Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 07.11.2003, Blaðsíða 41
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. NÓVEMBER 2003 41 ✝ Stefanía Guð-mundsdóttir fæddist í Reykjavík 20. september 1916. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir 30. október síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Finnur Guðmundsson, f. í Leirulækjarseli í Álftaneshreppi 8. júní 1870, d. í Reykjavík 18. sept- ember 1932, og Sig- ríður Stefanía Jóns- dóttir, f. á Heggsstöðum í Kolbeinsstaðahreppi 13. apríl 1881, d. í Reykjavík 25. mars 1962. Foreldrar Stefaníu bjuggu í Mýrdal Kolbeinsstaðahreppi 1901–1912 er þau brugðu búi og fluttu til Reykjavíkur. Áttu þau heimili á Bókhlöðustíg 6b alla tíð og þar ólst Stefanía upp. Hún var áttunda í röð tíu systkina, sem nú eru öll látin. Þau voru Jón, Ingimundur, Halldóra, Sig- ríður, Margrét, Ásthildur, Pálmi, Siggeir Blöndal og Jó- hanna Blöndal. Stefanía kvæntist 7. júní 1941 Guðmundi Ágúst Gíslasyni pípu- lagningameistara, f. í Reykjavík 16. ágúst 1915, d. á Rimini 18. ágúst 1983. Hann var sonur hjónanna Júlíönu Guðrúnar Gottskálksdóttur og Gísla Sæmunds- sonar úr Ölfusi. Stefanía og Guð- mundur bjuggu alla tíð í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Jörundur Svavar prentari í Reykja- vík, f. 31. mars 1941, kvæntur Önnu Vigdísi Jóns- dóttur hjúkrunar- fræðingi, þau áttu þrjú börn, en einn sonur er látinn. Fyrir á Jörundur einn son. 2) Jón pípulagninga- meistari í Grindavík, f. 8. apríl 1942, kvæntur Kristjönu Eiðs- dóttur, þau eiga þrjú börn. 3) Guðmundur Finnur pípulagn- ingameistari í Reykjavík, f. 19. apríl 1945, hann á þrjú börn. 4) Sigríður Stefanía bankafulltrúi í Reykjavík, f. 6. febrúar 1949, gift Erni Steinari Sigurðssyni verkfræðingi, þau eiga þrjú börn. 5) Gísli Sæmundur vél- stjóri við Blönduvirkjun, f. 12. mars 1953, kvæntur Þórdísi Baldursdóttur hjúkrunarfræð- ingi, þau eiga fjögur börn. Barnabarnabörn Stefaníu eru sextán. Útför Stefaníu fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Hvað bindur vorn hug við heimsins glaum, sem himnaarf skulum taka? Oss dreymir í leiðslu lífsins draum, en látumst þó allir vaka, og hryllir við dauðans dökkum straum, þó dauðinn oss megi’ ei saka. Sem kona hún lifði í trú og tryggð; það tregandi sorg skal gjalda. Við ævinnar lok ber ást og dyggð sinn ávöxtinn þúsundfalda, og ljós þeirra skín í hjartans hryggð svo hátt yfir myrkrið kalda. Sem móðir hún býr í barnsins mynd; það ber hennar ættarmerki. Svo streyma skal áfram lífsins lind, þó lokið sé hennar verki. Og víkja skal hel við garðsins grind, því guð vor, hann er sá sterki. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Hinsta kveðja. Jörundur, Anna Vigdís, Edda, Hrund og Jón Jörundur. Mig langar að minnast tengda- móður minnar, hennar Stefaníu, í nokkrum orðum. Okkar kynni hóf- ust fyrir þrjátíu árum og eru þau mér enn minnisstæð því frá upp- hafi sýndi hún mér mikinn kærleik. Stefanía var mjög hress og dug- leg kona og hennnar létta lund hjálpaði henni í gegnum marga erf- iðleika á lífsleiðinni. Hún lá ekki á skoðunum sínum, en gat alltaf séð góðu hliðarnar á hlutunum. Hún var mjög myndarleg húsmóðir og var heimili hennar alltaf hreint og fínt og hún naut þess á efri árum að geta prýtt heimilið en alltaf fann maður að börnin og barnabörnin voru innilega velkomin á hennar heimili og hún naut þess að fá að hafa barnabörnin hjá sér, þau voru hennar líf og yndi og hún fylgdist grannt með þeim öllum. Stefanía var alltaf tilbúin að rétta hjálp- arhönd ef börnin og barnabörnin þurftu og oft var gist hjá ömmu á Hjaltabakka og eiga barnabörnin mikið af góðum minningum þaðan. Hin síðari ár kom Stefanía oft til