Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 20
Lundi V/Nýbýlaveg 564 4566 • www.solsteinar.is MINNINGAR 20 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 ✝ Guðlaug Sigríð-ur Stefánsdóttir fæddist í Ólafsfirði 5. maí 1947. Hún lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ak- ureyri mánudaginn 11. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Anna Jóhanna Sveinsdótt- ir, f. 21. febrúar 1919, d. 21. ágúst 1994, og Stefán Sveinsson Stefáns- son, f. 29. septem- ber 1902, d. 4. sept- ember 1974, bóndi á Vatnsenda í Ólafsfirði. Guðlaug var fimmta í röð sjö systkina en þau eru: Sveinn Sigurjón, f. 25. apríl 1940, d. 29. nóvember 1989; Stefanía, f. 12. janúar 1942; Anna Lilja, f. 2. ágúst 1944; Páll Gísli, f. 28. febrúar 1946; Jóhanna Lovísa, f. 13. júlí 1948; og Sigurrós Þórleif, f. 30. nóv- ember 1950. Árið 1969 giftist Guðlaug Gunnlaugi Guðmundssyni, f. 10. maí 1941, og eiga þau tvær dæt- ur, 1) Jóhönnu Kristínu Gunn- laugsdóttur, f. 28. júlí 1968, sambýlis- maður hennar er Gestur Geirsson, f. 19. júní 1967; 2) Önnu Soffíu Gunnlaugsdóttur, f. 3. desember 1970, gift Friðriki Guðjóni Guðnasyni, f. 7. desember 1973. Útför Guðlaugar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Á langri göngu um grýtt urin hrjóstur lindarniður græn tó (Snorri Hjartarson.) Elsku Lauga, eftir langa og erfiða göngu ertu komin í faðm þeirra sem þú vissir að biðu þín. Með opnum faðmi bauðst þú mig einmitt velkominn í fjölskylduna þegar við hittumst í fyrsta sinn. Faðmur sem var eins og framleng- ing af stóru hjarta, falslaus, hreinn og beinn. Mér lærðist snemma að þekkja þetta faðmlag og það ásamt þöglum augum þínum sagði oft meira en þúsund orð. Falsleysið og þessar hreinu til- finningar voru einmitt svo einkenn- andi fyrir þig, enda náðir þú að gleðjast yfir svo mörgu smáu. Lítil hugsun eða kveðja til þín, pakkað inn í gjafapappír með rauðri slaufu, það eitt náði að kalla fram ósvikið bros og eftirvæntingarsvip. Enda varstu bráðsmitandi jólabarn. Lífsins vindar áttu það til að beygja þig meira en okkur hin og á þeim tímum þegar samhljómur var ekki á milli hugar, hjarta og geðs gat verið mjög erfitt að vita hvar þú varst stödd, hvað þú varst að hugsa og hvernig þér leið. Alltaf skein þó í gegn væntumþykjan og kærleikur- inn, alveg sama hvernig ástandið var. Að lokum réttirðu alltaf úr þér og hélst áfram göngunni. Ég kveð þig að sinni, Lauga mín, en veit að þú munt vaka yfir okkur og að þegar stundin rennur upp mun opinn faðmur þinn bíða okkar allra. Þinn tengdasonur, Friðrik Guðjón Guðnason. Arabíska skáldið Kahlil Gibran hefur komist svo að orði um dauð- ann: Hvað er það að deyja annað en að standa nakinn í blænum og hverfa inn í sólskinið? Nú hefur mágkona okkar Guð- laug Sigríður Stefánsdóttir horfið inn í sólskinið, inn í dagrenninguna sem birtist í austri þá fögru ágúst- nótt þegar hún kvaddi þetta líf. Við köllum það dauða. Dauðinn er eins og hámark lífsins og lífið er ein hringrás. Nýtt líf er kviknað, fyrsta barna- barn Laugu mun fæðast í septem- ber. Það var hennar mesta gleði og ánægja að fylgjast með því. Börn og allt ungviði skipaði stóran sess í hjarta hennar, t.d. kom hún sér upp ömmustelpu hjá vinkonu sinni sem henni þótti afar vænt um. Lauga var sterkur persónuleiki, hafði ákveðnar skoðanir og stóð á sínu. Hún hafði ríka kímnigáfu og gullmolarnir frá henni glóðu á góð- um stundum. Sumardagurinn fyrsti var alltaf hátíðisdagur á heimili hennar sem stóð opið fyrir alla fjölskylduna með rjúkandi súkkulaði og pönnukökum. Stórfjölskyldan á nokkra sameig- inlega hátíðisdaga, t.d. mjólkur- grautinn á laugardögum, laufa- brauðsdag, jólaveislu, gamlárskvöldsveislu og sumargrill í sumarbústaðnum. Lauga tók ríkan þátt í allri gleðinni og var hrókur alls fagnaðar. Sumarbústaðurinn var Laugu hin helgu vé. Þar tengdist hún nálægð náttúrunnar og upplifði æskuárin við heyskap og fuglasöng. Það er okkur