Morgunblaðið - 20.10.2003, Qupperneq 1
2003 MÁNUDAGUR 20. OKTÓBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
ÍSLENSKAR BADMINTONKONUR ÆFA NÁNAST ALDREI SAMAN / B12
TVEIR af lykilmönnum í bikarmeistaraliði ÍA í
knattspyrnu, fyrirliðinn Gunnlaugur Jónsson og
Kári Steinn Reynisson, skrifuðu um helgina und-
ir nýja samninga við liðið sem gilda til tveggja
ára. Mörg lið reyndu að krækja í Gunnlaug og
velti hann nokkrum tilboðum fyrir sér en á end-
anum ákvað hann að halda kyrru fyrir á Skag-
anum. Skagamenn héldu lokahóf sitt um helgina
og þar var Þórður Þórðarson, markvörður, út-
nefndur leikmaður ársins og Helgi Pétur Magn-
ússon hlaut titilinn efnilegasti leikmaður liðsins.
Heimildir Morgunblaðsins herma að Ellert Jón
Björnsson sé í viðræðum um að snúa á ný til
Skagamanna en hann skipti yfir í lið Valsmanna
um mitt sumar. Samningaviðræður standa við
Hjálm Dór Hjálmsson og Baldur Aðalsteinsson.
Gunnlaugur
og Kári Steinn
áfram hjá ÍA
Ég veit að 40 íþróttamenn ogkonur hafa fengið boð um að
mæta í viðtal, flestir eru kepp-
endur í frjálsíþróttum, sjö leik-
menn úr NFL-deildinni (banda-
rískur ruðningur), og fjórir
atvinnumenn í hafnabolta,“ segir
Conte.
Bandaríska lyfjaeftirlitið,
USADA, greindi frá því á fimmtu-
dag að nýtt og háþróað steralyf,
THG, hefði fundist í sýnum
margra íþróttamanna sem tekin
voru m.a. á bandaríska meistara-
mótinu í frjálsíþróttum í júní.
Steralyfið kom ekki fram á lyfja-
prófum en eftir að bandarískur
frjálsíþrótta þjálfari „lak“ upplýs-
ingum um efnið til USADA voru
fundnar nýjar aðferðir við grein-
ingu á lyfjaprófum.
Christiane Ayotte starfsmaður
við lyfjaeftirlitsstofnun í Montreal
í Kanada segir að um sé að ræða
gríðarlegt „lyfjahneyksli“ en að-
eins sé um að ræða toppinn á ís-
jakanum.
Bonds er einn af þekktustu
íþróttamönnum Bandaríkjanna, en
Kelli White hefur staðið í stöngu á
þessu sviði allt frá því á Heims-
meistaramótinu í frjálsíþróttum
sem fram fór í París í Frakklandi í
ágúst sl.
White sigraði í 100 m og 200 m
hlaupi en niðurstöður lyfjaprófa
frá því móti benda til þess að
White hafi notað örvandi efnið
modafinil sem er á bannlista.
White segist vera saklaus
Á heimasíðu BALCO er greint
frá því að Evrópumeistarinn í 100
metra hlaupi Dwain Chambers frá
Bretlandi sé einn af viðskiptavin-
um fyrirtækisins ásamt Marion
Jones, tennisleikurunum Ivan
Lendl og Tim Courier. „Ég er köll-
uð til sem vitni en ég hef ekkert
með þetta nýja mál að gera. Þetta
snýst ekki um mig,“ segir White
við San Jose Mercury News.
Terry Madden formaður
USADA gagnrýnir harkalega fyr-
irtækið BALCO og talsmann þess,
Victor Conte, og segir Madden að
Conte standi ásamt BALCO á bak
við verslun með ólögleg lyf á al-
þjóðavettvangi.
„Það hefur aldrei áður komist
upp um eins marga íþróttamenn
sem hafa notað steralyf til þess að
bæta árangur sinn,“ segir Madden.
Conte heldur því fram að THG sé
hreint ekki steralyf, og bendir á að
lyfið hafi ekki verið á bannlista Al-
þjóðaólympíunefndarinnar.
Aðeins toppurinn
á ísjakanum
Eins og áður segir var það þjálf-
ari sem kom málinu af stað með
því að afhenda USADA steralyfið,
en þeir sem starfa við lyfjprófanir
segja að það sé aðeins hægt að ná
betri árangri á þessu sviði ef þeir
sem hafi rangt við sjái að sér og
láti í té mikilvægar upplýsingar.
„Þau lyfjapróf sem við höfðum
yfir að ráða komu ekki upp um
einn né neinn,“ segir Charles Yes-
alis og bætir því við. „Ef menn
trúa því að THG sé eina falda
steralyfið á markaðnum í dag þá
getum við einnig farið að trúa á til-
vist jólasveinsins.“
Bandaríska lyfjaeftirlitið hefur
hug á að fara í gegnum öll sýni frá
þeirra keppendum á HM í frjáls-
um sem fór fram í París. Breska
lyfjaeftirlitið hefur sett sig í sam-
band við kollega sína vestanhafs
og hefur í hyggju að gera slíkt hið
sama.
40 íþróttastjörnur kallaðar til yfirheyrslu
vegna „stærsta lyfjamáls sögunnar“
Stórstjörn-
ur grunaðar
um græsku
SPRETTHLAUPARINN Kelli White og hafnaboltastjarnan Barry
Bonds eru í hópi 40 íþróttamanna frá Bandaríkjunum sem þurfa að
fara í yfirheyrslu vegna meintrar notkunar á nýju steralyfi, THG,
sem ekki var hægt að finna með venjulegum lyfjaprófum. Victor
Conte, næringarfræðingur hjá BALCO-rannsóknarstofnunni, segir
við dagblaðið San Francisco Chronicle að einn af samstarfsaðilum
BALCO hafi verið kallaður til yfirheyrslu en fyrirtækið framleiðir
m.a. fæðubótarefni.
Elías Már Halldórsson var hetja HK-manna, er hann gulltryggði sigur þeirra á rússneska liðinu
Stepan Razin í Evrópukeppni bikarhafa, 20:18. HK er komið í aðra umferð. Sjá B2 og B3.
Morgunblaðið/Þorkell
FLEST bendir til þess að Þorlák-
ur Árnason, fyrrverandi þjálfari
Vals, taki við þjálfun Fylkisliðsins
í knattspyrnu en viðræður Árbæj-
arliðsins við Þorlák hafa staðið
yfir síðustu daga. Verði það nið-
urstaðan mun Jón Sveinsson,
fyrrum leikmaður Fram og FH,
starfa við hlið Þorláks sem að-
stoðarþjálfari en Jón hefur meðal
annars þjálfað 2. flokk hjá Fram.
Fylkir er eitt þriggja liða í úr-
valsdeildinni sem eftir á formlega
að ganga frá þjálfaramálum sín-
um en hin tvö eru Fram og
Grindavík. Framarar hyggjast
ráða erlendan þjálfara og eru að
fara yfir nokkur nöfn í því sam-
bandi. Jónas Þórhallsson, for-
maður knattspyrnudeildar
Grindavíkur, sagði við Morg-
unblaðið í gær að einhverjir
dagar myndu líða þar til Grind-
víkingar réðu þjálfara en hann
sagði að margir hefðu sýnt
starfinu áhuga og þá aðallega
Júgóslavar.
Þorlákur í Árbæinn?