Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 22
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
22 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
!"#$ % %
& ' %
"( )
*
' "
$ ($
++ ,#'-
! " #
$% ! &'!'
.)$# #$ % /
$$ /,#'0 "-
& ! (
1(%'/#" % 2" #$(
) *+,,-(
1(%'/#" %
#+$" #$(
!" .# '
%% # ()! *& + & ,-.// ,0.//
,% / # # 011 2344 % . # $* 111&&
2
Suðurhlíðum | Landvernd og Skógræktarfélag
Íslands leita nú að samstarfsaðilum til að taka
þátt í samstarfi um það sem kalla mætti „Grænt
hús“. Í græna húsinu ættu heimili þau samtök
sem vinna að landgræðslu og skógrækt, um-
hverfis- og náttúruvernd og verndun menning-
ararfsins.
Húsnæðið sem um
ræðir er í Vesturhlíð 7,
þar sem fyrirtækið Flaga
var til húsa, og gera að-
ilar sér vonir um að veru-
leg jákvæð samlegðar-
áhrif náist með
samnýtingu á fundarað-
stöðu, eldhúsi og
geymslum auk þess sem
betri nýting næðist í al-
mennum rekstri, til
dæmis á ýmsum skrif-
stofubúnaði og tækjum
og í þekkingarmálum,
meðal annars með sam-
eiginlegum bókasöfnum
og betra upplýsingaflæði.
Þannig er hugmyndin að
samstarfið gæti opnað
fyrir fjölþætta möguleika
til samstarfs um ýmis verkefni, til dæmis á sviði
fræðslu. Nágrenni hússins, Öskjuhlíðin og nátt-
úra hennar, er ennfremur álitið kjörið til ýmiss
konar fræðslustarfs.
Náttúruskóli í Öskjuhlíðinni
Ennfremur hafa félögin leitað til fræðsluráðs
Reykjavíkur og kynnt tillögu um náttúruskóla
fyrir skólabörn í Reykjavík, sem rekinn yrði af
félögunum með fjárhagsstuðningi borgarinnar í
tengslum við Græna húsið. Þessi tillaga er nú til
skoðunar hjá borgaryfirvöldum og verður tekin
til umfjöllunar í fræðsluráði í nóvember.
Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Land-
verndar, segir Landvernd og Skógræktarfélag-
ið hafa auglýst eftir samstarfsaðilum nýlega og
að vel gangi að manna hópinn þrátt fyrir að enn
vanti herslumuninn á að ná saman nógu mörg-
um aðilum til að taka yfir leiguna á húsinu. „Þó
trúi ég því að við náum
saman góðum hópi aðila
til að taka þátt í þessu
með okkur. Það væri líka
mikil nýjung ef það væri
hægt að koma á svona
húsi.“
Brynjólfur Jónsson,
framkvæmdastjóri Skóg-
ræktarfélags Íslands,
segir væntingar um að
hið fallega og áhuga-
verða umhverfi í kring-
um húsið og miðlæg stað-
setning þess geti gert
góða hluti fyrir umhverf-
isstarf. „Hugmynda-
fræðin á bak við þetta er
að ná samtökum sem
vinna á svipuðum nótum
og Landvernd og Skóg-
ræktarfélag Íslands
saman til samstarfs. Þar erum við að reyna að
mynda hóp sem vinnur að umhverfismálum í
víðu samhengi. Þetta gæti orðið miðstöð fræðslu
og hér gæti almenningur fundið, á einum stað,
samtök sem eru að vinna að þessum málum. Við
horfum líka fram á það að þessir aðilar geti
myndað með sér einhvers konar samstarfsverk-
efni, það er mjög líklegt að það geti þróast í
það.“ Húsið í Vesturhlíð 7 er fjölnota hús, þar er
bæði að finna sali, skrifstofur og verkstæði með
stórum dyrum út. Tryggvi segir þetta bjóða upp
á mikla möguleika í fjölbreyttu starfi umhverf-
isgeirans. „Allir þessir aðilar eru með fræðslu-
starf og ef þeir koma allir saman hér á sama stað
verður það mun meira en fræðslustarf. Þetta
verður fræðslumiðstöð í umhverfismálum á veg-
um frjálsra félagasamtaka. Hér verður aðstaða
fyrir ræktunarstörf Skógræktarfélagsins og
annarra og svo væntum við að hugmyndir okkar
um náttúruskóla verði að veruleika, þar sem
kennarar og skólar fá öflugan stuðning við að
sinna betur náttúru- og umhverfisfræðslu svo
hún verði markvissari og betri. Hér eru svo
margir möguleikar til þess, við höfum fjöruna og
fuglalífið þar, síðan höfum við skóginn í Öskju-
hlíðinni og fleira, þannig að það ættu að vera
góðir möguleikar á að koma upp öflugu nátt-
úrufræðslustarfi hérna með skólunum. Land-
vernd hefur reyndar rekið slíkt starf í Alviðru
og það hefur tekist vel, en það er svolítil fjar-
lægð. Hér væri hægt að sækja skólann með
strætó, hjólandi eða gangandi.
