Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 28

Morgunblaðið - 07.11.2003, Side 28
Ég er ekki í nokkrum vafaum að aloe vera-plantangeti hjálpað mörgum,sem eiga við ýmsa sjúk- dóma að etja, og er hingað kominn til þess að fræða heilbrigðisstéttir og aðra áhugamenn um virkni þess- arar kraftaverkaplöntu. Ég er alls ekki að mæla með því að fólk hendi frá sér hefðbundnum lyfjum, en bendi á að með því að drekka plöntu- safann reglulega, má halda niðri sjúkdómum og draga úr annarri lyfjainntöku til að auka lífsgæðin. Það skal skýrt tekið fram að aloe vera-plantan ein og sér læknar ekki sjúkdóma, en fjölmargar klínískar rannsóknir benda til þess að hún hafi styrkjandi áhrif á bæði ónæm- iskerfið og ytra og innra þekjulag mannslíkamans sem veldur því að fólk er betur í stakk búið til að tak- ast á við sjúkdóma en ella. Ég er því fyrst og fremst að reyna að koma fólki í skilning um áhrifamátt plönt- unnar,“ segir dr. Peter Atherton, sem staddur var hér á landi um helgina og hélt m.a. fyrirlestur um verkanir aloe vera-plöntunnar. 70% söluaukning í Evrópu Atherton, sem er breskur læknir, stýrir stærstu nátt- úrulækninga- miðstöð Evrópu, Tyringham Clinic, þar sem hann sam- einar bæði hefð- bundnar og óhefð- bundnar lækningar. Þar hefur hann notað aloe vera með góðum árangri í heildrænni meðferð og vill að aðrir læknar kynni sér af alvöru kosti plöntunnar. „Fyrir nokkrum árum vildu læknar ekki hlusta á svona tal, en nú eru þeir til- neyddir, einfaldlega vegna þess að sjúklingar eru í vaxandi mæli farnir að horfa til náttúrulækninga, sem ekki hafa verið meðal fræða í lækna- skólum hingað til.“ Dr. Atherton brautskráðist frá Leeds University árið 1968. Hann stundaði heimilislækningar og rak læknastofu um langt skeið með áherslu á húðsjúkdómafræði. Eftir að hann, fyrir tilviljun, kynntist krafti aloa vera-plöntunnar tók hann sér tveggja ára leyfi til að stunda rannsóknarvinnu í Green College við Oxford-háskóla, þar sem hann beindi sjónum sínum að græð- andi eiginleikum aloa vera. Ather- ton starfar nú sem læknisfræðilegur ráðgjafi stærsta framleiðanda aloe vera-vara, sem er bandaríska fyr- irtækið Forever Living Products. „Við verslum í yf- ir eitt hundrað löndum víðs vegar um heiminn. Sér- fyrirtæki hafa verið stofnuð í öllum þessum löndum undir regnhlíf fyr- irtækisins, en sala á vörum fyrirtæk- isins jókst um 70% í Evrópu á síðasta ári. Á Íslandi var byrjað að versla með vörur þessar árið 1999 hjá dótt- urfyrirtækinu Forever Living Pro- ducts Íslandi ehf.“ Auk áburða, framleiðir fyrirtækið ferns konar drykki úr aloe vera- plöntunni sem ætlaðir eru til inn- töku vegna mismunandi vandamála. Að sögn sérfræðingsins eru drykk- irnir sérstaklega ráðlagðir vegna húðsjúkdóma af ýmsum toga, melt- ingartruflana, gigtar, bruna, bita, sára og ekki hvað síst til að sporna gegn öldrun. „Virkni reglulegrar inntöku stafar af ríkri blöndu nátt- úrulegra næringarefna sem sam- verkandi skapa meiri árangur held- ur en búast mætti við ef hvert og eitt efni væri tekið inn eitt og sér. Þessi virkni eykur aðlögunarhæfni lík- amans til að standa gegn neikvæð- um áhrifum eins og sýkingu eða álagi. Þegar hin náttúrulegu bólgu- eyðandi áhrif og sýklavörn aloe vera sameinast við inntöku eða sem hluti af fæðu, örvar það frumuvöxt og veitir þar af leiðandi örari bata. Ónæmiskerfið fínstillist og verður betur í stakk búið til að verja líkam- ann.