Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 26

Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 26
AUSTURLAND 26 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ       5 6&) $ 7  '    # 8 011 2301 !  6 8 011 2344  6& 9(   3    $ .!       6  %   % !  &% &   !                     !     "    #  "   $ %          &  ' ( !   %    ) *       ! %  !            # +      !%   *         "        ,    !    %      "  !"    #      ' -   !    #   "       %      "         5 . .. ./  .0   /1  . 1        6   %  3      3 . 2/      Atvinnuleysi | Rúmlega tugur af þeim 44 starfsmönnum frystihússins Dvergasteins á Seyðisfirði sem sagt hefur verið upp störfum hefur skráð sig atvinnulausa. Atvinnuleysi hefur aukist á Austurlandi og eru nú 132 á atvinnuleysisskrá, 80 konur og 52 karlar. Lokun Dvergasteins og upp- sagnir Skinneyjar-Þinganess á Reyð- arfirði auka á atvinnuleysið í fjórð- ungnum, en yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem misstu vinnuna í þessum tveimur fyrirtækjum voru konur. Fljótsdal | Austurlandsdeild Smalahundafélags Íslands hélt fjárhundakeppni á Eyrarlandi í Fljótsdal á dögunum. Alls kepptu átta hundar, allir af Border Collie-kyni, í tveimur flokkum, flokki byrjenda og opn- um flokki. Fjórir hundar kepptu í hvorum flokki. Í keppninni þurftu hundarnir undir stjórn eiganda síns að reka þrjár rollur sem sleppt var laus- um, gegnum þrjú hlið í mismun- andi áttir, meðan stjórnandinn stóð á sama stað. Síðan þurfti að reka þær inn í afmarkaðan hring þar sem hundurinn átti með að- stoð eiganda síns að skilja eina rollu frá hinum án þess að missa stjórn á hlutunum. Að síðustu þurfti hundurinn að aðstoða eig- andann við að reka rollurnar inn í fjárrétt. Í flokki byrjenda sigraði Sig- urhans Jónsson í Lundi á Völlum og Tryggur frá Kletti. Í opnum flokki sigraði Þorvarð- ur Ingimarsson á Eyrarlandi og Tígull frá Eyrarlandi. Dómari í keppninni var Kristján Jónsson frá Daðastöðum í Öx- arfirði. Að sögn Þorvarðar Ingimars- sonar er fyrirhugað að þessi keppni verði árlegur viðburður, en landskeppni Smalahundafélagsins var haldin fyrir austan árið 2001. Þorvarður segir að töluverður tími fari í að venja góðan smala- hund og halda honum í þjálfun, til þess þurfi að nota hundinn mikið við fjársmölun en smalamennskum er alltaf að fækka. „Þetta var allt annað meðan fé var haft úti allan veturinn og smalamennskur voru daglega,“ segir Þorvarður. Austurlandsdeild Smalahundafélags Íslands með mót á Eyrarlandi í Fljótsdal Góður smalahundur er gulls ígildi Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Marsibil Erlendsdóttir og Spænir reka rollurnar í fjárréttina í fjárhundakeppninni á Eyrarlandi.    Kjarkur og þor | Eymundur Magnússon bóndi í Vallanesi á Aust- ur-Héraði hlaut á dögunum árlega viðurkenningu Bændahátíðar, Kjark og þor sveitanna. Hlýtur hann við- urkenninguna fyrir uppbyggingu á lífrænum búskap og gott þróunar- og markaðsstarf. Einnig voru veitt verðlaun fyrir árangur í sauð- fjárrækt og mjólkurframleiðslu. Féllu sauðfjárræktarverðlaunin í skaut Katrínar Guðmundsdóttur og Þorsteins Kristjánssonar á Jökulsá, Borgarfirði eystra. Félagsbúið á Hallfreðarstöðum hlaut viðurkenn- ingu fyrir mestu mjólkurfram- leiðslu. ME-boltinn | Knattspyrnulið Menntaskólans á Egilsstöðum náði góðum árangri í framhalds- skólamótinu sem lauk með úr- slitamóti í Egilshöll í Grafarvogi. Bæði karla- og kvennalið ME unnu sæti í úrslitakeppninni. Karlaliðið lék í úrslitum við lið MA en beið lægri hlut þar sem MA sigraði með einu marki gegn engu. Kvennaliðið hafnaði í 3.-4. sæti. 32 karlalið og 24 kvennalið af landinu öllu tóku þátt í framhaldsskólamótinu þetta árið.       Nýr miðbær | Bæjarstjórn Austur- Héraðs hefur samþykkt að ganga til samninga við Arkitektafélag Íslands um samstarf við að halda hugmynda- samkeppni um miðbæjarsvæði á Eg- ilsstöðum. Skipuð hefur verið dóm- nefnd sem í sitja tveir fulltrúar frá Austur-Héraði, einn fulltrúi hags- munaaðila miðbæjarsvæðisins og tveir aðilar frá Arkitektafélaginu. Ætlaður kostnaður við samkeppnina er tæplega níu milljónir króna og fel- ur hann í sér fimm milljóna króna verðlaunafé og kostnað sem til fellur við framkvæmd samkeppninnar.    Á MIÐRI leið úr Fljótsdal og inn að Kárahnjúkum blasir við dýrðleg fjallasýn sé veður stillt og bjart. Sjá má Snæfell, konung íslenskra fjalla sem margir kalla svo, blasa við í suðvestri og Herðubreið, drottningu ís- lenskra fjalla, í vestri. Ber Ytra-Kárahnjúk, sem virkjunarsvæðið er kennt við, í Herðubreið og skipta þau litum í fjarskanum. Á milli kóngs og drottningar má svo líta Dyngjufjöllin. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Kóngur og drottning í ríki sínu Reyðarfirði | Í dag opnar Íslandsbanki fyrsta útibú sitt á Austurlandi, á Búðar- eyri 7 á Reyðarfirði. Í tilefni dagsins er opið hús í útibúinu frá kl. 13 til 17, þar sem ýmis fróðleikur og skemmtun verður á boðstólum. Georg sparibaukur verður á ferð og nemendur Tónskóla Reyðarfjarðar koma fram. Sér- stök kynning verður á netbanka Íslands- banka fyrir einstaklinga og fyrirtæki og einnig verða fulltrúar frá Sjóvá-Almenn- um á staðnum. Útibússtjóri Íslandsbanka á Reyðarfirði er Elísabet Benediktsdóttir, þjónustu- stjóri Ingunn Indriðadóttir og aðrir starfsmenn þær Agla Heiður Hauksdóttir og Ásta Kristín Sigurjónsdóttir. Morgunblaðið/Hallfríður Bjarnadóttir Aukin bankaþjónusta á Austurlandi: Ís- landsbanki opnar nýtt útibú í dag. Íslandsbanki sækir í sig veðrið eystra Fréttir á SMS Umsvif LVF | Um 5.500 tonnum af afurðum hefur undanfarnar tvær vikur verið skipað út hjá Loðnu- vinnslunni á Fáskrúðsfirði; 3.217 tonnum af fiskimjöli, 1.732 tonnum af lýsi, rúmlega 300 tonnum af síld, 38 tonnum af saltsíld, 264 tonnum af freðsíld og 179 tonnum af freðfiski.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.