Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 12
KNATTSPYRNA
12 B ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Úttekt
orgunblaðsins
Stofnað: 1945.
Heimavöllur: Hásteinsvöllur.
Aðsetur félags: Þórsheimilinu
v/Hamarsveg, Box 393, 902
Vestmannaeyjar.
Sími: 481-2608.
Fax: 481-1260.
Netfang: ibvfc@eyjar.is
Heimasíða: www.ibv.is/fotbolti
Framkvæmdastjóri: Birgir
Stefánsson.
Þjálfari: Magnús Gylfason.
Aðstoðarþjálfari: Sveinn B.
Sveinsson.
Sjúkraþjálfari: Björgvin Eyj-
ólfsson.
Formaður knattspyrnudeild-
ar: Viðar Elíasson.
Íslandsmeistarar: (3) 1979,
1997, 1998.
Bikarmeistarar: (4) 1968, 1972,
1981, 1998.
Íþróttabanda-
lag Vest-
mannaeyja
EYJAMENN eru taldir líklegri til að
þurfa að berjast fyrir lífi sínu í úrvals-
deildinni í sumar en að blanda sér í
baráttuna í efri hlutanum. Þær spár
eru ekki síst byggðar á því að þrír af
fjórum reyndustu leikmönnum liðs-
ins á síðasta tímabili eru horfnir á
braut, þeir Hlynur Stefánsson, Ingi
Sigurðsson og Tómas Ingi Tómasson.
Þar verður skarð leiðtogans Hlyns
sérstaklega vandfyllt, enda komust
Eyjamenn að því í fyrra að þeir gátu
ekki án hans verið. Þá var hann hætt-
ur en var dreginn af stað aftur áður
en júnímánuður var liðinn.
ÍBV teflir fram ungu liði, einu því
yngsta í deildinni, þar sem bróður-
partur leikmanna er 23 ára og yngri.
Þar eru taldir með tveir nýjustu
Eyjamennirnir, ensku piltarnir Ian
Jeffs og Tom Betts, sem bættust í
hópinn nú á vordögum. Þeir bæta
engri reynslu í hópinn en auka hins-
vegar breiddina. Sama er að segja
um miðvörðinn efnilega Tryggva
Bjarnason sem á að taka þátt í að
fylla skarð Hlyns í vörninni.
Sem fyrr verða Eyjamenn erfiðir
heim að sækja, enda hefur Hásteins-
völlurinn um langt árabil verið einn
sterkasti heimavöllur hér á landi.
Þeirra gengi veltur væntanlega mikið
á því hvernig þeim tekst til við að
safna að sér stigunum á honum. ÍBV
hefur sjaldan sótt mikinn hluta stiga
sinna á fastalandið og vann t.d. aðeins
einn útileik á síðasta ári.
Reyndar tókst Eyjamönnum
þokkalega upp í ferðalögum sínum í
deildabikarnum í vetur og vor, þar
sem þeir spiluðu að vanda alla leiki á
útivöllum. Þeir unnu tvo af fimm
leikjum sínum gegn öðrum úrvals-
deildarliðum. Þar féllu þeir út gegn
ÍA í 8-liða úrslitum. Í Canela-bikarn-
um á Spáni hafnaði ÍBV í fimmta sæti
af átta liðum, tapaði fyrir Fylki en
vann Aftureldingu og FH.
Morgunblaðið/Sigfús Gunnar Guðmundsson
Ensku leikmennirnir og Eyjapeyjarnir Ian Jeffs og Tom Betts eiga eftir að setja svip á ÍBV-liðið.
Birkir Kristinsson, hinn síungi
markvörður, gefur ekkert eftir þó
hann sé á 39. aldursári. Birkir hefur
varið mark ÍBV geysilega vel í vetur
og nú mun líklega mæða enn meira á
honum en oft áður. Það virðist nán-
ast óhugsandi að Birkir missi úr leik,
það hefur hann ekki gert heil 15
tímabil í röð hér á landi. En ef það
gerist, gæti ÍBV lent í vandræðum
því varamarkverðirnir eru ungir og
reynslulausir.
Eyjavörnin hefur orðið fyrir blóð-
töku því Hlynur Stefánsson og
Kjartan Antonsson eru horfnir á
braut. Páll Þ. Hjarðar spilaði reynd-
ar talsvert í fyrra en hvorki hann né
Tryggvi Bjarnason búa yfir mikilli
reynslu, ekki heldur hinn enski Tom
Betts. Hjalti Jóhannesson verður á
sínum stað sem vinstri bakvörður og
Hjalti Jónsson hefur leikið hægra
megin að undanförnu. Varnarleikur
ÍBV er stórt spurningarmerki.