“ Framtíðin í náttúrulyfjum Aloe vera-plantan er upphaflega ættuð frá Afríku, en vex nú víða í heitum löndum. Kuldi og frost eru hinsvegar verstu óvinir plöntunnar, að sögn læknisins. Plantan hefur hjálpað mannkyninu í árþúsundir, segir dr. Atherton, og heimildir eru um að faðir læknisfræðinnar Hippokrates, sem uppi var á árunum 460–377 fyrir Krist, hafi notað plöntuna í lækningaskyni. Hann mun hafa sagt: „Gerum matinn að lyfjum líkamans og lyfin að næringu hans.“ „Ég trúi því að náttúrulyfjum á borð við aloe vera vaxi fiskur um hrygg á komandi árum vegna þess að maturinn okkar inniheldur ekki sömu næringarefni og áður. Við höf- um gengið á ræktunargæðin með nútímabúskaparháttum og fengið í staðinn hráefni, sem ekki er eins næringaríkt og áður. Aloe vera dafnar aðeins í jarðvegi, sem er mjög ríkur af steinefnum, sem plant- an sýgur upp í sig og bætir svo mannfólkinu upp næringarskortinn með inntöku safans,“ segir Atherton og bætir við að fjölmargar vörur séu á markaðnum, merktar aloe vera. Sumar innihéldu hinsvegar lítið magn af innra geli laufsins, en magn og gæði safans skiptu auðvitað mestu varðandi virknina.  HEILSA | Aloe vera til að græða sár að utan sem innan Áburður og drykkir úr grænni plöntu Breski læknirinn dr. Peter Atherton sagði Jóhönnu Ingvarsdótt- ur að þótt aloe vera- plantan læknaði ekki sjúkdóma mætti draga úr hefðbundinni lyfjanotkun með því að drekka plöntusaf- ann reglulega. Morgunblaðið/Þorkell Hefðbundnar og óhefðbundnar lækningar: Dr. Peter Atherton rekur stærstu náttúrulækningamiðstöð Evrópu, þar sem hann sameinar hefð- bundnar og óhefðbundnar lækningar. Margar klínískar rann- sóknir benda til að plantan styrki ónæmis- kerfið og ytra og innra þekjulag líkamans. DAGLEGT LÍF 28 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ BEINKRÖM, sem margir hafa talið sjúkdóm sem tilheyrir fortíðinni, er enn vandamál um heim allan að mati lækna sem ritað hafa um efnið í læknablaðið The Lancet. Fjallað er um málið á vef BBC og þar kemur fram að helstu ástæður þess að beinkröm sé að sækja á séu þær að fólk forðist að vera í sól sem og aukin mengun. Þar að auki hefur áróður um að hafa börn eingöngu á brjósti í langan tíma án þess að gefa þeim D-vítamín haft sitt að segja. Beinkröm orsakast venjulega af D-víta- mínskorti en D-vítamín veldur því að lík- aminn getur nýtt kalk sem er nauðsynlegt fyrir sterk og heilbrigð bein. Líkaminn vinn- ur D-vítamín úr sólarljósi og er talið nægilegt fyrir fólk að vera í fimm til tíu mínútur í sól- arljósi á dag. Félagslegar ástæður Áhyggjur af húðkrabbameini valda því hins vegar að foreldrar reyna að koma í veg fyrir að sólin skíni á börnin til dæmis með að nota sólarvörn með háum stuðli. Slík sól- arvörn veldur því að líkaminn nær ekki að vinna nægilegt magn af D-vítamíni úr sólar- ljósi. Nick Bishop, prófessor við Háskólann í Suffield, er einn þeirra sem rannsakað hafa þessi mál. Hann tekur undir þetta og telur beinkröm vera í sókn á ný jafnframt vegna félagslegra ástæðna. Fólk hylji líkama sinn algerlega á mörgum svæðum af trúarlegum og menningarlegum ástæðum. Mengun í andrúmsloftinu er einnig talin hafa áhrif á að beinkröm eykst, sérstaklega