Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 12

Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ deginum og fer að þessu sinni all- óvenjulega leið til að kynna for- vitnileg gögn sem safnið geymir. Svanhildur Bogadóttir, borgar- skjalavörður, segir að forráðamenn safnsins hafi ákveðið að setja upp sýningu í verslunarmiðstöðinni Kringlunni til að sem flestir eigi þess kost að berja skjölin augum. „Við færum okkur til fólksins, ef svo má segja, og setjum upp sýningu í Kringlunni þar sem við vörpum ljósi á íþróttir og þróun heilsuverndar í Reykjavík með frumskjölum og text- um. Fólk verður að grípa gæsina á meðan hún gefst, því sýningin stend- ur aðeins yfir þennan eina dag. Þarna kennir margra grasa og má nefna SKJALASÖFN landsins opna hús sín fyrir gestum og gangandi laug- ardaginn 8. nóvember, þegar Nor- ræni skjaladagurinn verður haldinn hátíðlegur. Í ár beina söfnin sjónum að efni sem menn tengja sjaldan við slíkar stofnanir, þ.e. líkamanum, heilsunni og íþróttum, og er yfirskrift dagsins Er heilsu haldið til haga? Hérlendis efnir Þjóðskjalasafn Ís- lands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðsskjalasöfn vítt og breitt um landið til veglegrar dagskrár í tilefni dagsins. Sum söfnin eiga samstarf við félög eða stofnanir sem tengjast þema ársins. Þannig starfar Borg- arskjalasafn náið með Íþrótta- bandalagi Reykjavíkur og Þjóð- skjalasafn og Landlæknisembættið taka höndum saman. Miðpunktur dagskrárinnar í Þjóð- skjalasafninu er sýning á skjölum frá Landlæknisembættinu. Þá mun Þór- unn Guðmundsdóttir sagnfræðingur flytja fyrirlestur um skýrslur héraðs- lækna á fyrri hluta 19. aldar, en þar kennir margra forvitnilegra grasa, og Guðrún Sigmundsdóttir læknir flytur erindi um mikinn vágest í íslensku samfélagi á 18. öld, bólusóttina 1707– 1708. Einnig býðst gestum að fá leið- sögn um hinar víðfeðmu skjala- geymslur Þjóðskjalasafns og kynna sér starfsemi þess á Laugavegi 162. Safnið fagnaði 120 ára afmæli í fyrra og er þar nú að finna yfir 30 kílómetra af skjölum, talið í hillumetrum. Hlutverk og gildi skjalasafna „Tilgangur þessa sameiginlega framtaks er ekki einungis að vekja at- hygli á starfsemi skjalasafnanna og því sem þau hýsa, heldur og að vekja athygli á tilteknum heimildum og rannsóknarmöguleikum,“ segir Ólaf- ur Ásgeirsson þjóðskjalavörður. „Einnig vilja forráðamenn safnanna styrkja vitund almennings um hlut- verk og gildi skjalasafna og benda á að skjalasöfn séu tryggir og kjörnir vörslustaðir heimilda um sam- félagið.“ Borgarskjalasafn Reykjavíkur er virkur þátttakandi í norræna skjala- skjöl um lýsis- og mjólkurgjafir í skól- um og hvernig bæjaryfirvöld komu á leikfimikennslu, skjöl um ráðstafanir til að stemma stigu við barnadauða og til að efla hreysti ungdómsins. Þá eru til sýnis skjöl sem fjalla um heilbrigð- ismál í víðu samhengi, hreinlæti í Reykjavík og fjölmargt annað. Fólk getur rekist á ákaflega margt spenn- andi í þessum skjölum.“ Hnýsilegir sýningargripir Að sögn Eiríks G. Guðmundssonar, sviðsstjóra upplýsinga- og útgáfu- sviðs Þjóðskjalasafnsins, hafa velflest opinber skjalasöfn hérlendis komið að undirbúningi Skjaladagsins hér- lendis að þessu sinni, þ.e. Þjóð- skjalasafn Íslands, Borgarskjalasafn Reykjavíkur og héraðsskjalasöfn um allt land. „Söfnin standa flest að mjög metnaðarfullri og skemmtilegri dag- skrá og hafa undirbúið sig af kost- gæfni til að finna hnýsilega sýning- argripi. Starfið einskorðast ekki við daginn, því að sum söfnin hafa efnt til samstarfs við félög eða stofnanir sem tengjast þema ársins og hefur það staðið í nokkurn tíma,“ segir Eiríkur. Eiríkur