Þótt hús sé bara steinn, þá er þetta hús í því
umhverfi og þær aðstæður hér, að það getur
orðið miðstöð grænna og góðra verka.“
Þeir Tryggvi og Brynjólfur hvetja alla aðila
sem hafa áhuga á samstarfi í umhverfismálum á
einum stað til að setja sig í samband við Land-
vernd eða Skógræktarfélag Íslands.
Landvernd og Skógræktarfélag Íslands viðra hugmyndir um „Grænt hús“ og náttúruskóla
Samnýting og sam-
starf gefa styrk
Morgunblaðið/Þorkell
Þeir Tryggvi Felixson, framkvæmdastjóri Landverndar, og Brynjólfur Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Skógræktarfélags Íslands, vilja koma á fjölnota „Grænu húsi“ við Öskjuhlíð.
Í salnum í enda hússins er gert ráð fyrir
samkomu- og fræðslusal þar sem hægt er
að halda fundi og námskeið um umhverf-
ismál. Síðan er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir
fjölda aðila víða um húsið.
Húsið liggur í jaðri Öskjuhlíðar og stutt er
niður í fjöru, því eru þar góð skilyrði fyrir
hvers kyns fræðslustarf.
Hafnarfirði | Lúðvík Geirsson, bæj-
arstjóri Hafnarfjarðar, og Erlendur
Hjaltason, framkvæmdastjóri Eim-
skips ehf., hafa undirritað leigusamn-
inga um stækkun athafnasvæðis
Eimskips við Hafnarfjarðarhöfn.
Með undirritun lóðasamninganna
styrkir Eimskip enn frekar starfsemi
sína við höfnina, með því að bæta
rými fyrir vöxt. Er nú heildarflötur
athafnasvæðis Eimskips rúmir níutíu
þúsund fermetrar og eykst plássið
um rúma tuttugu og tvö þúsund fer-
metra. Hið nýja athafnasvæði Eim-
skips er í beinu framhaldi af svæðinu
sem félagið hefur fyrir.
Öskjuhlíð | Í sumar var athugað
hver stofnstærð kanína er í Foss-
vogskirkjugarði og Öskjuhlíðinni.
Mikið hefur verið kvartað yfir kan-
ínum, sérstaklega í kirkjugarð-
inum, þar sem þær éta blóm og ann-
an gróður sem settur er við leiðin.
Í framvinduskýrslu, sem kynnt
hefur verið umhverfis- og heil-
brigðisnefnd Reykjavíkur, kemur
fram að við rannsóknina sáust um
54 kanínur á þessu svæði á tímabili
frá byrjun júni til fimmta ágúst í
sumar. Nota á tvær aðferðir til að
meta stofnstærðina út frá þessum
athugunum. Ekki er enn búið að
vinna það frekar en fram kemur að
taldar kanínur gefa ákveðnar vís-
bendingar um stofnstærð en sé lík-
lega lágmarksfjöldi.
Fjöldi kanína fór vaxandi fram
eftir sumri í Öskjuhlíð og talið lík-
legt að það hafi einnig gerst í Foss-
vogskirkjugarði. Mestur áætlaður
fjöldi á þessum svæðum hvoru fyrir
sig var um 22 kanínur.
