Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Fjölskyldan er ofar öllu í lífi Jóns Jóseps Snæbjörns- sonar, sem allir kalla Jónsa í svörtum fötum. Hann sagði Árna Matthíassyni frá æviferli sínum og draumum. Víðförull viskubrunnur Sir David Attenborough er löngu heimsþekktur fyrir þætti sína um lífríki og náttúru. Hann heimsótti Ísland í vikunni í tilefni af útkomu nýrrar bókar. Að loknum landsfundi Landsfundur Samfylkingarinnar fór fram um síðustu helgi. Nýr varaformaður var kjörinn og áherslubreyt- ingar boðaðar í mikilvægum málaflokkum. Steingrímur Sigurgeirsson skyggndist á bak við tjöldin. Í svörtum fötum á sunnudaginn HLUTAFÉ FÆRT NIÐUR Boðaður hefur verið hluthafa- fundur í Norðurljósum, móðurfélagi Íslenska útvarpsfélagsins, þar sem lagt verður til, að hlutféð verði fært niður um 80% og stjórnin fái heimild til að hækka það aftur um sömu fjár- hæð. Eru þessar aðgerðir liður í endurfjármögnun félagsins, að sögn Sigurðar G. Guðjónssonar, forstjóra Norðurljósa. Vaxtahækkun boðuð Vaxtahækkanir eru boðaðar í nýrri þjóðhags- og verðbólguspá Seðlabanka Íslands að því er fram kemur hjá Birgi Ísleifi Gunnarssyni seðlabankastjóra. Þar segir einnig, að viðskiptahallinn verði meiri en spáð hafi verið og horfur eru á, að verðbólga fari lítillega upp fyrir verðbólgumarkmið á árinu 2005. Ekki þjóðlendur Héraðsdómur Suðurlands hefur staðfest þann úrskurð Óbyggða- nefndar, að land innan landamerkja nokkurra jarða í Árnessýslu teljist ekki til þjóðlendna eins og ríkið gerði kröfu um. Sama niðurstaða var í máli Bláskógabyggðar gegn ís- lenska ríkinu varðandi Framafrétt. Verður málunum áfrýjað. Öllum sagt upp á DV Öllum starfsmönnum DV var sagt upp í gær eftir að þrotabúið samdi við Hömlur, dótturfélag Landsbank- ans, um að þær leystu það til sín og reksturinn. Þorsteinn Einarsson skiptastjóri sagði, að veðkröfur í bú- ið væru líklega um 300 millj. kr. og kröfur Landsbankans 500 til 600 millj. kr. Gagnrýndi frelsisleysi George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, gagnrýndi í gær frels- isleysið í Mið-Austurlöndum og sagði, að þar ríkti stöðnun og of- beldi. Sagði hann, að í 60 ár hefðu vestræn ríki lokað augunum fyrir ástandinu en það hefði „ekki gert þau óhultari fyrir hryðjuverkum“. FÓLKIÐ er djassgeggjað, fylgist með tískunni, leitar að stjörnum og skemmtir sér| |7|11|2003 7. - 13. nóvember Viðburðir sem gera vikuna skemmtilegri Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Þjónusta 35 Viðskipti 14 Viðhorf 36 Úr verinu 14 Umræðan 38/40 Erlent 16/18 Minningar 41/45 Minn staður 20 Skák 49 Höfuðborgin 22 Dagbók 50/51 Akureyri 24/25 Staksteinar 50 Suðurnes 25 Kirkjustarf 51 Austurland 26 Íþróttir 52/55 Landið 27 Leikhús 56 Listir 28/30 Fólk 56/61 Daglegt líf 28/28 Bíó 58/61 Listir 31/37 Ljósvakamiðlar 62 Forystugrein 34 Veður 63 * * * Kynningar – Morgunblaðinu í dag fylgir Dagskrá vikunnar. LÖGREGLAN í Reykjavík fyrirskip- aði rýmingu leikskólans Maríuborgar og grunnskólans Ingunnarskóla við Maríubaug í Grafarholti í gærmorgun vegna hættuástands sem skapaðist þegar byggingakrani á vegum bygg- ingafyrirtækisins Markúsar fór út af spori sínu. Um 180 börn eru í Ingunn- arskóla og 100 í Maríuborg. Var hætta talin á að kraninn félli á húsin en starfsmönnum Markúsar tókst fljótlega að reisa kranann við. Komið hafa fram athugasemdir frá foreldr- um leikskólabarna vegna nálægðar kranans við leikskólann. Starfsfólki