dýrmæt reynsla að hafa kynnst henni og notið sam- fylgdar við hana í gegnum árin. Persónuframkoman sýndi og sannaði öllum með sérstakri virðingu reifaðir störf og mál. Íslenska gestrisnin, hlýjan og hjarta- mildin og höfðingjarausnin var grópuð í þína sál. Veitandi sólskini í sálir hins unga og smáa sorgunum dreifðir og gerðir allt milt og rótt. Þín sanna og hreina og djúpstæða móður- mildi miðlaði öllum sem vantaði hlýju og þrótt. Þú reistir þér varða, sem aldrei mun bresta né brostna, með brosunum hlýjunni og þreki við störf og mál. Lifandi trú á hið göfuga, góða og sanna var gjörandi máttur er skapaði bjarta sál. Áhrifin frá þér þau gleðja og geymast og lifa geislunum hefur til samferðamannanna stráð. Sá alfaðir kær, er þú trúðir og treystir í öllu taki á móti þér – veiti þér eilífa náð. (Sigtr. Sigtr.) Nú hefur Lauga mætt engli aust- ursins sem leiðir hana inn í land ljóssins þar sem viskan og kærleik- urinn bíður hennar og friðurinn sem hún þráði. Megi hið altumlykjandi afl um- vefja hana og vernda. Í Guðs friði. Steinunn, Margrét, Guðrún og fjölskyldur. Nú þegar sumri tekur að halla og bjartar sumarnætur eru ekki lengur hluti af sólarhringnum hefur vin- kona mín Guðlaug Stefánsdóttir lagt hljóðlega augun aftur sem tákn um það að hún hefur nú lokið gæfu- ríkri lífsgöngu sinni. Fréttin um andlát Laugu kom ekki beint á óvart og þá sökum þess að Lauga hafði í tvö ár barist hetjulega við ill- vígan sjúkdóm. Reyndar hafði Lauga átt við margþættan heilsu- brest að stríða um árabil. Þrátt fyr- ir augljósa heilsufjötra hlífði Lauga sér aldrei þegar kom að heimilinu og þeim sem þar áttu athvarf um lengri eða skemmri tíma. Lauga sparaði sig hvergi enda heimili hennar og eiginmannsins Gunn- laugs glæsilegt og þau hjón rómuð fyrir einstaka gestrisni og velvilja. Lauga var listakokkur enda unni hún bæði matargerð og bakstri. Pönnukökur voru í uppáhaldi og jafnvel þegar mikið var dregið af Laugu minntist hún á að gaman væri að getað sullað í nokkrar svona rétt til að halda sér við. Eins og flestir góðir pönnukökubakarar vita er þónokkur kúnst að gera þær sér- stakar og ennþá meiri list að baka þær með stæl. Guðlaug var hvers manns hugljúfi enda vildi hún veg allra sem mættu henni sem mestan og bestan. Það geislaði af Laugu góðmennska og hlýja. Ég kynntist frábærum eðl- isþáttum Laugu sjálf í gegnum þrjá- tíu ára óslitna vináttu okkar. Heim- sóknir mínar á heimili þessara heiðurshjóna á Akureyri hafa bæði verið margar og mjög eftirminnileg- ar í gegnum öll árin. Alltaf var ég meðhöndluð af þeim hjónum eins og sönn drottning. Ávallt var glatt á hjalla og svo margt skemmtilegt baukað saman. Sumarbústaðaferð- irnar með þeim hjónum og fleirum ár eftir ár voru það eftirminnilegar að á milli ára hlakkaði ég einstak- lega til þeirra. Í júlímánuði síðast- liðnum fórum við nokkur saman hina árlegu bústaðarferð í viku og virkilega nutum samverunnar þar. Þótt mikið væri dregið af Laugu þarna þá kom hún með að hluta til í hópinn og reyndi þótt máttfarin væri að taka þátt í fjörinu alltént part úr degi þegar þrekið leyfði. Þvílík hetja! Lauga hafði alla tíð einstaka ánægju af hvers kyns spilamennsku og naut sín á þeim vettvangi. Lauga var afburða hannyrðakona og heim- ili þeirra hjóna fór ekki varhluta af þeim listaverkum sem hún skóp sjálfri sér til ánægju og öðrum til gleði. Skilin á milli lífs og dauða eru iðulega skrýtin og skammt stórra högga á milli. Það vill þannig til að á allra næstu dögum mun fæðast ný sál í líkama fyrsta barnabarns þeirra hjóna. Einn kveður og annar kemur. Laugu auðnaðist ekki að sjá fyrsta barnabarn sitt fæðast á jarðneskan hátt en ég er þó nokkuð viss um að hún mun úr handanheim- inum, það er frá ríki Drottins, fylgj- ast með fæðingu þessa kærkomna barnabarns. Fjölskyldan er og verð- ur samheldin og þó að Lauga sé nú vistuð á nýjum stað mun hún samt halda áfram af sama kærleika að fylgjast með sínu