Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 40

Morgunblaðið - 07.11.2003, Síða 40
UMRÆÐAN 40 FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Jólablað Morgunblaðsins Laugardaginn 29. nóvember 2003 Pantanafrestur fyrir augl‡singar er fyrir kl. 12.00 flri›judaginn 18. nóvember. Nánari uppl‡singar um augl‡singar og ver› veita sölu- og fljónustu fulltrúar á augl‡singadeild í síma 569 1111 e›a á augl@mbl.is Jólabla› fylgir frítt til áskrifenda. M IK ILVÆG SK ILABO‹ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S M O R 22 76 3 1 1/ 20 03 ÞEGAR mikið liggur við stendur íslenska þjóðin saman. Þá víkur dæg- urrígur, stundarþras og karp um hversdagslega hluti. Þá eigum við eina sál, eins og eitt sinn var ort um aðra þjóð á örlagastund. Við höfum sýnt hverju við fáum áork- að, þegar við tökum saman höndum og leggjum góðum málstað lið. Þá mun- ar vissulega um samtakamáttinn, en hinu skulum við heldur ekki gleyma; það munar um okkur hvert og eitt. Nú hafa samtök og félög sem hvert um sig hafa unnið ötullega í þágu góðs málstaðar ákveðið að stefna smeiginlega að einu og sama mark- miðinu. Þetta eru helstu félög og samtök sem láta sig varða hag barna með sérþarfir. Og nú kosta þau kapps um, að safna fjármunum til þess að koma upp aðstöðu og húsnæði fyrstu ráðgjafarmiðstöðvar okkar fyrir að- standendur langveikra, fatlaðra og þroskaheftra barna, sem kölluð verð- ur Sjónarhóll. Með því mun þjónusta eflast, aðstaða batna og aðstand- endum auðveldað að nýta sér þau úr- ræði sem hið öfluga íslenska heil- brigðis- og velferðarkerfi býður upp á. Þess vegna þurfa þau á okkar að- stoð og framlagi að halda. Við erum öflug og vel megandi þjóð sem vill hlúa að þeim sem eiga um sárt að binda vegna veikinda. Þar er þörf sem við viljum bæta úr. Okkur Íslendingum öllum er það fyrst og fremst ljúft að leggja okkar af mörkum til að bæta hag samlanda okkar sem þurfa stuðnings okkar við. Nú um helgina verður efnt til sann- kallaðs þjóðarátaks í þágu þessa góða málstaðar. Ég hvet alla til þess að leggja sitt af mörkum og láta þannig fagran draum rætast um aðstöðu í þágu barna sem stríða við langvarandi veikindi eða fötlun. Ljúf skylda Eftir Einar K. Guðfinnsson Höfundur er formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins. JÓNMUNDUR Guðmarsson, bæj- arstjóri á Seltjarnarnesi, svarar í Morgunblaðinu 5. nóv. grein minni sem birtist í Morg- unblaðinu daginn áð- ur. Fátt sætir þó tíð- indum í svari bæjarstjóra við grein þar sem ég leyfði mér, af marggefnu tilefni, að líkja stjórn- sýslu hans við „Villta vestrið.“ Að tala niður til fólks Bæjarstjóri neitar sem fyrr að kannast við að nokkur mistök hafi átt sér stað og telur alla gagnrýni þar um aðeins „pólitískt argaþras“, hvaðan sem hún kemur. Ekki ber sú staðhæf- ing vott um mikla virðingu fyrir sjón- armiðum áhyggjufullra foreldra á Seltjarnarnesi. Ekki verður annað séð, bæði hér og víðar, en að hann kunni mæta vel þá list að tala niður til fólks, eins og hann sakar mig um. Þrátt fyrir alla sína skrúðmælgi og á stundum kurteislegt yfirbragð er honum t.d. fyrirmunað að nefna bandalag minnihlutans á Seltjarn- arnesi réttu nafni. Listi okkar heitir Neslistinn, eins og allir vita, þó að bæjarstjórinn haldi áfram að kalla hann orðskrípinu „nlistann“. Hvorki ber það vott um virðingu hans fyrir því fara rétt með augljósar stað- reyndir né mikla kurteisi gagnvart samstarfsfólki í bæjarstjórn. Margt er mjög villandi í grein Jón- mundar og annað fullkomlega rangt. Ekki get ég ætlast til að Morg- unblaðið fari að birta einhvern fram- haldsþátt um þetta sameiningarmál skólanna á Seltjarnarnesi þannig að ekki reyni ég að leiðrétta allar rang- færslurnar hér. En víst er þetta orðið að miklu vandræðamáli í meðförum bæjarstjóra og þess meirihluta sem hann styðst við í okkar ágæta bæj- arfélagi. Það er fjarri því að vera bara mitt mat eða Neslistans, því að ýmsir flokksbræður og -systur bæjarstjór- ans hafa komið að máli við mig að fyrra bragði og lýst áhyggjum sínum yfir því hversu klaufalega hafi verið haldið á málum af hálfu bæjarstjóra og formanns skólanefndar. Fyrst og fremst eru það þó foreldrar sem hafa tjáð áhyggjur sínar og eru fjarri því að hugsa þetta mál á einhverjum póli- tískum nótum. Skynji bæjarstjóri það ekki situr hann í meiri fílabeinsturni en ég hafði haldið. Reynt að raska valdahlutföllum Að öllum líkindum hefði ég ekki séð ástæðu til að svara heldur létt- vægri grein bæjarstjóra – þrátt fyrir allar rangfærslurnar sem ég finn í henni – ef hann hefði ekki beint spurningu til okkar sem í minnihlut- anum sitja. Spurning hans var þessi: „Hvernig stendur á því að það er gjaldgengt af hálfu minnihlutans að taka þátt í starfi vinnuhóps á vegum einnar nefndar á meðan þeir bera við lagaóvissu um slíka skipan í starfi annarrar?