Morgunblaðið - 25.08.2003, Page 9
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 25. ÁGÚST 2003 B 9
„ÉG veit ekki hvað ég á að segja.
Við fengum nóg af færum en náð-
um ekki að nýta það,“ sagði Páll
Einarsson, fyrirliði Þróttar, von-
svikinn eftir tapið fyrir Grindvík-
ingum.
„Við bjuggum til fullt af færum,
spiluðum stundum of mikið inn í
vítateignum í stað þess að skjóta, en
færin fengum við.
Vítið sem við fengum var rétt,
það var hoppað upp á bakið á
Björgólfi. En varðandi aukaspyrn-
una sem þeir skoruðu upp úr í fyrri
hálfleik þá verð ég að segja að það
kom mér virkilega á óvart þegar
dómarinn dæmdi aukaspyrnu, ég
hélt hann hefði bara stoppað leik-
inn vegna hugsanlegra höf-
uðmeiðsla.
Við erum enn með 21 stig og ég
segi að það er alveg klárt að það
dugar ekki. Við þurftum einn sig-
urleik í viðbót og ætluðum að ná
honum hér í kvöld – en því miður
tókst það ekki þannig að við verð-
um að bíða aðeins með það.
Grindvíkingar voru grimmir í
kvöld og vörðust vel. Sigurinn hefði
alveg eins getað dottið okkar meg-
in en gerði það því miður ekki að
þessu sinni,“ sagði fyrirliðinn.
JON Barry hefur gengið til liðs við
Denver Nuggets í NBA-deildinni í
körfubolta. Barry er 34 ára gamall og
leikur í stöðu bakvarðar. Barry var í
herbúðum Detroit Pistons síðasta
vetur en hann er þekktur fyrir að
vera mjög góð þriggja stiga skytta.
Hann skoraði 6,9 stig að meðaltali í
leik á síðasta tímabili og gaf 2,6 stoð-
sendingar en hann lék 80 leiki fyrir
Detroit síðasta vetur.
DIRK Nowitzki, leikmaður Dallas
Mavericks í körfubolta, meiddist í leik
með Þýskalandi gegn Frökkum í
gær. Frakkar sigruðu 76:68 í æfinga-
leik en Nowitzki þurfi að fara meidd-
ur af velli eftir 13 mínútur. Forráða-
menn Þýskalands óttuðust fyrst að
meiðslin væru alvarleg en það kom
svo í ljós í gær að Nowitzki er ekki al-
varlega meiddur. Hann mun mæta í
æfingabúðir Dallas í næsta mánuði.
BANDARÍSKI tenniskappinn Pete
Sampras er endalega hættur að leika
tennis samkvæmt þjálfara hans Paul
Annacona. Sampras, sem er 32 ára
gamall, hefur sigrað 14 sinnum á stór-
mótum í tennis en hann hefur ekki
spilað síðan á Opna bandaríska
mótinu árið 2002.
PAUL Annacona segir að Pete geti
verið stoltur yfir þeim árangri sem
hann hefur náð í greininni. „Pete
langar ekki að byrja aftur. Hann hef-
ur hugsað vel um hvort þetta sé rétt
ákvörðun. Hann hefur sætt sig við
það að ferill hans sem atvinnutenn-
isspilara sé lokið. Hann hefur átt gríð-
arlega farsælan feril sem tennisspil-
ari og hann getur horft stoltur til
baka yfir þeim árangri sem hann hef-
ur náð,“ sagði Annacona.
FÓLK
Fyrri hálfleikur var afskaplegabragðdaufur framan af, eða allt
þar til stundarfjórðungur var eftir. Þá
var eins og einhver
stífla brysti og mikið
fjör færðist í leik-
menn sem léku á als
oddi allt fram að leik-
hléi. Fram að þessu höfðu verið róleg-
heit á Laugardalsvelli, bæði lið börð-
ust þó vel og ágætis spil sást hjá þeim
báðum en færin urðu ekki mörg, eitt
skot að marki frá hvoru liði. Á þessum
kafla voru Grindvíkingar heldur
sterkari og það var því í raun heldur
gegn gangi leiksins að Þróttarar urðu
fyrri til að skora, Søren Hermansen á
29. mínútu. Ray Jónsson fagnaði óg-
urlega fjórum mínútum síðar þegar
Grindvíkingar jöfnuðu enda má skrá
mark Þróttar á mistök hans. Raunar
kom það flestum á óvart þegar dóm-
arinn dæmdi Grindvíkingum auka-
spyrnu rétt við vítateigslínu, en upp
úr henni skoruðu þeir.
