Morgunblaðið - 07.11.2003, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 07.11.2003, Qupperneq 16
ERLENT 16 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ #20 ÁGÆTIS BYRJUN ME‹ SIGURRÓS ICELAND REVIEW ÁSKRIFTARSÍMI 512-7517 askrift@icelandreview.com HVERS VEGNA ÍSLAND? 40 ÁSTÆ‹UR TÉKKAR eru slegnir óhug yfir fyr- irbæri sem sérfræðingum á sviði sál- fræði gengur illa að finna skýringu á: það sem af er þessu ári hafa fimm ungmenni fyrirfarið sér með því að kveikja í sér á almannafæri. Fjöl- miðlar hafa auk þess skýrt frá 11 íkveikjutilraunum sem ekki ollu dauða þess sem greip til þessa ör- væntingarráðs. Hugsanlegt er að atburðir fyrir nokkrum áratugum geti átt þátt í þessu fári. Margir landsmenn and- mæltu með ýmsum hætti innrás Sov- étmanna í Tékkóslóvakíu, sam- bandsríki Tékka og Slóvaka, árið 1968 en mesta athygli vakti er ungur námsmaður, Jan Palach, brenndi sig til bana á Vaclavtorginu í höfuðborg- inni Prag árið 1969. Annar náms- maður, Jan Zajic, fetaði í fótspor hans mánuði síðar. Markmið beggja var augljóst, þeir vildu sýna reiði sína í garð innrásaraflanna og vekja al- menning til vitundar um ástandið í landinu. En þeir sem nú kveikja í sér virðast fremur eiga við persónuleg vandamál að stríða. Oft eru þeir ungir og atvinnulausir en sumir hafa lent í ástarsorg. „Þetta er alls ekki dæmigerð hegð- un í okkar landi. Þetta minnir meira á hefðir í Indlandi,“ segir dr. Jaroslava Moserova, tékkneskur öldungadeild- arþingmaður og sérfræðingur í með- ferð brunasára. Hún var meðal læknanna sem reyndu á sínum tíma að bjarga lífi Palachs. Moserova segir alla hafa dáð Palach og Zajic og allir skilið hvað fyrir þeim vakti. Sjálfsvíg af þessu tagi voru sjald- gæf næstu áratugina en skyndilega varð breyting á sl. vor. Táningur að nafni Zdenek Adamec hellti í mars yf- ir sig bensíni og tendraði eldspýtu á Vaclavtorgi, rétt hjá staðnum þar sem Palach fyrirfór sér. Vegfarendur í grennd við hann reyndu að bjarga Adamec en hann lést um 40 mínútum síðar í sjúkrabíl. Hann skildi eftir sig bréf þar sem hann sagði að lítið hefði breyst síðan veldi kommúnista hrundi í flauelsbyltingunni svonefndu árið 1989. Lýðræðið sem þá hefði komist á væri ekki annað en „stjórn embættismanna, peninganna og kúg- unar almennings“. Adamec sagðist ekki geta lifað lengur í heimi ofbeldis, mengunar og sinnuleysis. Vaclav Klaus forseti sendi nýlega frá sér opið bréf til þjóðarinnar þar sem hann hvatti landsmenn til að reyna að koma í veg fyrir fleiri harm- leiki af þessu tagi. Sálfræðingurinn Karel Humhal, sem hefur rannsakað þessi mál, segir rangt að líkja þeim við það sem gerðist í tíð kommúnista. „Á sinn hátt var aðgerð Palachs við- eigandi á þeim tímum … Engin hinna málanna eru sambærileg. Hinir eru ekki að tjá nokkurn skapaðan hlut.“ Líkur á eftiröpun Lögreglumenn segja að hugs- anlega sé um að ræða að ungt fólk ákveði að líkja eftir þeim sem þegar hafa gripið til þessa ráðs, um eftir- öpun sé að ræða. Fimm dögum eftir sjálfsvíg Adamec slasaðist 21 árs gamall maður, sem átti við geðrænan sjúkdóm að stríða, hann hafði reynt að kveikja í sér. Faðir mannsins sagði að sonurinn hefði lesið frásögn af dauða Adamec í dagblaði og taldi hann að þá hefði hann ef til vill fengið hugmyndina. Sérfræðingarnir Humhal og Mos- erova segjast ekki útiloka að dauði Palachs geti nú, kynslóð síðar, fengið fólk til að gera slíkt hið sama. „Þetta vakti geysimikla athygli,“ segir Moserova. „Fólk sem eygir enga lausn á vanda sínum … grípur til þessa ráðs vegna þess að það er svo dramatískt og vekur svo mikla at- hygli.