið - 23.02.2003, Page 16
16 C SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
Háteigskirkja. Eldri borgarar. Félagsvist
á morgun í Setrinu kl. 13.
Langholtskirkja. Mánudagur: Kl. 15–
16.30 Ævintýraklúbburinn. Starf fyrir
7–9 ára krakka sem eru allir velkomnir.
Árbæjarkirkja. Æskulýðsfélagið Lúkas
með fund í safnaðarheimilinu kl. 20.
Fella- og Hólakirkja. Mánudagur: Kl.
13–15.30 opið hús fyrir fullorðna í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Spilað, fræðst,
kaffi og spjall. Bænastund kl. 15.15 í
kirkjunni. Fyrirbænaefnum má koma til
djákna í síma 557 3280. Þeir sem óska
eftir akstri láti vita í sama síma fyrir há-
degi á mánudögum. Æskulýðsstarf fyrir
8.–10. bekk á mánudagskvöldum kl. 20.
Grafarvogskirkja. Bænahópur kl. 20.
Tekið er við bænarefnum alla virka daga
frá kl. 9–17 í síma 587 9070.
Hjallakirkja. Æskulýðsfélag fyrir 9. og
10. bekk kl. 20.
Seljakirkja. Mánudagur: KFUK-fundur
fyrir stelpur 9–12 ára kl. 17.15 í kirkj-
Safnaðarstarf unni. Fjölbreytt fundarefni. Allar stelpur
velkomnar.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Mánudagur:
Unglingar 16 ára og eldri kl. 20–22.
Bessastaðasókn. TTT-starf fyrir 10–12
ára drengi og stúlkur kl. 17.30–18.30 í
stofu 104 í Álftanesskóla. Rúta ekur
börnunum heim að loknum fundi.
Skemmtileg dagskrá. Mætum öll.
Vídalínskirkja. Fjölbreytt æskulýðsstarf
fyrir 9–12 ára drengi í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli kl. 17.30–18.30 í umsjón
KFUM.
Lágafellskirkja. Sunnudagaskólinn kl.
13 í safnaðarheimili kirkjunnar að Þver-
holti 3, 3. hæð. Allir velkomnir. Mánu-
dagur: Al-Anon fundur í kirkjunni kl. 21.
Bænahópur á mánudagskvöldum í Lága-
fellskirkju kl. 20.
Þorlákskirkja. TTT-starf í kvöld sunnu-
dag kl. 19.30.
Krossinn. Almenn samkoma í Hlíða-
smára 5 kl. 16.30. Allir velkomnir.
Fríkirkjan KEFAS,
Vatnsendabletti 601. Vitnisburðarsam-
koma kl. 14. Lofgjörð og fyrirbænir. Tví-
skipt barnastarf fyrir 1–5 ára börn og 6–
12 ára á sama tíma. Kaffi og samfélagið
eftir samkomu. Allir hjartanlega vel-
komnir.
KFUM & K. Samkoma kl. 17 að Holta-
vegi 28. „Limir á líkama Krists“. Upp-
hafsorð Kjellrun Langdal, ræðumaður
Ragnar Gunnarsson. Undraland fyrir
börnin, á meðan fullorðna fólkið er á
samkomunni. Allir hjartanlega velkomn-
ir. Engin Vaka í kvöld, bent á Tómasar-
messu í Breiðholtskirkju kl. 20. Inntökuf-
undur hjá AD KFUM með mat næsta
fimmtudag. Nauðsynlegt að skrá sig í
síma 588 8899. Lokadagur á þriðjudag-
inn.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Almenn
samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Sheila
Fitzgerald. Gospelkór Fíladelfíu sér um
lofgjörðina. Miðvd. 26. feb. Mömmu-
morgunn kl. 10. Fjölskyldusamvera kl.
18. Létt máltíð. Biblíukennsla í umsjón
Hafliða Kristinssonar. Fimmtud. 27. feb.
Eldur unga fólksins kl. 21. Föstud. kl.
20.30. Unglingasamkoma. Allir hjartan-
lega velkomnir. filadelfia@gospel.is.
bílar
ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM
SMÁAUGLÝSING
AÐEINS 995 KR.*
Áskrifendum Morgunblaðsins
býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.*
Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum.
* 4 línur og mynd.
HAFÐU SAMBAND!
Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is
Biblíudagurinn
2003
ÁRLEGUR Biblíudagur verður
haldinn næstkomandi sunnudag, 23.
febrúar. Guðsþjónustur í kirkjum
landsins verða þá sérstaklega helg-
aðar Biblíunni og mikilvægi hennar
fyrir kirstna kirkju.
Við guðsþjónustu í Langholts-
kirkju mun Guðni Einarsson, blaða-
maður, predika. Prestur er sr. Jón
Helgi Þórarinsson. Kirkjukór Lang-
holtskirkju ásamt organistanum
Jóni Stefánssyni annast tónlist-
arflutning. Guðsþjónustunni verður
útvarpað.
Biblíufélagið býður alla hjart-
anlega velkomna til guðsþjónust-
unnar.