Ingunnarskóla var heldur ekki vel við að hafa kranann nálægt skólanum, en vinnueftirlitið hafði vottað að örygg- iskröfum væri fullnægt. „Vinnueftir- litið hefur gert úttekt á krananum og við treystum því áliti. Það kom eftir- litsfulltrúanum mjög á óvart þegar hann frétti hvað gerst hafði, því hann hefði verið sannfærður um að allt væri í lagi,“ sagði Guðlaug Sturludótt- ir, skólastjóri Ingunnarskóla. Samkomulag hafði náðst um að ekki yrði híft yfir húsin á meðan verið væri að nota kranann og segir Guð- laug að samstarfið við verktakann hafi gengið mjög vel hvað þetta snerti og tillit tekið til óska skólans. Sumum foreldrum brugðið Atvikið varð klukkan 9.30 og í kjöl- farið lét lögreglan rýma skólana tvo. Guðný Hjálmarsdóttir, leikskólastjóri Maríuborgar, lét hringja í alla for- eldra barnanna sem komu og sóttu börn sín. Sumum foreldrum var nokk- uð brugðið en langflestir jákvæðir, að sögn Guðnýjar. Um 100 börn eru á Maríuborg og gekk mjög vel að láta sækja þau. Að sögn Arnar Helga Haraldsson- ar, verkstjóra hjá Markúsi, fór kran- inn fram af spori sínu sem saman- stendur af sverum stálbitum. „Kraninn spólaði hérna fram af en það eru fagmenn að störfum við lag- færingar,“ sagði hann. Fulltrúi frá vinnuvélaeftirlitinu fór á vettvang til að meta aðstæður í gærmorgun en auk þess átti skólastjóri Ingunnar- skóla fund með vinnueftirlitinu og var ákveðið að vinnueftirlitið tæki kran- ana aftur út og framkvæmdi endur- mat á öryggisbúnaði hans áður en börnin mæta í skólann í dag, föstu- dag. Nær 300 börn látin yfirgefa skólabyggingar vegna ógnar frá óstöðugum byggingakrana Morgunblaðið/Kristinn Hæsti kraninn á miðri mynd fór út af sporinu og var bílkrani settur til að styðja við hann á meðan viðgerð fór fram. Tveir skólar rýmdir vegna hættuástands INGIBJÖRGU Sólrúnu Gísla- dóttur voru kynntar hugmyndir ÁHÁ-verktaka um uppbygg- ingu á lóð Austurbæjarbíós fyr- ir síðustu borgarstjórnarkosn- ingar, þegar hún var enn borgarstjóri. „Ég hitti þá á ein- um fundi og þeir sýndu mér þessar hugmyndir sínar. Ég sagði þeim að ég myndi gjalda mikinn varhug við þessu. Ég væri sannfærð um það að þetta yrði mjög umdeilt.“ Ólafur F. Magnússon, F-lista, spurði borgarfulltrúa R- og D-lista á fundi borgar- stjórnar á fimmtudagi hvort einhver fyrirheit hefðu verið gefin fyrir síðustu kosningar um niðurrif Austurbæjarbíós til að byggja upp á reitnum. Vitn- aði hann í viðtal við forstjóra ÁHÁ-verktaka í Morgun- blaðinu sem hægt væri að skilja þannig að verktakanum hefði verið gefið fyrirheit um niðurrif bíósins enda hefði hann annars aldrei keypt húsið. Ingibjörg sagðist hafa sagt við verktak- ana að þeir yrðu að eiga það við sjálfa sig hvort þeir færu út í þessa fjárfestingu eða ekki „og þeir hefðu ekkert fyrirheit frá mér að minnsta kosti um eitt eða neitt í þessum efnum“. Kynnt fyrir minnihluta Oddviti Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, sagði að þessar hugmyndir hefðu einnig verið kynntar fyrir sér. „Líklega öðrum hvorum megin við síðustu áramót voru mér kynntar þessar hugmyndir sem fulltrúi minnihlutans vænt- anlega,“ sagði hann. „Það er ekki í mínum verkahring að gefa nein vilyrði, yfirlýsingar eða loforð. Ég er ekki sjálfur í skipulagsnefnd Reykjavíkur- borgar og Sjálfstæðisflokkur- inn er eins og stendur í minni- hluta í borgarstjórn.“ Engin fyr- irheit um niðurrif Austur- bæjarbíós
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.