Morgunblaðið - 28.07.2003, Page 14
14 C MÁNUDAGUR 28. JÚLÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐFasteignir
Sími 588 55 30
Sigrún Stella Einarsdóttir, löggiltur fasteignasali,
Pétur Pétursson, löggiltur fasteignasali.
Fax 588 55 40 • Netfang: berg@berg.is • Heimasíða: berg.is • Opið virka daga frá kl. 9-17
MOSFELLSBÆR
Krókabyggð - Endaraðhús
Mjög fallegt 97 fm raðhús í einu vinsæl-
asta hverfi Mosfellsbæjar. Merbau-
parket og flísar á gólfum. 2 góð svefn-
herb. með skápum. Mikil lofthæð í stofu
og holi. Vandaður frágangur. Örstutt í
leikskóla og óspillta náttúru með skógi
og fallegum útivistarsvæðum. Áhv. 6 m.
byggingarsjóður. V. 14,9 m. 5190
Í nágrenni Reykjalundar Í
einkasölu fallegt 125,8 fm einbýlishús
auk 36 fm bílskúrs á frábærum stað í
Mosfellsbæ. Allt viðhald í toppstandi.
Glæsilegur garður í góðri rækt umhverf-
is húsið. Húsið stendur á einstökum
stað í jaðri skógræktarsvæðis. Eign fyrir
náttúrunnendur. V. 18,5 m. 5240
Miðbær - Mosfellsbæjar Falleg
og vel skipulögð 114 fm íbúð. Tvö
svefnherbergi ásamt stofu og borð-
stofu. Fataherbergi innaf hjónah. Rúm-
góð geymsla á hæðinni. Glæsilegur frá-
gangur á baðherbergi. Parket og flísar.
Athugið lækkað verð. V. 12,8 m. 5233
Búagrund - Kjalarnesi Vorum
að fá í sölu 193 fm einbýlishús auk 45
fm bílskúrs. Falleg eldhúsinnrétting með
gaseldavél. 3 baðherbergi ásamt 4
svefnherbergjum. Stofa og borðstofa.
Parket og flísar á gólfum. Þetta er eign
á rólegum stað í barnvænu umhverfi. V.
18,5 m. 5206
Sumarhús
Við Skorradalsvatn Nýkomin í sölu
afar glæsilegur sumarbústaður í skógi
vöxnu landi. Bústaðurinn er með raf-
magni, heitu og köldu vatni, 42,2 fm, 5,8
fm saunahús að auki auk geymsluhúss og
12,4 fm bátaskýlis. Allur frágangur mjög
góður. V. 7,9 m. 5248
Hæðir
Safamýri - M. bílskúr Vorum að fá
í sölu 150 fm góða neðri sérhæð ásamt 26
fm bílskúr, hiti í plani og tröppum. For-
stofuherbergi með eldunaraðstöðu, stór
stofa, borðstofa, 3 herbergi, stórt eldhús,
flísalagðar suðursvalir. FALLEG EIGN
MEÐ GÓÐA STAÐSETNINGU. V. 21,5 m.
5209
Lindasmári Vorum að fá í sölu fallega
155,9 fm sérhæð á tveim hæðum, neðri
hæðin er 108,4 fm og efri hæðin er 47,5
fm. Það eru 5 svefnherbergi, gólfefni eru
parket og flísar. Þetta er falleg eign á góð-
um stað, stutt er í alla þjónustu. V. 19,8
m. 5259
4ra-6 herb.
Grandavegur - Lyftuhús Nýtt á
skrá. Nýkomin glæsileg 104 fm endaíbúð
á 1. hæð í þessu vinsæla lyftuhúsi. Allur
frágangur og viðhald til sóma. 3 svefnher-
bergi. Góð sameign. Fallegur garður og
örstutt í leiksvæði fyrir börnin. Eign í sér-
flokki fyrir vandláta. V. 15,6 m. 5252
Atvinnuhúsnæði
Skeifan Vorum að fá glæsilegt 488,8
fm atvinnuhúsnæði á tveim hæðum. Mjög
gott aðgengi er að efri hæð sem er með
stórum tröppum og góðum gluggum.