Bjarnólfur Lárusson verður í aðal-
hlutverki á miðjunni og verður að
gæta sín betur en í fyrra að safna
ekki á sig spjöldum. Bjarni Geir Við-
arsson tekur á sig meiri ábyrgð en
áður og Atli Jóhannsson hefur spilað
talsvert þrátt fyrir ungan aldur. En
breiddin er ekki mikil á miðjunni og
þar veltur á miklu hvort Ian Jeffs
reynist nægilegur liðsstyrkur.
Steingrímur Jóhannesson, mesti
markaskorari ÍBV frá upphafi, er
kominn aftur til Eyja og nú reynir á
hvort hann nær fyrri styrk þar eftir
tvö tiltölulega dauf ár með Fylki. Ef
hann og Gunnar Heiðar Þorvalds-
son ná saman gætu þeir reynst eitt
eitraðasta sóknarpar deildarinnar.
En það er vandséð hver annar á að
skora mörk.
Birkir Kristinsson
Hjalti Jónsson
Páll Þ. Hjarðar
Tryggvi Bjarnason
Hjalti Jóhannesson
Ian Jeffs
Bjarni Geir Viðarsson
Bjarnólfur Lárusson
Atli Jóhannsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson
Steingrímur Jóhannesson
Líklegt
byrjunarlið
Davíð Egilsson frá KFS
Ian Jeffs frá Crewe
Igor Bjarni Kostic frá Víkingi R
Pétur Runólfsson frá KFS
Sindri Viðarsson frá KFS
Stefán Bragason frá KFS
Tom Betts frá Crewe
Tryggvi Bjarnason frá KR
Gareth Graham til Englands
Hlynur Stefánsson til KFS
Ingi Sigurðsson hættur
Kevin Barr til Tindastóls
Kjartan Antonsson til Fylkis
Niels Bo Daugaard til Danmerkur
Olgeir Sigurgeirsson til Breiðabliks
Tómas Ingi Tómasson hættur
... Eyjamenn þurftu að nota ýmiss konar far-
arskjóta til að komast á fyrsta Íslandsmótið árið
1912? Þeir sigldu til Stokkseyrar, gengu stóran
hluta leiðarinnar til Selfoss og fóru þaðan með
hestvagni til Reykjavíkur. Þeir gátu síðan aðeins
spilað annan af tveimur leikjum sínum því þeir
urðu að gefa þann síðari vegna mikilla meiðsla í
þeim fyrri.
N
N,
*
#$ ) +%
< (#
. &
-
#
) *
! ##
# >
) - (#
.J + #
#
'
(# &
*
+%
&-
/028
/024
/036
/024
/024
/030
/02/
/030
/028
/032
/028
/028
/031
/030
/027
/02/
/026
/02/
/021
/034
/024
/028
5
/1
01
4
5
76
80
66
5
5
42
5
08
65
//
/
8
8
5
/28
5
42
5
/
5
5
5
5
/
5
5
5
7
5
/5
7
5
5
5
5
5
3/
5
/7
5
495
/195
495
5
/795
/295
/195
5
5
/39/
5
/794
/498
//95
/95
895
5
5
/797
5
/29//
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
/
5
5
C A
+
: =* =: #>04 " =
=
C A : -
B *O : D : " =
: ;:
=
=,
+
/
/8
87
E
! B
%
E#
//
/1
84
3
2
/5
/6
/7
/2
88
86
82
8
4
6
7
1
0
/0
85
83
80
=H--
/016
/024
/024
> - I
=, #J 838
5
5
5
5
5
/295
5
5
34
5
5
: > : : EO :
: =:
;): ): *
> ; # - -K
8558
9 ) K
„VIÐ rennum frekar blint í sjóinn
fyrir sumarið, enda á ég von á að
deildin verði mjög opin. KR, Fylkir
og Grindavík eiga eftir að vera í
sérflokki og slást um þrjú efstu sæt-
in en hin sjö liðin eru öll áþekk að
styrkleika og verða í baráttu frá
fjórða sætinu og niður úr,“ sagði
Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV.
„Okkar styrkleiki mun frekar
liggja í liðsheildinni en í sterkum
einstaklingum, þó þeir séu vissu-
lega innan um í okkar hópi. Við er-
um með marga unga menn en flest-
ir þeirra eru þegar komnir með
nokkra reynslu og eiga að geta
staðið fyrir sínu. Við eigum eftir að
sjá endanlega hvernig nýju menn-
irnir í hópnum falla inn í liðið og þá
hafa meiðsli truflað okkur talsvert í
undirbúningnum síðustu vikurnar.
En eins og aðrir stefnum við á að
komast ofarlega í deildina og vera
lausir við botnbaráttu í sumar.“
Magnús Gylfason
„Rennum
frekar blint
í sjóinn“
Magnús Gylfason