Morgunblaðið - 18.08.2003, Síða 1
2003 MÁNUDAGUR 18. ÁGÚST BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÁSGEIR ER KOMINN TIL FÆREYJAR TIL AÐ FAGNA SIGRI / B2
LOGI Gunnarsson körfuknattleiksmaður úr
Njarðvík samdi um helgina við þýska úrvals-
deildarliðið Giessen 46ers. „Ég samdi til
tveggja ára og er mjög ánægður með þetta. Ég
hafnaði tilboði frá Ulm þar sem ég spilaði í
fyrra og einnig frönsku liði. Tvö önnur félög í
þýsku úrvalsdeildinni höfðu rætt við mig en ég
taldi þetta besta kostinn því það er ekki alltaf
best að velja sterkusu liðin og sitja á bekknum
hjá þeim,“ sagði Logi í samtali við Morgun-
blaðið. Giessen rétt missti af úrslitakeppninni í
fyrra, endaði í níunda sæti, en komst hins vegar
í undanúrslit í bikarnum þar sem liðið féll út á
móti meisturum Berlínar.
Giessen virðist stefna hátt því búið er að ráða
nýjan þjálfara og semja við nokkra sterka leik-
menn þannig að Logi segist hlakka til komandi
vetrar.
Logi kominn til
liðs við Giessen
Þarna er mikið starf síðustu áraað skila sér og hér í Slóvakíu
skilur enginn hvernig þetta er hægt.
Ég held að Heimir hafi getað valið úr
135 leikmönnum og það segir sína
sögu að það þarf tölvert mikla vinnu
til að búa til gott lið úr því. Strák-
arnir hafa spilað marga landsleiki og
gríðarleg vinna er þarna að skila
sér,“ sagði Guðmundur.
Spurður um úrslitaleikinn sagði
hann: „Liðið sýndi ótrúlegan styrk,
það lenti undir í byrjun en síðan ekki
söguna meir og íslensku strákarnir
voru betri á öllum sviðum, spiluðu
fína vörn og markvarslan var góð og
hraðaupphlaupin fygldu í kjölfarið.
Sóknarleikurinn var fjölbreyttur og
góður og það má segja að liðsheildin
hafi sigrað. Auðvitað þarf allt liðið að
spila vel ætli það sér að verða Evr-
ópumeistari, en það eru auðvitað
kjölfestur í þessu liði eins og öllum
öðrum.
Undanúrslitaleikurinn gegn Sví-
um var held ég erfiðari. Íslenska lið-
ið lék ekki nægilega vel þá, en Sví-
arnir sprungu hreinlega á limminu í
lokin og okkar strákar, sem eru í
gríðarlega góðu formi, náðu að jafna
og tryggja framlengingu sem þeir
unnu auðveldlega, komust þrjú mörk
yfir í henni. Svíarnir voru síðan alveg
búnir á því í dag því þeir töpuðu með
tíu mörkum gegn Dönum í leik um
bronsið. Það var mjög mikið áfall
fyrir Svía að tapa fyrir okkur á laug-
ardaginn,“ sagði Guðmundur.
Hann sagðist horfa björtum aug-
um fram á veginn. „Þrír þessara
stráka hafa verið að æfa hjá okkur,
Arnór og Ásgeir Örn hafa leikið
landsleiki og Björgvin hefur æft með
okkur þannig að þeir eru aðeins
farnir að kíkja við,“ sagði landsliðs-
þjálfarinn.
Stórkostlegur árangur
„ÞETTA er auðvitað ekkert nema stórkostlegur árangur hjá jafnfá-
mennri þjóð, það verður að segjast alveg eins og er,“ sagði Guð-
mundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, eftir að
hann hafði séð Heimi Ríkharðsson stýra 18 ára landsliði Íslands í
frækilegum sigri á Þjóðverjum, 27:23, í gær í Slóvakíu, þar sem
strákarnir tryggðu sér Evrópumeistaratitilinn.
Ásgeir
marka-
hæstur
ÁSGEIR Örn Hallgrímsson,
leikmaður úr Haukum, varð
markahæsti leikmaður Evr-
ópukeppninnar í Slóvakíu,
skoraði 55 mörk í sjö leikjum.
Hann var valinn besta örv-
henta skyttan í mótinu og
besta rétthenta skyttan í
mótinu var Arnór Atlason og
voru þeir því valdir í úrvals-
lið mótsins ásamt tveimur
Þjóðverjum, einum Dana,
einum Svía og Slóvena.
Rúnar er í 18. sæti íundanúrslitunum í
fjölþrautinni, fékk
54,386 stig og keppir því
væntanlega í úrslitum
en þangað komast 32
bestu fimleikamenn
heims, þó ekki fleiri en
tveir frá hverri þjóð. Ís-
lenskur fimleikamaður
hefur aldrei komist í 32
manna úrslit í fjölþraut.
Árangur Rúnars á
einstökum áhöldum var
þannig að í gólfæfingum fékk hann
8,450 stig, 9,537 stig fyrir æfingar
sínar á bogahesti, 9,350 stig fyrir
hringina, 8,912 stig fyrir stökk, 9,425
fyrir tvíslánna og 8,712 stig fyrir
svifránna. Samtals 54,386 stig en
efstur er Japaninn Naoya Tsukahara
með 57,224 stig, en 189 fimleikamenn
kepptu að þessu sinni.
Með frammistöðu sinni hefur Rún-
ar væntanlega tryggt sér sæti á Ól-
ympíuleikunum í Aþenu á næsta ári,
en það kemur ekki end-
anlega í ljós fyrr en eft-
ir HM.
Dýri Kristjánsson úr
Gerplu hafnaði í 97.
sæti með 46,487 stig,
Jónas Valgeirsson í
126. sæti með 41,324
stig, Grétar Sigþórsson
í 158. sæti með 29,599
stig, Gunnar Sigurðs-
son varð í 160. sæti með
28,400 stig og Anton
Heiðar Þórólfsson varð
í 185. sæti með 12,687 stig, en þess
ber að geta að þrír síðasttöldu kepptu
ekki á öllum áhöldunum.
Ísland er með í liðakeppninni einn-
ig en fullskipuð sveit er sex þar sem
fimm keppa á hverru áhaldi og fjórir
bestu telja. Íslenska karlasveitin
varð í 30. sæti af 31 sveit með 185,983
stig.
Íslensku stúlkurnar hefja keppni í
nótt en úrslitin hjá Rúnari verða að-
faranótt fimmtudags og föstudags.
Rúnar fer
væntanlega
í úrslitin
í fjölþraut
RÚNAR Alexandersson, fimleikamaður úr Gerplu, byrjaði vel á
heimsmeistaramótinu í fimleikum sem hófst um helgina í Banda-
ríkjunum. Rúnar stóð sig mjög vel í fjölþrautinni og allt bendir til að
hann komist í úrslit í henni og hugsanlega á bogahesti líka, en
nokkrar þjóðir eiga enn eftir að ljúka keppni þannig að þetta liggur
ekki endanlega fyrir fyrr en í fyrramálið.
Ljósmynd/Viktor Zamborský
Ásgeir Örn Hallgrímsson, markahæsti maður mótsins og besta örvhenta skytta þess.