Neðri hæð er með lofthæð sem ca 3,50
ásamt góðum innkeyrsludyrum. Góð að-
koma er að húsinu, næg bílastæði. V. 43
m. 5257
Þekking - öryggi - þjónusta
Í smíðum
Lómasalir Glæsileg og vel skipulögð
109,8 fm íbúð á 4. hæð auk geymslu 6,8
fm, svalir 12,5 fm, ásamt stæði í bíla-
geymslu. Húsið verður fullklárað að utan
og tilbúið að innan án gólfefna. Íbúðirnar
verða til afhendingar í ágúst 2003. 5189
Landið
Í Borgarnesi Nýtt í sölu. Vandað 209
fm einbýlishús auk 38 fm bílskúrs í afar
fallegri götu í Borgarnesi. Stór og björt
stofa með parketi. Fallegur arinn. 5 her-
bergi. Falleg lóð í góðri rækt. V. 16,5 m.
5255
SKEGGJAGATA
Reglulega falleg 174 fm íbúð á þremur
hæðum í parhúsi á einum besta stað í
Reykjavík. Stórar stofur og þrjú svefnher-
bergi. Gott geymslupláss. Í kjallara er
möguleiki á séríbúð. Þar eru tvö stór her-
bergi, eldhúskrókur og salerni. V. 18,5
m. 5266
ARNARHÖFÐI
Glæsilegt 190 fm endaraðhús á frábær-
um stað í Mosfellsbænum. Húsið er á 2
hæðum. Vandaður frágangur. Parket og
flísar. 4 svefnherbergi. 2 snyrtingar. Sól-
pallur og svalir. Eign fyrir vandláta. 25
myndir á netinu. Allar nánari uppl. veitir
Pétur. 5262
SVÖLUHÖFÐI - MOS.
Vandað og vel byggt 157 fm parhús auk
39 fm bílskúrs í vinsælu hverfi. Húsið er
fullbúið að utan en fokhelt að innan. Allir
gluggar með tvöföldu gleri. Útihurðir og
bílskúrshurð fullfrágengin. Klæddir
þakkantar. V. 16,8 m. 5250
SUMARHÚS VIÐ HAFRAVATN
Glæsilegur 64 fm sumarbústaður á
bökkum Hafravatns. Frábært útsýni yfir
vatnið. 2 góð herbergi. Rúmgóð stofa
með kamínu. 50 fm sólpallur. Bátaskýli.
Rúmgott eldhús með gaseldavél. Köld
sólstofa. Falleg lóð í góðri rækt. Sláttu-
traktor fylgir. Afgirt lóð. 5260
KRÓKABYGGÐ
Eign fyrir vandláta. Í vinsælu hverfi í
Mosfellsbæ er til sölu afar fallegt 2ja
hæða 220 fm parhús með innb. bílskúr.
Stórar stofur, þrjú til fjögur svefnherb.,
baðherb. og gestasnyrting. Sjónvarps-
hol með kamínu. Góð gólfefni og inn-
réttingar. Barnvænt umhverfi, stutt í
óspillta náttúru. V. 23,5 m. 5265
BLÖNDUBAKKI
Nýkomin í sölu falleg 94 fm íbúð á 3.
hæð vel viðhöldnu fjölbýli. 15 fm auka-
herbergi í kjallara. 3 góð svefnherbergi.
Snyrtileg íbúð í vinsælu hverfi. 5254
STÓRAGERÐI
Mjög skemmtileg 102 fm íbúð auk 19 fm
bílskúrs. Stórar og bjartar samliggjandi
stofur. 2 góð svefnherbergi. Gegnheilt
parket á hluta íbúðar. Snyrtileg og vel
umgengin eign í vinsælu hverfi. Örstutt í
alla þjónustu. Frábært útsýni. V. 12,9 m.
5235
G
reinarhöfundur vandist á
námsárum í skandinav-
ískri háskólaborg á að fara
allra sinna ferða á reið-
hjóli – eins og lunginn af 15–20 þús-
und samstúdentum – og þótti það
harla góður ferðamáti. Endurkominn
til Reykjavíkur eftir sex ára útivist
hef ég haldið uppteknum hætti þau
22 ár sem liðin eru og að mestu treyst
á hjólið og í seinni tíð nokkuð á „hesta
postulanna“ til þess að koma mér til
og frá vinnustað.
