Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞRÁTT fyrir að Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra hafi lýst þeirri skoðun sinni og trú, að hægt væri að sætta ólík sjónarmið laxeld- ismanna og laxveiðimanna, skildu menn ekki fyllilega sáttir eftir fund á vegum Stangaveiðifélags Íslands á Grandhóteli á miðvikudagskvöld. En spurning kvöldsins snerist um það hvort sjókvíaaeldi væri ógn við villta laxinn. „Það er ekki hægt að vinna með eldismönnum þegar þeir tala svona,“ sagði Óðinn Sigþórsson, for- maður Landssambands veiðifélaga, í lok fundarins og beindi orðum sín- um að Vigfúsi Jóhannssyni, for- manni Landssambands fiskeld- isstöðva. Kornið sem fyllti mælinn hjá Óðni voru orð Vigfúsar þess efn- is að það væri „ekkert í dag sem bendir til þess að við getum fullyrt að það verði skaði af því þótt ein- hverjar þúsundir fiska sleppi,“ sagði Vigfús. Áður hafði komið fyrirpurn úr sal varðandi hrun villta laxastofnsins í Atlantshafi, en Vigfús svaraði því til að laxastofninn hefði hrunið löngu áður en laxeldi hófst. Og áfram hélt hann um slysa- sleppingar: „Það hefur verið mark- mið okkar í samvinnu við stjórnvöld að búa þannig um hnútana að það gerist ekki. Það hefur ekki, í tvö ár, sloppið fiskur úr eldinu sjálfu. Í leyf- um sem þessi fyrirtæki hafa fengið er ítrekað kveðið á um að það sé hægt að grípa inn í hvenær sem er, ef eitthvað fer úrskeiðis. Ég efast um að það sé nokkur annar atvinnu- rekstur sem hefur þurft að þola jafnstrangar reglur og fiskeldi. Landssamband fiskeldisstöðva hef- ur tekið fullan þátt í því og það næg- ir að benda á, þrátt fyrir að mér finnist vanta að menn átti sig á því hversu mikið hefur verið gert; það er búið að friða stærstan hluta af öllu strandsvæði á Íslandi fyrir fisk- eldi.“ Þá gall í einum talsmanni veiðimanna sem hafði saumað að Vigfúsi: „Finnst þér það skrýtið?“ og uppskar mikil viðbrögð sinna manna úr salnum. „Já, mér finnst það skrýtið,“ svaraði Vigfús að bragði. „Við viljum fjalla um málið og byggja á vísindalegum nið- urstöðum og þannig mætast þessir hópar.“ Össur Skarphéðinsson fund- arstjóri spurði hann þá beint hvort unnt væri að sætta þessa hópa. „Ég tel að það sé hægt eins og annars staðar í heiminum,“ sagði hann. Óðinn Sigþórsson var einnig spurður hvort og þá hvernig væri hægt að sætta hin ólíku sjónarmið. „Á meðan eldismenn tala eins og í kvöld, þá er einfaldlega ekki hægt að vinna með þeim,“ sagði hann við fögnuð veiðimanna. „Á meðan menn leggja það að jöfnu að það birtist fiskur úr eldiskví í laxveiðiá, og fisk- rækt sem hefur verið stunduð hér, þá er ekki hægt að vinna með þeim.“ Óðinn vék síðan að spurningu úr sal, grundvallarspurningu að hans mati, þ.e. hvort ekki þyrfti að fara varlega í laxeldi þegar málin væru ekki fullrannsökuð. „Ég tel að það sé ekki varlega farið, að veita leyfi fyrir stærstu fiskeldisstöð sem menn hafa þekkt í heiminum, 8 þúsund tonna stöð. Ég er alveg sammála dýralækni fisksjúkdóma um að þetta hafi verið í stærra lagi.“ Ein fyrirspurn á fundinum var um hvað ásættanlegt væri að margir eldislaxar slyppu úr kvíum. Sagði Óðinn að frá sínum bæjardyrum séð væri það alls ekki ásættanlegt að norskur lax úr eldiskvíum kæmi fram í íslenskum ám. „Enda var það þannig að þegar þessi stofn var flutt- ur inn upphaflega, þá var lagt upp með að hann yrði ekki settur í sjó- kvíaeldi. Það var gert um það sam- komulag og á þeim grundvelli sætt- ust menn á það að þessum stofni yrði viðhaldið hérlendis. Því miður hefur þetta samkomulag ekki haldið og ég held að það sé mikið tjón. Við höfum aldrei verið á móti því að þessi lax væri alinn upp á landi, þar sem hægt er að hafa hann í aðhaldi, en að setja hann í hinn opna sjó, er eitthvað sem við sættum okkur aldrei við.