Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 28
Aðalsteinn Ísfjörð harmonikkuleikari spilaði á bryggju- balli ásamt hljómsveit og þandi nikkuna hvað mest hann gat, við góðar undirtektir viðstaddra nikku-unnenda. Elís Már Guðvarðarson söngvari ung- lingahljómsveitarinnar Efnahvörf tróð upp ásamt félögum sínum. MIKIÐ var um tónlistaruppákomur á Mærudögum, sem haldnir voru á Húsavík á dögunum. Mærudagarnir, sem eru fjölskylduhátíð Húsvíkinga, fóru að mestu fram á hafnarsvæðinu í blíðskaparveðri. Það kenndi ýmissa grasa í tónlist- inni enda Húsavík löngum verið þekkt sem mikill tónlistarbær. Meðal þess sem boðið var upp á var djassband, harmonikuball, trúbador og söngkona, sem söng við undirspil bæði harmonikuleikara og gítarleik- ara. Þá stigu á svið allar helstu ung- lingahljómsveitir bæjarins og síðast en ekki síst sungu bæjarbúar og gestir þeirra fjöldasöng við brennu í fjör- unni. Á dansleikjum sem haldnir voru í Sölku spiluðu hljómsveitirnar Hljóm- sveit Íslands og Hljómsveit Geirmund- ar Valtýssonar og var mikið stuð hjá báðum sveitum. Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson Trúbadorinn og kokkurinn Frímann Sveins- son skemmti gestum og gangandi á hafnar- stéttinni í glampandi sólskinsblíðu. Mærudagar voru haldnir á Húsavík um síðustu helgi Fjölbreytt tónlist Húsavík. Morgunblaðið. 28 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ Kl. 8 og 10. B i. 16. Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 5.50. ísl tal.Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12.  SG. DVÓ.H.T Rás2  GH KVIKMYNDIR.COM  SG. DV KVIKMYNDIR.IS GULL MOLAR NÓI ALBINÓI RESPIRO Sýnd kl. 6 og 8. Með íslensku tali Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 10 ára. KVIKMYNDIR.IS  KVIKMYNDIR.COM  ÓHT RÁS 2  SG DV  MBL Kl. 6. MEÐ ÍSLENSKU TALI FRÁ FRAMLEIÐENDUM SHREK ATH! Munið eftir Sinbað litasamkeppninni á ok.is THE MATRIX RELOADED ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 8. Enskt tal. AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl tal KEFLAVÍK Sýnd kl. 6. Ísl tal WHAT A GIRL WANTS KRINGLAN Sýnd kl. 5.50 og 8. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10. B.i. 12. MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI Undir yfirborðinu (Below) Stríðsmynd Bandaríkin 2002. Skífan. VHS (106 mín.) Bönnuð yngri en 16 ára. Leikstjóri: David Twohy. Aðalleikendur: Matt Davis, Bruce Greenwood, Olivia Williams, Holt McCallany. UNDARLEGIR atburðir fara að gerast um borð í bandaríska kafbátnum Tiger, eftir að skips- menn bjarga þremur úr áhöfn sökkvandi skips sem hefur verið skotið niður – en sögusviðið er Norður-Atlanshaf- ið á tímum síðari heimsstyrjaldar- innar. Kafbátur- inn er undir stjórn Brice undirofursta (Greenwood), sem hefur nýtekið við skipinu eftir að kapteinninn drukknaði við voveiflegar kring- umstæður. Kafbáturinn hættir að láta að stjórn en stefnir af sjálfsdáðum aftur á slysstaðinn og váleg hljóð og óútskýranlegir atburðir fara að setja mark sitt á þrúgandi and- rúmsloftið neðansjávar á meðan Tiger stefnir á vit örlaga sinna. Twohy, leikstjóri og handrits- höfundur (ásamt Darren Aron- ofsky (Pi, Requiem for a Dream), ofl. góðum mönnum), er kunnastur fyrir handrit á borð við Flótta- manninn (The Fugitive) og Water- world, auk þess sem hann leik- stýrði hinni óháðu Pitch Black, sem hefur náð stöðu „cult-mynd- ar“ á íslenskum myndbandaleigum og víðar. Twohy er með klofið handrit að þessu sinni þar sem söguþráðurinn fjallar annarsvegar um yfirsjónir sem leiða til glæpsamlegs verkn- aðar sem fylgir skipi og áhöfn eins og skugginn og hinsvegar um yfir- náttúrlegri atburðarás sem er ómarkvissari og nánast til þess eins að skaða þá mögnuðu sögu sem lýtur útskýranlegum lögmál- um. Þrátt fyrir tvískinnunginn er Undir yfirborðinu jafnan grípandi og allt að því ógnvekjandi á sínum bestu augnablikum. Nýtur sterkr- ar, undirliggjandi tónlistar og leik- hljóða Graemes Revell (The Crow ofl. góðgæti); leikur, klipping og kvikmyndataka er lítið síðri. Leik- stjórnin er þétt og heldur áhorf- andanum við efnið þó uppskeran sé stundum í rýrari kantinum þeg- ar upp er staðið. Twohy á örugg- lega eftir að láta meira að sér kveða á leikstjórnarsviðinu – með meira fé á milli handanna.  