Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 20

Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 20
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Mínstund skapti@mbl.is Eimskip kaupir SAS | Eimskip ehf. hefur fest kaup á öllum hlutabréfum í Skipaafgreiðslu Suðurnesja ehf. Mark- miðið með kaupunum er að því er fram kemur í fréttatilkynningu að styrkja markaðsstöðu Eimskips á Suðurnesjum og auka hagræðingu í rekstri landflutninganetsins með sam- nýtingu tækja og bættu skipulagi akst- urs. Kaupin miðast við næstu áramót. Jón Norðfjörð, sem verið hefur aðaleig- andi fyrirtækisins og framkvæmdastjóri, stýrir því áfram. Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Skaftfell | Garðar Eymundsson sýnir um þessar mundir í Skaftfelli, menningar- miðstöð Seyðisfjarðar. Á sýningunni eru skissur, olíu- og past- elmyndir unnar á síðsta áratug eða rúmlega það. Garðar fæddist árið 1926 í Baldurshaga á Seyðisfirði. Hann byrjaði ungur að mála og lærði hjá Karli Kvaran. Hann hefur verið mikilvirkur í lista- og menningarlífi Seyð- isfjarðar í áratugi. M.a. sýnt víða, verið sýningarstjóri, skipuleggjandi og þátttak- andi í að gera listahátíðina, Á seyði, að veg- legri listahátíð ár hvert. Garðar og kona hans, Karólína Þorsteinsdóttir, gáfu hús sitt Skaftfell til eflingar lista- og menning- arlífs á Seyðisfirði og hefur síðan verið þar fjölbreytileg menningaruppspretta, inn- lend og alþjóðleg í senn. Óhapp | Starfsmaður Ístaks í Fá- skrúðsfjarðargöngum varð fyrir því óhappi fyrr í vikunni að missa framan af fingri. Óhappið varð í suðurenda ganganna þar sem maðurinn vann við steypudælu. Hann var fluttur á heilsugæsluna á Eskifirði og þaðan til frekari aðhlynningar á sjúkra- húsið í Neskaupstað. Enginn læknir er nú við störf á Fáskrúðsfirði og þarf því að leita annað eftir læknishjálp ef slys ber að hönd- um. Búðardal | Dalamenn eiga því láni að fagna að Hér- aðsbókasafnið býður ókeypis útlán. Þarna getur fólk nálgast flestallar nýj- ustu bækurnar hverju sinni, ásamt þeim eldri, og telst þetta safn mjög gott að mælikvarða lítilla safna. Keyptar hafa verið tölvur á safnið og gefst gestum einnig kostur á að nota þær. Verið að koma á deild innan safnsins sem er tileinkuð Sturlu Þórð- arsyni og er margar merk- ar og mjög gamlar bækur þar að finna. Í jólamán- uðinum mun Björn Stefán Guðmundsson kennari lesa upp úr nýjum bókum á bókasafninu. Á myndinni er Guðborg Tryggvadóttir bókavörður. Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir Ókeypis útlán í Dölunum Akureyri | Þorsteinn EA, fjöl- veiðiskip Samherja, kom til Akureyrar í gærmorgun og var skipinu siglt beint í flot- kvína hjá Slippstöðinni, þar sem unnið verður að viðgerð skipsins næstu daga. Þorsteinn EA sigldi fyrir eigin vélarafli frá Neskaupstað en þangað var skipið dregið sl. föstudags- kvöld, eftir að mikill leki kom að því á miðunum fyrir austan land. Sjór lak í vélarrúmið og þegar ljóst var að dælur skips- ins höfðu ekki undan, var leit- að eftir aðstoð úr landi. Það var svo Vilhelm Þorsteinsson EA sem dró skipið til hafnar. Kristján Vilhelmsson út- gerðarstjóri Samherja sagði að nokkurt tjón hefði orðið í vél- arrúminu. Eftir er að meta tjónið að fullu en ljóst er að það hleypur á einhverjum milljónum króna, að sögn Kristjáns. Aðalrafall skipsins var tekinn í land í Neskaup- stað á mánudag og er unnið að viðgerð á honum. Einnig skemmdust litlir rafmótorar í vélarrúminu og þá er hafin vinna við að lagfæra rörið sem tærðist í sundur og olli lek- anum. Kristján sagðist gera sér vonir um að viðgerð ljúki um miðja næstu viku. Morgunblaðið/Kristján Í viðgerð næstu daga: Þorsteinn EA, fjölveiðiskip Samherja, rennur inn í flotkvína á Akureyri í gær. Þorsteinn EA í viðgerð í Slippnum Útgerð Reykjavík | Strætó bs., ÍTR og Fræðslu- miðstöð Reykjavíkur auglýstu á dögunum eftir tilboðum í vélbúnað fyrir rafrænt miðakerfi sem hægt er að nota í strætis- vagna, sund og skólamötuneyti. Þarna er um að ræða innleiðingu svonefndra „smartkorta“ sem geta gert alla umsýslu gjaldtöku sveigjanlegri og einfaldari fyrir viðskiptavini fyrirtækja og stofnana borg- arinnar. Ásgeir Eiríksson, framkvæmda- stjóri Strætó bs., segir kerfið hafa verið í undirbúningi hjá Strætó bs. „en í vinnuferl- inu gengum við í samstarf við Reykjavík- urborg um þetta verkefni,“ segir Ásgeir, sem heldur utan um verkefnið fyrir hönd Strætós. „Í fyrsta áfanga taka tvær stofn- anir borgarinnar utan okkar þátt, ÍTR og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Meiningin er að setja á laggirnar kerfi sem gerir kort- höfum kleift að greiða fyrir þjónustu þess- ara þriggja fyrirtækja, en kerfið byggir á svokölluðum snertilausum smartkortum.