“ Óhugur vegna sjálfsvíga í Tékklandi Ungt fólk í vanda kveikir í sér á fjölförnum stöðum og talið að dauði Palachs 1969 geti verið fyrirmynd AP Ungur Tékki í borginni Plzen syrgir 21 árs gamlan stúdent, Roman Masl, sem fyrirfór sér í apríl síðastliðnum með því að kveikja í sjálfum sér. Prag. AP. Sagði Pútín að rússneskir auðjöfrar sem hefðu efnast á einkavæðingu ríkisfyrirtækja verðu nú „hundruðum milljóna dollara“ til að tryggja stöðu sína, þ.á m. með því að kaupa þjónustu hæfustu lögfræðinga og hvetja fjölmiðla til að beina spjótum að yfirvöldum vegna Yukos-málsins. Á fréttamannafundinum hundskammaði Pútín blaða- mann franska dagblaðsins Le Monde fyrir að spyrja um mannréttindamál í tengslum við handtöku forstjóra Yukos. Sakaði Pútín blaðamanninn um að hafa þegið greiðslu fyrir að spyrja um málið. SILVIO Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagðist í gær ætla að rukka Vladimír Pútín Rússlandsforseta um eina evru fyrir „óumbeðna lögfræðiaðstoð“ á frétta- mannafundi í Róm. Fyrr um daginn hafði Pútín fundað með forystusveit Evrópusambandsins, og var m.a. sam- þykkt að Rússar gætu gengið í alþjóðlegu viðskipta- stofnunina, WTO, í lok næsta árs. Þá kom fram í máli Pútíns á fréttamannafundinum að hann myndi ekki láta undan „kúgunartilraunum“ vegna handtöku forstjóra rússneska olíufélagsins Yuk- os og hét því að koma skikk á viðskiptalífið í Rússlandi. Veitti Pútín „lögfræðiaðstoð“ AP AUKNAR líkur eru á því að rúss- nesk yfirvöld láti næst til skarar skríða gegn Roman Abramovítsj, eiganda enska knattspyrnu- félagsins Chelsea, eftir að hafa hand- tekið og ákært rússneska auð- kýfinginn Míkhaíl Khod- orkovskí, að sögn breska dagblaðsins The Daily Telegraph í gær. Blaðið segir að rússneskir sak- sóknarar hafi fengið formlega beiðni um að rannsaka kaup Abramovítsj á olíufélaginu Sibneft. Beiðnin hafi komið frá þingmann- inum Vladímír Júdín sem er í nán- um tengslum við ráðamennina í Kreml. Það var Júdín sem óskaði eftir því að mál Khodorkovskís yrði rannsakað og sú beiðni varð til þess að auðjöfurinn var ákærð- ur fyrir stórfelld skatt- og fjársvik. Margir telja að Júdín hafi lagt rannsóknarbeiðnirnar fram að undirlagi klíku embættismanna í Kreml, svokallaðra sílóvíka, eða „valdamanna“. Flestir þeirra störfuðu áður fyrir leyniþjón- ustuna KGB í Sankti Pétursborg eins og Vladímír Pútín Rússlands- forseti. Abramovítsj keypti 80% hlut í Sibneft á andvirði 10,2 milljarða króna þegar félagið var einkavætt fyrir átta árum. Markaðsvirði Sibneft er nú sextugfalt söluverðið við einkavæðinguna. Samkvæmt rússneskum lögum þurfa saksóknararnir nú að ákveða innan þriggja mánaða hvort ástæða sé til að rannsaka kaupin. Verði Abramovítsj ákærður þykir líklegt að hann sæki um hæli sem pólitískur flóttamaður í Bretlandi eins og annar rússneskur auðmað- ur, Borís Berezovskí, sem yfirvöld í Rússlandi hafa ákært fyrir fjár- svik. Berezovskí fékk hæli í Bret- landi fyrr á árinu og breskur dóm- ari