Morgunblaðið - 01.06.2003, Blaðsíða 14
Nokkrir málshættir …
Margur hefur farið flatt á hálum ís
Sjaldan er góður matur of oft tugginn
Betra er að standa á eigin fótum en annarra
Sæta
fiskastelpan
Það er flestum óljóst af hvaða uppruna þessi litla sæta fiskastelpa er,
en eitt er víst að enginn getur veitt hana. Nema kannski þú! Reyndu að
finna leiðina í gegnum hana með önglinum þínum fína.
Smá orðarugl í tilefni sjómannadagsins.
Orðin sem finna skal mynda eina setn-
ingu, og eru öll í réttri röð. Lesið línurnar
hægt og þá finnið þið orð í þessari stafa-
súpu. Smá vísbending: orðin eru sex.
Orðarugl
— í grænum sjó
Ógnvaldar sjómanna
Já, sjóræningjar voru ógnvaldar sjómanna öldum
saman, rændu þá og rupluðu, og eru reyndar enn til í
dag. En hér sjáið þið nokkra áhafnarmeðlimi sjóræn-
ingjaskipsins „Gull í ginið“. Hverjir þeirra eru eins?
Lausn neðst.
Steini er ótrúlega klár stangveiðimaður. Þessa mynd
tók frúin þegar hann veiddi þennan glæsifisk. Hún
varð að framkalla myndina fjórum sinnum og alltaf
vantaði eitthvað tvennt á hverja mynd. Sérðu hvað?
Lausn neðst.
Steini stöng
Hvers konar skrímsli er þetta? Ekki fiskur – eða
hvað? Það er spurning hvort maður kærir sig um að
veiða þessa furðuveru, jafnvel þótt mörgum finnist
hún bragðgóð. Dularfullt …
Viltu
veiða
þetta?
Hér eru nokkrir þorskar sem lentu í netinu hjá honum
Sigga sjóara, sem hélt hann sæi tvöfalt, en svo var
ekki, heldur eru tveir þorskanna eins. Hverjir eru það?
lausn neðst.
Lausnir: Á mynd nr. 1 vantar hluta af munni fisksins og ugga. Nr. 2: efst
áveiðistöngina og smá af skónum. Nr. 3: Smá af línunni og annað eyrað.
Nr. 4: Efsta hakið á „sagarblaði“ fisksins og einn fingurinn. Þorskar nr. 2
og 5 eru eins. Sjóræningjar A og G eru eins.
Þorskar í þvögu
Það er alltaf stuð á sjómannadaginn. Þá fyll-
ist miðbær flestra bæja og þorpa á Íslandinu
góða af fólki sem vill fagna með sjómönn-
unum, með því að fara í skrúðgöngu, sjá
skemmtiatriðin niðri á höfn, fá blöðru, bíta í
pylsu og jafnvel fara í bátsferð. Hvað ætlar
þú að gera?
Sjómannadagurinn var fyrst haldinn í
Reykjavík og á Ísafirði 6. júní 1938, fyrir 65
árum. Eftir nokkur ár hafði siðurinn breiðst
út um allt land, því auðvitað vildu allir sjó-
menn standa saman og eiga góðan dag. Sjó-
mannadagurinn er venjulega haldinn fyrsta
sunnudag í júní og er á mörgum stöðum mik-
ill hátíðisdagur, enda eini dagurinn á árinu
sem allir sjómenn koma í land.
Á sjómannadeginum er starf sjómanna
kynnt, en þá er líka minnst drukknaðra sjó-
manna. Eins og þið vitið er starf sjómanna
mjög erfitt, enda oft ógnarveður úti á sjó, og
stórhættulegt að sækja gull í greipar Ægis,
eins og sagt er.
