Morgunblaðið - 19.10.2003, Síða 12

Morgunblaðið - 19.10.2003, Síða 12
12 C SUNNUDAGUR 19. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ O KKUR Íslend- ingum er kunnugt um, að írskt blóð rennur að hluta um æðar okkar. Þegar við leitum upp- runa okkar þykir því meðal annars rétt að skyggnast um á Írlandi og kanna þá staði, sem voru heimkynni þessara for- feðra okkar. Þeir fyrirlesararnir Jón Böðvarsson og Magnús Jónsson, báðir sögufróðir menn, hafa að undanförnu vakið nýjan áhuga landsmanna á fornsögunum og einnig fyrir því að heimsækja þær slóð- ir, sem um getur í sögunum, eða þá staði, þaðan sem forfeður okkar áttu rætur sínar að rekja. Á síðastliðnu sumri héldu þeir með hóp áhugamanna um Írland, til könnunar á dvalarstöð- um víkinga þar í landi. Í einni slíkri ferð var fyrst flogið til Glasgow og síðan ekið suður um Skot- land vestanvert og komið við á safni í bænum Large, til að skoða þar ýmsa kostagripi frá tímum víkinga í Skot- landi, en þar eru varðveittir margir merkilegir hlutir frá því skeiði. Utan safnsins blasir strax við gestum líkan af langskipi, sem er táknrænt fyrir forna sögu svæðisins. Við ókum þaðan til hafnarinnar í Stranraer. Gengur þaðan ferja yfir Írlandshaf til Belfast. Siglt er nokkuð fyrir sunnan Iona- eyna, en einmitt þar hafði heilagur Kól- umkilli reist klaustur á sjöttu öld. Þarna í klaustrinu unnu munkar að skriftum. Kann þar að vera rituð hin fræga Kells-bók, sem er merkur írskur dýrgripur, er við gátum að líta seinna í ferðinni í safni í Dyflinni. Víkingar gerðu oft strandhögg á þessa helgu ey allt frá árinu 795, þegar fyrsta atlagan var gerð. Þarna á eynni var Hallfreður vandræðaskáld jarðsettur og ýmsir kirkjugripir gerðir úr farangri hans. Hallfreður hafði eitt sinn dvalist á Ótt- arsstöðum í Norðurárdal. Magnús berfætti Þegar yfir sundið kom var nágrenni Belfast skoðað, og þá leitað að leirun- um, þar sem Magnús berfætti Noregs- konungur barðist við Íra. Fór hann þar óvarlega, gekk of langt frá skipi sínu og meginhernum, og varð fyrir óvæntri árás Íra og féll árið 1103. Hann var vígdjarfur og hafði á orði, að konung skyldi hafa til frægðar, en ekki lang- lífis. Magnús berfætti var faðir Þóru, móður Jóns Loftssonar í Odda, sem við allflestir Íslendingar getum rakið ættir okkar til. Við brugðum okkur frá þessum víg- velli suður til Down Patrick-borgar, til þess að koma að leiði heilags Patreks, mesta dýrlings Íra, en þar við kirkju á Magnús berfætti einnig að vera graf- inn, þótt ekki fyndum við leiði þessa forföður okkar. Ókum við þaðan suður með strönd- inni og út á nes nokkurt til Carlingford, en þar er mikil kastalarúst uppi á höfða, sem fróðlegt er að skoða. Var síðan haldið þaðan til Armagh, sem er ein virtasta borg Írlands, en þar reisti heilagur Patrekur kirkju og er hún við hann kennd. Þar í garði liggur Brjánn grafinn, sá er felldur var í Brjánsbar- daga 1014. Ekið var austur un Írland, fram hjá borgunum Kells og Mullingar á leið til Clonmacnoise, en þar stóð frægt klaustur til forna. Á svipað klaustur réðst Ólafur hvíti á sjálfum degi heilags Patreks 869. Tók hann þar fjölda manns og hneppti í þrældóm. Er eins víst að Hjörleifur fóstbróðir Ingólfs