í Indlandi og Kína. Mengunin kemur í veg fyrir að útfjólubláir geislar sólarinnar nái til jarð- ar. Þrátt fyrir að beinkröm sé ekki faraldur fjölgar tilfellum ár frá ári og segir Bishop það eiga við út um allan heim. Læknarnir telja að með því að gefa barnshafandi konum og börnum á brjósti D-vítamín, jafnvel börn- um fram á unglingsár og hvetja fólk til að vera nokkrar mínútur á dag úti undir berum himni sé af hinu góða og geti komið í veg fyr- ir að beinkröm verði aftur alvarlegt heilsu- farsvandamál. Beinkröm eykst ár frá ári í heiminum  HEILSA D-vítamín: Mæður, sem hafa börn á brjósti, verða að gæta þess að börnin fái jafnframt hæfilegan skammt af D-vítamíni. SÚKKULAÐI, ávaxtakaka eða bakaðar baunir gætu verið ákjós- anlegur morgunverður fyrir þá sem vilja léttast, að því er haldið er fram á vefútgáfu breska blaðs- ins Evening Standard. Samkvæmt nýrri rannsókn er sykurstuðull matvæla mikilvægur mælikvarði á hvort ákveðin mat- væli eru ákjósanleg í megrunar- fæði. Því hærri sem sykurstuðull þeirra er, því hraðar sogast syk- urinn út í blóðið og því hraðar eykst matarlystin á ný. Matvæli með háum sykurstuðli eru því ekki ákjósanleg fyrir þá sem eru í megrun. Matvælin sem nefnd voru í upp- hafi hafa fremur lágan syk- urstuðul og sykurinn í þeim fer hægar út í blóðið en t.d. sykur úr hvítu brauði. Súkkulaði: Hinn besti morgun- verður eða hvað? Súkkulaði í morgunmat?  MATARÆÐI Morgunblaðið/Ásdís AÐ spjalla við konu er nóg til að testósterónframleiðsla karla aukist um allt að 30% samkvæmt nýrri könnun sem gerð var við Háskól- ann í Chicago í Bandaríkjunum. Frá þessu er m.a. greint á fréttavef BBC og Evening Standard. Karlkyns, gagnkynhneigðum stúdentum við háskólann var borg- að fyrir að taka þátt í rannsókn á efnafræðilegri samsetningu munn- vatns. Þegar þeir komu á staðinn var þar fyrir ungur kvenkyns að- stoðarmaður sem byrjaði að spjalla við þá. Rannsókn á munnvatni fyrir og eftir sýndi að framleiðsla á kyn- hormóni karla, testósteróni, jókst um allt að 30% á meðan á spjallinu stóð. Sumir stúdentanna spjölluðu við aðra karlmenn og var þá engin eða lítil breyting á hormónaframleiðsl- unni. Testósterón er nátengt kyn- hvöt karlmanna og að sögn vísinda- mannanna er þetta í fyrsta skipti sem áþreifanleg sönnun fæst fyrir því. Því hefur verið haldið fram að þegar körlum þyki konur aðlaðandi sendi heili þeirra boð til heilading- ulsins sem stýrir framleiðslu test- ósteróns. Breytingar á magni þess í líkamanum er auðveldast að mæla í munnvatni. Dr. James Roney, einn vísinda- mannanna, sagði að hormónaaukn- ingin hjá þátttakendunum hafi ver- ið tengd því hvort konunni leist vel á þá. „Ég mundi ekki segja að þeir hafi verið slefandi, en það voru greinilegar breytingar á munn- vatninu,“ segir hann í Evening Standard. Hann sagði að það væri reyndar hugsanlegt að aukin horm- ónaframleiðsla væri vegna streitu- viðbragðs. Testósterónmagn er mest í karl- mannslíkamanum upp úr tvítugu en fer minnkandi eftir það, en há- skólastúdentarnir sem tóku þátt í rannsókninni voru einmitt á aldr- inum 20–25 ára. Testósterónmagn í líkama giftra karla eða karla í lang- tímasambandi er minna en þeirra sem eru á lausu, að því er fram kemur á BBC. Spjallað og slefað  KYNHVÖT join@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.