“ Fram kom í máli eins fyrirspyrj- anda úr sal að menn væru engu nær nú en fyrir 20 árum varðandi hina áleitnu spurningu um blöndun eld- islax og villta laxins. Guðni Guð- bergsson, fiskifræðingur og deild- arstjóri hjá Veiðimálastofnun, sagði m.a. að vísbendingar væru um að seiði frá eldisfiskinum geti minnkað framleiðslugöngu um allt að 30% við tilraunaaðstæður. Hann sagði einnig rannsóknir benda til þess að eldis- laxinn væri vanhæfari en villti lax- inn til að lifa í ám. Veiðimenn og fiskeldismenn deila um hvort villta laxinum stafi ógn af sjókvíaeldinu Engin sátt í augsýn Morgunblaðið/Jim Smart Hitamál kalla á húsfylli eins og reyndin var á fundinum um laxamálin á Grand hóteli á miðvikudag. MEIRIHLUTI landbúnaðarnefndar Alþingis leggur til að sett verði sér- stakt öryggisákvæði inn í lax- og sil- ungsfrumvarp landbúnaðarráð- herra, Guðna Ágústssonar. Þannig verði kveðið á um að landbúnaðar- ráðherra verið heimilað að takmarka eða banna inntflutning á laxfiskum til að koma í veg fyrir blöndun á stað- bundnum stofnum „og vistfræðilega og erfðafræðilega hættu, að fengnu vísindalegu áliti Veiðimálastofnun- ar“, eins og það er orðað. Ráðherra fagnaði þessu öryggisákvæði í um- ræðum á Alþingi í gær og samþykkti meirihluti þingsins síðdegis að bæta því inn í frumvarpið. Umrætt frumvarp ráðherra var lagt fram á Alþingi í haust en mark- mið þess er að staðfesta bráða- birgðalög frá því í sumar um að inn- flutningsbanni á eldisdýrum og lifandi laxfiski og öðrum fiski er lifir í fersku vatni verði aflétt. Skv. 28. gr. stjórnarskrárinnar þarf Alþingi að samþykkja bráðabirgðalög innan sex vikna frá því þingið kemur saman, að öðrum kosti falla lögin úr gildi. Önnur umræða um frumvarp landbúnaðarráðherra fór fram á Al- þingi í allan gærdag. Minnihluti landbúnaðarnefndar leggst gegn frumvarpinu. Hann skipa þingmenn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs. Auk þess styður Magnús Þór Hafsteins- son, þingmaður Frjálslynda flokks- ins, minnihlutann í þessu máli, en hann er áheyrnarfulltrúi í landbún- aðarnefnd. Fram kom í máli Lúðvíks Berg- vinssonar, þingmanns Samfylkingar- innar og framsögumanns minnihlut- ans, að setning bráðabirgðalaganna í sumar hafi ekki uppfyllt þær kröfur sem 28. grein stjórnarskrárinnar gerir um heimild til setningar slíkra laga. Vísaði hann til þess skilyrðis í umræddu ákvæði að brýna nauðsyn þurfi fyrir setningu bráðabirgðalaga. „Það er skoðun minnihlutans að skil- yrðið um brýna nauðsyn til setningar bráðabirgðalaga, skv. 28. gr. stjórn- arskrárinnar, hafi ekki verið uppfyllt þegar lögin voru sett,“ segir í nefnd- aráliti minnihlutans. Það er einnig mat minnihlutans að setning laganna hafi sett mikla hagsmuni náttúru Ís- lands í uppnám. Segir í álitinu að hættan sem lífríki Íslands stafi af innflutningi á lifandi laxfiskum og öðrum dýrum til eldis sé mjög mikil og að ekki séu nægilega öflug varn- arákvæði í lögunum. Þá telur minni- hlutinn að bráðabirgðalögin hafi fyrst og fremst verið sett vegna fjár- hagslegra hagsmuna tiltekinna fyr- irtækja í fiskeldi. „Bráðabirgðalögin voru sett til að greiða fyrir markaðssetningu ís- lenskra fyrirtækja á eldisfiski og hrognum til Skotlands, en innflutn- ingsbann hafði verið sett á íslensku eldisdýrin þar sem íslensk stjórnvöld höfðu ekki uppfyllt skilyrði um lög- leiðingu tilskipunarinnar.“ Er þarna vísað til tilskipunar nr. 91/67 EBE, en þeirri tilskipun hefur verið breytt með öðrum tilskipunum sem allar eru hluti af samningnum um Evr- ópska efnahagssvæðið. „Menn hafa aldrei sett bráðabirgðalög af jafnlitlu tilefni og raun ber vitni,“ sagði Lúð- vík undir lok umræðunnar í gær. Taldi Lúðvík að ráðherra hefði í sumar verið undir þrýstingi frá tveimur fyrirtækjum um að setja bráðabirgðalögin. Ráðherra svaraði ekki þessari ásökun. Setning laganna vafatilvik Drífa Hjartardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður landbúnaðarnefndar, mælti fyrir nefndaráliti meirihluta nefndarinnar í gær. Í álitinu er m.a. vísað í lög- fræðilega álitsgerð Ragnhildar Helgadóttur, lektors í Háskólanum í Reykjavík. Niðurstaða Ragnhildar er m.a. sú að með setningu bráða- birgðalaganna hafi „verið gengið nær 28. gr. stjórnarskrárinnar en dæmi eru um frá stjórnarskrár- breytingunni 1999…“ segir í álitinu. „Hún telur hins vegar ólíklegt að dómstólar kæmust að þeirri niður- stöðu að bráðabirgðalöggjafinn teld- ist hafa farið út fyrir valdsvið sitt þó að sú niðurstaða sé ekki vafalaus.