landnámsmanns Arnarsonar hafi þar fengið þá írsku þræla, er hann flutti með sér til Íslands, og síðar drápu hann við Hjörleifshöfða, en flýðu þaðan til Vestmannaeyja, er nefndar voru svo eftir þeim Vestmönnum. Ólafur hvíti var sonur Ingjalds konungs í Noregi, en fór í víking til Írlands. Var hann eig- inmaður Auðar djúpúðgu, er var dóttir Ketils flatnefs, en Þorsteinn rauður var sonur þeirra. Geta flestir Íslendingar rakið ættir sínar til Þorsteins og þeirra hjóna. Við innganginn í klausturs- garðinn stendur merkilegt og tákn- rænt líkneski af munki í hugleiðslu. Mætti hugsa sér, að hann væri að þylja þessa vísu, er kveðin var á Írlandi og lýsir ótta við víkingana: Bitur vindur blæs í nótt, bærir úfið Ránartraf. Grimmir Norðmenn geta ei sótt greitt um sollið Írlandshaf. Enn var haldið í suðvestur, þvert yf- ir landið, og komið til Limerick, sem er hafnarborg á vesturströndinni. Að áliti hagyrðinga þykir borgin frægur stað- ur, en við hana er bragarhátturinn limra kenndur, enda var þar mörg limran kveðin af ferðalöngum í okkar hópi. Þaðan úr borg hafði Ari fróði fregnir frá Hrafni Hlymreksfara um Hvítramannaland, sem átti að vera í sex daga siglingu vestur af Írlandi. Var talið að Björn Breiðvíkingakappi hefði komist þangað vestur og verið þar mik- ils metinn af innfæddum. Frá Limerick var síðan haldið aftur til austurs og ekið þvert yfir landið í átt til Dyflinnar. Leiðin lá um bæinn Clonmel, þar sem gat að líta mikla dómkirkju í hallargarði, en enn austar er klaustursgarður við Moone, þar sem skoða mátti fimm metra háan kross, er reistur var á 9. öld. Er þar einn af dæmigerðum hákrossum Íra, glæsi- lega skreyttur helgimyndum. Skammt þar frá komum við að klaustursrúst- unum í Glendalough. Klaustur þetta var stofnað í lok 6. aldar af heilögum Kevin. Er þar náttúrufegurð mikil. Um svæðið rennur ferskur lækur á milli skógivaxinna hæða. Eru þar rústir steinhlaðinna kirkjubygginga og kap- ellu, en mikill sívalur varðturn setur einnig svip sinn á umhverfið. Um þenn- an stað fóru Víkingar með ránum um 800, drápu munka og rupluðu ýmsum verðmætum helgigripum. Var nú skammt til Dyflinnar. Vík- ingar stofnuðu þann stað árið 841. Einn ráðamanna þar var Ólafur hvíti er gerðist konungur í Dyflinni. Í Dyflinni er margt markvert að skoða, en við héldum okkur að söfnum staðarins. Í Trinity College er merki- legt bókasafn í frægu langhúsi, með 62 m löngum sal fullum af forvitnilegum bókum. Frægust þeirra er Kells-bókin, sögulegt handrit, sem hefur að geyma fjögur guðspjöll, öll fagurlega rituð og lýst með skrautmyndum. Bók þeirri var stolið 1006 og þá rúin dýrmætu gullskrauti, er prýddi spjöld hennar. Á þjóðminjasafni staðarins má rekja írska sögu með því að fylgja eftir sýn- isgripum, allt frá því veiðimenn fóru um landið 6.000 f. Kr. og síðar, er stein- aldarmenn hófu að erja jörðina. Þar á safni má sjá bronsaldarmuni 3.500 ára gamla. Keltar komu síðan til Írlands fyrir 2.500 árum, og skiptist landið þá upp í fimm konungdæmi. Var einn yf- irkóngur, er sameinaði síðan smákóng- ana. Árið 432 kom heilagur Patrekur til skjalanna og smám saman tóku Írar kristna trú. Varð Írland brátt mikil miðstöð menningar, og