Um nokkurra ára skeið þýddi
þetta 9 km hjólreiðar kvölds og
morgna úr Breiðholti niður á Lauga-
veg. Í dag býr greinarhöfundur við
svipaðar aðstæður, um 8 km hjól-
vegalengd úr Kópavogi niður í miðbæ
Reykjavíkur. Eftir tilkomu brúar yfir
Kringlumýrarbraut og göngu- og
hjólreiðastígs vestur strandlengjuna
meðfram Fossvogskirkjugarði og
Reykjavíkurflugvelli er til staðar afar
skemmtileg og jafnframt örugg leið
sem í sívaxandi mæli er nýtt af hjól-
andi, gangandi og skokkandi fólki.
Hjólreiðar við „íslenskar
aðstæður“
Hjólreiðasaga Reykjavíkur var þó
lengi heldur óglæsileg sökum þess
hve illa var búið að hjólreiðamönnum.
Félagsskapur hjólreiðamanna,
Frjálsir vegfarendur, leitaði fyrir
einum 15 árum síðan til gatnamála-
stjóra og benti embættismanninum á
ýmsa farartálma er gerðu hjólreiða-
mönnum erfitt að ferðast um borg-
ina. Sumar þessara ábendinga voru
teknar til greina og vissar úrbætur
framkvæmdar, en eigi að síður er
Reykjavík enn í dag afar óhjólvæn
borg. Enn vantar heildstætt kerfi
notendavænna hjólreiðastíga í borg-
inni og vindasöm veðrátta dregur
kjarkinn úr mörgum. Þá hefur sú
skoðun verið útbreidd að hjólreiðar
séu aðeins mögulegar á Íslandi á
sumrin. Tilkoma nagladekkja fyrir
reiðhjól veitir hjólreiðamönuum nú
fullkomna vörn við hálku, auk þess
sem nokkrir síðustu vetur hafa verið
afar snjóléttir.
Hjólreiðar almennings fara smátt
og smátt vaxandi og þeim fjölgar sem
nota reiðhjólið sem aðalferðamáta
innan borgarinnar. Kannanir sýna þó
engu að síður mikla yfirburði einka-
bifreiðarinnar þegar heildarfjöldi
ferða íbúa höfuðborgarsvæðisins til
og frá vinnu er skoðaður.
Úti í Evrópu er það ekki aðeins í
háskólabæjum sem reiðhjólið nýtur
almennra vinsælda sem borgarfarar-
tæki, mér er t.d. í fersku minni að
hafa verið staddur að morgni dags í
leigubíl í Kaupmannahöfn á leið út á
Kastrup-flugvöll og mætt straum-
þungu fljóti hjólreiðamanna á leið til
vinnu sinnar í miðborginni. Í hjól-
vænum evrópskum borgum má jafn-
vel sjá prúðbúnar og virðulegar eldri
konur á leið í leikhúsið eða óperuna,
sitjandi keikar á álíka virðulegum og
lífsreyndum reiðhjólum.
Reykjavík sem reiðhjólaborg
Ferðatími innan borgarinnar á
reiðhjóli er mun minni en margir
halda, þannig er ferðatíminn niður í
miðbæ frá hverfum Reykjavíkur
vestan Elliðaáa aldrei lengri en 20
mínútur. Minn ferðatími úr austur-
hluta Kópavogs er t.d. minni en 30
mínútur og fer niður í 16–18 mínútur
sé hjólað greitt. Innan Reykjavíkur
tefst þó för hjólreiðamannsins óhjá-
kvæmilega af ljósum á gatnamótum
og töfum vegna þess að hann verður
að hliðra til fyrir hinu ríkjandi far-
artæki í borginni, einkabílnum.
Eitt af því sem að mínu mati ber að
gera í umferðarmálum Reykjavíkur
er að byggja upp öflugt hjólreiða-
stígakerfi sem er aðskilið frá bílaum-
ferð. Ekki þarf að taka fram að allar
„alvöruborgir“ á meginlandi Evrópu
hafa fyrir löngu komið upp slíku
stígakerfi sem gerir reiðhjólið að
raunverulegum valkosti til vinnu-
Hjólvæna borgin
Morgunblaðið/Ómar
Reykjavík sem reiðhjóla-
borg er viðfangsefni Jóns
Rúnars Sveinssonar fé-
lagsfræðings í pistli hans
um hjólreiðastíga.