okkar á sumrin á Blönduós og allt- af var hún gleðigjafi og börnunum fannst gaman að hafa ömmu. Ég vil þakka fyrir þau ár sem ég þekkti Stefaníu, þakka vináttu góðrar konu. Blessuð sé minning hennar. Þórdís Baldursdóttir. Stebba frænka er farin og þurfti það ekki að koma á óvart þar sem ég hafði heimsótt hana á Hjúkr- unarheimilið Eir daginn áður en hún kvaddi og augljóst var að hún þráði hvíldina. Þrátt fyrir það fylgir mikill söknuður þegar um svo náinn ættingja er að ræða. Frænka, eins og ég kallaði hana oftast, var hin eina sanna frænka fyrir mér. Hún var vissulega búin að skila sínu og kvaddi þennan heim með stolti og léttri lund. Stolt yfir börnum og barnabörnum sem hún iðulega sýndi mér myndir af þegar ég heimsótti hana á Eir. Það er ekki síst hennar létta lund sem situr greipt í minninguna þegar ég hugsa til baka og rifja upp þá tíma sem ég átti hjá frænku og frænda. Skyldleikinn er eins og mest getur orðið þegar bræður giftast systr- um, en það átti við um foreldra mína Sæmund og Jóhönnu og Gumma og Stebbu. Það var því nærtækt að ég færi í „pössun“ á Tryggvagötuna þar sem Stebba og Gummi bjuggu áður, þegar foreldr- ar mínir þurftu á slíku að halda. Það var tilhlökkunarefni fyrir mig að fá að vera hjá þeim þar sem ég naut hlýju þeirra og samveru við Gísla Sæmund, stóra frænda og hans félaga. Þarna fékk ég að sofa í efri koju og út um gluggann var út- sýni á bryggjuna þar sem bátarnir lönduðu. Ég man eftir miklum gestagangi á Tryggvagötunni þar sem ófáar vinkonur frænku komu við og fengu „tíu dropa“ af kaffi eins og sagt var. Það var ekki til- tökumál að „hella uppá“ eina könnu í viðbót þegar gesti bar að. Frænka og frændi komu oftar en ekki í heimsókn og kvöldkaffi í Safamýrina þar sem foreldrar mín- ir bjuggu og var þá mikið spjallað. Fyrir mér voru frænka og frændi afar samrýnd hjón, en þó nokkuð ólík. Gummi frændi var ekki marg- máll maður en nærveru hans fylgdi mikil ró og friður. Stebba hafði að sama skapi meiri þörf fyrir að tala og lét skoðanir sínar blátt áfram í ljósi. Guðmundur Ágúst (Gummi) andaðist sumarið 1983. Þrátt fyrir mikinn söknuð á einstökum lífs- förunauti bar Stebba frænka sig vel enda var hennar vel gætt af stórri fjölskyldu barna og barna- barna sem voru hennar yndi. Elsku frænka, ég kveð þig með söknuði, en jafnframt mikilli gleði yfir góðum stundum og þeim minn- ingum sem ég geymi með mér um þig og frænda. Börnum og barnabörnum Stef- aníu votta ég og fjölskylda mín dýpstu samúð. Þinn frændi, Gísli Sæmundsson. Okkur langar í örfáum orðum að minnast móðursystur okkar, Stef- aníu Guðmundsdóttur, sem andað- ist 30. október síðastliðinn. Stebba frænka, eins og við kölluðum hana, var sérlega kát og skemmtileg kona og ákaflega gestrisin. Þær voru margar ferðirnar sem við átt- um á Tryggvagötuna og fengum að gista hjá þeim sæmdarhjónum Stebbu og Guðmundi. Alltaf var okkur tekið opnum örmum af hlýju og vinsemd, þótt húsakynnin væru þröng og þau hjón með fimm börn. Alltaf virtist vera nóg rými til að bæta við gestum, þannig að vel fór um alla. Þar sem við systurnar bjuggum úti á landi hjá foreldrum okkar, nánar tiltekið í Ólafsvk, þá var það okkur mikils virði að eiga þessa góðu frænku að þegar við þurftum að fara ýmissa erinda til Reykjavíkur, fyrst með móður okk- ar og seinna á eigin vegum. Nota- legheitin sem við urðum aðnjótandi á heimili Stebbu og Guðmundar munum við ætíð geyma í minning- unni. Hvíl þú í friði, elsku frænka. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (Vald. Briem.) Við vottum öllum ættingjum Stefaníu okkar dýpstu samúð. Sigríður, Inga Svava og Aldís Alfonsdætur. Elskuleg amma okkar, hún Stef- anía sem við kölluðum alltaf Desu ömmu, er farin frá okkur. Okkur langar því að minnast hennar með nokkrum orðum. Hún amma Desa var svo góð og hlý. Það var alltaf gaman að koma til ömmu þegar við vorum yngri í Hjaltabakkann því amma dekraði við okkur. Þar feng- um við ýmislegt að borða sem við fengum ekki heima hjá okkur eins og kókópuffs. Hjá ömmu var oft brugðið á leik og þá var stofan her- tekin, þar sem viskustykkjaleikur og fegurðarsamkeppnir fóru fram. Það var alltaf svo fínt heima hjá ömmu en hún leyfði okkur samt að leika okkur eins og við vildum, svo framarlega sem við tókum til eftir okkur. Við eigum eftir að sakna ömmu Desu mikið, en við vitum að hún er á góðum stað núna, sátt hjá honum Gumma afa. Minning hennar mun ávallt vera hjá okkur. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Þín barnabörn Arndís, Halla, Rannveig og Stefán Örn. Mig langar að minnast tengda- móður minnar, hennar Stefaníu, í nokkrum orðum. Okkar kynni hóf- ust fyrir þrjátíu árum og eru þau mér enn minnistæð því frá upphafi sýndi hún mér mikinn kærleik. Stefanía var mjög hress og dug- leg kona og hennnar létta lund hjálpaði henni í gegnum marga erf- iðleika á lífsleiðinni. Hún lá ekki á skoðunum sínum, en gat alltaf séð góðu hliðarnar á hlutunum. Hún var mjög mindarleg húsmóðir og var heimili hennar alltaf hreint og fínt og hún naut þess á efri árum að geta prýtt heimilið en alltaf fann maður að börnin og barnabörnin voru innilega velkomin á hennar heimili og hún naut þess að fá að hafa barnabörnin hjá sér, þau voru hennar líf og yndi og hún fylgdist grannt með þeim öllum. Stefanía var alltaf tilbúin að rétta hjálp- arhönd ef börnin og barnabörnin þurftu og oft vargist hjá ömmu á Hjaltabakka og eiga barnabörnin mikið af góðum minningum þaðan. Hin síðari á kom Stefanía oft til okkar á sumrin á Blönduós og allt- af var hún gleðigjafi og börnin fannst gaman að hafa ömmu. Ég vil þakka fyrir þau ár sem ég þekkti Stefaníu, þakka vináttu góðrar konu. Blessuð sé minning hennar Þórdís Baldursdóttir. Stefanía Guðmundsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Eiri fimmtu- daginn 30. október síðastliðinn. Það kom mér ekki á óvart, er tengdasonur minn, Gísli, hringdi í mig sama morgun og tilkynnti mér lát móður sinnar, hún hafði haft við vanheilsu að stríða um langan tíma. Ég finn mig knúinn til að setja nokkur orð á blað í minningu Stef- aníu, þó sjaldan hafi ég verið jafn illa undirbúinn til slíks og nú, sök- um fáfræði um hennar lífshlaup. Þó skal reynt að koma því á blað, er ég veit, þótt fátæklegt sé. Ég kynntist Stefaníu og Guð- mundi, manni hennar, fyrst, er sonur þeirra, Gísli, og dóttir mín, Þórdís, fóru að draga sig saman, en nokkur ár eru liðin síðan og varð hjónaband úr, sem gaf Stefaníu 4 barnabörn. Samskipti okkar voru strjál í upphafi, aðallega í sambandi við af- mæli og aðrar hátíðarstundir fjöl- skyldnanna, en þar var ég mjög oft fjarverandi sökum starfs míns. Eftir að Guðmundur, maður hennar, dó, urðu þessi samskipti strjálli er tímar liðu. Hún missti heilsuna eftir að hafa búið ein um það bil sjö ár og fluttist þá að hjúkrunarheimilinu Eiri, þar eð hún gat ekki lengur séð um sig sjálf. Var hún ein af þeim fyrstu, er þar fluttust inn. En þetta er jú bara eins og lífið býður uppá, stutt kynning, en svo skiljast leiðir vegna óviðráðanlegra orsaka. En þrátt fyrir allt of litla per- sónulega kynningu náði ég þó nokkuð að þekkja og meta Stefaníu vel. Frá upphafi skein hennar létta lund og geislandi lífskraftur í gegn, sem ekki var hægt annað en dáðst að. Ég lærði aðeins hennar lífs- hlaup, sem svo sannarlega var ekki alltaf rósum stráð. Guðmundur og hún eignuðust fljótlega fimm börn, eina stúlku og fjóra drengi. Fyrstu árin starfaði