þar í klaustr- um, sem við höfðum skoðað, voru skráðar merkar bækur og safnað mikl- um auði gulls og silfurgripa. Brjánsbardagi Í lok 8. aldar fengu víkingar veður af öllum þessum fjársjóðum, er þarna voru varðveittir. Tóku þeir að streyma til landsins, og fóru ránshendi um þau fræðasetur, sem klaustrin voru. Í safn- inu mátti sjá ýmsa muni frá þessum víkingatímum. Voru þar gömul vopn, bogar, sverð og axir. Hafa eggvopnin bitið vel, því til vitnis var þar í skáp sýnd hauskúpa manns, klofin í sundur og með hreinu axarfari. Norrænir menn komu sér einmitt fyrir í Dyflinni og héruðunum þar í kring. Írar reyndu að lokum að losa sig við þennan aðkomulýð og sameinuðust herir þeirra í úrslitaorustu við Clontarf 23. apríl 1014 undir forustu Brians Boru, er við köllum Brján, og þá var hákonungur Íra. Var þar háður sá frægi Brjánsbardagi, sem vel er sagt frá í Njálu. Við gengum út að ströndinni, að Clontarf, þar sem bardaginn var háð- ur. Reyndu ferðalangar að setja sig í spor vígamanna, á þeim tíma sem vopnin glumdu. Fylgdarmenn lásu þar kafla úr Njálu eða vitnuðu í írskar heimildir, og ímyndunaraflið gæddi sögusviðið lífi. Kona Brjáns var Korn- löð, en þau voru þá skilin. Hafði hún áð- ur átt soninn Sigtrygg silkiskegg með Ólafi kvaran konungi. Var hún allra kvenna fegurst og „best orðin um allt það, er henni var ósjálfrátt, en … allt illa gefið, er henni var sjálfrátt“, segir í Njálu. Hún eggjaði Sigtrygg son sinn til að drepa Brján. Sigtryggur leitaði því bæði til Sigurðar digra Hlöðvisson- ar Orkneyjajarls og Bróður víkings, sem lá með skipaflota mikinn við eyna Mön, og hét þeim báðum móður sinni að launum ásamt konungsríkinu, ef þeir felldu Brján. Brjánn og hans menn unnu hins vegar þessa afgerandi orustu, en Brjánn féll samt fyrir sverði Bróður, þótt lið hans sigraði víkingana. Þar féllu fimmtán menn, er höfðu verið við Njálsbrennu. Þarna féll Sigurður jarl, en Þorsteinn Síðu-Hallsson fékk grið, er hann batt skóþveng sinn og sagðist ekki renna með hinum, þar sem hann næði hvort eð er ekki heim í kvöld, því hann ætti heima úti á Íslandi. Lengra úti með ströndinni eru flatar leirur. Þar strandaði skip Ólafs pá, er hann kom siglandi til Írlands á fund Mýrkjartans konungs, móðurafa síns. Melkorka móðir Ólafs hafði sent son- inn vestan úr Dölum til þessa fundar. Afinn Mýrkjartan, er var konungur 1095–1114, kom hins vegar frá setrinu Tara, til að hitta dóttursoninn. Aðsetur hákonunga Héldum við einn daginn upp að Tara-hæð, en þar var aðsetur há- konunga á Írlandi. Þar eru 4.000 ára gömul virki. Liggur staðurinn hátt og er útsýni gott og sér víða yfir nágrenn- ið. Tara er mikill örlaga- og áhrifastað- ur í sögu Íra. Þar stendur krýningar- steinn, mjór drangur, upp úr miðri hæð. Þarna gekk Ólafur pá efalaust um hæðina með afa sínum á þingi, er afinn bauð honum konungdóm á Írlandi eftir sinn dag, en Ólafur þáði ekki. Gengum við um hæðina í fótspor þessara for- feðra okkar. Við Tara eru einnig fornir haugar frá tímum járnaldar. Enn stærri haugar eru samt nokkru norðar, nefndir Bru na Boinne. Eru þeir frá steinöld, mikil mannvirki. Einn þeirra, Newgrange, er 9 m hár og 100 m að þvermáli. Lágreistur gangur ligg- ur