Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 18.08.2003, Blaðsíða 12
ERLENT 12 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST 2003 MORGUNBLAÐIÐ uppræta samtökin að mestu er leiðtogi þeirra var handtekinn á sínum tíma. En undanfarna mánuði hafa leifar samtakanna fært sig upp á skaftið og hefur reynst erfitt að tryggja öryggi fátækra smábænda. Á myndinni sjást vopnaðir bændur fylkja liði. STJÓRNVÖLD í Perú hafa nú ákveðið að afhenda mörg þúsund smábændum vopn til þess að þeir geti varið sig fyrir árásum af hálfu hryðjuverkamanna Skínandi stígs, maóistasamtaka sem árum saman börð- ust gegn stjórnarhernum. Talið var að tekist hefði að Reuters Bændur verjast Skínandi stíg FULLTRÚAR stjórnvalda og hópa uppreisnarmanna í Líber- íu náðu í gær samkomulagi þar sem kveðið er á um fullan og öruggan aðgang liðsmanna al- þjóðlegra hjálparsamtaka að landinu. Milligöngumenn frá ríkjum Vestur-Afríku reyna enn að fá deiluaðila til að semja um frið en hótuðu í gær að fresta viðræðum fram í septem- ber ef helstu samtök uppreisn- armanna féllu ekki frá kröfu sinni um að fá ráðherraembætti í nýrri ríkisstjórn. Uppreisnar- menn drógu í gær til baka kröfu um embætti varaforseta. Fundu flug- skeytahluta LÖGREGLAN í Moskvu í Rússlandi hefur fundið parta úr litlum flugskeytum, meðal ann- ars sprengjuodda, fyrir utan borgina. Lögreglan greindi frá fundinum í gærmorgun. Lög- reglan fann vopnin þegar hún leitaði að stolnum bílum fyrir utan borgarmörkin. Rússneskt flugskeyti af svipaðri gerð var notað þegar misheppnuð árás var gerð á ísraelska farþegavél við Mombasa í Kenýa í fyrra. Handtökur í Indónesíu TÍU hafa verið handteknir í Indónesíu, grunaðir um aðild að sprengjutilræði við Marr- iott-hótelið í Jakarta fyrr í mánuðinum. Þá fórust 12 manns. Ekki var skýrt frá því hvar fengist hefðu upplýsingar um hina grunuðu. Nýlega var Hambali, sem sagður er aðal- hugsuður hermdarverkasam- takanna Jemaah Islamiyah, handtekinn. Samtökunum er kennt um tilræðið við hótelið og annað tilræði á eynni Bali í fyrra er 202 létu lífið. Hörð átök í Afganistan MEIRA en tveir tugir manna féllu í gærmorgun í miklum bardaga afganskra stjórnar- hermanna við nokkur hundruð vopnaða menn sem taldir eru vera stuðningsmenn talíbana. Átökin urðu í bænum Barmal í suðausturhluta landsins er gerð var árás með vélbyssum og eldflaugabyssum á bílalest stjórnarliða. Leifar talíbana- herjanna og gamall stríðsherra í landinu, Gulbuddin Hekmaty- ar, hafa blásið til sóknar gegn stjórnvöldum í Kabúl og er- lenda friðargæsluliðinu. Gíslar lausir úr haldi GÍSLATÖKUMENN úr röð- um íslamskra öfgamanna í Als- ír létu í gær lausa 14 Evrópu- menn sem þeir rændu snemma á þessu ári. Fólkið var í gæslu í grannríkinu Malí og segja heimildarmenn að greitt hafi verið lausnargjald fyrir fólkið sem er frá Þýskalandi, Sviss og Hollandi. Er fjárhæðin talin hafa verið 73 milljónir dollara, nær sex milljarðar króna. Ætt- arhöfðingi úr röðum þjóðflokks túarega í eyðimörkinni hafði milligöngu í málinu. STUTT Samið um neyð- araðstoð NÚ er ljóst að 135 munu bjóða sig fram til embættis ríkisstjóra Kalif- orníu í kosningunum í október. 