Morgunblaðið - 27.02.2003, Side 2
2 B FIMMTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NFRÉTTIR
ÞÁTTTÖKU ríkisins í rekstri Landsbanka Íslands lauk nú ívikunni. Af þessu tilefni sagði viðskiptaráðherra í samtalivið Morgunblaðið það vera í takt við breytta tíma að ríkiðtæki ekki þátt í rekstri viðskiptabanka. Það eigi ekki að
vera hlutverk ríkisins að reka banka. Eftir stendur að ríkið á um
9% hlut í Búnaðarbanka Íslands. Mest munar hins vegar um að
ríkið rekur eina stærstu lánastofnun landsins, Íbúðalánasjóð, sem
hefur yfirburði á sviði lánveitinga til íbúðarkaupa og húsbygginga.
Samtök banka og verðbréfafyrirtækja, SBV, kynntu í síðustu
viku tillögur sem miða að því að færa hin almennu húsnæðislán frá
ríkinu til frjálsa markaðarins. Sögðu samtökin að tími væri kom-
inn til. Fyrirkomulag í þessum efnum hér á landi hefur að mati
samtakanna ekki fylgt eftir þróun víðast hvar annars staðar í Evr-
ópu. Í þessari viku var til að mynda greint frá því að stjórnvöld í
Noregi væru með í undirbúningi að draga verulega úr þátttöku
ríkisins í þessum málaflokki, en að Íslandi undanskildu hefur þátt-
taka ríkisins í þessum efnum verið einna mest í Noregi af ná-
grannalöndunum. Þar er ríkið hins vegar eingöngu á nýbygging-
armarkaði en tekur ekki þátt í lánveitingum til kaupa á notuðu
húsnæði, sem er stærsti hluti lánveitinga Íbúðalánasjóðs.
Í skýrslu SBV eru nefndar þrjár leiðir til að færa almennu hús-
næðislánin frá ríkinu til hins frjálsa markaðar. Tvær þeirra ganga
út á að viðhalda ríkisábyrgðinni í kerfinu, sem hefði í för með sér
að vextir myndu væntanlega ekki breytast frá því sem nú er.
Þriðja leiðin gengur hins vegar út á að ríkið hætti alfarið þátttöku
á þessum markaði og gera skýrsluhöfundar ráð fyrir að vextir af
húsbréfalánum myndu þá hækka um 0,9–1,3%. Sparnaður í
rekstri húsnæðislánakerfisins myndi
hins vegar að mati SBV verða nokk-
ur, því árlegur rekstrarkostnaður
Íbúðalánasjóðs er vel yfir hálfur
milljarður króna á ári en skýrsluhöf-
undar gera ráð fyrir að tvær af þeim
leiðum sem nefndar eru myndu ekki
hafa í för með að fjölga þyrfti starfs-
fólki hjá fjármálastofnunum, ef al-
mennu húsnæðislánin yrðu færð til
þeirra.
Umræður um hvort skynsamlegt geti verið að færa almennu
húsnæðislánin frá ríkinu til frjálsa markaðarins hafa ekki verið
miklar. Gert var ráð fyrir því með húsbréfakerfinu 1989 að ríkið
myndi hverfa af húsnæðislánamarkaði með tímanum. Ýmislegt
mælir með því að lánastofnanir á frjálsa markaðinum annist veit-
ingu almennra húsnæðislána. Íbúðaeigendur gætu þá til að mynda
verið með öll sín viðskipti á einum stað. Þá er næsta víst að
greiðslumatið hefði meira vægi en nú. Núverandi greiðslumat er
gallað. Með því að færa almennu húsnæðislánin yfir til frjálsa
markaðarins er hugsanlegt að hægt verði að tryggja betri yfirsýn
yfir lántökur fólks og þar með gera greiðslumat áhrifaríkara.
Umfjöllun um bankana að undanförnu, um hagnað þeirra, þjón-
ustutekjur, launakjör stjórnenda og fleira, hafa ekki ýtt undir um-
ræður um að heppilegt geti verið að flytja almenna húsnæð-
islánakerfið yfir til hins frjálsa markaðar. Þróunin í
nágrannalöndunum sýnir þó engu að síður að kominn er tími til að
huga að þessum málum.