Rétt fyrir jöfnunarmarkið töldu
Grindvíkingar sig hafa jafnað metin
en línuvörðurinn var viss í sinni sök –
boltinn var kominn aftur fyrir enda-
mörk áður en sent var fyrir markið og
því markspyrna en ekki miðja.
Ekki liðu nema þrjár mínútur þar
til Grindvíkingar voru komnir yfir og
var sérlega vel að því marki staðið.
Áður en flautað var til leikhlés höfðu
svo markverðirnir varið vel eitt skot
hvor um sig, Helgi Már frá Björgólfi
og Fjalar frá McShane.
Eftir nokkuð jafnan fyrri hálfleik
var eins og eitt lið væri á vellinum
lengst af í þeim síðari. Þróttur réð
gangi mála. Heimamenn héldu að
þeir hefðu jafnað á 53. mínútu þegar
boltinn hrökk í stöngina eftir mjög
þunga sókn inn í vítateig Grindvík-
inga. Stíf sókn heimamanna hélt
áfram, Søren skaut svipuðu skoti og
þegar hann skoraði í fyrri hálfleik en
nú fór boltinn framhjá, Björgólfur
skallaði í stöngina en þá eru færin í
raun upptalin. Sóknirnar voru samt
langar og þungar en Þróttarar virtust
vilja gera snertimark líkt og í amer-
íska fótboltanum, sendu stundum
fimm til sex sinnum sín á milli inni í
vítateig gestanna án þess að skjóta.
Grindvíkingar náðu að verjast
þessu þó að oft munaði sáralitlu að
heimamenn fengju úrvalsfæri. En
þau komu ekki og þegar gestirnir
skoruðu þriðja markið er 20 mínútur
voru til leiksloka töldu flestir að nú
væri þetta búið.
Grindvíkingar drógu sig enn frekar
til baka við þetta, sóknir Þróttar urðu
þyngri og þegar átta mínútur lifðu
leiks minnkaði liðið muninn eftir víta-
spyrnu. Lengra komust Þróttarar þó
ekki og Grindvíkingar önduðu léttar –
þrjú mikilvæg stig í höfn.
Morgunblaðið/Jim Smart
Óðinn Árnason, leikmaður Grindvíkinga, á stökki upp völlinn í
leiknum við Þrótt í Laugardalnum í gærkvöldi.
Náðum ekki að
nýta færin
Stálheppnir
Grindvíkingar
ÞEIR fiska sem róa, segir máltækið og Grindvíkingar sungu Suð-
urnesjamenn hástöfum inni í búningsklefa eftir leikinn – kampakát-
ir enda voru þeir stálheppnir að fara suður með sjó með þrjú stig í
farteskinu úr viðureign sinni við Þrótt á Laugardalsvelli. Jafnræði
var með liðunum í fyrri hálfleik; í þeim síðari voru heimamenn miklu
betri en Grindavík vann 3:2.
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
„ÞAÐ er ekki annað hægt en að
vera ánægður með þrjú stig úr
þessum leik. Ef ég á að segja alveg
eins og mér fannst þá voru Þrótt-
arar miklu betri en við og það var
einhver lukka með okkur. Það er
svona kalt mat á þessum leik,“
sagði Ólafur Örn Bjarnason, fyr-
irliði Grindvíkinga, hálfhissa eftir
leikinn.
„Við spiluðum ágætlega í fyrri
hálfleik en í þeim síðari vorum við
slakir og það var eins og við hefð-
um bara gleymt að mæta inn á völl-
inn. Þróttar sóttu nær látalaust
fyrsta hálftímann en þeir fengu ef
til vill ekki mörg marktækifæri en
voru alltaf alveg við það að skapa
sér úrvals færi. Okkur tókst ein-
hvern veginn og sem betur fer að
varna því að þeir skoruðu eða kæm-
ust alveg í þessi færi. Okkur tókst
síðan að setja eitt mark og það var
afskalega ljúft og við getum ekki
annað en verið ánægðir með stigin.
Þrjú stig fyrir að spila illa er fínt,“
sagði Ólafur Örn.
