Morgunblaðið - 27.04.2003, Side 17
Bílaleigubílar
Sumarhús
í Danmörku
og Mið-Evrópu
Ódýrari bílaleigubílar fyrir
Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975 á viku.
Innifalið í verði:
Ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar. (Afgrgjöld á
flugvöllum.)
Aðrir litlir og stórir bílar, 6-7
manna, minibus og rútur.
Sumarhús og íbúðir.
Norðurlönd og Mið-Evrópa.
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Heimasíðan www.fylkir.is
með fjölbreyttar upplýsingar.
Nýjustu verðlistarnir komnir.
Hringið og fáið sendan.
Dancenter, Lalandia,
Novasol/Dansommer.
Fylkir Ágústsson,
Fylkir — Bílaleiga ehf.,
ferðaskrifstofan
sími 456 3745.
Netfang fylkirag@fylkir.is
Heimasíða www.fylkir.is
Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Verð kr. 37.062
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
2. og 9. júní, flugsæti með sköttum.
Verð kr. 49.562
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára,
2. og 9. júní, Valentin Park, vikuferð.
Verð kr. 57.950
M.v. 2 í stúdíóíbúð í viku, Valentin Park,
26. maí.
Heimsferðir stórlækka verðið
til Mallorca.
Heimsferðir bjóða nú vikulegt flug til Mallorca alla mánudaga í sumar á
frábærum kjörum og við stórlækkum verðið til þessarar vinsælu eyju í
Miðjarðarhafinu, sem hefur verið einn vin-
sælasti áfangastaður Íslendinga í 30 ár. Við
höfum nú tryggt okkur viðbótargistingu á okk-
ar vinsælasta gististað, Valentin Park, þar sem
þú getur notið frábærrar aðstöðu í fríinu og
notið þessarar fegustu eyju Miðjarðarhafsins.
Viðbótargisting, 2., og 9. júní
Munið Master-
card ferða-
ávísunina
Síðustu sætin til
Mallorca
í maí og júní
frá kr. 37.062
Lægsta verðið til Mallorca
Glæsilegir nýir gististaðir
Allt að verða uppselt
26. maí – uppselt
2. júní – 29 sæti
9. júní – 22 sæti
16. júní – uppselt
23. júní – 31 sæti
30. júní – uppselt
7. júlí – laust
14. júlí – 11 sæti
21. júlí – uppselt
Flug alla mánudaga
Valentin Park
Ef leggja á leið til Frankfurt í Þýska-
landi er m.a. hægt að sjá viðburða-
dagatal á slóðinni www.frankfurt-
rhein-main.dc
UPPLÝSINGA- og kynningarmið-
stöð Vesturlands í Borgarnesi er
flutt í Hyrnuna og binda forráða-
menn hennar miklar vonir við nýja
staðsetningu. „Við vonumst auðvit-
að til að með nýju staðsetningunni
náum við að þjónusta ferðamenn-
ina betur þannig að þeir fáist til að
stoppa lengur á svæðinu og kynn-
ast því sem í boði er, en oft vill
brenna við að ef afþreyingin er
ekki við þjóðveginn, vill hún gjarn-
an fara framhjá fólki, segir Hrafn-
hildur Tryggvadóttir, forstöðu-
maður Upplýsinga- og kynningar-
miðstöðvar Vesturlands. Auk
landshlutamiðstöðvarinnar í Borg-
arnesi, eru upplýsingamiðstöðvar á
Vesturlandi reknar á Akranesi, í
Búðardal, Stykkishólmi, Ólafsvík
og Reykholti. Allar þessar stöðvar
hafa náið og gott samstarf sín í
milli, að sögn Hrafnhildar.
Sprenging í gestakomum
Upplýsinga- og kynningarmið-
stöðin í Borgarnesi var sett á lagg-
irnar árið 1999 og var þá til að
byrja með í einu horni Sparisjóðs-
ins í Hyrnunni, var síðan flutt yfir
götuna í nýtt húsnæði Framköll-
unarþjónustunnar, þar sem hún
hefur verið undanfarin þrjú ár, en
kemur nú til með að taka yfir allt
rýmið, sem bankinn hafði áður í
Hyrnunni. Þar er m.a. rekin
stærsta bensínstöð landsins utan
Reykjavíkur, veitingastofa fyrir
allt að 150 manns, fundaraðstaða
fyrir allt að 50 manns auk versl-
unar og söluturns svo eitthvað sé
nefnt. Gestir upplýsingamiðstöðv-
arinnar í Borgarnesi árið 2000
voru um tvö þúsund talsins, 3.300
árið eftir og tæplega sjö þúsund í
fyrra. „Þróunin í þessu er því
mjög góð og þar sem Hyrnan er í
alfaraleið, má búast við spreng-
ingu í gestakomum hjá okkur eftir
flutninginn, en geta má þess að
miðað við þann fjölda, sem kemur í
Hyrnuna, má segja að hver Íslend-
ingur komi þangað að meðaltali
þrisvar sinnum á ári.“
Myndrænt sögukort
Að sögn Hrafnhildar kemur
miðstöðin í Borgarnesi samfara
flutningnum til með að breyta ör-
lítið um áherslur. Gera má ráð fyr-
ir að meira verði af söluvöru en
áður hefur verið. „Við verðum
bæði með minjagripi, gæðahand-
verk sem framleitt er á svæðinu og
fjölbreyttara úrval af bókum og
kortum. Auk þess að þjónusta
ferðamenn með einum eða öðrum
hætti, kemur upplýsingamiðstöðin
talsvert að markaðsmálum og hef-
ur ýmist sér eða í samstarfi við
aðra staðið að útgáfu ýmissa bæk-
linga.