hafnaði beiðni rússneskra yfirvalda um að hann yrði fram- seldur. Vilja rannsókn á máli Abramovítsj Roman Abramovítsj MICHAEL Howard er nýr leiðtogi breska Íhaldsflokksins þar sem enginn bauð sig fram gegn honum. Frestur til framboðs rann út á miðvikudagskvöld og skýrði sir Michael Spicer, formaður þing- mannanefndar sem skipuleggur leiðtogakjör, frá því að Howard væri því sjálfkjörinn. Einn þing- manna hrópaði „Húrra“, aðrir létu í ljós ánægju sína með því að berja í borðið, að gömlum sið. „Við erum hér til að sigra vegna þess að ef við sigrum ekki getum við ekki hrint í framkvæmd þeim stefnumálum sem við trúum að séu hagstæð þjóðinni,“ sagði Howard í gær. Hann sagði að Verkamanna- flokkur Tony Blairs forsætisráð- herra ætti nú í vök að verjast og hefði glatað trausti kjósenda en sigur í næstu kosningum væri þó alls ekki í höfn. „Þetta verður erf- itt og á brattann að sækja,“ sagði hann og sagði að menn yrðu að sýna þolgæði, leggja sig alla fram og standa saman. Tortrygginn á ESB-samstarf Howard er 62 ára gamall, hann er sonur gyðings sem flýði til Bret- lands frá Rúmeníu og hefur How- ard minnt á að hann sé því afkom- andi innflytjenda. Hann gegndi á sínum tíma valdamiklum ráðherra- embættum í stjórnartíð Johns Maj- ors sem hrósaði honum ákaft í gær og sagði hann réttan mann á rétt- um stað. En talsmenn Verka- mannaflokksins rifjuðu upp ýmsar umdeildar ákvarðanir Howards sem ekki hefur notið vinsælda hjá almenningi. Charles Kennedy, leið- togi Frjálslyndra demókrata, sagð- ist ekki telja að kjör Howards myndi „skipta sköpum fyrir Íhaldsflokkinn eða bresk stjórnmál“. Howard hef- ur lengi verið talinn tilheyra hægriarmi flokksins. Hann er afar tortrygginn gagnvart Evrópusambandinu, ESB, og evrunni, málefni sem hafa í mörg ár valdið áköfum, innbyrðis deilum í Íhaldsflokknum. Hefur Howard barist fyrir því að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu í Bretlandi um væntanlega stjórn- arskrá ESB. En er hann bauð sig fram á dögunum lagði hann hins vegar áherslu á að hann vildi sætta sjónarmiðin, sagðist ætla að stjórna frá miðju. Miklar vangaveltur eru um að hann muni ef til vill skipa miðju- menn og ESB-sinna á borð við Kenneth Clarke og Michael Port- illo í áhrifamikil embætti í skugga- ráðuneyti sínu. Hugsanlegt er að nýi leiðtoginn tilnefni menn í skuggaráðuneytið í dag, föstudag en líklegra að hann bíði fram yfir helgina. Að sögn fréttavefjar BBC hyggst Howard sjá til þess að al- mennir flokksmenn geti með ein- hverjum hætti staðfest kjörið þótt ekki komi til atkvæðagreiðslu með- al þeirra en ekki er ljóst hvernig það verður gert. Þótt margir íhaldsmenn hafi andað léttar yfir því að ekki skyldi koma til harkalegra átaka um emb- ættið gefur ný skoðanakönnun dagblaðsins Independent, sem gerð var í vikunni, til kynna að flokkurinn sé jafnvel enn ólíklegri til að sigra undir forystu Howards en fráfarandi leiðtoga, Iains Dunc- ans Smiths. Verkamannaflokkur- inn fær þar 38% stuðning en Íhaldsflokkurinn 32%. Munurinn á flokkunum tveim hefur vaxið um 3% eftir að Duncan Smith var felldur. Howard boðar harðan slag Var valinn leiðtogi breska Íhalds- flokksins í gær án mótframboðs Michael Howard London. AFP. Fréttasíminn 904 1100
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.