Morgunblaðið/Þorkell
Innherji skrifar
Ekki það sama
sjóður og banki
Gert var ráð fyrir
því með hús-
bréfakerfinu 1989
að ríkið myndi
hverfa af húsnæð-
islánamarkaði.
innherji@mbl.is
ll ÚTFLUTNINGUR
● Í VIKUNNI stóð Útflutningsráð fyrir kynning-
arfundi um ZEC-frísvæðið á Kanaríeyjum
(Zona Especial Canaria) en markmiðið með
stofnun svæðisins var að örva efnahagslega
og félagslega þróun á eyj-
unum.
Að sögn Sigrúnar Lilju
Guðbjartsdóttur hjá Út-
flutningsráði mættu
fulltrúar 20 fyrirtækja og
bæjarfélaga á fundinn en í
framhaldinu áttu fulltrúar
ZEC fundi með nokkrum
íslenskum aðilum.
Fyrirlesarar á fundinum
voru Juan Ignacio Perez-
Nievas Hernández forstjóri ZEC, Benicio
Alonso Perez aðili að ZEC og Christian Rigoll-
et ráðgjafi. Ræddu þeir um markaðs- og fjár-
hagslegan ávinning af ZEC-frísvæðinu, sam-
skipti ESB, stjórnvalda á Kanaríeyjum og
stjórnvalda á Spáni og viðskiptatengsl Evr-
ópu, S-Ameríku og Afríku meðal annars.
Á fundinum kom meðal annars fram að
ávinningur af stofnun ZEC fyrirtækis væri
einkum í formi ýmislegs skattalegs hagræðis.
ZEC-svæðið kynnt
Juan Ignacio Pérez-
Nievas Hernández,
forstjóri ZEC, hélt
erindi á fundinum.
● Í MORGUNPUNKTUM Kaupþings í gær
segir að stækkun Norðuráls muni mjög lík-
lega hafa töluverð áhrif á hagvöxt á þessu
ári og því næsta. „Á undanförnum dögum og
mánuðum hefur útlitið í efnahagsmálum
breyst leiftursnöggt en áhrif sértækra að-
gerða ríkisstjórnarinnar auk stækkunar
Norðuráls munu hafa veruleg áhrif á efna-
hagsumsvif á þessu ári og er viðbúið að end-
urskoða þurfi efnahagsspár,“ segir Kaup-
þing í Morgunpunktum sínum.
Viðbúið að endurskoða
þurfi efnahagsspár
◆
◆
● SAKSÓKNARI í Michigan í Bandaríkjunum
lagði í gær fram ákærur á hendur tveimur
fyrrverandi yfirmönnum
Kmart stórmarkaðakeðj-
unnar, Enio Montini og
Joseph Hofmeister, fyrir
fjársvik og að veita
bandaríska fjármálaeft-
irlitinu rangar upplýs-
ingar.
Fjármálaeftirlitið hefur
líka kært Hofmeister og
Montini fyrir umrætt brot, sem varð þess
valdandi að tap Kmart á árinu 2001 var van-
metið um 0,06 dollara á hlut. Kmart varð
sem kunnugt er nýverið gjaldþrota.
Fyrrverandi stjórnendur
Kmart ákærðir
ll STÓRMARKAÐIR
● BANDARÍSKA eignarhaldsfélagið Kohlberg
Kravis Roberts & Co (KKR) hefur dregið sig úr
baráttunni um bresku stórmarkaðakeðjuna
Safeway. Hlutabréf í Safeway
féllu í verði við þessar fréttir.
Fjögur fyrirtæki eru nú um
hituna, en yfirtaka á Safeway
hefur legið í loftinu um þó-
nokkurn tíma. Það eru Will-
iam Morrison Supermarkets,
sem einn vonbiðla hefur gert
formlegt tilboð, Tesco Plc, J.
Sainsbury Plc, ASDA. Þar að auki hefur
breski fjárfestirinn Philip Green lýst yfir áhuga
á yfirtöku.
Að sögn talsmanns KKR fann fyrirtækið
ekkert athugavert við skoðun á bókhaldi Sa-
feway. Talsmaðurinn sagði að málið hefði
ekki strandað á fjármögnun, en nokkrir þættir
rekstrarins hefðu orðið til sinnaskipta KKR,
meðal annars verð hlutabréfa og óvissa í
kringum yfirtökuna.
KKR vill ekki Safeway
Í Bandaríkjunum
velta fjármálaspekúl-
antar því nú fyrir sér
hverjir fari verst út úr
hugsanlegu stríði við
Írak. Talið er ljóst að
flestar atvinnugreinar
muni finna fyrir stríðinu
svo um munar en að þau
fyrirtæki sem hvað mest
eru háð auglýsingum
muni fara verst út úr
því.