Guðmundur við venjulega verka- mannavinnu, við uppskipun o.fl. Það kom eðlilega í hlut Stefaníu að hugsa um heimilið og börnin, sem hefur ekki verið létt verk út af fyr- ir sig. En Stefanía lét ekki deigan síga, heldur bætti við tekjurnar með því að taka að sér þrifnað á skrifstofum á kvöldin. Guðmundi bauðst þá tækifæri til að nema pípulagnir, eftir að hafa hlotið starf hjá pípulagningameist- ara. Greip hann tækifærið, en til þess þurfti mikinn kjark, því lærlingakaup var þá ekki hátt, ef mig grunar rétt. Stór fjölskylda þurfti sitt, og nú dugði ekkert nema samheldnin, útsjónarsemi og fórnfýsi. Stefanía hélt áfram að leggja sitt til með kvöldvinnunni. En svo kom reiðarslagið. Stef- anía greindist með alvarlegan sjúk- dóm og var send til Svíþjóðar til geislameðferðar. Meðferðin tókst og hún sneri brátt heim og tók fljótlega upp fyrri iðju við að sjá um heimilið og vinna úti. Hún var þó restina af lífinu þjáð af auka- verkunum geislameðferðarinnar, sem voru ófullkomnar á þeim tíma. En erfiðleikum tók að linna eftir að Guðmundur lauk prófi og tók að vinna sem pípulagningamaður. Ég þekkti þau hjón ekki þessa tíma, en ég efa ekki að smitandi hlátur Stef- aníu hefur hljómað þá eins og hann gerði á síðari árum er ég kynntist henni. Ekkert virtist buga hana, sama létta skapið og kjarkurinn hefur ekki brugðist henni fyrstu árin, fremur en þau síðari, er hún hafði fengið þau áföll, er bundu hana við hjólastól sökum lömunar og gerði henni erfitt með að tjá sig. Ég var svo lánsamur, að geta tekið á móti henni á heimili mínu af og til, er hún var í heimsókn hjá Gísla, syni sínum, á Blönduósi síð- ari árin, en þangað höfðum við hjónin flutt um tíma. Hún kom glöð og fór glöð, hress og stolt, þó þreytt væri orðin og þyrfti á hjálp að halda við flest. Í mínum huga erum við hér að kveðja eina af hetjum hins daglega lífs, sem fáir vissu um, utan þeir nánustu, kvenskörung með vík- ingablóð í æðum. Hún var lítil vexti, en stór í anda og framkvæmd, sem aldrei lét bug- ast fyrr en að lokum fyrir þeim æðsta Drottni okkar, sem gefur og tekur af sínum óskeikula vilja. Drottinn blessi sálu Stefaníu um eilífð. Ég votta öllum aðstandendum einlæga samúð. Baldur G. Bjarnasen. Hún Stebba frænka var systir hennar mömmu og mennirnir þeirra voru bræður. Eins og nærri má geta voru náin tengsl á milli fjölskyldna okkar frá fyrstu tíð. Við minnumst hennar með hlýju og erum þakklát fyrir að hafa fengið að njóta nærveru hennar um langt árabil. Hún var glaðlynd að eðl- isfari og gott að vera nálægt henni. Fátt mannlegt var henni óviðkom- andi og þrátt fyrir erfið veikindi hin síðustu ár tókst henni ávallt að finna jákvæða hluti á tilverunni. Hún var auðug af afkomendum, sem nú bíður það hlutverk að halda minningu hennar í hjarta sínu og takast á við það erfiða hlutskipti, sem fylgir því að missa ástvin. Öllum aðstandendum sendum við hugheilar samúðarkveðjur og biðj- um þann sem öllu ræður að veita þeim huggun. Hvíl í friði, elsku Stebba. Magnús Sæmundsson, Svandís Egilsdóttir, Sæmundur Andri Magnússon, Daníel Arnar Magnússon, Gísli Aron Magnússon, Gissur Atli Sigurðarson. STEFANÍA GUÐMUNDSDÓTTIR Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KARL ÁRNASON, Kambi, Reykhólasveit, lést miðvikudaginn 5. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Unnur Halldórsdóttir, Guðbjörg Karlsdóttir, Kristján Magnússon, Jóhanna Karlsdóttir, Karl Bjarnason, Sumarliði Karlsson, Guðlaug Óskarsdóttir, Sigrún Karlsdóttir, Hafsteinn Runólfsson, Halldór Karlsson, Sæbjörg Jónsdóttir, Björgvin Karlsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Kristín Haraldsdóttir, Gísli Óskarsson, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.