Morgunblaðið - 07.11.2003, Page 18
ERLENT
18 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
S. 588 4477
Vorum að fá í sölu góða 3ja herb. íbúð í nýlegu húsi á frábærum stað
á Gröndunum. Þvottahús á hæð. 25 fm suðursvalir.
Nánari upplýsingar veitir Bárður Tryggvason,
sölustjóri, í gsm 896 5221 eða á skrifstofu Valhallar,
sími 588 4477.
Vesturbær - laus
SKEMMTIFERÐASKIPIÐ
Aurora kom til heimahafnar í
Southampton í Bretlandi í gær
en það hefur verið mikið í frétt-
um vegna smitandi meltingar-
færasjúkdóms sem herjað hef-
ur um borð. Sautján daga
skemmtiferð um Miðjarðarhaf-
ið breyttist í martröð uppkasta
og niðurgangs er 500 af alls
1.800 farþegum fengu sýkina,
tveir þeirra létust úr hjarta-
áfalli í tengslum við hana. Einn
farþeganna var enn veikur í
gær en margir þeirra íhuga nú
málssókn gegn útgerð skipsins.
Með í Galileo-
áætlun
KÍNVERJAR og Indverjar
hafa skrifað undir samninga við
Evrópusambandið (ESB) um
að taka þátt í fjármögnun Gali-
leo-gervihnattastaðsetningar-
kerfisins, sem Evrópumenn
eru að vinna að. Kínverjar hafa
heitið sem svarar um 200 millj-
ónum evra (hátt í 18 milljarða
kr.) til verkefnisins og Indverj-
ar 300 milljónum evra (hátt í 27
milljarða króna). Stefnt er að
því að kerfið, með alls 30 gervi-
hnetti á sporbaug um jörðu,
verði komið í gagnið árið 2008
og veiti GPS-kerfinu banda-
ríska samkeppni – og standi sig
reyndar betur en það enda mun
nákvæmara.
Skutu Pól-
verja í Írak
ANDSTÆÐINGAR hernáms-
liðsins í Írak skutu pólskan liðs-
foringja til bana í gær skammt
suður af Bagdad. Hann er
fyrsti liðsmaðurinn í fjölþjóð-
legri herdeild, sem sett var á
laggirnar til að létta álagið á
bandaríska hernámsliðinu, sem
fellur fyrir óvinaskoti í Írak.
Pólverjinn var skotinn í háls-
inn þar sem hann var á leið frá
einni herstöð til annarrar. Áður
en ríkisstjórnarfundur hófst í
Varsjá í gær boðaði Aleksander
Kwasniewski, forseti Póllands,
til mínútuþagnar í heiðursskyni
við hinn látna eftir að fregnir
bárust um dauðsfallið. Sendi-
herra Breta í Írak varaði við
erfiðum vetri en árásir á her-
námsliðið hafa færst í vöxt
sums staðar í landinu.
Njósnaði
fyrir stjórn
hvítra
KOMIÐ hefur í ljós við réttar-
höld í Suður-Afríku, að einn
njósnara aðskilnaðarstjórnar
hvítra manna í landinu fékk ríf-
lega styrki frá Norðurlöndun-
um og einkanlega Noregi.
Mannréttindalögfræðingur-
inn Vanessa Breretons gat sér
mikið orð fyrir að verja and-
stæðinga aðskilnaðarstjórnar-
innar en í raun var hún njósnari
á vegum stjórnarliða og sveik
þar með skjólstæðinga sína.
Kom þetta fram í Aftenposten
nýverið.
Norsk stjórnvöld studdu vel
við samtök í London, Defense
and Aid Fund, sem áttu mikinn
þátt í að skipuleggja andstöð-
una við aðskilnaðarstjórnina,
en þau studdu síðan aftur
Breretons.
STUTT
Aurora
í heima-
höfn
ÖRFÁUM dögum áður en Bandaríkjamenn réðust
á Írak í mars sl. reyndu stjórnvöld í Bagdad að ná
sambandi við ráðamenn í Washington eftir króka-
leiðum í því skyni að reyna að afstýra yfirvofandi
stríði. Bandaríkjamenn fylgdu þessum umleitun-
um ekki eftir. Þessu er haldið fram í The New York
Times í gær og ABC-sjónvarpsfréttastöðin flutti
þessar fregnir einnig á miðvikudagskvöld. Tals-
menn varnarmálaráðuneytisins bandaríska höfn-
uðu hins vegar í gær þeirri hugmynd að þreifingar
Íraka hefðu getað afstýrt stríði.