“ Þá segir í álitinu að landbúnaðar- nefnd hafi fengið Eirík Tómasson prófessor á sinn fund „og taldi hann setningu bráðabirgðalaganna tak- markatilvik“, eins og það er orðað í álitinu, en með takmarkatilviki er átt við vafatilvik. Í máli Drífu kom fram að nefndin hafi farið ítarlega yfir frumvarpið. Hún sagði að á fundum nefndarinnar og í fjölmörgum umsögnum um frumvarpið hefðu hagsmunaaðilar varað mjög eindregið við því að heimila innflutning á eldisdýrum, sérstaklega laxfiski, þar sem sjúk- dómaeftirlit væri mjög erfitt við- fangs. Þá hefði m.a. verið bent á að eldisdýrin gætu sloppið og blandast staðbundnum stofnum. Þá vitnaði Drífa í álit umhverfisnefndar þings- ins um málið en í því kemur fram að nefndin taki undir það að nauðsyn- legt sé að fara varlega í að heimila innflutninginn. Umhverfisnefnd leggi einkum áherslu á að líffræði- legur fjölbreytileiki í íslenskum lax- fiskum verði verndaður. Í nefndaráliti meirihlutans segir því að nauðsynlegt sé, að teknu tilliti til umhverfis- og verndarsjónarmiða, að leggja til að við frumvarpið verði bætt öryggisákvæði, þrátt fyrir fjöl- mörg ákvæði í gildandi lögum um verndun staðbundinna stofna. „Í ákvæðinu felst að landbúnaðarráð- herra fær heimild til þess að tak- marka eða banna innflutning á lif- andi laxfiskum, óháð þroskastigi, ef ljóst má vera að aðrar verndar- og friðunaraðgerðir sem kveðið er á um í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum dugi ekki til að koma í veg fyrir erfðablöndun slíkra laxfiska við stað- bundna náttúrulega stofna, sem ógn- að gæti líffræðilegri fjölbreytni og stefnt hinum náttúrulegu stofnum í hættu,“ segir í áliti meirihluta land- búnaðarnefndar. Fjörugar umræður á Alþingi um laxafrumvarp landbúnaðarráðherra Heimild til að takmarka eða banna innflutning bætt við Guðni Ágústsson Drífa Hjartardóttir Lúðvík Bergvinsson ÖGMUNDUR Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs, hefur mælt fyrir frum- varpi til laga sem miðar að því að greidd verði or- lofslaun af greiðslum úr Fæðing- arorlofs- sjóði. Ögmundur sagði að í lögum um fæðingar- og for- eldraorlof, frá árinu 2000, væri ekki að finna ákvæði sem kveður á um að greiða skuli orlofslaun af greiðslum úr Fæðingarorlofssjóði. Hann vísaði einnig í úrskurð úr- skurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála, frá árinu 2003, um þá ákvörðun Trygg- ingastofnunar ríkisins að reikna ekki orlofslaun á greiðslur úr sjóðnum. „Þetta hefur það í för með sér,“ sagði Ögmundur, „að einstaklingar í fæðingarorlofi fá ekki notið almennrar or- lofstöku nema um annað hafi sérstaklega verið samið.“ Bætti hann því við að frum- varpinu væri ætlað að tryggja að allir þeir sem nýttu sér rétt til fæðing- arorlofs ættu óskertan rétt í sumarorlofi. Ögmundur sagði að í sum- um tilvikum hefði verið samið um rétt til greiðslna í orlofi en í öðrum tilvikum hefði það ekki verið gert. „Það [síð- arnefnda] á almennt við um hinn almenna vinnumarkað,“ sagði hann. „Ég held það hafi ekki verið markmið löggjaf- ans að hafa þessi réttindi af fólki, sem oft og tíðum er á mjög litlum launum.“ Sagði hann að löggjafinn þyrfti að grípa hér inn í til þess að jafna stöðu manna. Orlofslaun verði greidd úr Fæðingar- orlofssjóði Ögmundur Jónasson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.