Sérstök ástæða er til að nefna
svokallað Sögukort Vesturlands,
sem var stolt ársins í fyrra en kom
ekki út fyrr en í ágúst og er því
ennþá komið í litla dreifingu. Kort-
ið, sem gefið er út bæði á íslensku
og ensku, kynnir söguna á líflegan
og myndrænan hátt og er ætlað
bæði börnum og fullorðnum til af-
þreyingar og yndisauka. Þá hefur
miðstöðin tiltæka handbók með
helstu upplýsingum varðandi gist-
ingu, veitingar og afþreyingu á
Vesturlandi. Hana er hægt að fá
senda ýmist í pósti eða rafrænt, sé
þess óskað.
Upplýsingamiðstöð ferðamála flutt í Hyrnuna
Breyta áherslum
Hrafnhildur Tryggvadóttir, forstöðumaður Upplýsinga- og kynningarmið-
stöðvar Vesturlands.
Upplýsinga- og kynning-
armiðstöð Vesturlands
Brúartorg
Borgarnes
Sími: 437-2214
Fax: 437-2314
Netfang: tourinfo@vesturland.is
Veffang: www.west.is
FOSSHÓTEL tóku nýlega við
rekstri þriggja hótela og eru hót-
elin í keðjunni nú orðin 14. Um er
að ræða hótelin Fosshótel Nesbúð
á Nesjavöllum sem rekið hefur
verið sjálfstætt síðustu 10 árin,
hið glænýja Fosshótel Hlíð, við
þjóðveg 38 í vestanverðu Ölfusinu
milli Hveragerðis og Þorlákshafn-
ar og Fosshótel Baron við Baróns-
stíg í Reykjavík.
Í Fosshóteli Nesbúð eru 60 her-
bergi, 20 þeirra með baði, 20 án
baðs og síðan svefnpokapláss.
Morgun-, hádegis- og kvöldmatur
er í boði, einnig er setustofa og bar
og úti tveir heitir pottar. Hótel-
stjóri er Guðmundur Halldórsson.
Fosshótel Hlíð var byggt á síð-
asta ári og tekið í notkun nú í vor.
Fosshótel Hlíð er með 21 tveggja
manna herbergi, öll með baði,
sjónvarpi, síma og nettengingu.
Matsalurinn rúmar 120 manns.
Hótelstjóri er Björn Þórisson.
Fosshótel Baron hefur verið
rekið sjálfstætt síðastliðin 12 ár.
Nýlega hafa verið gerðar endur-
bætur á herbergjum, matsalurinn
stækkaður og öll aðstaða bætt.
Einnig var hótelið stækkað og eru
þar nú 112 herbergi að meðtöldum
nokkrum stúdíóíbúðum. Hótel-
stjóri er Jón Tryggvi Jónsson.
Fosshótel bæta við
sig þremur hótelum
HÓTELIÐ Threadneedles er í fjár-
málahverfi Lundúna. Þar er nú farið
að bjóða upp á síðdegiste að bresk-
um sið með litlum þríhyrningslaga
gúrkusamlokum og tilheyrandi
bakkelsi. Þá er einnig boðið upp á
óhefðbundið meðlæti, sýrðan rjóma
og kavíar og laxablinis.
Boðið er upp á teið í stórum sal og
er verðið fyrir hlaðborð og úrval te-
og kaffitegunda 23,50 pund eða um
2.850 íslenskar krónur.
Síðdegiste í
fjármálahverfinu
Nánari upplýsingar um hót-
elið Threadneedles er hægt að
nálgast á slóðinni www.e-
tontownhouse.com
OLÍUFÉLAGIÐ ehf. hefur
komið upp vefmyndavélum á
átta stöðum á landinu og er
hægt að sjá á mynd hvernig
veðurútlitið er í bæjum þessum
ef farið er inn á heimasíðu fé-
lagsins, www.esso.is. Þaðan er
svo hægt að fara beint inn á
heimasíður Veðurstofunnar og
Vegagerðarinnar, til frekari
glöggvunar á veðri og færð
hverju sinni. Vefmyndavélarn-
ar eru í Reykjavík, Borgarnesi,
Ísafirði, Akureyri, Egilsstöð-
um, Höfn, Hvolsvelli og í Vest-
mannaeyjum.
Vefmynda-
vélar sýna
veðrið
Skarthúsið
s. 562 2466, Laugavegi 12.
Fermingargjafir
Fermingarhárskraut
Fermingarskartgripir