bendir sömuleiðis á að búið er að koma á fót sameiginlegri vef- síðu, www.skjaladagur.is, þar sem veittar eru almennar upplýsingar um hin opinberu skjalasöfn, dagskrá skjaladagsins og skjöl sem tengjast þema dagsins. Söfnin huga að heilsunni Loftur Guðmundsson íþróttakennari og fimleikaflokkur stúlkna, sem heyrði undir Knattspyrnufélagið Tý í Vest- mannaeyjum, spenna vöðva á mynd sem tekin var um miðjan fjórða áratuginn. NÝTT fyrirtæki Icelyft ehf., hefur fjárfest í stærsta hjólakrana lands- ins. Hann er af gerðinni Lima 4700 og er lyftigeta hans allt að 300 tonn. Kraninn er í mjög góðu ástandi og vel búinn, segir í frétta- tilkynningu, en kraninn er nú á Reyðarfirði. Fyrirtækið hefur gert sam- starfssamning við Samskip, Siglu, um hífingar úr stórflutningaskip- um á þeirra vegum. Kraninn verð- ur einnig til þjónustu fyrir önnur fyrirtæki sem þurfa á að halda öruggum og faglegum hífingum. Fyrirtækið er nú að hífa m.a. 70 tonna sementstanka fyrir norska fyrirtækið Tau Mek.Verksted A/S. Icelyft ehf., getur tekið að sér heildarlausnir á hvers konar híf- ingum því fyrirtækið hefur jafn- framt aðgang að minni krönum, segir í tilkynningunni. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Hjólakrani á höfninni í Reyðarfirði. Getur lyft 300 tonnum ARNAR Hall- dórsson efnafræð- ingur ver dokt- orsritgerð sína „Lipase Sel- ectivity in Lipid Modification“ (Sérvirkni lípasa í efnasmíðum á fituefnum) á morgun, laugardaginn 8. nóvember, kl. 14, í Hátíðasal, Aðalbyggingu. Í hnotskurn gekk rannsóknarverk- efnið út á efnasmíðar á margvíslegum fituefnum með háu hlutfalli ómega-3 fjölómettaðra fitusýra, þar sem bæði hefðbundnum aðferðum lífrænna efnasmíða og ensímum var beitt. Arn- ar hefur haldið fjölmörg erindi um niðurstöður rannsóknanna á alþjóð- legum ráðstefnum og við erlenda há- skóla og rannsóknarstofnanir. Leiðbeinandi við doktorsverkefnið er Guðmundur G. Haraldsson, pró- fessor í efnafræði við Háskóla Ís- lands. Andmælendur verða Patrick Adlercreutz, prófessor frá Lund Uni- versitet í Svíþjóð, og Frank D. Gunstone, prófessor emeritus við St. Andrews University í Skotlandi. Doktorsvörn í Háskóla Íslands MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi: „Vegna umræðna í þætti Ríkis- sjónvarpsins; Pressukvöld þann 5. nóvember sl. er óhjákvæmilegt að eftirfarandi komi fram: 1. Ég sóttist ekki eftir því að sitja borgarstjórnarfund þann 4. sept- ember sl. þar sem málefni Austur- bæjarbíós voru rædd, heldur var mér falið það á meirihlutafundi daginn áður í stað Bjarkar Vil- helmsdóttur, sem taldi sig vanhæfa vegna tengsla við rekstraraðila hússins. 2. Samkvæmt samkomulagi við oddvita vinstri grænna í borgar- stjórn, Árna Þór Sigurðsson, var ákveðið að ég talaði fyrir málinu á borgarstjórnarfundinum daginn eftir og sendi ég honum eintak af ræðunni um morguninn til umsagn- ar. Hann hafði engar athugasemdir við ræðuna. 3. Þegar ég mætti á fundinn mæltist formaður skipulags- og byggingarnefndar Steinunn Valdís Óskarsdóttir til þess að ég tæki ekki til máls og gaf þær skýringar að hún vildi ekki að ólík sjónarmið borgarfulltrúa R-listans kæmu fram í þessu máli á fundinum. 4. Nokkru síðar á fundinum átti ég samtal við formann borgarráðs Alfreð Þorsteinsson sem kvaðst myndu bregðast harkalega við ef ég tæki til máls og sagði í því sam- bandi: „til hvers? það er ekki spurn- ing hvort, heldur hvenær Austur- bæjarbíó verður rifið, það er búið að ákveða þetta“. Þetta eru hinar sönnu staðreynd- ir málsins og hef ég ekki meira um málið að segja.“ Steinunn Birna Ragnarsdóttir. Árétting

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.