Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ STÆRSTA RAFTÆKJAVERSLUN LANDSINS! VELDU LÆGSTA VERÐIÐ! VELDU EXPERT! GRÍÐARLEGUR fjöldi fólks á öll- um aldri víða um heim fer á hverju ári í sjálfboðastarf til annarra landa. Tilgangurinn er jafn misjafn og fólkið er margt, en allir eiga það sameiginlegt að vera tilbúnir til að leggja á sig mikla vinnu fyrir ekkert nema tækifærið til að kynnast nýj- um og spennandi löndum, menning- arheimum og fólki. Þangað til fyrir tveimur árum einskorðaðist þó sjálf- boðastarfið við langtímaverkefni, þar sem fólk var við störf í marga mánuði. Samtökin Veraldarvinir (World Wide Friends) voru stofnuð í upp- hafi ársins 2001 til þess að mæta þörfum þess hóps fólks sem vill komast í styttri ferðir og vinna í styttri tíma, fólks sem hefur ekki tíma eða efni á langri dvöl en langar engu að síður til að kynnast löndum og vinna sjálfboðavinnu. Þar er hægt að komast í tveggja vikna starf, þar sem unnið er saman í vinnuhópum að afmörkuðum verk- efnum í umhverfismálum eða upp- byggingarstarfi. Samtökin leggja mikla áherslu á umhverfisvernd og menningartengsl auk tungumála- náms, en þau bjóða fólki einnig upp á tungumálanám sem felst í mán- aðarnámi í tungumálaskóla og tveimur mánuðum í sjálfboðavinnu í viðkomandi landi. Unnið og ferðast um landið Þórarinn Ívarsson, fram- kvæmdastjóri Veraldarvina á Ís- landi, segir samtökin að grunninum til sprottin upp úr Alþjóðlegum ungmennaskiptum (AUS), sem bjóða upp á lengri dvöl. „Sumarið í ár er það fyrsta sem við erum í fullu starfi. Áhersla okkar er á náttúru- verkefni, menningarskipti og að hjálpa fólki að kynnast annarri menningu og öðruvísi fólki.“ Sjálfboðastarfið fer þannig fram að fólk vinnur fimm daga vikunnar, sex tíma í senn, en í frítíma sínum ferðast sjálfboðaliðarnir um auk þess sem þeir kynnast „inn- fæddum“. Þá er farið með sjálf- boðaliðana í ævintýraferðir um landið. Þórarinn segir um þriðjung þátttakenda fara í ferðalög um land- ið á eigin vegum eftir að sjálfboða- starfinu lýkur. Þar myndist umtals- verðar tekjur fyrir ferðaþjónustu. „En þrátt fyrir að þetta fólk geri margt fyrir landið okkar, bæði með vinnuframlagi sínu og gjaldeyrisinn- streymi, hefur þetta starf kannski ekki mætt eins miklum skilningi stjórnvalda og ýmissa aðila og mað- ur skyldi ætla,“ segir Þórarinn, en leggur þó áherslu á að samstarf við sveitarfélögin sem vinna með ver- aldarvinum hafi verið frábært og þau sýni starfinu mikinn skilning. „Verkefnin sem við vinnum eru oft á vegum sveitarfélaganna og fólkið í sveitarfélögunum er mjög ánægt með samstarfið, bæði yfirvöld og al- menningur. Þetta samstarf er afar mikilvægt og okkur er mikið í mun að viðhalda góðu samstarfi við sveit- arfélögin. Það er engu að síður mjög erfitt að reka svona starfsemi án alls stuðnings frá ríki og borg, en í útlöndum fá samtök eins og Ver- aldarvinir gjarnan niðurgreitt hús- næði og síma hjá sveitarfélaginu þar sem þau starfa og dyggilegan stuðning á ýmsum öðrum nótum, þar sem stjórnvöld skilja hversu mikilvægt og í raun arðbært starf er verið að vinna. Íslendingar hafa einnig verið nokkuð tregir við að tileinka sér þá hugmynd að það sé sniðugt að fara í sjálfboðastarf til útlanda. Þetta er mun ríkara í fólki erlendis, og því fá Íslendingar mun fleiri sjálfboðaliða en við sendum út.