Afþreyingarfyrirtæki
og fjölmiðlar eru í þess-
um hópi. Í frétt Reuters um mál-
ið er nefnt að Fox sjónvarpsstöð-
in fái um helming tekna sinna frá
auglýsingum. Disney fyrirtækið
er reyndar ekki eins háð auglýs-
ingum, en þaðan kemur um fjórð-
ungur tekna fyrirtækisins, en
aðrar tekjuuppsprettur gæti þó
verið erfitt að stóla á ef til stríðs
kemur. Um 40% tekna Disney
koma frá skemmtigarðarekstri
en ætla má að færri sæki slíka
garða á meðan stríð ríkir. Erfitt
er að meta hversu mikil áhrif
stríðsins gætu orðið á þennan
iðnað en talið er að það velti mik-
ið til á því hversu lengi stríðið
stendur, ef til þess kemur.
Stríðið verst fyrir-
tækjum sem eru háð
auglýsingum
Fox fær helming tekna sinna frá auglýsingum
Reuters
Disney-fyrirtækið er líklegt til að þurfa að
draga saman seglin komi til stríðs við Írak.
◆
NOKKRIR reiðir Bretar lögðu fram kvörtun
til þarlendrar auglýsingasiðanefndar (Advert-
ising Standards Authority) nýlega vegna aug-
lýsingar frá ítalska tískuhúsinu Gucci sem þeir
töldu misbjóða sómakennd sinni. Nefndin er
þekkt fyrir að vera öllu harðari á reglum um
auglýsingar en gengur og gerist í öðrum Evr-
ópulöndum. Ekki höfðu þó kvartararnir erindi
sem erfiði að þessu sinni því auglýsingin var
leyfð.
Auglýsingin, sem er tímaritaauglýsing, sýn-
ir fáklædda konu í sem dregur nærbuxur sínar
niður og afhjúpar með því stafinn „G“ sem á að
standa fyrir Gucci. Karlmaður sést krjúpa á
móti konunni og stara á bókstafinn. Töldu þeir
sem lögðu fram kvartanirnar að þetta væri
ósiðlegt enda er bókstafurinn á líkama kon-
unnar myndaður úr skapahárum hennar.
Ætlun Gucci með þessari auglýsingu mun
vera að sýna fram á það hvernig kynhlutverk
karla og kvenna hafa breyst. Myndin fyrir auglýsinguna var tekin af
ljósmyndara sem er þekktur í Bretlandi fyrir að hafa tekið myndir
af konungsfjölskyldunni, en hann virðst hafa fengið leið á þeim
starfa og ákveðið að fara inn á önnur svið ljósmyndunar.
Gucci leyft að birta
„ósiðlega“ auglýsingu
AP
Ætli þessi dama hafi
setið fyrir á hinni
ósiðlegu – en lög-
legu – auglýsingu
Gucci?
Þeir sem kvörtuðu höfðu ekki erindi sem erfiði
TÖLVURISINN
Hewlett-Packard,
sem yfirtók Comp-
aq á síðasta ári, olli
fjárfestum von-
brigðum með slakri
afkomu á fyrsta árs-
fjórðungi yfirstand-
andi uppgjörsárs.
Hlutabréf félagsins
hafa lækkað veru-
lega að undanförnu
og kenna margir
samruna HP og
Compaq um, enda sanna dæmin
að samrunar ganga alls ekki allt-
af eins og til er ætlast. Frá þessu
segir í frétt Reuters.
Hið sameinaða félag hefur
skorið kostnað niður um tæpa 19
milljarða dollara síðan í maí á
síðasta ári en ár-
angurinn hefur lát-
ið á sér standa.
Hagnaður á hlut á
fyrsta ársfjórð-
ungnum nam að
vísu um 29 sentum
á hlut sem er einu
senti meira en
áætlanir gerðu ráð
fyrir. Slakar tekjur
er hins vegar það
sem helst veldur
áhyggjum fjár-
festa. Tekjur HP námu um 18
milljörðum dollara á fyrsta árs-
fjórðungnum sem er um 600
milljónum dollara eða um 3%
undir áætlunum. Minni sölu á
Bandaríkjamarkaði er einkum
kennt um minni tekjur.
HP stendur ekki
undir væntingum
Forstjóri HP, Carly Fiona,
virðist þurfa að herða róður-
inn til að endurvekja traust.
Reuters