Morgunblaðið - 09.04.2003, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. APRÍL 2003 B 9
bílar
Á EGILSSTÖÐUM má finna Mitsub-
ishi Lancer GL skutbíl, árgerð 1993
og ekinn 430 þúsund km, sem þykir
með ólíkindum. Það er Laufey Ei-
ríksdóttir, starfsmaður Skólaskrif-
stofu Austurlands og kennari við
Grunnskólann á Egilsstöðum og Eið-
um, sem á þennan endingargóða bíl.
„Ég ætlaði að fara að henda bíln-
um um daginn, því ég hélt að hann
hlyti að fara verða búinn og lét bif-
vélavirkjann minn hafa hann í yf-
irhalningu fyrir skoðun í mars sl.
Ætlaði að losa mig við hann ef hann
stæðist ekki skoðun, enda er mig
farið að dauðlanga í nýjan bíl. En
hann flaug auðvitað í gegn og það er
nákvæmlega ekkert að honum.“
Laufey segir Lancerinn aldrei
hafa þurft á neinum stórviðgerðum
að halda. Hún nefnir hjöruliði og
eitthvert smotterí, en vél hafi t.d.
aldrei verið tekin upp. „Þjónustan
hér er líka þannig, að bíllinn er í
stöðugri gjörgæslu. Þeir hjá Sóln-
ingu gæta þess að hann fái alltaf
réttu tegundirnar af olíum og Jónas
Jónasson bifvélavirki sér um að allt
sé í hundrað prósent lagi. En auðvit-
að fer hann að gefa sig.“
Lancerinn er vinnubíll Laufeyjar,
sem ekur honum oft í viku á milli
Egilsstaða og Reyðarfjarðar. „Hann
var þjónustubíll hjá Símanum áður
en ég keypti hann árið 1997 og þá
var búið að keyra hann á milli
Reykjavíkur og Keflavíkur í mörg ár.
Hann er yfirleitt alltaf í lang-
keyrslum og líklega þess vegna sem
bíllinn hefur dugað svona vel. Auk
þess hef ég ekið honum um það bil
fimm hringi í kringum landið á ári í
mörg ár og upp á fjöll og um fjall-
vegi. Bíllinn minn hefur fengið að
puða og hvergi verið hlíft. Þetta er
ekki sparibíll.“
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Hér er Laufey Eiríksdóttir á Egilsstöðum hjá tíu ára gamla Lancernum, sem ekinn er 430 þúsund km og dugir enn vel.
Lancerinn hefur puðað
430 þúsund km
DILBERT mbl.is
FERRARI er virtasta ítalska fyr-
irtækið um víða veröld, samkvæmt
niðurstöðum könnunar meðal á annað
þúsund forstjóra stórfyrirtækja í 20
löndum. Hana gerði ráðgjafarfyr-
irtækið PriceWaterhouseCoopers og
viðskiptablaðsins Financial Times.
Sérstök viðurkenning af þessu til-
efni hefur verið afhent forstjóra Ferr-
ari-Maserati Group, Luca Di Monteze-
molo. Hann sagði verðlaunin
viðurkenningu á þeim tilraunum
starfsfólks Ferrari til að eðalvagnar
fyrirtækisins megi keppa við risana á
sviði bílaframleiðslu. „Við höfum fund-
ið upp og þróað hvern einn og einasta
hlut í bílunum og framleiðsluferlið líka,
einnig mannauðsstjórnun fyrirtæk-
isins og samskipti við birgja okkar og
viðskiptavini,“ sagði Montezemolo.
Ferrari virtasta
fyrirtæki Ítalíu
á heimsvísu
Verð kr. 2.490.000
Tilboð 1.990.000 stgr.
Skipti möguleg á ódýrari.
Toyota 4Runner 350 TPI, árg. 1991-1997, vél Corvette, 700
skipting, LandCruser hásingar, loftpúðar, sjálfvirkur hæðarstillir, X
low milligír, læstur að framan og aftan, bensíntankur 2x120 lítra og
margt fleira. Sjón er sögu ríkari.
fiú velur flá fjármögnunarlei› sem flér hentar best
Vi› bjó›um hagkvæm kjör
fiú ræ›ur hvar flú tryggir
Ábyrg›armenn alla jafna óflarfir
Einfalt, fljótlegt og flægilegt
Númer eitt, ertu kraftmikill?
Bílalán - Bílasamningur - Einkaleiga - Rekstrarleiga
– traustur samstarfsa›ili í fjármögnun