Þau 2.500 eintök af Nýja testa-
mentinu sem prentuð voru í fyrra
seldust upp á fjórum dögum. Nú bið-
ur Konsó-fólkið okkur um hjálp til
að hægt verði að prenta 5.000 eintök
í viðbót. Um eina milljón ísl. króna
vantar til að hægt verði að hefja
undirbúning strax og þannig
tryggja að Nýja testamentið komist
í hendur fólksins sem fyrst.
Hjálpum því vinum okkar í Konsó.
Eitt Nýja testamenti kostar ekki
nema 400 kr.
Söfnunarreikningur fyrir Konsó
er nr. 0101-26-3555.
Tómasarmessa
í Breiðholtskirkju
ÁHUGAHÓPUR um svokallaðar
Tómasarmessur efnir til fimmtu
messunnar á þessum vetri í Breið-
holtskirkju í Mjódd í kvöld, sunnu-
daginn 23. febrúar, kl. 20.
Tómasarmessan hefur vakið
mikla ánægju þeirra sem þátt hafa
tekið og virðist hafa unnið sér fastan
sess í kirkjulífi borgarinnar, en slík
messa hefur verið haldin í Breið-
holtskirkju í Mjódd síðasta sunnu-
dag í mánuði, frá hausti til vors, síð-
ustu fimm árin. Framkvæmdaaðilar
að þessu messuhaldi eru Breiðholts-
kirkja, Kristilega skólahreyfingin,
Félag guðfræðinema og hópur
presta og djákna.
Heiti Tómasarmessunnar er dreg-
ið af postulanum Tómasi, sem ekki
vildi trúa upprisu Drottins nema
hann fengi sjálfur að sjá hann upp-
risinn og þreifa á sárum hans. Mess-
an einkennist af fjölbreytilegum
söng og tónlist og sömuleiðis af
virkri þátttöku leikmanna.
Eigum við
hugsjón?
NÆSTU fimm þriðjudaga mun Full-
orðinsfræðsla Laugarneskirkju
vinna að verkefni undir yfirskrift-
inni „Eigum við hugsjón?“
Biskup Íslands hefur beðið söfn-
uði landsins að vinna með starfsfólki
Biskupsstofu að stefnumótun Þjóð-
kirkjunnar samkvæmt ákveðinni að-
ferð. Munum við koma saman í
þessu tilefni og nota þann farveg
sem Fullorðinsfræðslan er til þess
að nálgast viðfangsefnið.
Síðustu helgina í marsmánuði
mun söfnuður Laugarneskirkju svo
halda bæna- og samtalshelgi í
Vatnaskógi, þar sem verkefninu lýk-
ur undir stjórn Öddu Steinu Björns-
dóttur verkefnisstjóra á Bisk-
upsstofu. Þá helgi munum við líka
jafnframt vinna að stefnumótun
safnaðarstarfsins í Laugarnes-
kirkju.
Allt áhugasamt fólk er hvatt til að
vera með.
Tímar Fullorðinsfræðslunnar eru
haldnir alla þriðjudaga kl. 20–20.55
í gamla safnaðarheimilinu í kirkj-
unni. Gengið inn um litlar dyr á
austurgafli kirkjunnar. Að tímanum
loknum er helgistund í kirkjunni
sem við nefnum Þriðjudag með Þor-
valdi, en þar leiðir Þorvaldur Hall-
dórsson lofgjörðina við undirleik
Gunnars Gunnarssonar en Bjarni
Karlsson sóknarprestur flytur Guðs
orð og bæn.
Verið velkomin í Laugarnes-
kirkju.
Morgunblaðið/Jim Smart
ORLOFSNEFND húsmæðra í
Kópavogi mun í sumar bjóða upp á
fimm nátta dvöl að Hótel Örk í
Hveragerði, tímabilið 27. apríl til
2. maí. Einnig verður farin hring-
ferð um landið 11. – 16. júní. Gist
verður að Nesjum í Hornafirði, á
Héraði, í Þingeyjarsýslum og síð-
ustu nóttina að Hólum í Hjaltadal.
Áætlað er að fara ma. um Öxi á
leiðinni upp á Hérað, niður í Mjóa-
fjörð, í Borgarfjörð eystri og víðar.
Ekki er skilyrði að konur séu í
kvenfélögum, til að eiga rétt á að
njóta orlofs.
Ólöf Þorbergsdóttir og Birna
Árnadóttir annast innritun og
veita upplýsingar, segir í frétta-
tilkynningu.
Sumarferð-
ir Orlofs-
nefndar
húsmæðra
FRÉTTIR
ÚT er komin handbók Stjórnarráðs-
ins um EES. Handbókinni er ætlað
að vera hentugt upplýsingarit fyrir
þá sem starfa með einhverjum hætti
að EES-málum. Þar er m.a. lýst
verklagi við upptöku gerða Evrópu-
sambandsins í EES-samninginn og
innleiðingu þeirra en frá því að
samningurinn öðlaðist gildi hafa
mótast ýmsar reglur, bæði lagaregl-
ur og verklagsreglur, um hvernig
það skuli gert. Með handbókinni er
bætt úr brýnni þörf en upplýsingar
sem þar er að finna hafa ekki verið
aðgengilegar á einum stað áður.
Utanríkisráðuneytið gefur bókina
út og er hún seld í afgreiðslu ráðu-
neytisins og Bóksölu stúdenta. Bók-
in kostar 1.500 krónur.
Ný hand-
bók
um EES