“ Margar mismunandi ástæður fyrir þátttöku í sjálfboðastarfi Veraldarvinir hafa starfað á ýms- um stöðum á landinu í sumar, meðal annars á Þórshöfn, Höfn í Horna- firði, Galtalækjarskógi og á Sól- heimum í Grímsnesi við umhverfis- mál. Ein bækistöð Veraldarvina er á Akranesi, þar sem hópar sjálf- boðaliða hafa í sumar unnið ötult starf við hreinsun strandlengjunnar nálægt Akranesi og endurheimt steingarðs við Akranesvita. Sveit- arstjórn Akraness veitir samtök- unum stuðning með því að veita hópunum fæði og húsnæði og einn starfsmann bæjarins til að vinna sem milliliður milli samfélagsins og samtakanna. Þau Blake Anneberg frá Color- ado og Sherrell Perkin frá Bret- landi eru hluti af tuttugu manna hópi frá fjölmörgum löndum, sem hefur starfað á Akranesi síðustu tvær vikur. Þau segja það mjög spennandi og gefandi reynslu að vinna að sameiginlegu verkefni í svona þéttum félagsskap ólíks fólks. „Þarna er fólk af öllum aldri og upp- runa og maður eignast vini fyrir lífstíð og öðlast mikilvæg tengsl,“ segir Sherrell, sem nam leiklist og enskufræði og starfar nú við kennslu og leiklist. „Ég er búin að kenna í tólf ár og langaði að taka mér smáhlé í frama mínum. Ég fer bráðum að kenna ensku á Grikklandi, en ég ákvað að vinna fyrst sjálfboðavinnu í nokkrum löndum sem mig langaði til að sjá.“ Sherrell segir sjálfboðavinnuna hafa verið erfiða en mjög ánægju- lega, það sé frískandi að vinna með höndunum. „Upplifunin í heild sinni hefur farið langt fram úr vænt- ingum mínum. Gestrisni Íslendinga er yndisleg, starfsfólkið í íþrótta- húsinu þar sem við búum hefur ver- ið ótrúlega vingjarnlegt. Enginn hefði getað ímyndað sér hvað hægt er að búa vel um okkur í íþrótta- húsi. Við erum búin að vera að vinna fyrir sjávarútvegsfyrirtæki hér í bænum við að grafa upp upphaflegu steinana sem menn þurrkuðu fisk- inn á í gamla daga, það hefur verið mjög gefandi. Síðan höfum við farið í ferðalög um landið í frítímanum, bæði á vegum Veraldarvina og okk- ar eigin vegum. Náttúran hér er ómetanleg og ég held að þessi sam- setning náttúrufyrirbæra sé ekki til annars staðar í heiminum. Það er frábært að geta komist til landa og unnið og upplifað þau. Þegar allt kemur til alls er þetta mun ódýrari ferðamáti en að fara sem ferðamað- ur.“ Blake, sem er nýútskrifaður frá fjölþjóðlegum menntaskóla í Massachussets, stefnir á háskóla- nám í alþjóðasamskiptum. „Það sem kemur mér mest á óvart er hvað fólk frá mismunandi þjóðum er raunverulega svipað. Við erum öll mjög lík inn við beinið og það er svo margt sem við eigum sameiginlegt.“ Blake segir þetta vera síðasta tækifæri sitt í nokkurn tíma til þess að kynnast öðrum löndum. „Ég hef komið til Íslands einu sinni áður og mér finnst það yndislegt. Ég mæli eindregið með því að vinna sjálf- boðaliðastarf. Þetta er frábær skemmtun og upplifun, allt öðruvísi en hefðbundið bakpokarölt. Hér hefur maður sameiginleg markmið og frábæran félagsskap.“ Óvenjuleg en ódýr leið til að ferðast Samtökin Veraldarvinir bjóða fólki frá ýmsum löndum að koma til Íslands og starfa í sjálf- boðavinnu við mikilvæg umhverfisverkefni. Svavar Knútur Kristinsson kynnti sér starf veraldarvina og ólíkan uppruna þeirra sem starfa við sjálfboðaliðastörf. Hópur Veraldarvina starfar að fegrun umhverfis Akranesvita. Morgunblaðið/Svavar Þau Sherrell Perkin frá Bretlandi og Blake Anneberg frá Bandaríkjunum láta vel af ferð sinni og þeirri reynslu að starfa við sjálfboðastarf. svavar@mbl.is ANTONÍA litla Sigurðardóttir er ný- innvígður laxveiðimaður þótt ung sé að árum, aðeins sjö ára, en hún hóf laxveiðiferil sinn á óvæntan og magn- aðan hátt í Eyjafjarðará fyrir nokkr- um dögum. Landaði hún 12 punda laxi, en missti annan sem var mun stærri, jafnvel ekki langt frá 20 pund- um. Antonía var að veiðum á 2. svæði Eyjafjarðarár með Sigurði föður sín- um og var að kasta maðki með litlu bensínstöðvarstönginni sinni, er tröll- vaxinn lax greip agnið við svokallaðan Arnarhól. Eftir miklar sviptingar héldu tækin ekki og laxinn fór sína leið, en nokkur tár munu hafa runnið niður kinnarnar. En það var ekki ann- að að gera en harka af sér og reyna aftur og það gerði sú stutta. Og viti menn, annar lax tók samstundis á sama stað og tókst Antoníu litlu með lagni og hjálp föður síns að landa lax- inum í þetta sinn, en hér var um 85 sm, 12 punda hrygnu að ræða. Laxar eru fátíðir í Eyjafjarðará, sem er þekktust fyrir sjóbleikjuna, þetta var því mjög óvænt uppákoma. Risi úr skurðinum Risaurriði veiddist í Geirsstaða- skurði í Laxá í Mývatnssveit fyrir fáum dögum. Var það 11 punda flykki sem Egill Ingibergsson veiddi á straumfluguna Rektor og tók sá stóri fast upp við stífluna. Þetta er sá stærsti í urriðasvæðum Laxár það sem af er sumri. Antonía litla Sigurðardóttir með laxinn sinn. Sjö ára með 12 punda maríulax ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? EKKI eru taldar miklar líkur á leka í jarðgöngunum undir Hvalfjörð svip- uðum þeim sem varð í göngum undir Oslóarfjörð um helgina. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Speli. Greint var frá því fjölmiðlum í gær að Oslóargöngin verði lokuð að minnsta kosti fram að næstu helgi en enn er ekki ljóst hvers vegna dælu- kerfi í göngunum bilaði enda eru dælurnar enn undir vatni. Vegamálastjóri Noregs hefur af þessu tilefni fyrirskipað könnun á hliðstæðum búnaði í öllum neðan- sjávargöngum í Noregi. „Ráðamenn Spalar ehf., sem á og rekur Hvalfjarðargöng, munu afla sér upplýsinga um hvað gerðist í göngunum undir Oslóarfjörð. Svo vill reyndar til að framkvæmdastjóri félagsins er einmitt staddur í Noregi í öðrum erindagjörðum og mun ræða málið við vegagerðarmenn þar í landi í vikunni. Þegar frekari vitn- eskja liggur fyrir verður að sjálf- sögðu farið yfir hliðstæðan búnað og eftirlit í Hvalfjarðargöngum, ef efni þykja til. Spurningar kunna eðlilega að vakna um hvort eitthvað svipað gæti gerst í Hvalfjarðargöngum, einu neðansjávargöngunum á Íslandi, og gerðist í göngunum undir Oslóarfirði núna um helgina. Fullyrða má með rökum að hverfandi líkur eru á slíku ef tekið er mið af fjölmiðlafréttum af atvikinu í Noregi. Fram kemur að inn í göngin undir Oslóarfjörð leki að jafnaði um 30 lítr- ar á sekúndu af jarðvatni en til sam- anburðar má geta þess að leki í Hval- fjarðargöngum er einungis um 5 lítrar á sekúndu. Á botni Hvalfjarðarganga er þró sem tekur við jarðvatninu. Fjórar dælur eru til taks til að koma vatninu þaðan út. Lekinn í göngunum er ein- ungis brot af því sem reiknað var með við hönnun ganganna og er reyndar svo lítill að það dugar að hafa eina dælu af fjórum í gangi í fá- einar klukkustundir á sólarhring. Fylgst er með dælubúnaðinum og vatnsborðshæðinni í þrónni. Þetta er liður í reglubundnu eftirliti í göng- unum. Vatnsþróin tekur við leka í göngunum í að minnsta kosti eina viku án þess að dælt sé úr henni. Í ljósi þess sem hér segir þyrfti margt að fara úrskeiðis samtímis til að vatnsþróin Guðlaug í Hvalfjarð- argöngum yfirfylltist líkt og virðist hafa gerst í göngunum undir Oslóar- fjörð: t.d. langvarandi bilun í öllum dælum samtímis, rafmagnsleysi dög- um saman og bilun á sama tíma í varaaflgjafa ganganna,“ segir í fréttatilkynningu frá Speli. Leki ólíklegur í göngum Spalar SKÁKFÉLAGIÐ Hrókurinn vann öruggan sigur á Norðurlandamóti skákfélaga sem haldið var um helgina. Hrókurinn hlaut 22 vinninga og var 2½ vinningi fyrir ofan Tafl- félagið Helli sem hafnaði í 2. sæti. Í þriðja sæti urðu sænsku meistararn- ir. Hellismenn unnu Hróksmenn 4–2 í fyrstu umferð og virtust til alls líkleg- ir. Hróksmenn sýndu hins vegar mik- inn karakter og unnu flestar hinar sveitirnar stórt á sama tíma og Helli gekk nokkuð misjafnlega, sérstak- lega þó með mjög slæmum skelli gegn Svíum í lokaumferðinni, 1½–4½. Hróksmenn geta því fagnað enn einum sigrinum en félagið er nú bæði Íslands- og Norðurlandameistari. Úrslit mótsins urðu sem hér segir: 1. Hrókurinn 22 v. 2. Hellir 19½ v. 3. Svíþjóð 17½ v. 4. Noregur 15½ v. 5. Finnland 9½ v. 6. Færeyjar 6 v. Sveit Norðurlandameistara Hróks- ins skipa þeir Jóhann Hjartarson, Stefán Kristjánsson, Tairi Faruk, Ingvar Þór Jóhannesson, Páll Þórar- insson, Róbert Harðarson, Tómas Björnsson og Lárus Knútsson. Hrókurinn sigrar á Norður- landamóti ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.