Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 25
Laugarneskirkja: Opinn 12 spora fundur í safnaðarheimilinu kl. 18. Allt fólk vel- komið. Vinir í bata. Lágafellskirkja. Bænastund í Lágafells- kirkju kl. 20. Þórdís djákni þjónar og tekur við bænarefnum í síma 691 8041 alla daga frá kl. 9–16. Al-Anon-fundur í Lága- fellskirkju kl. 21. Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30– 16.30. Safnaðarstarf Hlutavelta ÞESSIR krakkar á Akureyri héldu flóamarkað og tom- bólu til styrktar Rauða krossinum. Þau söfnuðu 8.518 kr.Efri röð fv. Sigrún Lilja, Alexandra Embla, Rakel og Bjarki Már. Neðri röð fv. Hera Sólrún, Matthías, Heiðsíd Fríða og Kamilla. Morgunblaðið/Ásgrímur Örn MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 25 DAGBÓK HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd. Leiðbeinandi er Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur. Upplýsingar í síma 694 5494 STÆRSTA RAFTÆKJAVERSLUN LANDSINS! VELDU LÆGSTA VERÐIÐ! VELDU EXPERT! STJÖRNUSPÁ Frances Drake LJÓN Afmælisbörn dagsins: Þú ert sjálfsörugg og þol- inmóð manneskja. En að sama skapi sýnirðu öðrum ekki mik- ið af þínum innri manni. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Það væri ekki vitlaust að ræða fjármál við aðra í dag. Þetta gæti verið ferð í bankann eða bara vinalegt spjall við kunn- ingja yfir kaffibolla. Naut (20. apríl - 20. maí)  Tunglið er í merki þínu í dag sem veitir þér visst forskot á aðra. Nýttu þetta sem best þér til framdráttar. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Nú er mikill annatími í lífi þínu. Reyndu að halda smá tíma til haga fyrir þig. Þú verður aðeins að slappa af og draga andann. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Viðræður við vinkonu geta borið ríkan ávöxt í dag. Þú gætir líka notið þess að fara að versla með einhverjum. Gefðu þér eitthvað fallegt ef þú hefur efni á því. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Í samræðum við foreldri eða yfirmann skaltu sýna þol- inmæði og hlýða vel á orð þeirra. Þú ert með þrjár plán- etur í merki þínu og hefur hvort eð er öll spil á hendi. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Reyndu að gera eitthvað nýtt og óvenjulegt í dag. Breyttu út frá vananum. Prufaðu að fara aðra leið til vinnu, talaðu við nýtt fólk eða farðu í nýjar verslanir. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Hlustaðu vandlega á ráðlegg- ingar frá vini. Þær gætu kom- ið þér að góðum notum við ákvarðanir um sameiginlegar eignir. Þú gætir líka átt von á góðri ábendingu um starf í dag. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Tunglið er andstætt merki þínu í dag. Þú verður að sýna öðrum óvenju mikla þol- inmæði. Góðu fréttirnar eru að þú gætir lært eitthvað sem þér mun reynast verðmætt. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Samstarfsfélagar sýna þér stuðning í fyrramálið. Reyndu að vinna meira í einrúmi eftir því sem líða tekur á daginn. Taktu allri spennu innan fjöl- skyldunnar með jafnaðargeði. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Óþarfi er að hræðast smá galsa og grín í dag. Þér veitir ekki af smá kátínu og afslöpp- un. (Bara ekki keyra úr hófi.) Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samtöl við skyldmenni geta lent í forgrunni í dag. Hugs- anlega snúast þessi afskipti um hvernig þú ferð með pen- inga eða löngun þína til að kaupa vissan hlut. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Reyndu að rækta líkamann meira, ef þú átt þess kost. Fáðu vin eða ættingja til að taka þátt með þér. Í það minnsta skokkaðu á staðnum fyrir framan ísskápinn. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 60 ÁRA afmæli. Ámorgun þriðjudag- inn 19. ágúst verður Jórunn Sörensen kennari sextug. Hún og eiginmaður hennar Þorsteinn Magnússon verk- fræðingur verða að heiman á afmælisdaginn. Jórunn vill upplýsa þá sem vilja gleðja hana í tilefni afmælisins að þeir geri það best með því að láta andvirði gjafa, blóma eða heillaskeyta renna til Náttúruverndarsamtaka Ís- lands. Reikningsnúmer NSÍ er: 311-26-2468. Kennitala NSÍ er: 460697-2049 Ljósmynd/Stúdíó Sissa BRÚÐKAUP. Gefin voru sam- an í Háteigs- kirkju 21. júní sl. Eyrún Halla Kristjánsdóttir og Davíð Þór Jónsson. Ég bið að heilsa Nú andar suðrið sæla vindum þýðum. Á sjónum allar bárur smáar rísa og flykkjast heim að fögru landi ísa, að fósturjarðar minnar strönd og hlíðum. Ó, heilsið öllum heima rómi blíðum um hæð og sund í drottins ást og friði. Kyssið þið, bárur, bát á fiskimiði. Blásið þið, vindar, hlýtt á kinnum fríðum. Vorboðinn ljúfi, fuglinn trúr, sem fer með fjaðrabliki háa vegaleysu í sumardal að kveða kvæðin þín! Heilsaðu einkum, ef að fyrir ber engil með húfu og rauðan skúf, í peysu. Þröstur minn góður, það er stúlkan mín. Jónas Hallgrímsson LJÓÐABROT VIÐUREIGN Suður- nesjamanna (Kristján Örn Kristjánsson) og Norð- angarra (Fríamann Stef- ánsson) í 16 liða úrslitum Bikarkeppninnar