Spurður um framhaldið á deild-
inni sagði hann stutt á toppinn og
líka botninn. „Það er ekki langt í
efstu lið þannig að það er hægt að
gera ýmislegt, enda ekki á vísan að
róa með úrslit í þessum leikjum. Við
þurfum að einbeita okkur að loka-
sprettinum því það er líka stutt nið-
ur í botninn,“ sagði Ólafur.
Spurður um aukaspyrnuna sem
Grindavík fékk og skoraði síðan úr
sagði fyrirliðinn: „Ég stökk upp til
að skalla og Þróttarinn líka, þetta
var bara skallaeinvígi – eða það
held ég. Ég fékk högg á höfuðið og
man ekki meira eftir þessu, en við
fengum aukaspyrnu.“
Þróttarar voru
miklu betri
Þróttur R. 2:3 Grindavík
Leikskipulag: 4-4-2 Landsbankadeildin,
15. umferð
Laugardalsvöllur
Sunnudaginn 24. ágúst
2003
Aðstæður:
Lygnt, aðeins úði um tíma og
blautur völlur
Áhorfendur: 936
Dómari:
Ólafur Ragnarsson,
Hamar, 3
Aðstoðardómarar:
Hans Scheving, Einar Sig-
urðsson
Skot á mark: 13(6) - 9(8)
Hornspyrnur: 4 - 2
Rangstöður: 2 - 5
Leikskipulag: 4-5-1
Fjalar Þorgeirsson
Guðfinnur Þ. Ómarsson
(Hjálmar Þórarinsson 78.)
Jens Sævarsson
Eysteinn P. Lárusson
Erlingur Þ. Guðmundsson
Halldór A. Hilmisson M
Páll Einarsson M
Gestur Pálsson M
Vignir Þór Sverrisson
(Ólafur Tryggvason 78.)
(Hallur Hallsson 87.)
Sören Hermansen M
Björgólfur Takefusa
Helgi Már Helgason M
Óðinn Árnason
(Eysteinn Húni Hauksson 74.)
Sinisa Kekic M
Ólafur Örn Bjarnason M
Gestur Gylfason
Mathias Jack
Paul McShane
Óli Stefán Flóventsson M
Guðmundur A. Bjarnason
Ray Anthony Jónsson
Alfreð Elías Jóhannsson
(Jerry Brown 56.)
1:0 (29.) Ray Jónsson átti slaka sendingu úr vörn Grindvíkinga beint á Pál Ein-
arsson sem lék að vítateignum og hefði getað skotið - var í góðu færi,
en renndi þess í stað til vinstri inn í teiginn þar sem Sören Hermansen
var í fínu færi og skoraði með góðu skoti efst í hægra hornið.
1:1 (33.) Grindvíkingur og Þróttari skölluðu saman inni í vítateig Þróttar og
Grindvíkingurinn lá eftir. Eftir að hlúð hafði verið að honum fengu gest-
irnir óvænt aukaspyrnu. Skotið fór í varnarvegginn og þaðan fór bolt-
inn til Guðmundur Andra Bjarnasonar sem skoraði með við-
stöðulausu skoti frá vítateig neðst í vinstra hornið.
1:2 (36.) Glæsilegt þríhyrningaspil Paul McShane og Alfreðs Elíasar Jóhanns-
sonar endaði með því að sá fyrrnefndi komst inn fyrir vörn Þróttar og
skoraði af miklu öryggi.
1:3 (75.) McShane gaf fyrir frá hægri, Mathias Jack stökk upp og skallaði og
varnarmaður Þróttar ætlaði að hreinsa frá, en boltinn fór í Óla Stefán
Flóventsson sem þakkaði fyrir sig og skoraði með föstu skoti úr
miðjum teig.
2:3 (82.) Brotið var á Björgólfi Takefusa inni í vítateig og dæmd vítaspyrna. Sö-
ren Hemansen tók spyrnuna en Helgi Már Helgason, markvörður
Grindvíkinga, varði. Hann hélt þó ekki knettinum og Sören náði frá-
kastinu og skoraði af öryggi.
Gul spjöld: Ray Anthony Jónsson, Grindavík (9.) fyrir brot. Gestur Pálsson, Þrótti R.
(71.) fyrir brot. Jens Sævarsson, Þrótti R. (89.) fyrir mótmæli. Jerry
Brown, Grindavík (90.) fyrir brot. Rauð spjöld: Engin