Morgunblaðið - 13.05.2003, Qupperneq 13
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. MAÍ 2003 B 13
Úttektorgunblaðsins
ÞAÐ eru þrettán ár síðan Fram
fagnaði Íslandsmeistaratitli síðast
eða árið 1989. Frá þeim tíma hefur
stöðugleika skort hjá liðinu og liðið
féll úr úrvalsdeild árið 1995 en end-
urheimti sæti sitt á meðal þeirra
bestu ári síðar. Mikil uppbygging
hefur átt sér stað í leikmannahópi
liðsins, ungir leikmenn úr röðum fé-
lagsins hafa fengið það verkefni að
koma félaginu í fremstu röð á ný,
undir stjórn Kristins R. Jónssonar
sem var í Íslandsmeistaraliði Fram
árið 1986, 1988 og 1990.
Fallbarátta hefur verið hlutskipti
Fram undanfarin þrjú ár og hefur
liðinu tekist að bjarga sér frá falli á
síðustu stundu í öll skiptin. Eflaust
stefna leikmenn liðsins hærra þetta
árið og er allt eins víst að sú reynsla
sem býr í hinu unga liði muni nýtast
vel í sumar.
Hraður sóknarleikur, með öflugu
vængspili og gegnumbrotum, hefur
verið einkenni Framliðsins undan-
farin ár og þegar þeir eru í ham
standast fáir varnarmenn þeim
snúning. Hinsvegar hafa sóknar-
menn liðsins ekki nýtt færi sín vel í
gegnum tíðina og liðið hefur einnig
fengið á sig of mörg mörk á hverju
sumri.
Sóknarlína liðsins er áhugaverð
þar sem þeir Guðmundur Steinars-
son og Kristinn Tómasson hafa bæst
í hópinn og keppa um framherjastöð-
urnar við þá Kristján Brooks og
Andra Fannar Ottósson. Þorbjörn
Atli Sveinsson er spurningarmerki
þar sem hann hefur átt við erfið
meiðsli í baki að stríða undanfarin
misseri.
Markvörður liðsins er traustur, og
varnarmaðurinn Eggert Stefánsson
er heill heilsu við hlið þeirra Ingvars
Ólasonar og Baldurs Bjarnasonar
sem hefur ákveðið að leika með lið-
inu á ný. Ágúst Gylfason verður í að-
alhlutverki á miðjunni og nái liðið að
stilla saman strengi sína, fækka mis-
tökum í varnarleiknum og nýta færi
sín betur er allt eins líklegt að Fram
eigi eftir að koma verulega á óvart í
sumar. Liðið varð Reykjavíkur-
meistari í vetur og getur því vel látið
að sér kveða á grasvöllum landsins í
sumar.
Morgunblaðið/Arnaldur
Ragnar Árnason, Guðmundur Steinarsson og Baldur Þór
Bjarnason hafa bæst í hópinn hjá Frömurum.
Gunnar Sigurðsson er reyndur
markvörður en hann hefur leikið
m.a. með ÍBV og Brage í Svíþjóð.
Gunnar hefur bætt sig töluvert og er
mun stöðugri leikmaður en áður.
Hann hefur aldrei verið hræddur við
að láta til sín taka þegar á reynir en
hefur lent í ýmsum vandræðum á
undanförnum árum. Gunnar fékk
nóg að gera í marki Fram á síðasta
ári og vill eflaust eiga náðuga daga af
og til í sumar.
Gleðifregnir vorsins fyrir Framliðið
eru þær að Eggert Stefánsson er
heill heilsu eftir erfið bakmeiðsli
undanfarin ár. Eggerts var sárt
saknað í Framvörninni í fyrra en
hann lék með liðinu á lokakafla móts-
ins er liðið bjargaði sér frá falli.
Ingvar Ólason hefur vaxið töluvert
sem leikmaður á undanförnum árum
og ættu hann og Eggert að geta
bundið varnarleikinn betur saman.
Ragnar Árnason og Daði Guð-
mundsson eru traustir bakverðir.
Ágúst Gylfason hefur verið driffjöð-
ur liðsins á miðjunni en hann hefur
næmt auga fyrir samherjum sínum
auk þess sem aukaspyrnur hans
skapa oft usla. Gaman verður að sjá
hvernig Baldur Bjarnason spjarar
sig í efstu deild á ný en hann ætti að
skila liðinu mikilli reynslu sem oft
skorti í ungu liði Fram í fyrra. Viðar
Guðjónsson er gríðarlega skapandi á
hægri vængnum.
Léleg nýting hefur loðað við fram-
herja Framliðsins en sóknarleikur-
inn hefur verið styrkur þeirra und-
anfarin ár. Takist þeim Andra
Fannari Ottóssyni, Kristjáni Brooks
og Guðmundi Steinarssyni að finna
leiðina að marki andstæðinganna og
bæta nýtinguna verður þessi þáttur
leiksins ekki vandamál. Kristinn
Tómasson getur blandað sér í þessa
baráttu en Þorbjörn Atli Sveinsson
hefur verið meiddur í baki.