“ Það álit hafði ég á bæjarstjóra okk- ar Seltirninga, þrátt fyrir allt sem okkur greinir á um, að um þetta aug- ljósa atriði þyrfti hann ekki að spyrja. En úr því að spurt er þá er mér ljúft að svara þar sem hann heldur því fram að í þessu felist alvarleg þver- sögn. Forsaga málsins er sú að í síð- ustu sveitarstjórnarkosningum bætti Neslistinn við sig verulegu fylgi á Sel- tjarnarnesi og fékk þrjá menn kjörna í bæjarstjórn í stað tveggja áður. Það þýddi að minnihlutinn fékk að sama skapi aukna hlutdeild í nefndum bæj- arins, t.d. tvo fulltrúa í fímm manna nefndum í stað eins áður. Þetta hefur gjörbreytt möguleikum Neslistans til að halda uppi öflugri og málefnalegri stjórnarandstöðu eins og hann hefur kappkostað að gera. Þegar hins vegar eru skipaðir vinnuhópar úr lögbundnum nefndum s.s. skólanefnd og skipulags- og mannvirkjanefnd, sem byggjast fyrst og síðast á því að fækka kjörnum fulltrúum í fagnefndum þá er auðvit- að verið að raska þeim valda- hlutföllum sem kosningarnar leiddu til. Þar með eru komin upp önnur og óhagstæðari hlutföll fyrir Neslistann í viðkomandi nefndum en úrslitin gáfu tilefni til. Tillaga meirihlutans, sem borin var upp og samþykkt af meirihlutanum, vegna sameiningar skólanna á bæjarstjórnarfundi 8. október sl. hljóðaði svo: „Bæjarstjórn feli skólanefnd að skipa tvo fulltrúa meirihluta og einn fulltrúa minni- hluta skólanefndar er annast skuli undirbúning og framkvæmd samein- ingarinnar“. Í skólanefnd eiga sæti fimm kjörnir fulltrúar, þrír frá meiri- hluta og tveir frá minnihluta. Auk þeirra eiga sæti í nefndinni með mál- frelsi og tillögurétt fulltrúar kennara, foreldra og skólastjórnenda. Þennan niðurskurð á nefndinni flokka ég und- ir hreina valdníðslu og tel að þar sé síst of fast að orði kveðið. Allt eins mætti tala um tilraun til að sniðganga lýðræðislegar niðurstöður kosninga. Í öðrum tilfellum þar sem faglega hefur verið staðið að skipan vinnu- hópa um mikilvæga málaflokka þar sem leitað er þverfaglegra sjón- armiða annarra aðila en kjörinna full- trúa höfum við fulltrúar Neslistans að sjálfsögðu ekkert séð því til fyr- irstöðu og átt frumkvæði að tilurð slíkra vinnuhópa og um það atriði gat bæjarstjóri þó vitnað í greininni án þess að halla réttu máli. Að gerast dómari í eigin sök Margt í grein bæjarstjóra, svo sem ásakanir um trúnaðarbrest, tel ég vart svaravert og ástæðulaust að orð- lengja um. Í því máli sem hann nefnir í þessu sambandi stendur hann raun- ar sjálfur mun nær því að gera sig sekan um trúnaðarbrest með því að upplýsa um sjálft innihald ákveðinnar kvörtunar sem skólanefnd hafði bor- ist. Þarna kastar hann vissulega steini úr glerhúsi sem oftar. Bæjarstjóri nefnir grein sína: „Oddviti veður reyk.“ Sjálfri finnst mér enn að líking mín um stjórn- sýsluhætti í „Villta vestrinu“ eigi við en tel að síðasta skot bæjarstjóra hafi illilega geigað í óðagotinu sem ein- kennt hefur alla framgöngu hans í þessu mjög svo viðkvæma máli. Að lokum vil ég leyfa mér að benda á að sumt er óneitanlega svo mót- sagnakennt í grein bæjarstjóra að sá lesandi sem þekkir málavexti getur vart varist brosi. Bæjarstjóri sakar mig um að „úrskurða í málum án þess að hafa mikið fyrir sér og stundum á tilbúnum forsendum.“ Þeim mun hjá- kátlegri verða niðurlagsorð greinar bæjarstjóra þar sem hann kveður einhliða upp dóm í helstu ágreinings- efnum, ber upp spurningar og svarar síðan sjálfum sér „af einurð og festu“ eins og honum einum er lagið. Talað hefur sá sem valdið hefur og kveðið upp dóm í eigin sök og ef það er ekki „stærilæti“ þá veit ég ekki hvað stærilæti er. Máttlaus skot úr fílabeinsturni bæjarstjórans Eftir Guðrúnu Helgu Brynleifsdóttur Höfundur er lögmaður og oddviti Neslistans á Seltjarnarnesi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.