Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ        BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. OFT HEF ég lesið pistla eftir Pét- ur Pétursson þul í blöðum og hafa skrif hans jafnan veitt mér ánægju og fróðleik. Í Mbl. í dag, 14. ágúst (eða í gær ef þetta bréf birtist á morgun þar sem „á morgun í gær er í dag“ eins og segir í Karde- mommubænum), birtist bréf frá Pétri um framburð á orðinu ástríða. Það er að sjálfsögðu rétt hjá Pétri að orðið ástríða er sam- sett úr „á“ og „stríða“, sem sagt eitthvað sem stríðir á og tengist ekki orðinu ást (þó að ást geti verið ástríðufull), heldur getur fólk verið haldið matarástríðu eða hvaða ástríðu sem er. Þessi samsetning á orðinu gerir það að verkum að sér- hljóðið „á“ verður langt í fram- burði, þó að tveir samhljóðar komi á eftir (öfugt við kvenmannsnafnið Ástríður). Ég veit ekki hvað veld- ur, en mér finnst málkennd fólks hafa minnkað þannig að það er eins og margir geri sér ekki grein fyrir því hvernig orð eru mynduð og af hverju þau eru dregin, jafnvel fólk sem er vel menntað. Ég minnist þess þegar ég var í dómnefnd í Stóru upplestrarkeppninni fyrir Suðurland fyrir nokkrum árum að orðið ástríða kom fyrir í textanum sem börnin lásu og enginn af með- nefndarmönnum mínum hafði tekið eftir því að orðið var rangt borið fram. Einnig hef ég heyrt rangan framburð á orðinu ástríða á leik- sviði (framhaldsskólaleiksýning) og virtist það hvorki trufla leikarann né leikstjórann. Þetta minnir mig reyndar á aðra villu sem veður uppi núna, en það er framburður á orðum eins og brúna, tána, gjána, ána (þ.e. þf. et. af brú, tá, gjá, á), sem fólk er farið að bera fram með stuttum sér- hljóða og jafnvel skrifa með tvö- földum samhljóða, sem á þó ekki að koma fyrr en í ef. ft. Eins er með þf. ft. af orðinu skór, fólk talar um að fara í „skónna“ í stað þess að fara í skóna. Ég tek enn og aftur undir með Pétri og öðrum unnendum ís- lenskrar tungu: Verum meðvituð um málnotkun okkar og framburð. Eins og Þórarinn Eldjárn segir í kvæðinu: Að gæta hennar gildir gildir hér og nú. Það gerir enginn nema ég og þú. ANNA JÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR, talmeinafræðingur. Þegar ástríður verða Ástríður! Frá Önnu Jórunni Stefánsdóttur: MEÐ FULLRI virðingu get ég ekki lengur orða bundist. Við í þessu unaðslega velferðarþjóð- félagi eigum í dag nokkra flokka af óhreinum börnum sem ekki má tala um eða sinna að öðru leyti. Ég ætla aðeins að tala um þau óhreinu börn sem ég tilheyri, „öryrkja“. Að mínu áliti er það þvílík skömm og svívirða að það skuli ekki vera hægt að lifa af þeim bótum sem mér eru skammtaðar. (1. ágúst 92.964 kr., eftir skatta kr. 73.222). Þetta er fyrir utan lyf og lækn- iskostnað sem er ærinn. Er ég eyðslusöm? Jú, ég reyki. Það er minn „Akkillesarhæll“ – en ég þarf að borða, borga rafmagn, o.s.frv. eins og aðrir. Síðast þegar ég fékk yfirlit frá greiðsluþjónustu banka míns sá ég mér til hryllings að ég er að verða búinn með yfirdrátt- arheimildina mína og hef enga möguleika á að laga það. Nú það má segja að ég sé heppin því um það bil einu sinni á ári veikist ég og það alvarlega að ég leggst inn á sjúkrahús í 2–3 mánuði í senn. Það sparar lyf, en aðrir reikningar hrannast upp. Ég kaupi ekki blöð og er ekki með Stöð 2. Ég hugsaði með mér að ég yrði að taka lán út á íbúðina mína til að geta lifað. En viti menn, þú þarft að hafa tekjur til að taka lán – en ég á íbúð! Ég þarf reyndar að láta breikka hurð- ina í íbúðinni því ég er í göngu- grind – síminn minn er meira að segja bilaður o.fl. sem ég þyrfti að hafa í lagi. Ég hef engan vasa til að kafa í – börnin mín hafa nóg með sig og eru að berjast við að gera sitt besta fyrir sig og börnin sín. Hvernig á að vera hægt að bjarga sér? Selja íbúðina og leigja einhversstaðar! Hvar fengi ég íbúð með engum tröppum og aukalega breiðum hurðum og án þröskulda. Hversu fljótt myndi verðið á íbúð- inni étast upp í leigugjöldum? Er það réttlætanlegt að vegna bágra bóta sem teknir eru meira að segja skattar af að það skuli ekki vera möguleiki á að lifa? Er ég ekki að fara fram á lúxus? En ég get ekki hugsað mér að búa við ótta við að missa mitt öryggi í hús- næði og vera álitin meira en núll sem er jú alminnsta einingin, að vera ekki gjaldgeng í lánastofn- unum vegna lágra tekna. Ég sem hélt að ég gæti sett eitthvað af lán- inu mínu inn á bankabók til þess að greiða af láninu. ÞÓRUNN KRISTÍN EMILSDÓTTIR, Hamraborg 32, 200 Kópavogi. Óhreinu börnin hennar Evu! Frá Þórunni Kristínu Emilsdóttur:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.