“ Munurinn á Smartkorti og hefðbundnu debet- eða kreditkorti er sá að upplýsing- arnar um inneignina eru á kortinu sjálfu. Í kortinu er örflaga sem heldur utan um inn- eignina en einstaklingurinn kaupir þá þjónustu sem hann vill hverju sinni, hvort sem um er að ræða strætóferðir, sundað- gang eða mat í skólamötuneytum. „Síðan verður líka inni á þessu korti svokölluð raf- eyrisbudda, sem þýðir að menn geta valið hvernig þeir greiða fyrir þjónustuna. Þannig getur fólk borgað fyrir einstakar ferðir með rafeyri en um leið notast við af- sláttarmöguleika eins og mánaðarkort inni í smartkortinu.“ Hér er um að ræða fyrsta áfanga verk- efnis sem verður að öllum líkindum stærra. „Kerfið gerir okkur mögulegt að nota það í hina ýmsu opinberu þjónustu, við sjáum fyrir okkur bókasafnskort, greiðslu fyrir stöðumæla og inn á söfn borgarinnar og ýmislegt fleira. Verkefnisstjórn þessa verkefnis mun kynna fyrirkomulagið fyrir nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur sem eru á þjónustusvæði Strætós bs. Með út- breiðslu kortsins sem gjaldmiðils í strætó opnast fyrir fjölmarga möguleika hjá öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu til að nýta þetta sem greiðslumiðil, til dæm- is á sundstöðum þar.“ Borgar fyrir strætó, sund og skólamat Smartkort í undirbúningi       Áfengis- og vímu-varnanefnd Ak-ureyrarbæjar hefur samþykkt að veita 200.000 króna styrk til að móta sjálfstyrking- arnámskeið fyrir stúlkur á aldrinum 13–15 ára á Akureyri. Á fundi nefnd- arinnar nýlega var sagt frá sjálfsmyndarverk- efninu „Betri sjálfsmynd – betri líðan“ og hugs- anlega samvinnu við Foreldrahús um sjálf- styrkingarnámskeið fyr- ir áðurnefndan ald- urshóp stúlkna í bænum. Þá hefur Áfengis- og vímuvarnanefnd falið starfsmanni sínum að hefja undirbúning að stofnun forvarnateymis, í framhaldi fundar með stjórnendum félagssviðs þar sem rætt var um for- varnir og forvarnastefnu fyrir Akureyri. Stefnt skal að fyrsta fundi í upphafi næsta árs. Sjálfsmynd Ólafur Kjartan Sig-urðarson vargestasöngvari karlakórsins Hreims úr Suður-Þingeyjasýslu. Hann var spurður um við- urnefni, úr því afi hans væri Jón bassi og pabbi hans Diddi fiðla. Þá sagði hann að Kristinn Sig- mundsson hefði séð þá feðga standa hlið við hlið og kallað Ólaf lágfiðlu. Á tónleikunum var hann þrisvar sóttur á svið. Frið- rik Steingrímsson orti: Er í taumi æði þungur, ekki á nokkru meira ber, þessi litli lágfiðlungur lætur ganga eftir sér. Hagyrðingar leita stundum uppi stuðlaðar fyrirsagnir í blöðum og prjóna í kringum þær. Óttar Einarsson fann sig knúinn til prjónaskapar um menntamálaráðherra þegar hann rakst á fyr- irsögn í Morgunblaðinu: „Stytting náms til stúd- entsprófs.“ Olrich gætir ekki hófs, er að bregðast vonum. „Stytting náms til stúd- entsprófs“ stendur nú í honum. Fiðla og lágfiðla pebl@mbl.is *NÝTT Á SKRÁ* Sérlega glæsileg 130,2 fm efri sérhæð ásamt 30,6 fm bílskúr, með glæsilegu útsýni við Brekkuhjalla í Kópavogi. 3 góð svefnherbergi, stór stofa, borð- stofa og glæsilegt eldhús, baðher- bergi er flísalagt í hólf og gólf m. sturtu og baðkari. Gegnheilt mer- bau-parket er á íbúðinni og inn- felld halogen-ljós í loftum. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til suðvesturs yfir Kópavoginn. Verð kr. 24,4 millj. Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali Brekkuhjalli - Sérhæð m. bílskúr - KÓP. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá 112,4 fm parhús á einni hæð ásamt 28 fm bílskúr innst í botn- langa í gróinni götu í Mosfellsbæ. Íbúðin skiptist í 2 góð svefnher- bergi, vinnuherbergi, flísalagt bað- herbergi m. baðkari og sturtu, eld- hús m. góðum borðkrók og stóra og bjarta stofu/sólstofu. Rúmgóður bílskúr og hellulagt bílaplan m. snjóbræðslu. Verð kr. 19,0 millj. Grenibyggð - Parhús m. bílskúr - MOS.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.