var æsi- spennandi og má segja að þunn slemma Suðurnesja- manna í síðustu lotunni hafi skipt sköpum: Suður gefur. Norður ♠ K543 ♥ Á ♦ 9864 ♣Á532 Vestur Austur ♠ G92 ♠ D10876 ♥ D82 ♥ K1095 ♦ G105 ♦ K ♣K954 ♣G107 Suður ♠ Á ♥ G7643 ♦ ÁD732 ♣D6 Leikurinn var spilaður fyrir norðan og voru heimamenn í AV, þeir Reynir Helgason og Björn Þorláksson, gegn gestunum Arnóri Ragn- arssyni og Karli Her- mannssyni: Vestur Norður Austur Suður Björn Arnór Reynir Karl -- -- -- 1 hjarta Pass 1 spaði Pass 2 tíglar Pass 3 lauf * Pass 3 tíglar Pass 4 lauf * Pass 4 spaðar * Pass 6 tíglar Allir pass Þetta eru hörkusagnir. Arnór krefur í geim með fjórða litnum (þrjú lauf) og stingur svo upp á slemmu með fjórum lauf- um þegar hann fréttir af fimmta tíglinum hjá makker. Karl tekur þátt í slemmuleitinni með fjór- um spöðum og Arnór læt- ur þá vaða í sex tígla. Björn ákvað að koma hvasst út frá laufkóng- inum og Karl hleypti því heim á drottninguna. Þegar það gekk var eft- irleikurinn auðveldur og vörnin fékk aðeins einn slag á tromp. Slemman vinnst alltaf þótt út komi annað en lauf. Gerum ráð fyrir spaða. Þá tekur sagnhafi á hjartaásinn og hendir laufi í spaðakóng, spilar svo tígli og fangar kóng- inn. Síðan víxltrompar sagnhafi hjarta og svörtu litina og fær þannig átta slagi á tromp og tólf í allt. Vestur fær síðasta slaginn á trompgosann. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson 1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4 Rd7 5. Rg5 Rgf6 6. Bd3 e6 7. R1f3 Bd6 8. De2 h6 9. Re4 Rxe4 10. Dxe4 Dc7 11. O-O b6 12. Dg4 g5 13. Dh3 Hg8 14. He1 Bf8 15. Df5 Bg7 16. h4 Kf8 17. Dh3 Hh8 18. hxg5 hxg5 19. Dg4 c5 20. Bxg5 cxd4 21. Had1 Bb7. Staðan kom upp í of- urmóti í Dortmund sem lauk fyrir skömmu. Vis- wanathan Anand (2.774) hafði hvítt gegn Viktor Bologan (2.650). 22. Hxe6!! fxe6 23. Be7+ Kxe7 24. Dxg7+ Kd6 25. Rxd4 Tilgangur hróksfórn- arinnar hefur nú komið í ljós. Svarti kóngurinn er kominn á vergang er leiðir óumflýjanlega til ósigurs svarts. 25. …Dc5 26. Bf5 De5 27. Rf3+ Dd5 28. Dg3+ Ke7 29. Hxd5 Bxd5 30. Dg5+ Kd6 31. Df4+ Ke7 32. Be4 Hh5 33. Rh4 Hg8 34. Rg6+ Kd8 35. Df7 He8 36. Bd3 og svartur gafst upp. SKÁK Umsjón Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik.MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira les- endum sínum að kostnaðarlausu. Til- kynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynn- ingum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk get- ur hringt í síma 569- 1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. ÁRNAÐ HEILLA KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA LANDSPÍTALI - HÁSKÓLA- SJÚKRAHÚS SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000. BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050. BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími 543 1000. BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími 543 4050. NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími 543 2085. EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222. ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085. LÆKNAVAKTIR BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15. Upplýsingar í s. 563 1010. LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30 v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um helgar og frídaga. Nánari upplýs- ingar í s. 1770. TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhátíðir. Símsvari 575 0505. VITJANAÞJÓNUSTA læknis í heimahús. Alla v.d. kl. 10–16. Símapantanir og ráðgjöf kl. 8–20 í síma 821 5369. LÆKNALIND, Bæjarlind 12, Kópavogi. Einkarekin læknisþjónusta. Vaktþjónusta alla virka daga kl 08– 17. Uppl. í síma 520 3600 og á heimasíðu www.laek- nalind.is APÓTEK LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101. LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S. 533 2300. LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími 564 5600. NEYÐARÞJÓNUSTA BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf- rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493. HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af depurð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Full- um trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum. TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjaf- ar- og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og aðstandendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr. Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross- .is VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer 800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til að tala við. Svarað kl. 20–23. BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tekur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrifstofutíma. NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sól- arhringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús. Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.