liði. Ekki er vafi á því að ófædda barnabarnið mun milda djúpa sorg og mikinn missi Gulla við fráfall elskuríkrar eigin- konu og vinar. Óhætt er að segja að Guð sjái um sína þótt enginn komi í annars stað. Skarð Laugu verður alltaf við allar aðstæður afar örðugt að fylla því þannig persóna var hún. Kærleiksrík, heiðarleg, sönn og skemmtileg. Ég vil nú að leiðarlokum þakka Guðlaugu frábæra viðkynningu sem bæði var ómetanleg og sérstök fyrir flestra hluta sakir. Við fráfall Laugu kveð ég traustan og eftirminnilegan vin. Fjarlægðin gerði okkur enn nánari og sökum hennar vorum við miklir og góðir talvinir þar sem traust og hlýtt símasamband varð okkur notadrjúgt á löngum síð- kvöldum. Áhugamál okkar lágu jafnframt á marga vegu saman. Báðar höfðum við eins og Gulli jafn- framt mikinn áhuga á andlegum málefnum og ýmsu öðru sem við- kemur uppbyggilegum sjónarmið- um. Ég votta Gunnlaugi eiginmanni Laugu, dætrum og öðrum ættingj- um og vinum mína dýpstu samúð með innilegu þakklæti fyrir mjög sérstaka vináttu. Ég bið góðan Guð um að vaka yfir fjölskyldu Guðlaug- ar á þessum tregafulla tíma í lífi þeirra allra. Að lokum vil ég senda ykkur, kæru vinir, þessar ljóðlínur ef vera mætti huggun í lestri þeirra. Að eilífðarósi umvafin elsku frjáls ert farin ferðina löngu. Í englaveröld andinn lúinn, í föðurfaðmi friðsæll hvílir. Takk fyrir tímann og tryggðarþelið, í mörgum mætum minningum er lifa. (Jóna Rúna Kvaran.) Blessuð sé minning Guðlaugar S. Stefánsdóttur. Kristín Th. Ágústsdóttir. GUÐLAUG SIGRÍÐUR STEFÁNSDÓTTIR MINNINGARGREINUM í Morgunblaðinu hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Til að öllu efni Morgunblaðsins verði haganlega fyrir komið reynist nauðsynlegt að setja minningargreinum, sem og öðru efni, ákveðin lengdarmörk. Því hefur verið ákveðið að fyrir utan aðalgrein verði aðrar greinar 1.500 slög (með bilum), sem eru um 50 línur í blaðinu (17 dálk- sentimetrar) og í kringum 300 orð. Hinsta kveðja – nýtt form Jafnhliða þessu verður tekin upp nýjung sem kölluð er HINSTA KVEÐJA þar sem hægt verður að senda örstutta kveðju (5–15 línur), þegar það á við. Þetta form á við þegar votta á virðingu án þess þó að það sé gert með langri grein (sjá sýn- ishorn). Lengd minningargreina Hæfileg lengd. Til þess að sjá lengd minningargreinar í t.d. Word-ritvinnslu, þá er valið Tools-valblaðið og síðan Word Count. Þá opnast þessi upplýs- ingagluggi og sýnir orðafjöldann (Words); slagafjölda án orðabila (Characters (no spaces)); slaga- fjölda með orðabilum (Characters (with spaces)): 1.500. g fa g n ar n k, a ð- m g m n- ér ir ð r- i. m r- n- í ar l- u í ð ð- gg g Sú hugsun að svo kynni að fara var manni þó oftast fjarri, svo mikill var lífsþróttur hennar, hugurinn vökull og atorkan óbilandi. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj. lkasdjf laksjf laks jdf. Laksdjælaskdjfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs kd. Jón Jónsson og Jónína Jónsdóttir Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- djfæalskjfaæls kdjfaæl sk djfalæs kd fdh fg df df df n dfhndfghdfh dfgh dfgh dfh fdgh. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- djfæalskjfaæls kdjfaæl sk. Ækjlskdfj aæsldkjf æa lskdfj aæ ldskf jalæskdjf alsækdlaskdj lkasdjf laksjf laks jdf laksdjælask- HINSTA KVEÐJA Lokað Vegna jarðarfarar ANDREU BENEDIKTSDÓTTUR verður lokað frá kl. 13.00 þriðjudaginn 19. ágúst. Siglingastofnun Íslands, Vesturvör 2, Kópavogi. Eiginkona mín,móðir, amma og langaamma, JÓHANNA MARÍA GESTSDÓTTIR, LILLA, Melabraut 26, Seltjarnarnesi, lést föstudaginn 15. ágúst. Útför auglýst síðar. Grétaar Guðjónsson, Guðjón Grétarsson, Gauti Grétarsson, Hildigunnur Hilmarsdóttir, Arnold B. Cruz, Sigrún J. Eiríksdóttir, Sigrún María B. Guðjónsdóttir, Magnús P. Haraldsson, Hildur B. Guðjónsdóttir, Aron Gauti Laxdal Gautason, Tinna Laxdal Gautadóttir, Daði Gautason og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.