Gunnar Sigurðsson
Ragnar Árnason
Eggert Stefánsson
Ingvar Ólason
Daði Guðmundsson
Viðar Guðjónsson
Ágúst Gylfason
Baldur Bjarnason
Guðmundur Steinarsson
Andri Fannar Ottósson
Kristján Brooks
Líklegt
byrjunarlið
Baldur Þór Bjarnason frá Stjörnunni
Guðmundur Steinarsson frá Brönshöj
Kristinn Tómasson frá Fylki
Ragnar Árnason frá Stjörnunni
Stefán Þór Eyjólfsson frá Hugin/Hetti
Tómas Ingason frá Val
Ásgeir Halldórsson hættur
Gunnar B. Ólafsson í Breiðablik
Kristinn V. Jóhannsson í Víði
Sævar Guðjónsson hættur
Thomas Rutter til Bandaríkjanna
... Fram er það félag sem lengst hefur haldið
Íslandsbikarnum í sínum höndum? Framarar
voru handhafar hans frá 1913 til 1918, eða í sex
ár, en tvö fyrstu árin fór reyndar engin keppni
fram þar sem Fram og KR gátu ekki komið sér
saman um hvenær sumars skyldi spilað.
Stofnað: 1908.
Heimavöllur: Laugardalsvöll-
ur.
Aðsetur félags: Íþróttahús
Fram, Safamýri 26, 108
Reykjavík.
Sími: 533 5600 (Völlur: 510
2914).
Fax: 533 5610.
Netfang: brynjar@fram.is
Heimasíða: www.fram.is
Framkvæmdastjóri: Brynjar
Jóhannesson.
Þjálfari: Kristinn R. Jónsson.
Sjúkraþjálfari: Pétur Örn
Gunnarsson.
Liðsstjórar: Ingimundur
Magnússon, Sverrir Einarsson.
Formaður meistaraflokks-
ráðs: Pétur Ormslev.
Formaður Fram, Fótbolta-
félags Reykjavíkur: Sveinn
Andri Sveinsson.
Íslandsmeistari: (18) 1913,
1914, 1915, 1916, 1917, 1918,
1921, 1922, 1923, 1925, 1939,
1946, 1947, 1962, 1972, 1986,
1988, 1990.
Bikarmeistari: (7) 1970, 1973,
1979, 1980, 1985, 1987, 1989.
Knattspyrnu-
félagið Fram
= ,
M% ,#
'
-
(
)
# & ,#
N
&" )
-
) - = ?
H
- )
/025
/030
/03/
/02/
/02/
/026
/026
/038
/033
/030
/028
/030
/026
/03/
40
1/
/85
62
83
/8
5
2/
00
28
43
47
5
31
6
4
86
7
8
/
5
84
83
82
3
4
5
86
/195
/394
/791
/194
/398
/89/
5
//95
/697
/297
/396
295
5
298
5
5
1
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
5
+
: :
* 9
9
=,
-",
*: #: )
;+
": #: ) : ;+: =
5
5
5
5
//
5
5
5
5
5
5
/
/8
E
N !
E#
/5
//
/4
8/
86
87
80
6
1
3
/3
/2
85
45
8
4
7
2
0
/8
/6
/1
81
83
82
=H--
/037
/032
> - I
=, #J 18
1
5
5
/295
5
5
5
=
: : ;:
: ;+:
- %
! (
#
+ M
- &
B* (#
) -J
& .J
? (#
&
/025
/038
/030
/031
/010
/031
/030
/025
/027
/021
/027
46
35
64
14
/80
/8
2
/4
5
5
5
/
/
/
/
85
8
5
5
5
5
5
795
/395
/59/
5
5
5
295
095
5
5
5
& +: =,: " &
: ;):
: =,
N - :
"
: =
> ; # - -K
8558
9 ) K
„VIÐ förum að sjálfsögðu í alla leiki
til þess að ná í þau stig sem í boði
eru,“ sagði Kristinn R. Jónsson
þjálfari Framliðsins, en hann var
varkár er hann var inntur eftir
markmiðum liðsins í sumar.
„Við mætum Fylki, KR, Grinda-
vík og ÍA í fyrstu fjórum umferðum
mótsins og munum eflaust vera var-
kárir til að byrja með. Við eigum
ekki í erfiðleikum með að skora en
við höfum lagt áherslu á að fá færri
mörk á okkur en áður. Við erum
búnir að fá fína reynslu undanfarin
tvö ár þar sem fallbaráttan hefur
verið okkar hlutskipti enda liðið
skipað ungum leikmönnum að
mestu. Hinsvegar hafa þessir sömu
leikmenn þroskast og það má segja
að núna sé tími til að taka út af inni-
stæðunni í reynslubankanum,“
sagði Kristinn.
Kristinn R. Jónsson
„Varkárir til að
byrja með“
Kristinn R. Jónsson