inn í hauginn miðjan og er mynd- skreyttur steinn í gangmynninu. Brut- umst við inn í hauginn, þótt þröngt væri og dimmt. Sagt er að Leifur fóst- bróðir Ingólfs Arnarsonar hafi rofið einn slíkan haug á Írlandi, drepið haugbúann og rænt hann lýsandi sverði sínu og miklum fjármunum. Fékk Leifur þá viðurnefnið Hjör-Leif- ur. Einnig brutust þeir Ólafur hvíti og Ívar beinlausi Ragnarssonar loðbrókar inn í eitt grafhýsi á Írlandi, til að ræna það og rupla, sem var talið hið versta verk. Frá Dyflinni flaug lið okkar til eyj- arinnar Manar, en þangað sóttu vík- ingar mjög og herjuðu þaðan ýmist á Írland eða England. Þangað leituðu Njálssynir, þeir Grímur og Helgi, ásamt Kára Sölmundarsyni félaga sín- um, börðust þeir við Guðröð konung á Mön, sigruðu hann og fengu mikið ránsfé heim með sér. Þar við eyna, sennilega í sundinu við Manarkálf, lá víkingurinn Bróðir með 20 skip áður en hann tók þátt í Brjánsbardaga. Ein- mitt þar á veitingastaðnum Sound hélt lið okkar eftirminnilegan kvöldfagnað, en eftir það var eyjan könnuð vel og vandlega. Höfð var hátíðleg stund á Tynwald, sem er þingvöllur Manarbúa og eitt elsta alþingi í heimi. Litið var eftir bátskumli í Balladoole, þar sem grafinn var maður, hestur hans og ým- is fénaður. Merkileg uppganga var gerð að Peel-kastala, en þar eru kirkju- rústir og kapella á höfða nokkrum. Í þorpi þar við er mjög haganlega gert safn með sérstaklega eðlilegri lýsingu á bátslendingu. Einnig var komið að Krákunesi, Cregneash, til að skoða þar gamla kotbæi steinhlaðna með strá- þökum. Þar voru konur að þreskja korn og hreinsa hörþráð á heklu að gömlum hætti, en inni á hlóðarhellu sat rófulaus köttur, sem er einkenni þeirra dýra á Mön. Atlaga okkar að Mön var allhörð og þurftu sumir að bíta í skjald- arrendur, til þess að geta gengið nógu rösklega fram með liðinu. Vínheiði Frá Mön var siglt yfir sundið til Englands og komið að enn öðrum Þingvöllum, rétt sunnan við Liverpool í Wirral-héraði hjá ánni Deen. Hittum við þar norskættaðan fræðimann, Steve Harding að nafni, sem greindi okkur frá því, að þar í grennd væri að sínu mati Brunenburg og hin raun- verulega Vínheiði, þar sem Aðalsteinn konungur Englands hafði háð orustu við Ólaf rauða Skotakonung 937. Börð- ust þar bræðurnir Þórólfur og Egill Skallagrímssynir heldur rösklega, þannig að Aðalsteinn vann sigur á Skotum. Þar féll Þórólfur og gerðist Egill heldur ókátur eftir orrustuna, eins og lýst er í Egilssögu, þar til Að- alsteinn gaf honum gullhring, tvær kistur silfurs og lönd ef hann vildi. Lið okkar ók hins vegar í langferða- bíl til Lundúna og var þaðan haldið heim á leið með ýmsa fjársjóði minn- inga og minjagripa frá Írlandi, og var þar með lokið kynnisferð þessari um slóðir víkinga í vesturvegi. Greinarhöfundur og Sigrún kona hans við írskan hákross. Munkur í hugleiðslu. Á slóðum víkinga Innganga í Newgrange-hauginn. Fyrir munnanum stendur útskorinn steinn með 6.000 ára gömlum ristum. Saga Íra er víða blóði drifin og tóku norrænir víkingar oft þátt í þeim átökum. Sturla Friðriksson brá sér í söguferð á slóðir víkinga á Bretlandi og Írlandi. Höfundur er náttúrufræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.