Milligöngumaður í þreifingum íraskra stjórn-
valda var líbanskur verslunarmaður, Imad Hage,
en hann bjó lengi í Bandaríkjunum. Hann sagði
ABC að skömmu eftir að Colin Powell, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, flutti ræðu í öryggis-
ráði Sameinuðu þjóðanna í febrúar, þar sem færð
voru rök fyrir nauðsyn aðgerða gegn Írak, hefðu
útsendarar Íraka komið á skrifstofu hans í Beirút í
Líbanon. Viku seinna var Hage beðinn um að koma
á fund í Bagdad og hitti hann þar Tahir Habbush
hershöfðingja, yfirmann írösku leyniþjónustunn-
ar. Segir Hage að Habbush hafi lagt áherslu á að
Írakar ættu ekki lengur gereyðingarvopn og að
þeir væru tilbúnir að leyfa að bandarískir vopna-
sérfræðingar leituðu af sér allan grun í landinu.
Þá bauð Habbush einnig að haldnar yrðu frjáls-
ar kosningar í Írak, sem Sameinuðu þjóðirnar
hefði eftirlit með, bauð ívilnandi olíuviðskipti fyrir
bandarísk olíufyrirtæki og loks voru Írakar reiðu-
búnir til að framselja Abdul Rahman Yassin, hátt-
settan al-Qaeda-liða sem kom að tilraunum til að
sprengja World Trade Center upp árið 1993.
Gáfu Írakar til kynna í þessum óbeinu samskipt-
um sínum við Bandaríkjamenn að Saddam Huss-
ein, forseti Íraks, hefði sjálfur lagt blessun sína yf-
ir þessar tilraunir til að afstýra stríði.
Perle til fundar við Hage
Hage hafði fyrst samband við kunningja sinn,
Mike Maloof, embættismann á skrifstofu Douglas
Feith, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, í febrúar. Bar hann honum skilaboðin frá
Írökum.
Ekki er fullkomlega ljóst hvort bandarískir
ráðamenn töldu að hugur fylgdi hér máli og hvort
eitthvað væri að marka skilaboðin. Þreifingarnar
vöktu þó nógu mikinn áhuga þeirra til þess að
Richard N. Perle, einn af nánustu ráðgjöfum Don-
alds Rumsfelds varnarmálaráðherra, var sendur
út af örkinni til að hitta Imad Hage að máli. Áttu
þeir fund í London snemma í mars – en árásin á
Írak hófst aðfaranótt 20. mars.
Hage flutti Perle skilaboðin frá íröskum stjórn-
völdum og greindi honum frá því að Írakar vildu
ræða beint við Perle eða einhvern annan fulltrúa
Bandaríkjastjórnar. Hefur The New York Times
eftir Perle að hann hafi verið vantrúaður á að þess-
ar umleitanir gætu borið árangur en hann lofaði þó
Hage því að hann myndi ræða málið við embætt-
ismenn í Washington.
Perle segist hafa farið fram á heimild hjá banda-
rísku leyniþjónustunni (CIA) til að eiga fund með
Írökum en honum hafi verið sagt að þar á bæ vildu
menn ekki fylgja málinu eftir. Var Perle gefið til
kynna að CIA hefði þegar átt í einhverjum sam-
skiptum við ráðamenn í Bagdad.
Perle gerir nú lítið úr mikilvægi fundarins sem
hann átti með Hage og segist eiga bágt með að
trúa því að Saddam hefði reynt að ná sambandi
með jafn flóknum hætti til að koma tilboði sínu á
framfæri. „Þeir hefðu getað komið skilaboðum til
okkar eftir svo mörgum leiðum,“ segir hann í New
York Times. „Ríkisstjórnir margra landa voru að-
ilar að endataflinu: Rússar, Frakkar, Sádí-Arab-
ar.“
Írakar eru sagðir hafa reynt að afstýra stríði á síðustu stundu
Saddam bauð Bandaríkja-
mönnum ýmsa eftirgjöf
Reuters
Íraskur drengur með brúðu í líki Saddams Husseins í herklæðum en brúðuna keypti hann í Bagdad.
Washington. AFP, AP.
HÚSIN og kirkjan hafa grotnað nið-
ur. Dauðaþögn ríkir á þröngum göt-
unum. Allir eru farnir. „Aghios Pavl-
os hefur algerlega lagst í eyði og
byggingarnar hafa hrunið,“ sagði
Eftyhis Sfakianakis, sem var forseti
sveitarstjórnar Aghios Pavlos og
fleiri þorpa á grísku eyjunni Krít suð-
vestanverðri.
Samkvæmt manntali árið 2001
voru tveir menn til heimilis í Aghios
Pavlos en þeir eru nú látnir. Nálægt
þorp, Voutas, kann einnig að leggjast
í eyði þegar fram líða stundir. Íbúar
þess eru um 60, þar af aðeins fimm
börn. Aksturinn í næsta skóla tekur
tuttugu mínútur og allar rútuferðir
hafa lagst niður.