Sæbjörn Valdimarsson Myndbönd Neðansjáv- arhrollur Jafnvægi (Equilibrium) Spenna/vísindaskáldskapur Bandaríkin 2002. Skífan. VHS (110 mín.) Bönnuð innan 16 ára. Leikstjóri: Kurt Wimmer. Aðalleikendur: Christian Bale, Emily Watson, Taye Diggs, Sean Bean, William Fichtner. Í NÁINNI framtíð, eftir þriðju heimsstyrjöldina, hefur tilfinningum verið útrýmt, þær eru undirrót alls ills segir Faðirinn. Dularfull persóna og messíasarímynd sem stjórnar heim- inum með hjálp „grammatón- klerka“, úrvals- sveita bardaga- manna. Þrautþjálfuðum í bardagaíþróttinni „gunkata“, og líta út fyrir að vera sambland af sam- úræjum og byssubófum villta vest- ursins með Matrix-ívafi. Einn þessara klerka er John Preston (Beals), sem fer að efast um boðskap ríkisins er hann verður ást- fanginn af Nary O’Brian (Watson), dauðadæmdum „tilfinningaafbrota- manni“. Upp úr því kemst hann á snoðir um öfluga andspyrnuhreyf- ingu sem á sér það markmið að finna klerk sem kálað getur Föðurnum. Það má vera að betri mynd sé möguleg, byggð á hugmyndinni, en hún heitir ekki Jafnvægi. Hún er á hinn bóginn löng, myrk, fávísleg blanda af fimmauraheimspeki, slags- málum og skotbardögum. Wimmer, sem jafnframt er handritshöfundur, reynir hvað hann getur til að gefa þessum óskapnaði alvöru og vigt sem tekst ekki á neinu sviði. Efnið er yfirborðskennt með fjölda uppblás- inna yfirlýsinga og tilvitnana í gömlu meistara andans. Þessi súpa hellist yfir áhorfandann úr e.k. fatlaleik Bales og Watsons sem eru í sjálfu sér góðir leikarar en fá ekkert að gert. Búningarnir og sviðsmyndirn- ar voru betri í Metropolis, sem gerð var á þriðja tug síðustu aldar. Það einasta eina sem upp úr stendur eru vel sviðsett slagsmál, en sú hefur tæpast verið ætlunin.  Sæbjörn Valdimarsson Í nafni föðurins Eiginkona flugmannsins (The Pilot’s Wife) Drama Bandaríkin, Kanada 2001. Myndform. VHS (90 mín.) Bönnuð innan 12 ára. Leikstjóri: Robert Markowitz. Aðalleik- endur: Christine Lahti, Campbell Scott, John Heard, Kirsty Mitchell. MÝMARGAR spennumyndir eru byggðar á mannshvörfum sem við nánari athugun reynast dularfull í meira lagi. Er per- sónan lífs eða liðin. Hvað er eiginlega í gangi? Færir pennar munu sjálf- sagt halda um ókomin ár áfram að leika sér að þessari marg- slungnu sögufléttu sem lúrir á endalausum möguleikum. Þær fersku hliðar blasa ekki við leirskáldunum sem sulla saman handriti Eiginkonu flugmannsins og tilþrifalaus leikstjórn bætir ekki úr skák. Lánið virðist leika við Kathryn (Lahti), flugstjórafrú sem hefur ekki haft undan neinu að kvarta er hún fær þær voveiflegu fréttir að flugvél mannsins hennar (John He- ard), hafi farist og allir sem í henni voru. Hún hefur verið ánægð og lukkuleg er skyndilega syrtir í ál- inn. Ekki vænkast hagur strympu er rannsókn leiðir í ljós að eig- inmaðurinn hafi hugsanlega átt vís- vitandi sök á slysinu. Framhaldið verður aldrei neitt annað eða meira en margtuggin lumma með áreitandi, síendurtekn- um afturhvörfum úr lífi þeirra hjóna á meðan allt lék í lyndi. Þrír heillum horfnir ágætis leikarar, Lahti, Heard og Campbell (sonur George C. Scott), hafa úr litlu að moða og endirinn er vægast sagt ófullnægjandi. Sæbjörn Valdimarsson Lífs eða liðinn?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.