Sjómenn kljást
við furðuverur
Í eldgamla
daga voru sjó-
menn bara
bændur sem
reru til fiskjar á árabát fyrir utan bæinn sinn
sem stóð við sjó. Þeir lentu nú í ýmsu, því þá
var til sæfólk og sæskrímsli og ýmsar furðu-
verður, eða svo segja þjóðsögurnar að
minnsta kosti. Um það má lesa á netslóðinni:
www.snerpa.is/net/thjod/sjo.htm. Sæfólk
var reyndar eins og venjulegt fólk, nema
hvað það bjó í sjónum. Stundum veiddu karl-
ar á árabát óvart ungar sækonur, þegar öng-
ullinn þeirra festist í beltinu þeirra. Þá urðu
þeir áreiðanlega mjög glaðir, og stundum
svo skotnir í þeim að þeir giftust þeim.
Stundum drógu þeir sæmenn upp á yfirborð-
ið, en þeir voru kallaðir marbendlar. Ef sjó-
mennirnir voru svo góðir að setja sæfólkið
aftur ofan í sjóinn fundu þeir nýjar kýr á beit
hjá bænum sínum þegar þeir komu heim.
Einnig er talað um urðarbola nokkurn óg-
urlegan, sem var af sæskrímslakyni. Hann
var maður að ofan og annaðhvort selur eða
naut að neðan. Að öllum líkindum lenda sjó-
menn í dag ekki í álíka ævintýr- um.
Og þó! Það er aldrei að vita.
Spínat fyrir framtíðarsjóara
En margar skemmtilegar
sögur hafa verið skrifaðar
um sjómenn út um allan
heim og einn þeirra er teikni-
myndahetjan Stjáni blái. Hann
þykir bæði ljótur og við-
skotaillur, en samt hefur
fólki líkað ótrúlega vel við
þennan furðulega náunga, allt frá því að
hann var fyrst teiknaður árið 1929. Stjáni
blái er yfirmáta og ótrúlega skotinn í henni
Gunnu stöng, og kemst ekkert að nema
hún … og svo auðvitað spínatið hans. Stjáni
blái gerði nefnilega spínat svo vinsælt í
Bandaríkjunum, að gerð var stytta af hon-
um! Við mælum með að þau ykkar sem ætla
að verða sjómenn borði nóg af spínati, það
gefur fullt af krafti sem þarf til sjómennsku.
Fyrsta teiknimyndin um Stjána bláa kom
út árið 1933 og hét „Sjómaðurinn Stjáni
blái“, en síðan hafa verið gerðar 600 teikni-
myndir um hann. Árið 1980 var síðan gerð
leikin bíómynd um ævintýri þeirra Gunnu
stangar og heitir hún „Popeye“, eins og hann
heitir á ensku. Kannski er eitthvað til á
myndbandaleigunni um hann?
Goðsögnin um höfin sjö
Fyrir þá sem vilja sjá bíómynd um sjó-
menn, þá er ein góð á leiðinni. Það er ný
Disneymynd um Sindbað sæfara, eða
Sindbað farmann, eins og hann er líka kall-
aður. En sögurnar um hann, sem eru úr ar-
abísku ævintýrunum 1001 nótt, má finna á
netinu og er netslóðin: www.snerpa.is/
net/1001/1001.htm. Þar má lesa um öll æv-
intýrin hans, en teiknimyndin, sem frum-
sýnd verður 15. ágúst, á að gerast tíu árum
eftir sjöundu og seinustu sjóferð hans í arab-
ísku ævintýrunum. Hún mun heita „Sindbað
sæfari og goðsögnin um höfin sjö“. Nú mun
Sindbað hitta Eris, gríska gyðju óreiðunnar,
og líka Próteus, sjávarguðinn sem breytist í
hvert skipti sem hann birtist Sindbað. Þessi
tveir karakterar eru stór hluti af þessari
miklu ævintýramynd af sjónum. Og það
sama má segja um hina þokkafullu ungmey
Marínu. Já, ástir og ævintýr.
Sjómanns-
ins ástir
og ævintýr
Vei! Sjómannadagurinn er í dag!
Sindbað úti á sjó. Hvar annars staðar?
Teiknið
sjóara …
R R G O T T D R
A N M A E E R P
A Ð G I Ú N R U
R S Ú P A S A L
T A N A N Í T F
H S J Ó A S K O
H J Á I L U Ó Ý