Þorp að hverfa í V-Evrópu
og Bandaríkjunum
Í þessum hluta Krítar voru háðir
sögulegir bardagar við hersveitir nas-
ista í síðari heimsstyrjöldinni en íbú-
unum fer nú sífækkandi vegna lands-
byggðarflótta sem sumir lýsa sem
„faraldri“. Miklir búferlaflutningar
úr strjálbýlinu í borgirnar einskorð-
ast þó ekki við Krít eða Grikkland.
Samkvæmt skýrslu Alþjóðabank-
ans bjuggu um 60% íbúa Grikklands
– eða 6,3 milljónir – á þéttbýlum
svæðum árið 1999 og þeim hafði fjölg-
að um 2% frá 1980. Þetta hlutfall er
þó miklu lægra en í flestum Evr-
ópuríkjum. Í Hollandi bjuggu 89%
íbúanna í þéttbýli 1999, í Þýskalandi
87% og Danmörku 85%.
„Fækkun íbúa í strjálbýlinu er orð-
in alvarlegt vandamál í öllum löndum
Vestur-Evrópu og Bandaríkjunum,“
sagði Richard Taub, prófessor í fé-
lagsfræði við Chicago-háskóla. Hann
bætti við að lítil byggðarlög væru
einnig að hverfa í Bandaríkjunum.
Snýst um atvinnutækifæri
og þjónustu
Taub segir að þetta mál snúist
einkum um atvinnutækifæri. Störfin
séu í borgunum og nálægum bæjum
og fólk vilji frekar vinna á skrifstofu
en við landbúnað.
Auk þess hafa íbúar þorpanna ekki
aðgang að góðri heilsugæsluþjónustu.
Í strjálbýlinu er yfirleitt aðeins einn
læknir á svæði sem nær yfir nokkur
þorp og nokkrar sveitir en stóru
sjúkrahúsin eru í borgunum.
Bandaríska mannfjöldarann-
sóknastofnunin Population Refer-
ence Bureau segir að árið 1900 hafi
aðeins 14% íbúa heimsins búið á þétt-
býlum svæðum, en þetta hlutfall
hækkaði í 30% árið 1950 og í 47% árið
2000. Um 2,8 milljarðar manna
bjuggu þá í þéttbýli.
Þorpunum í Grikklandi stafar þó
ekki aðeins hætta af búferlaflutn-
ingum í borgirnar. Hækkandi hlutfall
aldraðra vegna lágrar fæðingartíðni
og langlífis hefur einnig torveldað til-
raunirnar til að bjarga þorpunum.
Samkvæmt manntalinu 2001 hafði
hlutfall aldraðra stóraukist og fæð-
ingartíðnin ekki verið jafnlág í tutt-
ugu ár. Árið áður voru dauðsföllin
orðin fleiri en fæðingarnar.
Árið 2001 hafði íbúum Grikklands
fjölgað um 6,9% frá 1991, í tæpar 11
milljónir, en ástæðan var sú að um
milljón innflytjenda kom til landsins.
Nýjustu tölur frá Evrópusambandinu
og grískum stofnunum sýna að af öll-
um ESB-löndunum er fæðingartíðnin
lægst í Grikklandi og þar er jafn-
framt hlutfall aldraðra hæst.
Eurostat, tölfræðistofnun ESB,
segir að 12,3% íbúa Grikklands séu á
aldrinum 65–79 ára, en í ESB-
löndunum er þetta hlutfall 11,7% að
meðaltali. Hlutfall Grikkja undir fjór-
tán ára aldri hefur hins vegað lækkað
stöðugt frá því um miðjan sjötta ára-
tuginn. Hvorki meira né minna en
70% barnanna, sem fæðast í Grikk-
landi, eru börn innflytjenda.
Íbúum heimsins fjölgar nú um 83
milljónir á ári en í öllum iðnríkjunum
fjölgar íbúunum aðeins um eina millj-
ón, þegar innflytjendur eru und-
anskildir.
Eftyhis Sfakianakis sagði að hátt
hlutfall aldraðra kæmi einkum niður
á strjálbýlu svæðunum. „Framtíð
strjálbýlisins í Grikklandi er mjög
dökk vegna þess að flestir íbúanna
þar eru aldraðir og þeir deyja áður en
langt um líður.“
Grísk þorp í andarslitrunum
Aghios Pavlos. AP.
AP
Húsin í Aghios Pavlos á grísku eyjunni Krít hafa grotnað niður.
’ Fækkun íbúa ístrjálbýlinu er orðin
alvarlegt vandamál í
öllum löndum Vest-
ur-Evrópu og
Bandaríkjunum. ‘