247 sóttust eftir að verða frambjóð- endur en 112 var hafnað vegna ófullnægjandi framboðsgagna. Leikarinn Arnold Schwarzenegger hefur ráðið milljarðamæringinn og demókratann Warren Buffett sem fjármálaráðgjafa í kosningabarátt- unni. Buffett er nokkurs konar goðsögn í fjárfestingaheiminum en hann þykir hafa yfirburða fjár- málavit. Buffett hefur sagt að lík- lega verði að hækka skatta í Kalif- orníu vegna efnahagsástandsins og brugðust sumir áhrifamiklir re- públikanar hart við þeim hug- myndunum, sögðu skatta þegar allt of háa. Líklega hafa aldrei jafn margir boðið sig fram í ríkisstjórakosn- ingum en yfirleitt eru frambjóð- endur færri en sex, að sögn Bruce Cain prófessors í stjórnmálafræði við Berkeley-háskóla. Umsjónar- menn kosninganna hafa nú miklar áhyggjur af kostnaðinum við þær því hinar 30 milljónir dala sem þær áttu að kosta í fyrstu eru nú komnar upp í 67 milljónir og gæti talan hækkað enn meira vegna hins mikla fjölda frambjóðenda. Á frambjóðendalistanum eru ýmsir vel kunnir kandídatar, aðrir minna þekktir og sumir sem þykja heldur skrítnir. Þannig eru þar vindlingasali sem selur vörur sínar með afslætti, sölumaður notaðra bíla, atvinnugolfari og súmóglímu- kappi. Af hinum þekktari eru demókratarnir Cruz Bustamante, vararíkisstjóri,Arianna Huffington fréttaskýrandi og repúblikanarnir Arnold Schwarzenegger og kaup- sýslumaðurinn Bill Simon sem tap- aði fyrir Gray Davis, núverandi ríkisstjóra, í kosningunum í nóv- ember. Kvikmyndaleikarinn Rob Lowe, sem leikur stórt hlutverk í Vesturálmunni. sjónvarpsþáttum um bandarískan forseta og starfs- liðs hans í Hvíta húsinu, gekk um helgina í lið með Schwarzenegger. Mun hann fá það hlutverk að afla stuðnings meðal annarra þekktra Kaliforníumanna. Nýjar kannanir sýna að Cruz Bustamante hefur nú ívið meira fylgi, 25%, en Schwarzenegger sem er með 22%. Margir spá því að Schwarzenegger hafi samt meiri möguleika þegar á líður. „Hann mun stefna sama öðrum hæfum viðskiptaforkólfum og hag- fræðingum og búa til hóp fólks sem mun takast á við að finna lausn á fjármálavanda Kaliforníu,“ sagði Sean Walsh talsmaður Schwarzeneggers. Kosningarnar sem fara fram 7. október eru haldnar vegna mik- illar óánægju með Gray Davis sem var endurkjörinn í nóvember á síð- asta ári en Kaliforníu-ríki glímir við mikinn fjárhagsvanda og orku- skort. Kosningarnar til embættis ríkisstjóra í Kaliforníu Vill að Schwarzen- egger hækki skatta Los Angeles, Sacramento. AP. Arnold Schwarzenegger Cruz Bustamante SPENCER Abraham, ráðherra orkumála í Bandaríkjunum, hét því í gær að gangskör yrði gerð að því að finna orsök raf- magnsbilunarinn- ar í liðinni viku. Bilunin, sem náði til 50 milljóna manna í Norður- Ameríku í liðinni viku, er talið hafa átt upptök sín í Cleveland í Ohio í Bandaríkjunum en Abraham vildi þó ekki staðfesta þær tilgátur í sjónvarpsviðtali í gær. Sagði hann að rannsaka yrði málið betur. Svo virðist sem að bilun hafi átt sér stað í rafrásum, sem olli hárri rafspennu sem hafði síðan áhrif í Toronto, Detroit, Ottawa og New York. Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Kanada hafa skipulagt starfshópa, sem er ætlað að rannsaka orsök bil- unarinnar, sem olli versta raf- magnsleysi í sögu Norður-Ameríku. Einkum verður skoðað hvers vegna bilun í Cleveland var ekki sinnt strax. Þá eru íbúar beðnir að fara spar- lega með rafmagn þrátt fyrir að raf- magn sé komið á víðast hvar. Enn- fremur er talið hugsanlegt að loka þurfi fyrir rafmagn á ný til þess að koma í veg fyrir að raforkukerfið hrynji á ný. Orsök bilunar í Ohio? Washington. AFP. Spencer Abraham UNGUR kínverskur viðskiptafræð- ingur, sem vill fá að gera út á vax- andi útbreiðslu markaðshyggju í heimalandi sínu, hefur ákveðið að lögsækja stjórnvöld í Shanghai sem meinuðu honum að skrá fyrirtæki undir nafni sem inniheldur orð sem áður mátti ekki nefna í hinu maó- íska kommúnistaríki, þ.e. „kapítal- ískt“. Lu Yuzhang, sem nýlega lauk námi í viðskiptafræðum, reyndi snemma á þessu ári að fá einkafyr- irtæki skráð undir enska heitinu „Shanghai Capitalist Competition Capability Consulting Co.Ltd“ – sem gæti útlagzt sem „Hið kapítal- íska samkeppnisgeturáðgjafarfélag Shanghai hf.“, en að hans sögn höfn- uðu embættismenn heitinu með þeim rökum að það væri „pólitískt viðkvæmt“ og skaðlegt þjóðarhags- munum. Lu hefur nú ákveðið að leita rétt- ar síns fyrir dómstólum til að fá fyr- irtækið skráð undir þessu heiti. „Kapítalistar og kapítalismi er til í Kína. Það er staðreynd,“ tjáði Lu AP-fréttastofunni. „Að nota heiti kapítalismans er fullkomlega löglegt og í samræmi við þjóðarhagsmuni.“ Talsmaður héraðsdómstóls Shanghai staðfesti að málið væri þar til meðferðar en ekki hefði enn verið úrskurðað í því. Í dagblaðinu Shanghai Star er haft eftir embættismanni á skrif- stofu viðskiptamála hjá borgar- stjórn Shanghai að kapítalismi væri „í andstöðu við grundvallarstjórn- málakerfi Kína,“ enda sé í stjórn- arskrá Alþýðulýðveldisins kveðið á um að Kína sé „sósíalískt ríki með lýðræðislegu alræði undir forystu verkamannastéttarinnar og grund- vallað á samstöðu verkamanna og bænda.“ Á undanförnum árum hefur hins vegar raunin verið sú, að hinir kommúnísku valdhafar Kína hafa leyft kapítalisma að blómstra upp að vissu marki í landinu, einkum í Shanghai, miðstöð alþjóðaviðskipta landsins. Hugtakið kapítalismi bannað í Kína Shanghai. AP.BANDARÍSKUR lögmaður fólks sem sætti kynferðislegu ofbeldi af hálfu kaþólskra presta, Daniel Shea, hefur afhent yfirvöldum afrit af fyr- irmælum til biskupa frá Páfagarði árið 1962 þar sem þess er krafist að mál af þessu tagi séu meðhöndluð með algerri leynd komist upp um af- brotin innan kirkjunnar, að sögn BBC. Skjalið, sem var leynilegt, er með innsigli Jóhannesar 23. sem þá gegndi embætti páfa. Klerkum sem ekki hlýði fyrirmælunum er hótað bannfæringu. Páfagarður hefur viðurkennt að skjalið sé ófalsað en neitar að um til- raun til yfirhylmingar hafi verið að ræða. Kröfðust þagnar um kynlífsbrot ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.