Kanínur staðbundnar
Í skýrslunni kemur fram að kan-
ínurnar virtust frekar staðbundnar
og héldu sig á tiltölulega afmörk-
uðum svæðum á báðum stöðunum.
Þó áttu sumar til að flakka á milli
svæða. Sumir hlutar í Öskjuhlíðinni
voru nánast kanínulausir. Ekki er
hægt að fullyrða enn hvaða bú-
svæði kanínur sóttu helst í en lík-
lega hefur útbreiðsla grastegunda
og annarra grænna jurta mest áhrif
á valið samkvæmt skýrslunni.
Munur var á fjölda kanína eftir
tíma dags. Flestar þeirra voru á
ferli milli klukkan sex og átta á
morgnana en fæstar frá hádegi
fram til klukkan fjögur síðdegis.
Oftast voru þær einar á ferð en fyr-
ir kom að fleiri væru saman. Enn á
eftir að vinna úr atferlisgögnum
rannsóknarinnar en vísbendingar
eru um að kanínurnar sýni óðals-
hegðun, eins og það er kallað, og
myndi virðingarstiga. Greinilegur
einstaklingsmunur hafi verið á
árásargirni þeirra gagnvart öðrum
kanínum.
Talning endurtekin
í desember
Aftur á að endurtaka talningu í
desember. Í skýrslunni segir að vet-
urinn höggvi mjög líklega einhver
skörð í þann kanínufjölda sem nái
að komast upp en það fari vænt-
anlega eftir því hve harður hann
verði. Sennilega hafi aðgangur að
fæðu fremur en hitastig meiri áhrif
á hvort þær lifi veturinn af. Það
sést meðal annars á því að kanínur
lifa í flestum landshlutum á af-
mörkuðum svæðum, aðallega í
skógrækt.
Guðbjörg Ásta Stefánsdóttir líf-
fræðingur vann að því að meta
stærð kanínustofnsins í sumar og
skrifaði framvinduskýrsluna. End-
anlegum útreikningi er ekki lokið
þó að talning kanína samkvæmt
ákveðinni aðferðafræði gefi
ákveðnar vísbendingar um fjölda
þeirra á þessu svæði.
Kanínur í Öskjuhlíðinni taldar
Morgunblaðið/Þorkell
Þessi kanína í Öskjuhlíðinni nýtur sín vel umkringd grasi og grænni furu.
Reykjavík | Ólafur F. Magnússon,
borgarfulltrúi F-listans, spurði
borgarstjóra Reykjavíkur hvort
hann tryði ekki Steinunni Birnu
Ragnarsdóttur, sem hætti sem vara-
borgarfulltrúi R-listans, þegar hún
fullyrti í fjölmiðlum að sér hafi verið
meinað að tala á borgarstjórn-
arfundi um málefni Austurbæj-
arbíós. Ólafur sagði á fundi borg-
arstjórnar í gærkvöldi að Þórólfur
Árnason hefði sagt í sjónvarpsþætti
kvöldið áður að ekki hefði komið
fram á undirbúningsfundi að Stein-
unn Birna hygðist taka til máls í
borgarstjórn um málefni Austur-
bæjarbíós.
„Ég vil alls ekki taka að mér að
túlka hennar orð eða þær ástæður
sem hún tilgreindi fyrir [sinni] af-
sögn,“ svaraði borgarstjóri. Hann
sagði Ólaf hafa rétt eftir sér og ekki
hefði verið ákveðið á undirbúnings-
fundi að varaborgarfulltrúinn Stein-
unn Birna Ragnarsdóttir héldi ræðu
á borgarstjórnarfundi daginn eftir.
Þar hafi verið samstaða að vísa til-
lögu Ólafs gegn niðurrifi Austurbæj-
arbíós til borgarráðs.
„Ég veit það með fullri vissu að
Steinunn Birna Ragnarsdóttir ætl-
aði að tala en var meinað að gera
það,“ sagði Ólafur F. Magnússon og
mikilvægt væri að trúverðugleiki
hennar væri ekki dreginn í efa.
Vill ekki túlka orð
Steinunnar Birnu